Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR
„Ég vil bara gefa börnunum mínum
betri tækifæri en þeim býðst hér.“
Arnaldur Bárðarson, prestur í Gler-
árkirkju á Akureyri, hefur fengið sig
fullsaddan á ástandinu í þjóðfélag-
inu og hefur sagt upp stöðu sinni.
Hann tekur við prestakalli í bæjar-
félaginu Hemne í nágrenni Þránd-
heims um áramótin. „Mér var boð-
ið að fara í norsku kirkjuna og þess
vegna fer ég í hana. Hefði það verið
kanadíska kirkjan hefði ég alveg eins
viljað prófa hana.“
„Hrunið og það sem hefur kom-
ið á daginn gerði að verkum að
ég missti trúna á íslenskt samfé-
lag. Mér fannst hafa átt sér stað
slík svik við þjóðina að ég tók
ákvörðunina að fara. Fyrst ætlaði
ég meira að segja að sækja um er-
lendan ríkisborgararétt. Mér var
svo misboðið og er það enn. Og
ég finn á samfélaginu hvað reiðin
er svakaleg út í stjórnvöld að hafa
leyft þessu að gerast. Ábyrgðin er
þeirra. Útrásarmenn eru alltaf út-
rásarmenn og þeir leita allra leiða.
En stjórnmálamennirnir áttu að
vernda okkur.“
Vill leiða starf
Arnaldur hefur gegnt stöðu prests í
Glerárkirkju undanfarin ár. „Ég var
hér í fastri stöðu, en ekki sem sókn-
arprestur. Ég verð sóknarprestur í
Hemne. Það er munur þar á. Sóknar-
presturinn er sá sem ræður og stýr-
ir starfinu en presturinn er aukahjól
undir vagninum. Ég vil náttúrlega
leiða starf og stýra því. Ég fæ betri
stöðu í Noregi, það er ekkert laun-
ungarmál.
Starfskjörin í Noregi eru miklu
betri. Þar er boðið upp á mjög gott
prestssetur gegn vægu gjaldi. Launa-
kjörin eru auðvitað betri þarna en
hjá okkur og vinnutíminn skilgreind-
ari og afmarkaðri,“ segir presturinn
sem hlakkar mikið til að kynnast
starfsháttum norsku þjóðkirkjunnar.
Norski prófasturinn bannar of
mikla vinnu
Norðmenn eru mun lengra komnir
í vinnurétti en Íslendingar, að mati
Arnaldar. Hér vinnur fólk alltof mikið
en ytra er meiri áhersla lögð á hvíld
og fjölskyldulíf.
„Prófasturinn minn í Noregi sagði
við mig að hans hlutverk væri að
passa upp á að ég ynni ekki of mikið.
„Hér er fimm daga vinnuvika,“ sagði
hann mér. Hann ætlar að fylgjast
grannt með mér til að ég vinni ekki of
mikið! Hvar hefur maður heyrt slíkt
hér á Íslandi? Hér vinnur fólk eins og
það sé vitlaust. Og sumir bera samt
ekkert úr býtum.“
Eins og aðrir þjónar kirkjunn-
ar hefur Arnaldur starfað við Hjálp-
arstarf kirkjunnar í aðdraganda
jólanna. „Ástandið er hrikalegt. Ég
sit hér og tek á móti stórum hópi sem
kominn er á vonarvöl. Fólkinu er all-
ar bjargir bannaðar og á enga mögu-
leika hér. Ég rétti fólkinu einhverjar
örfáar krónur í gegnum Hjálparstarf-
ið sem litlu skipta. Þetta finnst mér
hryllilega erfitt að horfa upp á.“
Þjóðkirkjan smituð af klíku-
skapnum
„Ég held að þjóðkirkjan hafi gert
það sem hún gat til að vara við lát-
unum og bruðlinu í samfélaginu
sem leiddi til hrunsins,“ segir séra
Arnaldur. „Það vilja allir hafa kirkj-
una hér á Íslandi og við leggjum
áherslu á þessar kristnu hátíðir og
flöggum því að við séum kristin, en
svo er aftur spurning hversu mikið
kristna siðferðið mótar okkur? Til
dæmis í viðskiptum og starfi?“
Arnaldur telur að ófagmannleg
frændhygli hafi verið ein stærsta
ástæðan fyrir hruninu. „Okkar
versta samfélagsmein eru tengsl-
in, klíkuskapurinn, flokkadrætt-
irnir og þar er kirkjan ekki und-
anskilin. Það hefur stýrt öllu á
Íslandi, hvort sem það er kirkjan,
stofnanir eða bankar. Fagmennsk-
an hverfur þegar vinatengsl ráða
för. Þetta er íslenski veruleikinn.
Og ég á erfitt með að sætta mig við
hann.“
Íslendingar siðvæðist
Arnaldur Bárðarson hlaut æviráðn-
ingu með sóknarprestsstöðunni í
Noregi. Hann segist því ekki koma
heim í bráð. „En mér mun auðvit-
að hugnast að koma heim ef við tök-
um upp einhvers konar siðvæðingu
á Íslandi.“ Presturinn telur þó að við
eigum nokkuð langt í land. Honum
hugnist vel að starfa á næstunni í
öðru samfélagi þar sem önnur lög-
mál ríki. Arnaldur telur sig ekki ein-
an um þá löngun. „Flestir sem ég
hitti segja annaðhvort að þeir séu að
íhuga að fara eða að þeir færu ef þeir
væru tíu árum yngri. Ég þekki all-
nokkra presta og guðfræðinga sem
hafa hug á að starfa í útlöndum. Við
eigum margt fólk sem hefur þekk-
ingu, reynslu og getu til að starfa í
kirkjum.“
Stjórnmálamennirnir brugðust Arnaldur Bárðarson telur íslenskan veruleika gegnsýrðan af klíkuskap og vinatengslum.
MYND: ÞÓRHALLUR/PEDROMYNDIR
Séra Arnaldur Bárðarson, prestur í Glerárkirkju á Akureyri, tekur við prestsstöðu í Noregi í janúar. Honum
hugnast vel að hefja nýtt líf með fjölskyldunni í Noregi. Hér segist hann vilja ekki búa nema Íslendingar
siðvæðist og ráði bug á samfélagsmeinunum.
„ÉG MISSTI TRÚNA Á
ÍSLENSKT SAMFÉLAG“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
„Ef við tökum upp ein-
hvers konar siðvæð-
ingu á Íslandi, þá mun
mér auðvitað hugnast
að snúa aftur heim.“
2975
3042
3395
3294
4021
2005
2006
2007
2008
2009
BROTTFLUTTIR
ÍSLENSKIR
RÍKISBORGARAR
1307 til Noregs
1146 til Danmerkur
554 til SvíþjóðarJan. -
sept.
Íbúum á Íslandi fækkar
í fyrsta sinn frá 1889
Þann 1. júlí síðastliðinn hafði Íslendingum fækkað um hundrað manns frá sama
degi árið 2008 þegar landsmenn voru 319.300. Þetta er í fyrsta skipti í 120 ár
sem íbúum á Íslandi fækkar.
Árið 1889 voru fólksflutningar Íslendinga til Vesturheims enn í algleymingi. Fjór-
tán árum fyrr hafði Öskjugos valdið miklum hamförum á Norðausturlandi sem
var ein helsta ástæðan fyrir því að landsmenn ákváðu að hverfa til nýrra landa.
Alls fluttu 15-20 þúsund Íslendingar til Norður-Ameríku, aðallega til Kanada.
Um 8.500 manns fluttu frá Íslandi frá áramótum til loka nóvember. Staðreyndin
er hins vegar sú að hlutfallslega flytja mun fleiri Íslendingar úr landi en áður.
Helmingur þeirra sem flytja úr landi hefur íslenskt ríkisfang. Þeir fara flestir
til hinna Norðurlandanna. Meirihluti brottfluttra með erlent ríkisfang fer til
Póllands.
Á vef Hagstofunnar kemur fram að 4.027 íslenskir ríkisborgarar hafi flutt úr landi
á tímabilinu janúar til september 2009. Flestir flytja til Noregs. Norðmenn lentu
í miklum landflótta á níundu öld þegar þúsundir manna flykktust til Íslands. Nú
skila afkomendur þeirra sér heim. Margir fara einnig til Danmerkur og Svíþjóðar.
Á undanförnum áratugum hafa þó fleiri en þrír fjórðu brottfluttra Íslendinga
flutt aftur heim síðar á ævinni. helgihrafn@dv.is