Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 16
16 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 FRÉTTIR Ein helstu samtök Bretlands fyrir velferð barna, NSPCC, hafa sent frá sér viðvörun um að barnaverndar- kerfi landsins bregðist ungbörnum, stundum með banvænum afleiðing- um, þrátt fyrir að fjölgun barna sem sett eru undir verndaráætlun yfir- valda vegna vanrækslu hafi aukist sem nemur 30 prósentum á síðast- liðnum fimm árum. Samtökin krefjast gagngerrar endurskoðunar á vinnureglum sem settar eru starfsfólki félagsmála, sem þau segja að hvetji það til að „bíða þar til vanræksla er orðin viðvar- andi“ áður en gripið er til aðgerða. Hulin vanræksla Vanræksla getur birst í mörgum myndum, til dæmis í því að meina barni um vatn eða mat, meina börn- um að leika sér, meina þeim aðgang að skóla eða halda börnum í illa upp- hituðum og skítugum vistarverum. Rannsókn NSPCC gefur til kynna að vanræksla er oft nátengd barna- dauða og á stundum er vanræksla stór þáttur í honum. Þrátt fyrir að sum mál sem varða vanrækslu og líkamlegt ofbeldi gegn börnum komist í hámæli, líkt og varð raunin með barnið Peter, er nú svo komið að eitt helsta áhyggjuefni þeirra sem vinna að barnavernd eru tilfelli þar sem vanrækslan er ekki augljós. Könnun sem breska dagblaðið Observer stóð að leiddi í ljós að fjölg- un barna sem sett hafa verið undir áætlun barnaverndaryfirvalda vegna gruns um vanrækslu hefur aukist um 30 prósent. Árið 2005 var fjöldi þeirra barna, á Englandi, 13.200. Sá fjöldi jókst upp í 19.900 á síðasta ári. Það er tvöfaldur fjöldi þeirra barna sem sett hafa verið undir verndaráætlun vegna gruns um líkamlega eða kyn- ferðislega misnotkun. Áfengis- og fíkniefnaneysla Samkvæmt NSPCC er það áhyggju- efni að starfsfólk félagsmála læt- ur undir höfuð leggjast að grípa til aðgerða þegar það rekst á barn sem ber merki vanrækslu. Rannsókn mála sem varða dauða vanrækt- ra barna gefur til kynna að meðal- tími frá því grunur um vanrækslu er viðraður þar til barnið deyr er um þrettán mánuðir. Könnun NSPCC byggist á grein- ingu Ofsted-stofnunarinnar á dauða 174 barna á síðasta ári, sem leiddi í ljós að fimmtíu barnanna höfðu búið við vanrækslu á einhverjum tíma ævi sinnar. í flestum tilfellum var um að ræða börn undir sex ára aldri og í fjölda tilfella var að finna tengsl á milli dauða barna og áfeng- is- og fíkniefnaneyslu foreldra. Óttast niðurskurð Á vefsíðu breska dagblaðsins Guard ian er haft eftir Díönu Sutt- on, yfirmanni hjá NSPCC að „van- ræksla væri vanrækt vandamál“. Að sögn Sutton eiga mál sem varða vanrækslu það til að reka á reiðan- um og það sé brýnt að ná jafnvægi þegar að því kemur hvort eigi að halda fjölskyldu saman eða fjar- lægja barnið. Samtökin hyggja á herferð til að auka vægi baráttu gegn vanrækslu í komandi kosningum og hafa áhyggjur af því að baráttan gegn vanrækslu muni verða fyrir niður- skurði. ÓTTAST UM VELFERÐ BARNA Bresk samtök um velferð barna hafa áhyggjur af framtíðarþróun vanda- málsins. Áhyggjur vegna vanrækslu sem ekki er augljós hafa aukist og börnum sem félagsmála- yfirvöld hafa haft afskipti af hefur fjölgað verulega síðastliðin fimm ár. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Rannsókn mála sem varða dauða vanræktra barna gefur til kynna að meðaltími frá því grunur um vanrækslu er viðraður þar til barnið deyr er um þrettán mánuðir. Umkomuleysi Velferð breskra barna er áhyggjuefni að sögn þarlendra samtaka. SVIÐSETT MYND VETUR Í EVRÓPU Vetrarveðrið sem hefur ríkt í Evr- ópu undanfarið er farið að hafa al- varleg áhrif. Bretar hafa verið hvattir til að búa sig undir hækkandi mat- vælaverð því vegna kuldanna hafa bændur verið ófærir um að rækta grænmeti og vegna snjóa hafa flutn- ingabílstjórar átt í mesta basli við að dreifa ferskum matvælum. Ekki hefur verið jafnkalt í Bret- landi í þrjátíu ár og lögregla þar í landi staðfesti í gær að kuldaboli hefði kostað tuttugu og sex manns lífið. Þar af eru tvær konur, önnur níræð og hin fjörutíu og tveggja ára, Miklar vetrarhörkur hafa ríkt í Evrópu undanfarið. Víða er farið að bera á skorti á salti til að bera á götur og þjóðvegi og verð á matvælum fer sums staðar hækkandi. Mannfellir hefur verið í Bretlandi og Pól- landi og víðar og samgöngur hafa farið úr skorðum. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Vetur í Þýskalandi Fannfergi og kuldi hefur haft víðtækar afleiðingar víða í Evrópu. MYND AFP Neandertal- menn notuðu farða Vísindamenn segjast hafa fund- ið fyrstu sterku vísbendingarnar um að Neandertal-menn hafi notað „líkamsmálningu“ fyrir 50.000 árum. Samkvæmt skýrslu vísindamannanna voru skeljar sem fundist hafa og innihalda þurrar litaleifar „make-up“-ílát þess tíma. Teymið fann skeljarnar við fornleifagröft á tveimur stöðum í Murcia-héraði á Suður-Spáni og segja vísindamennirnir að fund- urinn hreki þá ímynd að Neand- ertal-menn hafi verið „hálfvitar“, og sýni að þeir hafi verið færir um táknræna hugsun. Svartir stautar með þurrum litaleifum, sem kunna að hafa verið notaðar til líkamsmálun- ar af Neandertal-mönnum, hafa fyrir fundist í Afríku. Dýrka heilagan dauða Glæpagengi í Mexíkó hafa, kaþólsku kirkjunni þar í landi og stjórnvöldum til mikillar ar- mæðu, tileinkað sér dýrkun á heilögum dauða, Santa Muerte, og virðist sem hann hafi tekið sess Maríu meyjar sem upp- spretta hugaróra af óhelgum toga. Það sem fer fyrir brjóstið á kirkjunnar mönnum og ráða- mönnum er að uppdiktaður dýrlingur úr þjóðsögum sé orð- inn ómissandi fylgihlutur hjá eiturlyfjaneytendum, gengj- um og höfuðpaurum eiturlyfja- samtaka. Hingað til hefur Santa Muerta aðallega haft aðdráttar- afl gagnvart ferðamönnum sem keypt hafa styttur af dýrlingnum sem minjagrip um Dag hinna dauðu. Faðir forsetans, listamaðurinn Fyrst hugðist Jean Sarkozy, sonur Nicolas Frakklandsfor- seta, nýta sér föðurnafnið til að komast við metorða í Frakklandi þegar hann reyndi að verða yfirmaður stofnunar sem fer með málefni helsta við- skiptahverfis Parísar. Nú beinast augu Frakka að föður Nicol- as, hinum 81 árs Pal, sem hefur samið um einkasýningu í listgalleríi í París í apríl. Þungamiðja sýningarinn- ar mun verða stórt málverk af Cörlu Bruni-Sarkozy þar sem hún situr á flygli og spilar á gítar. Ekki langt undan er Sarkozy sitj- andi við borð. Myndir Pals eru oftar en ekki af nöktum konum fyrir framan súrrealískan bakgrunn og hefur listamaðurinn uppskorið háð- ung listgagnrýnenda fyrir vikið. Fyrirætlanir Tyrkjans Mehmet Ali Agca, sem sýndi Jóhannesi II páfa banatilræði árið 1981, um að skrifa undir margra milljóna dala samning vegna kvikmyndar og útgáfu bókar hafa vakið hneykslan. Breska dagblað- inu Sunday Times barst handskrifað bréf frá Agca þar sem hann fullyrðir að „mikill áhugi væri í Japan og Kanada“ fyrir kvikmynd og heimildarþáttum fyrir sjónvarp. Í bréfinu lýsir Agca sér sem „and- lega heilbrigðum og sterkum, bæði andlega og líkamlega“ og mun hann hafa farið fram á tvær milljónir dala, um 250 milljónir króna, fyrir einka- sjónvarpsviðtal og fimm milljónir dala, um 630 milljónir króna, fyrir tvær bækur. Mehmet Ali Agca hefur einn- ig haft samband við bandaríska met- söluhöfundinn Dan Brown, höfund Da Vinci lykilsins, og ýjað að mögu- leikanum á því að skrifa bók, The Vat- ican Code, sem yrði síðan fylgt eftir með kvikmynd. Agca hefur verið í tyrknesku fang- elsi síðan árið 2000 þegar ítölsk stjórn- völd náðuðu hann og vísuðu úr landi. Í Tyrklandi hefur hann síðan afplán- að dóm, en hann var sakfelldur fyr- ir morðið á blaðamanninum Abdi Ipekci, sem var myrtur tveimur árum áður en tilræðið var gert gegn Jóhann- esi páfa. Á þeim tíma tókst Agci að flýja úr tyrknesku fangelsi. Enn er á huldu hvort Mehmet Ali Agci var einn að verki þegat hann skaut Jóhannes páfa á Péturstorginu í Róm árið 1981. Mehmet Ali Agca, sem hefur ekki gefið upp um hvort hann hyggist tjá sig um tilræðið við Jóhannes páfa, mun losna úr fangelsi 18. janúar. Tilræðismaður Jóhannesar páfa II hyggur á ritstörf: „Dan Brown“-bók og kvikmynd Páfinn og tilræðismaðurinn Jóhannes páfi heimsótti Agca í fangelsi árið 1983. Mikið hefur gengið á í samskipt- um múslima og kristinna í Mal- asíu og í helgarbyrjun var borinn eldur að fjórum kirkjum auk þess sem mikið bar á mótmælum. Mót- mælin eru tilkomin vegna nýfall- ins dómsúrskurðar um að kristn- ir megi nota orðið Allah um hinn kristna guð. Múslimskir predikar- ar notuðu föstudagsbænirnar til að mótmæla úrskurði dómsins. „Við munum ekki leyfa að orð- ið Allah verði notað í ykkar kirkj- um,“ sagði einn predikari í mosku í Kuala Lumpur, og mótmælend- ur gengu um með spjöld sem á var skrifað „Ranglega notuð nöfn orsaka villutrú“ og „Allah er ein- göngu fyrir okkur“. Kristnir mega ekki nota orðið Allah um guð sinn: „Allah“ bara fyrir múslima

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.