Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Page 25
STÓRLEIKIR Í KEFLAVÍK Dregið var á þriðjudaginn í 8 liða úrslit bikarkeppni
karla og kvenna í körfubolta. Tveir stórleikir fara fram í Sláturhúsinu í Keflavík en í
karlaflokki er hvorki meira né minna en Suðurnesjaslagur Keflavíkur og Njarðvíkur.
Hjá konunum mætast svo Keflavík og Hamar. Aðrir leikir hjá körlunum eru Snæfell-
Fjölnir, Tindastóll-Grindavík og Breiðablik mætir ÍR. Hjá konunum heimsækja Laug-
dælingar Fjölni, Njarðvík tekur á móti Þór frá Akureyri og Snæfell fær Íslandsmeistara
Hauka í heimsókn í Stykkishólm.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
SPORT 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 25
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
PLYMOUTH Í KAUPBANN
n Enska knattspyrnufélaginu
Plymouth Argyle sem Víking-
urinn Kári Árnason leikur með
hefur verið bannað að kaupa leik-
menn vegna
útistand-
andi skulda.
Bannið er
tímabund-
ið og verður
aflétt fyrir lok
desember.
Plymouth þarf
á öllum þeim
liðsauka sem það getur fengið
að halda þar sem liðið er í harðri
fallbaráttu og hefur nú þegar rekið
einn þjálfara á leiktíðinni.
EKOTTO EKKI ÁKÆRÐUR
n Bakvörðurinn Benoit Assou-
Ekotto hjá Tottenham verður ekki
ákærður fyrir framkomu sína
gagnvart stuðningsmanni liðsins
eftir leik Tot-
tenham gegn
Úlfunum í úr-
valsdeildinni
um helgina.
Stuðnings-
maðurinn dró
sjálfur ákæru
sína til baka og
mun hitta leik-
manninn í vikunni til þess að gera
upp sakirnar. Þeir félagarnir tókust
á þegar Ekotto var að ganga af velli
í leiknum um helgina og endaði
það með handalögmálum.
900 LEIKIR HJÁ
FERGUSON
n Sir Alex Ferguson stýrði
Manchester United á þriðjudags-
kvöldið í sínum 900. deildarleik
frá því hann tók við á Old Trafford.
Enginn knattspyrnustjóri hefur
verið jafnlengi
og hann í starfi
en Ferguson
tók við liðinu
árið 1986 og
er því að hefja
sitt 24. ár í
starfi eftir ára-
mót. Á þess-
um tíma hefur
Ferguson unnið úrvalsdeildina
ellefu sinnum og meistaradeildina
tvisvar svo fátt eitt sé nefnt.
60 MILLJÓNIR TIL FH
n Íslandsmeistarar FH fengu um 60
milljónir króna frá UEFA fyrir þátt-
töku sína í forkeppni meistaradeild-
ar Evrópu og
Íslandsmeist-
aratitilinn árið
2008 en aðild-
arfélög UEFA
njóta alltaf
góðs af þeim
gífurlegu tekj-
um sem sam-
bandið hefur
af meistaradeildinni. Fram og KR
fengu hvort um sig um 33 milljónir
fyrir þátttöku í Evrópudeildinni og
Keflavík um 16 milljónir fyrir þátt-
töku í forkeppni sömu deildar.
MOLAR
Varla er skrifað um annað í Formúl-
unni þessa dagana en hvort Michael
Schumacher muni snúa aftur. Hann
hefur gert sig líklegan til endurkomu
en þó ekki hjá sínu gamla félagi, Ferr-
ari, sem hann hefur starfað mikið
fyrir eftir ferilinn. Þar á bæ eru allar
stöður fullar fyrir næsta ár en núver-
andi heimsmeistarar hjá Mercedes,
sem hét Brawn GP í ár, hafa áhuga á
að fylla skarð heimsmeistarans Jen-
sons Button með Schumacher. Sjálf-
ur varð Þjóðverjinn sjöfaldur heims-
meistari á sínum ferli og þar af fimm
sinnum með eiganda Mercedes,
Ross Brawn, sem sinn aðalmann á
bak við tjöldin.
Frábært að fá hann
Framkvæmdastjóri Mercedes, Nick
Fry, lét hafa eftir sér í vikunni að
koma Schumachers til liðsins væri
frábær fyrir liðið. Báðir ökumenn
Mercedes, Jenson Button og Rubens
Barrichello, eru horfnir á braut en í
staðinn er kominn Þjóðverjinn Nico
Rosberg. Mercedes-menn eru þó
ekki að gera þau mistök að leggja öll
egg sín í Schumacher-körfuna. Liðið
er í viðræðum við aðra ökumenn hafi
Schumacher á endanum ekki áhuga
á endurkomu.
Verkfræðisnillingurinn Ross
Brawn sá er keypti rústir Honda og
gerði Brawn að meisturum í ár þekk-
ir vel til Schumachers. Hann hann-
aði hinn ótrúlega Ferrari-bíl ár eftir
ár þegar Schumacher vann heims-
meistaratitilinn fimm sinnum í röð.
Þeir félagarnir þekkjast því vel og
ættu endurfundir þeirra að verða
uppskrift að einhverju mögnuðu.
Fær að fara frá Ferrari
Schumacher nýtur augljóslega mik-
illar virðingar innan raða Ferrari og
hefur hann starfað mikið fyrir lið-
ið eftir að ferilinn endaði. Hef-
ur hann hjálpað ökumönnum á
keppnisdegi ásamt því að prófa
götubíla fyrirtækisins. Hann
fær að fara kjósi hann svo og
verður honum ekki sett-
ur stóllinn fyrir dyrn-
ar. „Það er ljóst
að ef hann
fer til
Mer-
cedes er okkar
samstarfi alveg lokið. Annað er bara
vitleysa. Það er ekki hægt að vinna
fyrir einn framleiðanda og keppa
fyrir annan á sama tíma. Við mun-
um samt ekki hindra hann í að fara.
Að sjálfsögðu ekki. Hvað sem hann
ákveður munum við styðja hann,“
segir Luca di Montezemolo, forseti
Ferrari.
Á að snúa aftur
Michael Schumacher hefur haft ým-
islegt fyrir stafni síðan hann hætti.
Hann hefur sinnt þessum hliðar-
verkefnum hjá Ferrari ásamt því að
leika einstaka knattspyrnuleiki fyr-
ir stjörnur sem hann jafnan setur á
laggirnar. Þá tók hann upp á því að
fara keppa á mótorhjólum en slys á
mótorfák varð til þess að hann snéri
ekki aftur í ár eins og til stóð þegar
Felipe Mazza meiddist illa hjá Ferr-
ari.
Gamall félagi Schumachers frá
gullaldarárum Ferrari í byrjun ára-
tugarins, Eddie Irvine, vill sjá sinn
mann snúa aftur. „Ég skildi vel að
hann hætti við í sumar vegna meiðsl-
anna. Honum leiðist samt bara
núna og ætti að snúa aftur. Það væri
líka frábært að fá hann. Hann hefur
keyrt hina og þessa bíla frá því hann
var fimm ára gamall og þekkir ekk-
ert annað. Hann ljómar alltaf þeg-
ar hann er í kringum Formúluna. Ég
skildi aldrei hvað hann var að gera á
mótorhjólunum. Það er mun hættu-
legra og svo fékk hann ekki einu sinni
borgað fyrir það,“ segir Eddie Irvine.
Ekki er talað
um annað
í heimi
Formúlu 1
þessa dagana
en mögulega
endurkomu
Michaels
Shumacher í
íþróttina. Hann
er talinn líklegur
til þess að ganga til
liðs við heimsmeist-
ara Mercedes, áður
Brawn GP, en þar hittir
hann fyrir gamlan félaga
sem gerði hann að meist-
ara fimm sinnum.
BEÐIÐ EFTIR
SCHUMACHER
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Prófaði mótorhjól Slys á
mótorhjóli varð til þess að hann
varð að fresta endurkomu sinni
í sumar.
Elskar fótbolta
Schumacher hefur
gaman af fótbolta og
skipuleggur nokkuð
af stjörnuleikjum.
Sigurvegari Schu macher
er sjöfaldur heimsmeistari í
Formúlu 1.