Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 16
 Miðvikudagur 11. nóvember 200916 Bækur Ævisaga/samtalsBók Í bÍl með goðsögn Magnús Eiríksson er einn af stóru höfundunum í sögu ís- lenskrar dægurtónlistar. Listi þeirra laga hans sem notið hafa mikilla vinsælda er lang- ur og reyndar nær orðið „vin- sælt“ vart utan um þær hæðir sem sum þeirra hafa náð, svo elskuð og dáð er þau af þjóð- inni. Magnús hefur líka lif- að litríku lífi og því að mörgu leyti ótrúlegt að ævisaga hans hafi ekki verið skrifuð fyrr en nú. Skýringuna á því er að finna á upphafssíðum bókar- innar Reyndu aftur og helgast meðal annars af hlédrægni tónlistarmannsins. Í viðtali við DV nýver- ið sagði Magnús líka eina aðalástæðuna vera þá að einhverjum gæti dottið í hug að skrifa ævisögu hans þegar hann væri allur. Þegar hann fór að hugsa betur út í það fannst honum betra að hafa hönd í bagga með slík skrif á meðan hann væri enn á lífi. Það er ánægjulegt að Magnús skyldi taka þessa ákvörðun. Að lesa samtal þeirra Tómasar Hermannssonar skrásetjara, akandi um þéttbýli og sveitir landsins, er nefnilega fín skemmtun. Maður þeys- ist áfram í lestrinum líkt og maður sé staddur í bíl á fullri ferð niður bratta brekku. Brekkurnar sem orðið hafa á vegi Magnúsar eru líka nokkrar. Og sumar býsna brattar. Magnús er ekkert að fegra hlutina of mikið, er ekki að reyna að teikna upp glansmynd af sér og er ekki upptekinn af því að líta gáfumannalega út. Er það einn af aðalkostum bókarinnar. Sá fróðleikur sem maður fær um ákveðinn kafla í sögu ís- lenskrar dægurlagatónlistar, og innsýnin inn í hljómsveitarbransann þegar sukkið var hvað mest, er líka stór plús við bókina. Flæði samtalsins er gott þó að á stöku stað komi spurning sem er svolítið skrítið að fylgi á eftir því sem Magnús var að enda við að segja. En þau tilvik eru teljandi á fingrum annarrar handar. Hrá sam- tölin í bílnum virðast líka að miklu leyti fara á prent eins og þau fóru inn á upptökutækið. Og það er lykilatriði til að njóta lestursins að taka bókinni sem samtalsbók en ekki hefðbundinni ævisögu, þrátt fyrir að það orð sé notað í undirtitli. Og þar sem verkið er meira í ætt við samtalsbók en ævisögu er ekki hægt krefjast þess að nafnaskrá sé aftast, en það hefði verið góð og þakklát viðbót. Hins vegar fylgir skrá yfir þær fjölmörgu plötur sem Magnús hefur komið að sem flytjandi og er það vel. Kristján Hrafn guðmundsson reyndu aftur – Ævisaga magnúsar eirÍKssonar tónlistarmanns tómas HermannssonFróðleg og skemmtileg frásögn goð- sagnar í sögu íslenskrar dægurlaga- tónlistar. Útgefandi: sögur útgáfa Fyrri dómar Harmur englanna Eftir Jón Kalman Stefánsson Ævintýraeyjan Eftir Ármann Þorvaldsson Hrunið Eftir Guðna Th. Jóhannesson HvÍta bóKin Eftir Einar Má Guðmundsson sofandi að feigðarósi Eftir Ólaf Arnarson ÍslensKa efnaHagsundrið: flugeldaHagfrÆði fyrir byrjendur Eftir Jón Fjörni Thoroddsen svartbóK Kommúnismans Eftir Stéphane Courtois, Nicolas Werth, Jean-Louis Panné o.fl. stúlKan sem léK sér að eldinum Eftir Stieg Larsson laura og julio Eftir Juan José Millás Heitar laugar á Íslandi Eftir Jón G. Snæland og Þóru Sigur- björnsdóttur Það liggur Í loftinu Eftir Jónas Jónasson matsveppir Í náttúru Íslands Eftir Ásu Margréti Ásgrímsdóttur svörtuloft Eftir Arnald Indriðason alltaf sama sagan Eftir Þórarin Eldjárn jón leifs – lÍf Í tónum Eftir Árna Heimi Ingólfsson Himinninn yfir Þingvöllum Eftir Steinar Braga paradÍsarborgin Eftir Óttar Norðfjörð frjáls og óHáður Eftir Jónas Kristjánsson Ævisaga einars benediKtssonar Eftir Einar Benediktsson fölsK nóta Eftir Ragnar Jónasson saga viðsKiptaráðu- neytisins 1939–1994 Eftir Hugrúnu Ösp Reynisdóttur Mikael Torfason skeiðar á ný fram á ritvöllinn með bók- inni Vormenn Íslands sem kom út á dögunum. Sjö ár eru síðan síðasta bók hans kom út, Samúel, og í millitíðinni lét Mikael mikið að sér kveða í blaðaútgáfu, var meðal ann- ars ritstjóri DV eins og frægt varð og tók þátt í að koma frí- blaðinu Nyhedsavisen á laggirnar í Danmörku. Bókaskrif- in voru nokkuð gjöful mið fyrir Mikael á sínum tíma, hann fékk útgáfusamning í nokkrum löndum og tilnefningar til bókmenntaverðlauna, og nú fær skáldskapurinn aftur að komast að í lífi hans, sem á höfundinum er að heyra í við- tölum, er hans aðalástríða. Í nýju bókinni er söguhetjan gjaldþrota útrásarvíking- ur, Birgir Thorlacius að nafni, sem er 39 ára gamall og ný- skilinn við konu sína, sjónvarpsstjörnuna Önnu. Birgir er alinn upp í Fellahverfi og þegar sagan hefst er hann ný- fluttur aftur þangað, heim til afa síns, eftir að hafa búið árin á undan við mikinn íburð í Vesturbænum að útrás- arvíkinga sið. Og það verður þröngt á þingi á heimili afa gamla því stuttu seinna flytja bæði faðir Birgis og fimmt- án ára gamall sonur einnig inn á heimilið. Birgir er mjög agaður maður – „duglegur, öfgafullur og hrokafullur“ – og náði góðum árangri í íslensku viðskiptalífi á góðærisárun- um sem nýverið runnu sitt skeið. Hann er með BA-próf í lögfræði (reyndar alltaf talað um BS-próf í bókinni, hvort sem það er villa eða viljandi haft rangt hjá sögumanni) og hafði því ræst lygilega vel úr „Fellavillingnum“ og vand- ræðaunglingnum sem alinn var upp hjá afa sínum og ömmu eftir að móðir Birgis lést og faðir hans gerði Bakkus að sínum besta vini. Í upphafi bókar hefur Birgir náð sér í lungnakrabba og er einnig plagaður af þeim bagga sem fylgir nánum sam- vistum við alkóhólista en hefur tekið skrefið í átt að bata með því að stunda prógramm Al-Anon. Enn fremur er Birgir að taka út dóm vegna fjársvika sem hann varð upp- vís að þegar hann sat í stjórn sem bar ábyrgð á byggingu barnaspítala. Refsingin hljóðaði upp á samfélagsþjón- ustu á hjúkrunarheimili þrisvar í viku í þrjú ár. Það sem plagar Birgi þó meira en baráttan við banvænan sjúk- dóm og sú kvöð að þurfa að baða gamalt fólk og skúra gólf reglulega næstu árin er óvissan um hvernig andlát móð- ur hans þrjátíu árum áður bar að. Í skjölum lögregluyfir- valda var dauði hennar skráður sem sjálfsmorð en Birgir hefur ástæðu til að efast um sannleikann í því. Til greina kemur jafnvel í huga hans að hann sjálfur hafi orðið hinni áfengissjúku móður sinni að aldurtila, hann var viðstadd- ur hörmungarnar en var bara svo ungur, einungis sex ára. Á þessum tímamótum í lífi sínu ákeður Birgir að reyna að komast til botns í málinu um leið og hann tekst á við að- stæður sínar, vini, ættingja og drauga fortíðar. Vormenn Íslands virkar á mann að mörgu leyti sem uppgjör Mikaels við ákveðið tímabil í lífi sínu. Sögumað- urinn, nafnlaus æskuvinur Birgis, er rithöfundur og fyrr- verandi ritstjóri Dagblaðsins sem synti á móti straumn- um í ýmsum málum í ritstjóratíð sinni. Erfitt er því fyrir lesanda að sjá Mikael ekki fyrir sér í þeim karakter. Einnig má sjá glitta í höfundinn í persónu útrásarvíkingsins og Fellastráksins Birgis en Mikael er sjálfur alinn upp í Efra- Breiðholti og tók sjálfur lítillega þátt í útrásarævintýrinu með fyrrgreindri tilraun til að koma á fót dagblaði í Dan- mörku auk þess sem hann vann skýrslur fyrir háttsetta menn í Baugsveldinu um möguleika á frekari landvinn- ingum á danskri grundu. Birgir var heldur ekki eiginleg- ur útrásarvíkingur – „meiri svona reddari útrásarvíking- anna“ (bls. 73). Eins og áður hefur sést í bókum Mikaels er söguhetjan andhetja. Og eins og til dæmis í síðustu bók höfundarins, Samúel, finn ég ekki til með þessari persónu. Það skiptir öllu máli að það gerist til að maður hrífist af bókinni þar sem söguhetjan er jú yfir og allt um kring í sögunni. En það gerðist einfaldlega ekki, og hef ég þó búið í Breiðholti (reyndar ekki Fellahverfi) og haft náin kynni af alkóhól- isma og bölinu sem honum fylgir. Þetta tengsla- og sam- kenndarleysi við Birgi er því aðalgalli bókarinnar. Um leið verður eftirvæntingin eftir því að vita hvernig í pottinn var búið með andlát móður útrásarvíkingsins lítil sem engin. Einn plús við bókina á hinn bóginn er að Mikael hef- ur skrúfað niður í bersöglum og tilgangslitlum lýsingum á hinu og þessu. Hann er orðinn heflaðri, dembir ekki ein- hverju miður fallegu framan í lesendur sem ógreinilegt er að þjóni miklum tilgangi, og er því orðinn þroskaðri höf- undur að því leyti. En hins vegar vantar meira líf í frásögn- ina. Textinn er afskaplega kaldur, steríll og skýrslulegur. Hér er eitt dæmi: „Biggi sagði alltaf að mamma sín hefði verið myrt. Þegar við vorum krakkar. En ég hugsa að hann hafi ekki alltaf vitað hvernig hún var myrt. Stundum lok- aði hann á það. Enda var hann alltaf leiðréttur. Það trúði honum enginn. Flestir krakkarnir í hverfinu, ég nefni eng- in nöfn, héldu því fram að Ester hefði framið sjálfsmorð. Það sögðu foreldrar þeirra.“ Hægt væri að taka miklu fleiri dæmi en ég læt þetta duga. Og það skilur eftir spurning- una: ætti Mikael kannski frekar að leyfa kraftinum og kjaftavaðlinum sem einkenndi fyrri bækur að gusast út? Ýmislegt í bókinni er mjög íslenskt og satt, til dæm- is hvað alkóhólismi og meðvirkni eitra heilu ættirnar og hvernig viðhorf og erfiðleikar í samvist Íslendinga með innflytjendum er staðreynd og má vissulega leita skýringa á þessum vandamálum fyrir fjölmenningarsamfélagið til að dafna hér á landi í því að við vorum tiltölulega einangr- að og lokað land í yfir þúsund ár (82). Tvískinnungurinn í þjóðarsálinni er enn einn lösturinn á íslensku samfélagi sem höfundur nefnir til sögunnar (86) og enn fremur fær dómskerfið, til að mynda þeir vægu dómar sem þar við- gangast í alltof mörgum tilvikum, sneið frá Mikael (124- 125). En þrátt fyrir að svona sannleikskorn séu í bókinni, sannleikur sem er þó ekkert nýjar fréttir, og höfundurinn láti þjóð sína svolítið heyra það í ádeiluskotnum textan- um, þá nægir það vitaskuld ekki til að hífa bókina upp úr meðalmennskunni. Kristján Hrafn guðmundsson Steríl harmsaga útrásarvíkings skáldsaga vormenn Íslands mikael torfason Steríl harm- saga gjald- þrota útrás- arvíkings sem lesandi hefur litla samúð með. Útgefandi: sögur útgáfa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.