Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR Nálastungudýnan • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Hefur góð áhrif gegn streitu • Er slakandi og bætir svefn Tilboð fram að jólum Hentug taska fylgir með Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð frá 9.750 kr. gefur þér aukna orku og vellíðan Vinnslustöð Vestmannaeyja ætlar að greiða starfsmönnum sínum 150.000 krónur til viðbótar desemberuppbót. Ísfélagið í Vestmannaeyjum ætlar að tvöfalda jólabónus starfsmanna. Nýlega greindi Samherji á Akureyri frá því að útgerðarfyrirtækið ætl- aði að greiða 300 starfsmönnum í landi 100.000 krónur til viðbótar um- saminni desemberuppbót. Þessar greiðslur fyrirtækjanna í Vestmanna- eyjum nema samtals 20 milljónum króna. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur víða verið góð vegna lágs geng- is krónunnar. Hagnaður Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum nam 530 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Stjórnendur ákváðu að umbuna starfs- fólki sínu fyrir vel unnin störf. Vinnslustöðin afhenti auk þess á þriðjudag- inn Fjölskyldu- hjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kíló af humri til dreifingar meðal skjólstæð- inga samtakanna fyrir jólin. Ekki jólabónus hjá HB Granda HB Grandi hefur ekki í hyggju að greiða sér- stakan jóla- bónus fyrir utan desemberuppbót. Eggert Bjarni Guðmundsson, forstjóri fyrirtæk- isins, segir að á móti komi að HB Grandi hafi hækkað laun um 13.500 krónur 1. mars sem önnur fyrir- tæki hafi ekki gert fyrr en 1. nóvem- ber. Fyrirtækið var harðlega gagn- rýnt af ASÍ í vor þegar stjórnendur greiddu hluthöfum 184 milljóna króna arð á sama tíma og umsömd- um launahækkunum starfsmanna hafði verið frestað. Stjórnendur HB Granda skiptu nokkrum dögum síð- ar um skoðun og hækkuðu launin frá 1. mars. Hagnaður af rekstri HB Granda nam tæplega 1,1 milljarði króna á fyrri helmingi ársins. Kolbeinn Finnsson, sviðsstjóri mannauðssviðs N1, segir að fyrir- tækið greiði ekki sérstaka jólabón- usa umfram umsamda desember- uppbót. Hagnaður olíufyrirtækisins nam um 900 milljónum króna á fyrstu tíu mán- uðum ársins. Hækkun þrátt fyrir frestun Vilhjálm- ur Birgisson, formaður Verkalýðsfé- lags Akraness, bendir á að 2,5 prósenta launahækk- un hefði átt að koma til framkvæmda um áramótin. Þeirri hækkun var hins vegar frestað af hálfu Samtaka atvinnulífsins og ASÍ samhliða stöðugleikasáttmálanum til 1. júní. „Samkvæmt þessum samningi á að koma 2,5 prósenta hækkun 1. jan- úar næstkomandi.“ Vilhjálmur segir að greinilegt sé að mörgum fyrirtækj- um gangi vel, sérstaklega í sjávarút- vegi. Þau þurfi ekki að fresta launa- hækkuninni. „Við krefjumst þess að öll fisk- vinnslufyrirtæki og öll fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði til standi við samninginn frá febrúar 2008 og hækki laun um áramótin,“ segir Vil- hjálmur. „Af hverju eiga fiskvinnslu- fyrirtækin, til dæmis þau sem gefa jólabónusa, og skýra það með góðri rekstrarafkomu vegna lágs gengis krónunnar, að fá afslátt af þessum hóflega gerða kjarasamingi?“ Vilhjálmur segist líka senda áskorun til N1. „Af hverju er þetta fyrirtæki, sem græðir 900 millj- ónir á fyrstu 10 mánuð- um ársins, að fá afslátt af samningi sem var gerð- ur?“ spyr Vilhjálmur. Ekki sama hörm- ungarástandið alls staðar „Við sýnum fyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum skilning og gefum þeim afslátt. En það er hins vegar engin ástæða til þess hjá fyrirtækjum sem ráða við þessar hækkan- ir. Ég held að fólk átti sig ekki á þessu. Það er ekki sama hörmungará- standið alls staðar á vinnumarkaðin- um. Sérstaklega ekki hjá fyr- irtækjum sem selja afurðir í erlendri mynt. Öll útflutningsfyrirtæki hafa fulla burði til þess að koma til móts við samninginn frá febrúar 2008,“ segir Vilhjálmur. MYNDARLEGIR BÓNUSAR VITNA UM GÓÐA AFKOMU Þrjú sjávarútvegsfyrirtæki hafa ákveðið að greiða sérstaka jólabónusa vegna góðrar rekstrarafkomu. Lágt gengi krónunnar er meginástæðan fyrir velgengni fyrirtækj- anna. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að ef fyrir- tækjum gangi vel eigi þau að standa við umsamda kjarasamninga. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is n Vinnslustöð Vestmannaeyja, VSV veitir starfsmönnum 150.000 krónur til viðbótar desemberuppbót. n Ísfélagið í Vestmannaeyjum tvöfaldar desemberuppbót starfsmanna. n Samherji á Akureyri greiðir 300 starfsmönnum í landi 100.000 krónur til viðbótar desemberuppbót. n N1 veitir ekki sérstakan jólabónus. n HB Grandi veitir ekki sérstak- an jólabónus. Samherji umbunar starfs- mönnum Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, greiðir 300 manns 100.000 krónur í bónus. MYND STEFÁN KARLSSON  Skýlaus krafa Vilhjálmur Birgis- son telur að velstæð fyrirtæki eigi ekki að fresta launahækkunum. MYND STEFÁN KARLSSON  Blekkingar meirihlutans „Okkur líst mjög illa á hversu mikið er skorið niður í velferð- armálum og meirihlutinn beitir blekkingum til að fela niðurskurð- inn,“ segir Þorleifur Guðlaugs- son, borgarfulltrúi vinstrigrænna. Hann er afar ósáttur við fjárhags- tillögur meirihlutans í borginni. „Meirihlutinn er, annað árið í röð, að ljúga til um niðurskurðinn. Hann bitnar á þeim fátækustu og við viljum hækka framfærsluað- stoðina þannig að fólk hafi í sig og á. Það er stærsta málið að okkar mati,“ segir Þorleifur. Spá lækkandi verðbólgu Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólga muni lækka úr 8,6 prósentum í 7,7 prósent þegar nýjar verðbólgutölur verða birtar 22. desember næstkomandi. Telur Greining bankans að þetta verði raunin þrátt fyrir að enn séu að koma fram í verðlagi áhrif geng- ishrunsins frá miðju ári 2008, sér í lagi í þeim vöruliðum þar sem veltuhraði er tiltölulega hægur eða vöruframboð árstíðabundið. Jólabækur á misjöfnu verði Mikinn verðmunur er á jólabók- um milli verslana. Niðurstaðan birtist í nýrri könnun Alþýðu- sambands Íslands sem náði yfir allt landið. Mestur var verðmun- urinn 85 prósent á einstakri bók en algengast var að munurinn væri á bilinu 30 til 70 prósent. Bókabúð Máls og menningar mældist oftast með hæsta verðið og Penninn Eymundsson kom þar á eftir. Bónus var oftast með lægsta verðið og Nettó og Griffill fylgdu fast á eftir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.