Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Page 10
„Með greiðslujöfnuninni ertu í raun
að taka hluta af láninu aftur að láni.
Þú tekur að láni mismuninn á mán-
aðarlegri greiðslubyrði nú og því
sem hún var í janúar 2008,“ útskýrir
Ingólfur H. Ingólfsson, fjármálaráð-
gjafi og eigandi spara.is.
Allir þeir sem eiga verðtryggð
fasteignaveðlán verða sjálfkrafa sett-
ir í skuldaaðlögun. Í því felst að mán-
aðarleg greiðslubyrði lánsins verður
færð aftur til þess sem hún var í jan-
úar 2008, eða fyrir hrun, en mismun-
urinn safnast fyrir á söfnunarreikn-
ingi sem greiðist í lok lánstímans.
Lán getur að hámarki lengst um þrjú
ár en eftir að sá tími er liðinn verða
hugsanlegar eftirstöðvar afskrifaðar.
Fresturinn til að segja sig frá greiðslu-
jöfnun rennur út 20. nóvember. Fólk
getur engu að síður sótt um greiðslu-
jöfnun síðar.
Þeir sem hafa erlend fasteigna-
veðlán og þeir sem hafa gert bíla-
samninga eða tekið bílalán í erlendri
mynt þurfa að sækja sérstaklega um
greiðslujöfnun. Það geta þeir gert
hvenær sem er.
Tvenns konar áhætta
Ingólfur segir að greiðslujöfnun sé
ein leið til að lækka greiðslubyrði en
til séu aðrar leiðir til þess. „Áhrifa-
ríkasta leiðin er að frysta lánin. Sá
möguleiki er opinn eftir að stjórn-
völd gerðu samninga við fjármála-
stofnanir um að þeir beittu svipuð-
um greiðsluerfiðleikaúrræðum og
Íbúðalánasjóður. Eitt af úrræðunum
var að frysta lánin í allt að þrjú ár,“
segir Ingólfur.
Aðspurður segir hann að greiðslu-
jöfnunarleiðin sé dýr. Verðtryggðu
lánin hlaði á sig vöxtum og verðbót-
um og lánstíminn lengist. Ingólfur
segir enn fremur að með greiðslu-
jöfnun sé fólk að taka tvenns konar
áhættu. Annars vegar felist áhætta í
verðbótunum sem leggist á höfuð-
stólinn vegna verðbólgu. Hins vegar
Minni
upplýsingar
Neytendasamtökin hvetja olíufé-
lögin til að taka upp fyrri starfs-
hætti og birta á heimasíðum
sínum verð á eldsneyti á öllum
stöðvum sem þau reka. Frá árinu
2004 hefur dregið úr miðlun upp-
lýsinga á bensínverði á netinu.
Á þeim tíma birtu öll olíufélög-
in á heimasíðum sínum verð á
einstökum stöðvum nema Olís,
sem birti eingöngu verð á stærstu
stöðvunum. N1 fylgdi í kjölfarið
og birti aðeins algengasta verð-
ið en nú birtir N1 aðeins lægsta
verðið. Olís fylgdi á eftir og nú
síðast Shell, að því er kemur fram
á heimasíðu samtakanna. Þetta
harma Neytendasamtökin. Þess
má geta að Orkan, Atlantsolía og
ÓB birta verð á öllum stöðvum.
skilar bílnuM
eða borgar
hann
Avant, Íslandsbanki, Lýsing,
SP-Fjármögnun og Trygginga-
miðstöðin gerðu á dögun-
um samkomulag um beitingu
greiðslujöfnunar fyrir verðtryggð
bílalán og bílasamninga einstakl-
inga og bílalán og bílasamninga
einstaklinga í erlendri mynt. Í
því felst að greiðslubyrði láns-
ins er miðuð við greiðslubyrð-
ina eins og hún var í maí 2008.
Hún breytist svo í samræmi við
greiðslujöfnunarvísitölu, sem
fylgir almennri þróun á tekjum
og atvinnustigi í landinu. Lánið
getur að hármarki lengst um þrjú
ár en að þeim tíma loknum geta
lántakendur skilað bílnum eða
borgað upp rest.
n Viðskiptavinur World
Class, kona sem er
komin sjö mánuði á
leið, fékk þau svör að
ekki væri hægt að
leggja inn kortið nema
vottorð frá lækni sýndi
að hún mætti ekki stunda
líkamsrækt. Afgreiðslukonan
bætti því með þjósti að konan
gæti vel stundað líkamsrækt þótt
hún
væri ólétt.
n Lofið fær Nesbón, Bygggörðum 5,
Seltjarnarnesi. Viðskiptavinur fór með
drulluskítugan og illa lyktandi bíl í
alþrif (að innan sem utan) og
fékk hann sem nýjan til baka.
Rúsínan í pylsuendanum var
verðið. Gjaldið var aðeins sex
þúsund krónur fyrir venjulegan
fólksbíl.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 185,2 kr. verð á lítra 188,2 kr.
skeifunni verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 183,4 kr.
algengt verð verð á lítra 188,7 kr. verð á lítra 185,9 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 183,8 kr. verð á lítra 181,1 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 183,4 kr.
algengt verð verð á lítra 188,2 kr. verð á lítra 185,4 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
10 MiðvikuDagur 11. nóvember 2009 neytenDur
sé áhætta vegna þróunar launa og at-
vinnustigs en afborganir þeirra sem
fara greiðslujöfnunarleiðina verða
tengdar við almenna launaþróun og
atvinnustig. Ef til dæmis laun stórra
stétta í samfélaginu hækka verður
það til þess að afborganir lána hjá
öllum lántakendum þyngjast.
Launin hækka meira
Launavísitala hefur hækkað meira en
vísitala neysluverðs ef horft er til síð-
ustu 20 ára. Frá janúar 1989 til janúar
2009 hafa laun hækkað um 255 pró-
sent. Vísitala neysluverðs, sem hef-
ur hingað til stýrt því hversu mikið
lánin hækka, hef- ur á sama tímabili
hækk- að
um
Úrræði árna páls:
„Varanleg fátækt“
Ingólfur H. Ingólfsson hjá spara.is segir að greiðsluaðlögun ríkisstjórnarinnar þýði
að fjármálastofnanir verði áskrifendur að launahækkunum. Hann hvetur fólk, sem
ræður við greiðslunar nú, til að þrauka.
Útreikningar Ingólfs H.
Ingólfssonar hjá spara.is
Almennar forsendur:
Verðtryggt jafngreiðslulán kr. 15.000.000 tekið í september 2007 til 40 ára með
5,10% vöxtum. Lánið er sett í greiðslujöfnun. Verðbólga næstu 12 mánuði er
áætluð 8% en eftir það að jafnaði 4% út lánstímann.
Dæmi I
Breyting launavísitölu er 3% á ári.
Heildargreiðsla án greiðslujöfnunar: 103,2 milljónir kr.
Heildargreiðsla með greiðslujöfnun: 75,4 milljónir kr.
lánstími lengist um 3 ár.
Afskriftarupphæð í lok greiðslujöfnunar: 219,6 milljónir kr.
(Í þessu dæmi eru tæpar 220 milljóna króna eftirstöðvar lánsins afskrifaðar vegna
þess að laun hækkuðu alltaf minna en verðlag, fátækt jókst, og því var ekki hægt
að greiða upp lánið og verður ekki hægt því að síðustu mánuðina er lánið að
hækka inni á jöfnunarreikningum um ríflega eina milljón á mánuði, aðallega
vegna verðbóta.)
Dæmi II
Breyting launavísitölu er 4% á ári.
Heildargreiðsla án greiðslujöfnunar: 103,2 milljónir kr.
Heildargreiðsla með greiðslujöfnun: 96,1 milljón kr.
lánstími lengist um 3 ár.
Afskriftarupphæð í lok greiðslujöfnunar: 141,7 milljónir kr.
(Þrátt fyrir að launaþróun sé jöfn verðlagshækkunum, 4%, bætist alltaf aðeins við
jöfnunarreikninginn og ofan á hann reiknast svo vextir og verðbætur.)
Dæmi III
Breyting launavísitölu er 6% á ári.
Heildargreiðsla án greiðslujöfnunar: 103,2 milljónir kr.
Heildargreiðsla með greiðslujöfnun: 110,9 milljónir kr.
lánstími lengist um 0 ár.
afborgun í greiðslujöfnun verður jöfn afborgun án greiðslujöfnunar 1. ágúst 2021
Greiðslujöfnunarreikningur tæmist 1. nóvember 2038
(Hækki launavísitala meira en verðlag, sem við skulum vona að gerist, þá verður
greiðslujöfnunarlánið dýrara heldur en ef það hefði verið óbreytt og mánaðarleg-
ar greiðslur hærri í 17 ár, frá miðju ári 2021 til ársloka 2038.)
4,
5%
250%
200%
150%
100%
50%
0%
Skammtímalausn við greiðsluvanda
Mismunandi greiðslubyrði lána eftir því hvort lánið er tengt
greiðslujöfnunarvísitölu eða vísitölu neysluverðs.
Árið 2013 verður greiðslubyrði þeirra sem þiggja greiðslujöfnun lána
orðin hærri en þeir sem segja sig frá henni. Þetta miðast við að spár
Fjármálaráðuneytisins um atvinnustig, launaþróun og verðbólgu nái
fram að ganga og við taki meðaltalsþróun undanfarinna 20 ára.
Byggt á fe.is, stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í reykjavík.
2009 2011 2013 2015 2017 2019 2021 2023 2025 2027
Greiðslujöfnunarvísitala
Vísitala neysluverðs
(verðtrygging)