Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Qupperneq 14
BLÓMIN LIFA AF
Ef þú ert að fara í vikuferð en vilt
ekki að blómin þín drepist, get-
ur þú notað svamp til vökvunar.
Þetta er háð því skilyrði að gat sé
á botni pottsins. Fylltu stórt fat
af vatni og settu blómapottinn
á svamp sem liggur í vatninu.
Þannig geta blómin lifað í viku,
að lágmarki. Þetta getur einnig
nýst þeim sem nenna sjaldan að
vökva.
BÓMULLAR-
KYRRÐ
Gott er að stinga bómullarhnoðr-
um á milli tánna á litla barninu ef
það vill ekki sitja kyrrt á koppn-
um. Líklegt er að náttúran ljúki
sínu verki áður en barnið hefur
tínt hnoðrana á brott. Þeir sjá um
að halda barninu rólegu á meðan
það pissar.
n Konan, sem segir frá
hér til hliðar, hafði áður
leitað til Skeljungs í
Garðabæ og bað um að
láta skipta um peru og
setja rúðuvökva á
bílinn. Starfsmaður tjáði
henni að hætt væri að skipta um
perur í bílum þar sem of erfitt
væri að komast að þeim. Hann
benti á nálæga smurstöð og
konan
þurfti frá
að hverfa.
n Kona leitaði til Olís í Garðabæ til að fá
skipt um peru í bíl sínum auk þess sem
rúðuvökva vantaði. Erlendur
starfsmaður sýndi einstaka
þjónustulund þegar hann leysti
verkið af hendi á einungis
fimm mínútum. Hann á
klárlega skilið lof dagsins.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Hamraborg VERÐ Á LÍTRA 188,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,7 kr.
Búðarkór VERÐ Á LÍTRA 188,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 187,3 kr.
Bústaðavegi VERÐ Á LÍTRA 193,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,90 kr.
BENSÍN
Skemmuvegi VERÐ Á LÍTRA 188,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 187,2 kr.
Bæjarlind VERÐ Á LÍTRA 188,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 187,3 kr.
Hæðarsmára VERÐ Á LÍTRA 193,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
FRÍTT AÐ HENDA JÓLATRJÁM
Öll sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu, að Reykjavík undanskil-
inni, sækja jólatrén til íbúa sinna
eins og venjulega. Gera má ráð fyr-
ir að þau verði sótt á hefðbundinn
máta.
Í sparnaðarskyni hefur Reykja-
víkurborg hins vegar ákveðið að
veita ekki þessa þjónustu að þessu
sinni. Reykvíkingar þurfa þó ekki
að sitja uppi með jólatrén til næsta
árs. Sorpa tekur á móti trjánum, ein-
staklingum að kostnaðarlausu. Fyr-
irtæki, verktakar og stofnanir greiða
móttökugjald samkvæmt gjaldskrá
en verðið fer eftir stærð og umfangi
trésins. Hámarksfarmur einstakl-
inga er þó tveir rúmmetrar. Þeim,
sem eru með stærri farm, er bent á
móttökustöðina í Gufunesi en þar er
greitt fyrir farma eftir vigt.
Þá má þess geta að Íþróttafélögin
í Reykjavík fóru á stúfana um helg-
ina, í samstarfi við Íslenska Gáma-
félagið, og söfnuðu jólatrjám gegn
1.000 króna gjaldi. Auk þess gafst
fólki þannig færi á því að styrkja
íþróttafélagið sitt. Til stóð að söfnun
trjánna færi einungis fram um helg-
ina en það er vel þess virði að fylgj-
ast með því hvort íþróttafélagið þitt
verði á ferðinni fram eftir vikunni,
enda má gera ráð fyrir því að af nógu
sé að taka.
14 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 NEYTENDUR
Athugun DV leiddi í ljós að gríðar-
legur verðmunur er á líkamsræktar-
kortum í helstu stöðvum landsins.
Tekið var saman hvað árskort kostar
í líkamsrækt í stærstu stöðvunum.
Verðmunurinn reyndist vera 156
prósent. Ekki er tekið tillit til þeirra
fríðinda sem fylgja kortunum en al-
gengt er að árskortum fylgi kaup-
auki á borð við fríkort í sund eða
ljósakort.
Nautilus og Vaxtarræktin
Eins og áður sagði er árskortið ódýr-
ast í Nautilus. Nautilus rekur sjö lík-
amsræktarstöðvar á Íslandi og hef-
ur samtals um 8 þúsund meðlimi.
Árskortin eru misjafnlega dýr eftir
því hvar stöðvarnar eru; kosta á bil-
inu 22 til 32 þúsund krónur á tilboði
sem eru í gangi um þessar mundir
en 26 til 36 þúsund krónur á fullu
verði. Vera má að einhvers staðar
megi finna ódýrari líkamsræktar-
kort en flestar stærstu stöðvarnar
voru kannaðar að þessu sinni.
Vaxtarræktin á Akureyri býð-
ur næstbest af þeim líkamsræktar-
stöðvum sem voru til athugunar að
þessu sinni. Árskortið þar kostar 45
þúsund krónur á tilboði, eða 57 pró-
sentum meira en í Nautilus.
Hækkað frá því í fyrra
DV gerði svipaða athugun síðast-
liðið vor. Þegar verðið í dag er borið
saman við þá athugun kemur í ljós
að Nautilus, World Class og Hreyf-
ing hafa ekki hækkað verðið frá því
síðastliðinn vetur. Sporthúsið hef-
ur hækkað árskortið um 10 þúsund
krónur, Baðhúsið um 9 þúsund og
árskortið í Hress heilsurækt kostar
um sjö þúsund krónum meira en í
fyrra.
Þá skal þess líka getið að verðið
er yfirleitt breytilegt eftir því hvort
fólk gerir tímabundinn eða ótíma-
bundinn samning. Loks skal bent á
að þeir sem gera samninga við lík-
amsræktarstöðvarnar þurfa að segja
þeim upp með þriggja eða jafn-
vel sex mánaða fyrirvara. DV hvet-
ur fólk til að lesa vandlega yfir þá
samninga sem það skrifar undir.
Margar stöðvar
Eins og áður sagði tekur verðsam-
anburðurinn ekki tillit til aðstöðu
eða þjónustu í hverri stöð né held-
ur fjölda stöðva, en sem dæmi má
nefna að World Class rekur sjö
stöðvar og Nautilus átta.
Ítrekað skal að yfirleitt fylgja ýmis
fríðindi árskortum en í þeim geta
falist nokkur verðmæti. Þá er í flest-
um, ef ekki öllum stöðvum, hægt
að kaupa dýrari árskort með því
að gerast meðlimur í svokölluðum
sport-, heilsu- eða lúxusklúbbum.
Aðgangur að ýmsum heilsuræktar-
námskeiðum getur verið innifalinn
í kortunum eða í það minnsta góð-
ur afsláttur.
Skólakortin ódýrari
Flestar líkamræktarstöðvarnar
bjóða sérstök skólakort fyrir náms-
menn. Þau eru alla jafna nokkuð
ódýrari, enda er yfirleitt um 10 mán-
aða kort að ræða. Nautilus er ekki
með sérstakt verð fyrir námsmenn
en það er engu að síður hagstæð-
ast fyrir námsmenn að kaupa kort
á fullu verði þar. Af þeim líkams-
ræktarstöðvum sem bjóða sérstök
tíu mánaða skólakort býður Sport-
húsið best. Skólakortið kostar þar
37.900 krónur, um tvö þúsund krón-
um minna en í Baðhúsinu og Hress
heilsurækt en þar gildir skólakortið
í heilt ár og er því ef til vill hagstæð-
ara.
ÓDÝRAST Í NAUTILUS
Árskort í líkamsrækt er langódýrast í stöðvum Nautilus, ef marka má verðsamanburð
DV. Verðmunur á ódýrustu og dýrustu stöðvunum er meiri en 150 prósent. Kortið er
dýrast í Hreyfingu, hvar samningur í eitt ár kostar rúmar 73 þúsund krónur.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Stöð Eingreiðsla Samningur Skólakort (10mán) Verðmunur Athugasemdir
Nautilus 28.561 kr. - - - Meðalverð – tilboð til 20.jan
Vaxtarræktin Akureyri 44.900 kr. - 44.900 kr. 57,2% Tilboðsverð
Baðhúsið 58.950 kr. 59.880 kr. 39.900 kr. 106,4%
Hress heilsurækt 58.990 kr. 62.000 kr. 39.990 kr. 106,5% Skólakort gildir í heilt ár
Sporthúsið 61.500 kr. 62.400 kr. 37.900 kr. 115,3% Samningur ótímabundinn
Bjarg Akureyri 62.000 kr. 62.004 kr. 57.600 kr. 117,1% Skólakort gildir í heilt ár
World class 63.420 kr. 63.480 kr. - 122,1% Samningur ótímabundinn
Hreyfing - 73.280 kr. 45.000 kr. 156,6% Með 2.900 króna samningsgjaldi
Árskort í líkamsrækt
Frítt að farga Sorpa tekur
við jólatrjám, einstaklingum
að kostnaðarlausu.
Þegar verðið í dag er
borið saman við þá
athugun kemur í ljós
að Nautilus, World
Class og Hreyfing hafa
ekki hækkað verðið frá
síðastliðnum vetri.