Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Qupperneq 9
FRÉTTIR Stjórnendur á Keflavíkurflugvelli hafa fengið ráðgjöf um for- varnir gegn kynferðislegri áreitni eftir að kvenkyns starfs- maður sakaði framkvæmdastjórann um áreitni. Á endanum sótti konan sjálf um veikindaleyfi, þar sem henni þótti ekki brugðist við kvörtun sinni. Friðþór Eydal, talsmaður flug- vallarins, segir öll ágreiningsmál tekin föstum tökum. TILKYNNTI ÁREITNI OG VAR SETT Í LEYFI Yfirstjórn Keflavíkurflugvallar ohf. leysti mál sem snerist um meinta kynferðislega áreitni á vinnustaðn- um með þeim hætti að senda til- kynnandann í leyfi. Framkvæmdastjóri Keflavíkur- flugvallar var sakaður um kynferð- islega áreitni á vinnustað í mars síðastliðnum. Tilkynning þess efnis barst starfsmannastjóra flugvallar- ins bæði með munnlegum og skrif- legum hætti. Eftir nokkurra mánaða bið og baráttu hins meinta þolanda óskaði viðkomandi eftir því að fara í veikindaleyfi þar sem ekki hefði ver- ið tekið á málinu. Konan var í kjöl- farið sett í launað leyfi. Hún er afar ósátt við úrvinnsluna og undirbýr að leita réttar síns hjá dómstólum. Of algengt Friðþór Eydal, talsmaður Keflavík- urflugvallar, segir að öll ágreinings- mál sem upp koma í rekstri félags- ins séu tekin föstum tökum og þau leyst á viðeigandi hátt eftir réttum leiðum. Hann segist ekki vilja tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Framkvæmdastjórinn sjálfur staðfestir að hann hafi verið sakað- ur um kynferðislega áreitni og segir málið hafa verið fullkannað. Hann segir vissulega erfitt að lenda í slíku en að niðurstaða fyrirtækisins tali sínu máli. „Málið snýr ekki leng- ur að mér heldur er það í höndum fyrirtækisins. Þessar ásakanir hafa verið grandskoðaðar víða og alltaf hefur verið komist að sömu niður- stöðu, að þetta sé ekki á rökum reist. Það er hið besta mál fyrir mig að þetta sé grandskoðað og niðurstað- an ávallt sú sama. Hún talar sínu máli. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um þetta mál,“ segir framkvæmda- stjórinn. Alvarleg mál Starfsmaðurinn sem um ræð- ir tilkynnti hina meintu áreitni til Vinnueftirlits ríkisins. Frá því mál- ið var tilkynnt hafa fulltrúar eftir- litsins veitt stjórnendum Keflavík- urflugvallar ráðgjöf um forvarnir gegn kynferðislegri áreitni. Steinar Harðarson, umdæmisstjóri Vinnu- eftirlitsins á höfuðborgarsvæð- inu, segir það enga lausn að senda starfsmann í leyfi þegar svona mál koma upp. „Þessi vandamál geta verið mjög alvarleg og það verð- ur að taka rétt á þeim. Við gerum einfaldlega þær kröfur að hlutirnir séu lagaðir en við úrskurðum ekki í einstaka málum um kynferðislega áreitni. Við viljum koma í veg fyrir svona ástand á vinnustað en til að ganga lengra með málið þarf við- komandi að kæra áreitnina,“ segir Steinar. „Því miður er það of algengt vandamál að þolandi sé sendur frá. Það finnst mér alveg afleit niður- staða og einfaldlega óásættanleg lausn,“ bætir hann við. Langvarandi áhrif Sólveig Jónasdóttir, fræðslustjóri SFR, Stéttarfélags í almannaþjón- ustu, segir að almennt séu ferli stétt- arfélaga skýr til að mæta svona mál- um. Hún ítrekar að hún sé að ræða málin á almennum nótum en ekki í ljósi þessa einstaka tilviks. „Þeg- ar svona mál koma upp fara þau í ákveðið ferli og ferlin eru skýr hjá stéttarfélögunum. Eðlilega lítum við þessi mál mjög alvarlegum aug- um enda geta þau haft langvarandi áhrif fyrir viðkomandi. Stéttarfé- lagið stendur alltaf með einstakl- ingnum og það er aldrei ásættanleg lausn að þolandinn sé fjarlægður af vinnustaðnum,“ segir Sólveig. Sama sagan Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmd- astýra Jafnréttisstofu, telur það óboðlegt að þolandi sé sendur af vinnustað í svona málum. Hún segir að því miður sé of víða pottur brot- inn í þessum efnum og því skoraði hún nýverið á félagsmálaráðherra að skera upp herör í málaflokknum. „Þetta er því miður ekkert nýtt og ég veit um nokkur svona mál. Kynferð- isleg áreitni er einfaldlega óheimil og fyrirtæki verða að taka tilkynn- ingar föstum tökum. Þessi mál eru því miður í ofboðslegum ólestri og stofnanir okkar virðast í mestu vandræðum með að vinna vel úr málunum,“ segir Kristín. „Lögin eru til en það er síðan óljóst hvernig á að fylgja þeim eftir. Í mínum huga ber öllum fyrirtækj- um að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir þetta. Kynferðis- leg áreitni getur verið andstyggileg og haft mjög alvarlegar afleiðingar þar sem einstaklingurinn getur far- ið alveg yfir um. Að starfsmaður- inn sé látinn fara er engin lausn og bara sama sagan þar sem gerand- inn sleppur, mér finnst það mjög slæmt. Því miður er þessum málum stundum stungið undir stól og þau leyst með því að þolandinn sé lát- inn fara. Það finnst mér algjörlega óásættanlegt.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is LÖG UM JAFNA STÖÐU OG JAFNAN RÉTT KVENNA OG KARLA Nr.10 2008 2. gr. Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi kynferðisleg hegðun sem er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt. 22. gr. Kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni. Atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagasamtaka skulu gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, stofnun, í félagsstarfi eða skólum. Ef yfirmaður er kærður vegna ætlaðrar kynbundinnar eða kyn- ferðislegrar áreitni verður hann vanhæfur til að taka ákvarðanir í tengslum við starfsskilyrði kæranda á meðan meðferð málsins stendur yfir og skal þá næsti yfirmaður taka slíkar ákvarðanir. „Þessi mál eru því miður í of- boðslegum ólestri.“ Engin lausn Kristín segir það enga lausn að senda þolanda í burtu af vinnustaðnum. Hún þekkir of mörg dæmi um slíkt. Meint áreitni Starfs- maðurinn fór í leyfi eftir að hafa sakað yfirmann sinn um kynferðislega áreitni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Njótum aðventunnar saman 2 dálkar = 9,9 *10 Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is Fyrir bústaðinn og heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.