Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Page 3
FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 3 Bókhaldsóreiða Samsonar Þrotabú Samsonar rannsakar lánveitingar út úr félaginu til fjögurra félaga á Tortólu. Samson var stofnað árið 2002 til að halda utan um eignarhlut Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar í Landsbankanum. Myndin af þremenningunum er tekin í Þjóðmenningarhúsinu árið 2002 í tengslum við kaup þeirra á bankanum. Björgólfur Guðmundsson keyr- ir enn um á 2007 árgerð af Benz-jeppa sem metinn er á um 12 milljónir króna þrátt fyr- ir 58 milljarða króna persónu- legt gjaldþrot. Sást hann síðast keyrandi um götur Reykjavík- ur á bílnum síðasta föstudag með bílnúmerið RE 001. Eins og kunnugt er úrskurðaði Hér- aðsdómur Reykjavíkur hann gjaldþrota síðasta sumar og var talað um stærsta persónu- lega gjaldþrot Íslandssögunnar. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 bar Björgólfur vitni hjá rann- sóknarnefnd Alþingis á föstu- daginn eftir að Stöð 2 hafði sagt frá því að hann hefði ekki verið yfirheyrður af nefndinni tveim- ur dögum áður. Björgólfur var sem kunnugt er stjórnarfor- maður Landsbankans. Hann hafði áður sent rannsóknar- nefndinni gögn um starfsemi Landsbankans. 58 milljarða ábyrgðir Persónulegar ábyrgðir Björgólfs Guðmundssonar við Lands- bankann og dótturfélög hans námu um 58 milljörðum króna. Stærstur hluti þessara ábyrgða er tilkominn vegna fjárfestinga- félagsins Grettis sem var stærsti hluthafinn í Eimskip og Ice- landic Group eða um 50 millj- arðar króna. Þess skal þó getið að upphaflega lánaði Lands- bankinn Gretti þegar félagið var í eigu Magnúsar Þorsteinsson- ar. Eftir að Björgólfur tók við fé- laginu Gretti gerðist hann per- sónulega ábyrgur til að treysta veð Landsbankans. Þegar íslenska útrásin var á hátindi sínum sumarið 2007 voru eigur Björgólfs Guðmunds- sonar metn- ar á 170 milljarða króna. Var hlutur hans í Landsbankanum met- inn á 90 milljarða króna, fjár- festingabankanum Straumi á 40 milljarða króna, Eimskipi á 19 milljarða króna, Icelandic Group á fjóra milljarða og hlut- ur í West Ham United á 15 millj- arða króna. Einnig átti félagið Árvakur sem átti Morgunblaðið áður en það varð gjaldþrota og líka Eddu/ Mál og menningu. Konan borgar Þegar Björgólfur fór í mál við Stöð 2 og Vísi vegna fréttaflutnings þeirra af meint- um millifærslum hans og ann- arra auðmanna á peningum yfir á erlenda bankareikninga borg- aði Þóra Hallgrímsson, eigin- kona hans, 1,4 milljónir króna í málskostnaðartryggingu fyrir hann. Hann gat ekki sjálfur lagt trygginguna fram vegna per- sónulegs gjaldþrots. Þau hjón- in búa enn í 440 fermetra glæsi- villu á Vesturbrún í Reykjavík þar sem Þóra hefur verið skráð- ur eigandi síðan 1994. Á 12 MILLJÓNA JEPPA Í boði Þóru Björgólfur Guðmundsson býr ásamt eiginkoni sinni Þóru Hall- grímsson í 440 fermetra húsi hennar á Vesturbrún í Reykjavík. Auk þess borgaði Þóra málskotstryggingu fyrir Björgólf þegar hann fór í mál við Stöð 2 og Vísi. Björgólfur Guðmundsson keyrir um götur Reykjavíkur á 12 milljóna króna Benz-jeppabifreið þrátt fyrir 58 milljarða króna persónulegt gjaldþrot. Björ- gólfur bar vitni fyrir rannsóknarnefnd Alþingis síðasta föstudag eftir að Stöð 2 hafði sagt frá því að hann hefði ekki verið yfirheyrður. ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as@dv.is Magnús Þorsteinsson varð fyrstur gjaldþrota: FLÚÐI TIL RÚSSLANDS Magnús Þorsteinsson var fyrsti íslenski útrásarvíkingurinn sem úrskurðaður var persónulega gjaldþrota eftir að efnahags- hrunið skall á haustið 2008. Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp úrskurð þess efnis að bú hans yrði tekið til gjaldþrota- skipta vegna vanefnda við fjárfestingar- bankann Straum-Burðarás. Magnús skuldaði Straumi rúman millj- arð króna vegna sjálfsskuldarábyrgð- ar sem hann skrifaði upp á árið 2007. Straumur gerði ítrekaðar tilraunir til að fá skuldina greidda upp eftir að hún hafði gjaldfallið í byrjun september árið 2008, samkvæmt úrskurði héraðsdóms. Magnús taldi fyrir héraðsdómi að ekki væri hægt að taka bú hans til gjaldþrotaskipta hér á landi því lögheimili hans væri skráð í Rússlandi en ekki hér á landi. Magnús fór í mál við Stöð 2 og Vísi vegna fréttaflutn- ings þeirra af meintum millifærslum hans og annarra auðmanna á peningum yfir á er- lenda bankareikninga líkt og gamli félagi hans Björgólfur Guð- mundsson. Ekki er vitað hver borgaði málskostn- aðartryggingu hans. Magnús og Björgólfur gátu ekki lagt fram tryggingu sína þar sem þeir eru báðir persónulega gjaldþrota. as@dv.is RANNSAKAR MILLJÓNA LÁN BJÖRGÓLFA TIL TORTÓLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.