Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 22
Alls voru gefin út 25 hefti af Íslenskri fyndni um miðbik síðustu aldar. Til eru þeir sem veltast um úr hlátri yfir húmornum í þessum ritum, aðallega þó vegna þess hve illa hann hefur staðist tímans tönn. Svarthöfði hefur einstakt yndi af lestri þessara bóka. En nú hefur skyndilega hlaupið á snærið hjá áhugamönnum um þessa gerð af gamanmálum. Staksteinar og leiðar- ar Morgunblaðsins eru um þess- ar mundir skrifaðir í anda þessarar sérstöku íslensku bókmenntahefðar. Þetta er nútíma íslensk fyndni. Sumir tala um aulafyndni en það er ósann- gjarnt, þetta er snilld. Hér skulu tek- in fjögur nýleg dæmi um sígilda gam- ansemi hins nýja ritstjóra Moggans: Fluttur hefur verið inn þing-maður Möltu á Evrópuþing-inu. Á hinu Evrópumeð-vitaða Ríkisútvarpi er þessi ferð meðhöndluð sem stóratburður. Aðalverkefni þessa góða gests er að fræða Íslendinga um hve gífurleg áhrif einn Evrópuþingmaður af rúmlega sjö hundruð getur haft ... Þingmað- urinn sagði að Malta hefði fengið 77 undanþágur. Það hafði verið upplýst að Malta hefði fengið undanþágur varðandi sardínur, en það var ekki vit- að fyrr að þær hefðu verið 77. Þannig að þetta er rétt mat hjá RUVEU. Þetta er stórmerkileg heimsókn.“ Svarthöfði öskraði af hlátri við lesturinn. Malta og sardínur og RUVEU. Þvílík orðkynngi! Og ritstjóri Ný-moggans dró ekkert af sér þegar hann raðaði saman snilld- arsetningu um einn af uppáhaldsbloggurum sínum sem jafnframt er á launum hjá RANNÍS. Páll Vilhjálmsson blaða-maður er glöggur og veit lengra nefi sínu.“ Svona skrifa aðeins snill- ingar. Og áfram skal íslensk fyndni rakin. Nú er það Framsóknarflokkurinn sem verður fyrir háði hins orðheppna rit- stjóra sem hendir staksteinum af ná- kvæmni í höfuð minni spámanna. En nú hafa þeir framsókn-armenn tekið sér frí frá að slá keilur um stund og láta í staðinn slá út í fyrir sér. Þeir létu Alþingi Íslendinga kjósa fyrir sína hönd belgískan mann í banka- ráð Seðlabankans, af því hann hefði svo sniðugar hugmyndir um hvernig mætti taka upp erlenda mynt, án þess að spyrja um leyfi. Framsóknarmenn vilja láta fljúga með Gros þennan aðra hvurja viku frá Brussel til Keflavík- ur til að sjá um þessi mál Íslendinga, sem þeir telja landa sína ófæra um að sinna. Augljóst virðist að fram- sóknarmenn hafa ekki vitað hvar þeir gætu fengið upplýsingar um verksvið bankaráðsins. Er því rétt að benda þeim á íslenska lagasafnið. Þegar þeir hafa kíkt í það er rétt að þeir láti kjósa aftur fyrir sig. Í sárabætur geta þeir hent piparmy(i)nt í Gros, sem hann getur tekið upp sér til uppörvunar.“ Svarthöfði er kominn með magakrampa af hlátri. Gros og Piparmy(i)nt. Þetta er ekkert annað en löðrandi húmor sem getur ekki annað en fengið sinn heið- urssess í íslenskri bókmenntasögu. Og enn streymir kímnin fram. Ritstjórinn orðheppni beinir spjótum sínum að Ólafi Arnarsyni, týndum sauði úr hjörð Sjálfstæðisflokksins, sem reyndi af vanmætti að skrifa Moggann og formann hans niður. Ólafur skrifaði bók án þess að hafa til að bera gáfur og stílfimi ritstjórans. Sá fékk á baukinn þegar hnitmiðuð stak- steinahríðin dundi á höfði hans. Ein bók stendur þó niðrúr,“ orti ritstjórinn og Svarthöfði bók-staflega blindast af eigin tár-um í krampakenndum hlátri. Loksins nær hann skýrri sýn að nýju og les áfram. „Sú bók var kostuð til að koma á framfæri þeim sannindum að bankahrunið sé bara ekki þeim að kenna sem stjórnuðu bönkunum, því síður eigendum og helstu skjólstæð- ingum, sem voru oft ein og sama per- sónan, heldur liggi sökin auðvitað hjá þeim sem ekki skildu þá og skilja ekki enn, að á ferðinni voru vammlausir snillingar.“ Þarf frekari sannana við? Flók-ið? Nei, þetta er tær snilld. Að lokum eru það svipuhöggin sem Svarthöfði og allt hans hyski fá frá fyndnasta einstaklingi í Hádegismóum. Eitt sinn er lítilfjörlegt blað kom til umræðu í menn-ingarlegum kaffiklúbbi varð einum þeim orðvarasta í hópnum á að segja að í sínum huga væri það blað skolp. Þegar hann sá að það kom nokkuð á sómakæra samdrykkjumennina ákvað hann að draga nokkuð í land. Sagðist hann sjá á svip þeirra að þeim þætti að full- sterklega væri að orði komist. En svo spurði hann hvort menn gætu ekki verið sammála um það að minnsta kosti að blaðið væri rörið sem skolpið fer um. Um það varð ekki ágreining- ur.“ Þetta er ekkert annað en fokking snilld. Þórbergur hvað? Ritstjórinn orðfimi verður umsvifalaust að fara á sama stall og íslensku þjóðskáldin. Loksins, loksins, er það sem Svart- höfða dettur helst í hug. Höfundur stafrófsins er fundinn. Nokkrir góðir braNdarar ... Spurningin „Ég á nokkra lausláta félaga sem brjóta boð og bönn Biblíunnar. Miðað við gengi þeirra á helgum verð ég ekki var við skort á kerlingum á lausu á Klakanum,“ segir líkamsræktarfrömuður- inn Egill Gillz Einarsson. Sam- kvæmt tölum Hagstofunnar eru einhleypir karl- menn tíu prósentum fleiri en einhleypar konur á Íslandi. Er skortur á EiNhlEyp- um koNum á klakaNum? „... að láta gula spjaldið frá 2005 gilda af því að greyið var jú fullur og reglurnar voru öðruvísi þá.“ Ómar Ragnarsson fjallar á bloggi sínu um mál Pálma Jónssonar fjármálastjóra KSÍ. Hann spyr hvort eigi að láta refsingu hans frá 2005 duga eða gefa honum rauða spjaldið nú. - omarragnarsson. blog.is „Já, takk fyrir það, Sigrún.“ Sindri Sindrason, umsjónarmaður Íslands í dag, eftir kynningu Sigríðar Elvu Vilhjálmsdóttur á dagskrárefni þar sem Sindri fór á sjó. Kynningin var eflaust tekin upp áður og hefði Sigrún Ósk átt að vera á hinum endanum. - Stöð 2 „Ég og Davíð Oddsson mun- um ráða ríkjum.“ Kleopatra Kristbjörg Stefánsdóttir, forstjóri Gunnars Majoness, í athugasemdakerfi DV.is þar sem hún gerir grín að sjálfri sér og fréttaflutningi um sig undanfarna daga.- DV.is „Það mun taka mörg ár að finna ábyrgðarmenn og fá þá dæmda.“ Eva Joly í viðtali við norska blaðið Aftenposten um að langan tíma muni taka að finna ábyrgðarmenn efnahagshrunsins. - DV.is „...þá verðuru að minnsta kosti að vera ber að ofan fyrir okkur kvenþjóðina.“ Ásdís Rán skýtur á Ágúst Borgþór Sverrisson blaðamann sem hefur tekið upp liðinn „Eldheit mynd vikunnar“ líkt og fyrirsætan á Pressunni. - pressan.is Lilja hefur svarið Leiðari Seinni bylgja kreppunnar er um það bil að ríða yfir okkur. Nú þegar eru áhrif gjaldmiðils- og bankakreppunnar að mestu komin fram, en almenningur er aðeins hálfnaður á leið sinni á botninn. Á næsta ári einu og sér munu kjör fólks versna svo að það hefur að jafnaði 16 prósentum minna ráðstöfunarfé. Ofan á kaupmáttar- rýrnunina leggjast stórfelldar skattahækk- anir á almenning. Fasteignirnar, sem flest fólk baslar við að borga af, munu hrapa enn meira í verði um leið og fólk hefur enn minna fé til að borga af þeim. Og í raun hefur ríkis- stjórnin ekkert annað svar við vandræðum almennings en að fresta vandanum. Ein öflugasta aðgerð stjórnarinnar hefur verið að gera fólki kleift að taka út séreigna- sparnað sinn. Fjörutíu þúsund manns fundu sig knúin til að þiggja boðið og taka út samtals 24 milljarða, sem áttu að fleyta fólkinu í gegn- um elliárin. Önnur stóraðgerð stjórnarinnar er að fresta greiðslum á hluta fasteignalána, þannig að fólk myndi safna upp skuldahala til greiðslu síðar. Þetta mun gagnast fólkinu í nokkur ár, þar til afborganir verða með tím- anum hærri en þær hefðu orðið án bjargræð- isins. Þetta er það sem Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráðgjafi kallar „varanlega fátækt“ í samtali við DV í dag. Sem betur fer þurfum við ekki að leggja allt traust á ríkisstjórnina, nú þegar þing- menn hafa öðlast sannfæringu og sjálfstæð- an vilja. Þingmaður Vinstri-grænna hefur með hjálp nýrra þingmanna úr Hreyfing- unni og Framsóknarflokki og tveimur öðr- um úr VG lagt fram frumvarp, sem er mun heilbrigðari lausn en greiðslujöfnun ríkis- stjórnarinnar, og gæti gert hana að hluta til óþarfa. Frumvarp Lilju Mósesdóttur og nýju þingmannanna gengur einfaldlega út á þá lágmarksskynsemi að banki, sem lánar fyrir fasteign, megi aðeins ganga að fasteigninni sjálfri, en ekki öðrum eigum lántakandans. Slík lög valda umskiptum á samningsstöðu yfirveðsetts almennings gagnvart bönkun- um. Það verður bankanum í hag að veita fólki viðunandi skuldsetningu, annars sit- ur hann uppi með óseljanlega fasteign og engar afborganir. Fólk getur jafnvel knú- ið bankann til þess að afskrifa lán niður að markaðsvirði. Þannig verður hinn venju- legi húsnæðiseigandi nánast í jafnsterkri stöðu gagnvart bankanum og útrásarvík- ingar með sín eignarhaldsfélög. Bankanum býðst að fá eitthvað eða ekkert. Og við þetta verða yfirveðsett heimili vandamál bank- anna, sem að mestu leyti verða í erlendri eigu. Sömu bankar hafa um 600 milljarða króna svigrúm til niðurfellinga skulda, sam- kvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þannig að sannfærandi rök gegn frumvarpinu eru ekki sjáanleg. Það er sérstaklega undarlegt að enginn úr Samfylkingunni eða Sjálfstæðisflokknum skuli taka þátt í frumvarpi Lilju. Enn undar- legra er að félagshyggjustjórnin skuli sitja hjá í þessari tilfærslu réttinda frá bönkum til fólks. Frumvarp Lilju var loksins tekið fyrir í þinginu í gær. Því hafði verið frestað í tví- gang í síðustu viku sem er kannski einkenn- andi fyrir aðgerðir stjórnarinnar í þágu al- mennings. JóN trausti rEyNissoN ritstJóri skrifar. Bankanum býðst að fá eitthvað eða ekkert. bókStafLega 22 miðvikudaGur 11. nóvember 2009 umræða Sandkorn n Brátt mun óvissunni um af- drif Icesave-málsins á Alþingi ljúka. Þótt nær öruggt sé talið að innan Vinstri-grænna verði einhverjir sem greiði atkvæði gegn frum- varpinu er lausnin þó í sjónmáli. Guðfríð- ur Lilja Grétars- dóttir hefur verið andvíg þeim samningi sem er á borðinu. En nú er hún á leiðinni í langþráð fæðingarorlof og inn kemur varamaður hennar, Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og bæjarfulltrúi. Ólafur Þór er sannfærður um kosti Icesave og þar með er björninn unn- inn. n Enginn virðist hafa það á hreinu hvort Ögmundur Jón- asson alþingismaður hyggist greiða atkvæði gegn Icesave, á móti eða sitja hjá. Ögmund- ur stjórnar uppreisn- arhópi inn- an Vinstri- grænna. Þeim hópi tilheyra Jón Bjarnason sjávarút- vegsráð- herra, Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Daða- son og Atli Gíslason. Hermt er að þessi sella hittist reglulega og ráði ráðum sínum. Helsta krafa hópsins er að Ögmundur snúi aftur í ríkisstjórn fyrir jól. Annars sé ekki von á góðu. n Komandi borgarstjórnarkosn- ingar verða örlagaríkar fyrir annaðhvort Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur borgarstjóra eða Dag B. Eggertsson leiðtoga Samfylking- ar. Bæði eru á uppleið í sínum flokk- um en fram- tíðargengið veltur á því hvort þeirra kemst í meirihlutann og fær gullkeðju borgarstjórans. Þannig mun framtíð Dags ráðast af þessum úrslitum. Leitin að arftaka Jóhönnu Sigurðardóttur stendur nú yfir. Dagur í minni- hluta mun ekki ná þeim áfanga að verða formaður. n Innan Sjálfstæðisflokksins er að sama skapi horft til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem leið- togaefnis. Efasemdir eru uppi um getu Bjarna Benediktssonar formanns og Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur til að stýra flokknum til fyrri áhrifa. Þess í stað líta margir til Illuga Gunn- arssonar og Hönnu Birnu sem hins nýja leiðtogateymis, hvort þeirra sem yrði formaður. En framtíð Hönnu Birnu ræðst þó af árangri í borgarstjórnarkosning- unum. Lendi hún í stjórnarand- stöðu þýðir það líklega endalokin á framabrautinni. LyngHáLS 5, 110 ReykjavÍk Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Sverrir arngrímsson ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: elísabet austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.