Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Page 20
Dorrit Moussaieff
FORSETAFRÚ
Dorrit fæddist í borgarhluta Buk-
hara-gyðinga í Jerúsalem en flutti
þrettán ára með fjölskyldu sinni til
London og ólst þar upp eftir það.
Vegna lesblindu sótti hún ekki
reglubundna skóla en naut þess í
stað heimakennslu.
Dorrit var einungis barn að
aldri er hún varð hugfangin af
skartgripum og hönnun þeirra og
hún varð snemma þekktur og eft-
irsóttur skartgripahönnuður. Hún
hóf störf við skartgripaverslun föð-
ur síns í Hilton Park Lane í London
er hún var fjórtán ára og fékkst síð-
an um árabil við skartgripahönn-
un og skartgripaviðskipti með
áherslu á sjaldgæfa steina. Auk
þess stundaði hún ýmis önnur við-
skipti, s.s. ferðaþjónustu á Kýpur
og sinnti fjölskyldufyrirtækinu. Þá
hafði hún á árum áður einnig um-
sjón með innréttingu fjölmargra
gamalla og sögufrægra húsa, eink-
um í Bretlandi.
Dorrit hefur verið greinahöf-
undur í breskum tímaritum, s.s.
fyrir tímaritið Tatler og í áratugi
tekið þátt í margvíslegu menn-
ingarlífi, einkum í Bretlandi og
Bandaríkjunum, og starfað með
fjölmörgum áhrifamönnum í list-
um og viðskiptum í ýmsum lönd-
um.
Dorrit hefur á undanförnum
árum einkum beitt sér fyrir því að
kynna íslenska menningu og listir
á alþjóðavettvangi og koma ungu
íslensku listafólki á framfæri.
Dorrit öðlaðist íslenskan rík-
isborgararétt 31.7. 2006. Hún var
kjörin kona ársins af Nýju lífi árið
2006. Af því tilefni tók tímaritið
fram: „að Dorrit sé glæsilegur full-
trúi lands og þjóðar hvar sem hún
komi. Þá hafi hún verið ötul við að
leggja velferðarmálum lið, þá sér-
staklega málefnum barna og ungl-
inga sem eiga við fötlun og geð-
ræn vandamál að stríða. Einnig
hafi hún lagt sig fram um að efla
og styðja við íslenska menningu
og koma íslensku listafólki á fram-
færi. Þá sé hún sjálf kraftmikil at-
hafnakona og góð fyrirmynd fyrir
íslenskar konur sem dreymir um
að láta til sín taka og sjá drauma
sína rætast.“
Fjölskylda
Dorrit giftist 1970, Neil Zarach,
þekktum innanhússhönnuði í
Lundúnum af gyðingaættum. Þau
skildu 1981.
Dorrit trúlofaðist árið 2000,
Ólafi Ragnari Grímssyni, f. 14.5.
1943, forseta Íslands. Þau giftu sig
á afmælisdegi forsetans árið 2003.
Foreldrar hans voru Grímur Krist-
geirsson og Svanhildur Ólafsdóttir
Hjartar.
Tvíburadætur Ólafs og fyrri
eiginkonu hans, Guðrúnar Katr-
ínar Þorbergsdóttur, f. 14.8. 1934,
d. 12.10. 1998, framkvæmdastjóra,
eru Guðrún Tinna Ólafsdóttir, f.
30.8. 1975, viðskiptafræðingur, gift
Karli Pétri Jónssyni framkvæmda-
stjóra og eiga þau tvær dætur, Katr-
ínu Önnu Karlsdóttur, f. 14.1. 2003,
og Kötlu Karlsdóttur, f. 18.12. 2006
en sonur Karls Péturs er Ari Páll
Karlsson, f. 17.10. 1997; Svanhild-
ur Dalla Ólafsdóttir, f. 30.8. 1975,
stjórnmálafræðingur og lögfræð-
ingur, gift Matthíasi Sigurðarsyni
tannlækni og eiga þau tvö börn,
Urði Matthíasdóttur, f. 3.11. 2004,
og Ólaf Ragnar Matthíasson, f.
21.11. 2007.
Systur Dorritar eru Tamara
Moussaieff, f. 1952 , búsett í New
York; Sharon Moussaieff, f. 1965,
búsett í Tel Aviv í Ísrael.
Foreldrar Dorritar eru Shlomo
Moussaieff, f. 1922, skarpgripasali
og meðal fremstu safnara heims
á fornminjum sem tengjast tím-
um Gamla testamentisins, og Alisa
Moussaief, húsmóðir. Þau hafa í
áratugi fengist við skartgripavið-
skipti.
Ætt
Shlomo Moussaieff er Ísraels-
maður af Sephardic-gyðingaætt-
um. Hann rekur ættir sínar aft-
ur til Bukhara, hinnar sögufrægu
borgar við Silkiveginn um Mið-
Asíu, en fjölskyldan hefur feng-
ist við skartgripasmíð og verslun
með demanta og aðra eðalsteina
um sex alda skeið. Systir Shlomo
er Shdema Moussaieff, frægur sál-
fræðingur og rithöfundur. Faðir
Shlomo var Rehavia Moussaieff,
bróðir Henri Moussaieff, langafa
píanóleikarans heimsfræga, James
Raphael og rithöfundarins Jeffrey
Moussaieff Masson.
Alisa, móðir Dorritar, er af Ash-
kenazi-gyðingaættum. Hún var
fædd í Austurríki en fjölskyldan
flúði til Palestínu skömmu áður
en þýskir nasistar lögðu undir sig
Austurríki. Alisa var m.a. aðstoð-
armaður og túlkur David Ben-Gur-
ions, fyrsta forsætisráðherra Ísra-
els.
MÁNUDAGINN
11. JANÚAR
30 ÁRA
n Jakub Budkiewicz Raufarseli 8, Reykjavík
n Edda Jónsdóttir Svarthömrum 54, Reykjavík
n Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir Dverghamri 31, Vest-
mannaeyjum
n Edda Elvý Hauksdóttir Seljahlíð 13f, Akureyri
n Þóranna Halldórsdóttir Bæjarholti 3, Hafnarfirði
n Herdís Eiríksdóttir Sæbólsbraut 12, Kópavogi
n Einar Haukur Gíslason Spóahólum 16, Reykjavík
n Olga Ellen Þorsteinsdóttir Esjugrund 96, Reykjavík
n Anna Hera Björnsdóttir Bólstaðarhlíð 39, Reykjavík
n Bjarni Árnason Meistaravöllum 11, Reykjavík
n Guðbjörn Ívar Kjartansson Eyravegi 46, Selfossi
n Jóna Benny Kristjánsdóttir Kjarnagötu 46, Akureyri
n Björgvin Björgvinsson Lynghólum 10, Dalvík
40 ÁRA
n Wenche Follaug Engihjalla 1, Kópavogi
n Anna María Elíasdóttir Strandgötu 13, Hvammstanga
n Kristín Laufey Ingólfsdóttir Vaðlabyggð 10, Akureyri
n Björgvin E Björgvinsson Stórakrika 49, Mosfellsbæ
n Ásta Nína Benediktsdóttir Fífulind 7, Kópavogi
n Zbigniew Jan Krupski Hverfisgötu 86, Reykjavík
n Steinbjörn Logason Hlíðarbraut 6, Hafnarfirði
n Brynhildur Ólöf Frímannsdóttir Byggðavegi 136,
Akureyri
n María Ragna Lúðvígsdóttir Grænuvöllum 5, Selfossi
n Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir Sunnubraut 29, Kópavogi
n Oddgeir Guðnason Leynisbraut 3, Grindavík
50 ÁRA
n Ragnar Gíslason Hólagötu 22, Vestmannaeyjum
n Guðbjörg María Ólafsdóttir Vesturbergi 163, Reykjavík
n Jón Ingi Jónsson Oddagötu 11, Akureyri
n Ágústa Baldursdóttir Hólabraut 13, Höfn í Hornafirði
n Sighvatur Óttarr Elefsen Hamratanga 11, Mosfellsbæ
n Árni Tómasson Gónhóli 21, Reykjanesbæ
n Sveinn Ríkarðsson Suðurgötu 85, Hafnarfirði
n Sveinar Eyfjörð Þórsson Víðilundi 15, Akureyri
n Kristín Jóhannsdóttir Kirkjuvegi 101, Vestmannaeyjum
n Harpa Gísladóttir Illugagötu 69, Vestmannaeyjum
n Þórhildur Guðrún Egilsdóttir Baughúsum 43,
Reykjavík
n Ólafía Dröfn Hjálmarsdóttir Grundargötu 98, Grund-
arfirði
n Jónína S. Sigurbjörnsdóttir Gerðhömrum 15,
Reykjavík
n Emilía Ingadóttir Skúlagötu 7, Borgarnesi
n Sólrún Elín Rögnvaldsdóttir Fálkahöfða 6, Mosfellsbæ
n Pétur Kjartansson Ólafsvöllum, Selfossi
n Guðgeir Eiður Ársælsson Gullengi 3, Reykjavík
60 ÁRA
n Jakob Smári Safamýri 25, Reykjavík
n Reynir Elíesersson Suðurhúsum 6, Reykjavík
n Guðrún Magnúsdóttir Spóaási 12, Hafnarfirði
n Guðlaug I Ólafsdóttir Bergholti 7, Mosfellsbæ
n Þór Lövdal Konráðsson Birkigrund 28, Kópavogi
n Kristján Sigurbjarnarson Leirutanga 19, Mosfellsbæ
n Hannes Sigurgeirsson Hlaðbæ 11, Reykjavík
70 ÁRA
n Örn Steinsen Sléttuvegi 23, Reykjavík
n Haukur Steindórsson Stapasíðu 1, Akureyri
75 ÁRA
n Guðmundur Sveinn Haraldsson Hraunbæ 138,
Reykjavík
n Björg Lilja Guðjónsdóttir Einarsnesi 6, Reykjavík
n Lilja Gunnarsdóttir Vallarbraut 10, Reykjanesbæ
n Halldóra Þorkelsdóttir Breiðuvík 22, Reykjavík
n Jón Leósson Vallarási 3, Reykjavík
n Alda Jónasdóttir Vesturgötu 17, Reykjanesbæ
80 ÁRA
n Óskar Jónsson Miðvangi 6, Hafnarfirði
n Valentínus GuðmundssonÞórðarsveig 1, Reykjavík
n Guðmundur Björn Sveinsson Kirkjuteigi 13, Reykjavík
n Áslaug Magnúsdóttir Hringbraut 42, Hafnarfirði
n Erlendur Guðmundsson Fjallalind 12, Kópavogi
n Ásta Þengilsdóttir Austurbyggð 3, Akureyri
n Þórunn Stefánsdóttir Vesturgötu 164, Akranesi
85 ÁRA
n Margrét Nikulásdóttir Reykhúsum 4b, Akureyri
n Björn Stefánsson Stekkjargötu 27, Reykjanesbæ
n Þorkell Sigmundsson Traðarstíg 10, Bolungarvík
95 ÁRA
n Hjalti Árnason Skeggjastöðum, Skagaströnd
TIL
HAMINGJU
MEÐ
AFMÆLIÐ!
60 ÁRA Á MORGUN
20 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 ÆTTFRÆÐI
Bogga bláa þrítug:
Kýlir á partí í Hveragerði
Elínborg María Ólafsdóttir er
naglafræðingur, nemi við Keili og
í þokkabót einhver harðasti sjálf-
stæðismaður sem fyrirfinnst í
Hveragerði, þar sem hún er bú-
sett með eiginmanni sínum, Gísla
Reyni Runólfssyni eggjabónda og
sonunum Runólfi, níu ára, og Ól-
afi Óskari, tveggja ára. Elínborg
sem er þrítug í dag, er auk þess, að
eigin sögn, algjört partídýr og af-
mælisfrík. Það má því búast við að
hún bregði fyrir sig betri fætinum í
tilefni dagsins, eða hvað?:
„Heyrðu, já - það verður af-
mælisveisla. Það vita sko allir í
þessum litla bæ hvað er í vænd-
um varðandi afmælið mitt. Ég
held reyndar ekki upp á það alveg
strax því það er svo mikið að gera
hjá mér þessa dagana. Ég er t.d.
að fara í fimmtugsafmæli nú um
helgina. En ég snuða fólk ekki um
afmælisveislu. Hún verður haldin
6. febrúar nk., að vísu í iðnaðar-
húsmæði hér í bænum svo hægt
verði að leggja meira í púkkið fyrir
veislufönginn. En ég á von á fjöl-
mennri veislu og gargandi fjöri, -
það máttu bóka.“
Verður þema?
„Ja, ætli ég ákveði það ekki bara
hér og nú að þemað verður „svart
og silfrað“. Ég var svolítið að pæla í
„gulli og silfri“ en það yrði kannski
heldur yfirdrifið í svona hráu iðn-
aðarhúsnæði. Aðalatriðið verður
samt fjörið - gítarspilið og söng-
urinn. Það er svo músíkalskt fólk í
kringum mig. Svo má geta þess að
þegar ég varð tvítug og tuttugu og
fimm ára, var ég bara með mega
stelpupartí. Þetta verður því í
fyrsta sinn sem karlarnir fá að vera
með - og þeir eru búnir að bíða
lengi eftir því get ég sagt þér.“
TIL
HAMINGJU
MEÐ
AFMÆLIÐ!
ÞRIÐJUDAGINN
12. JANÚAR
30 ÁRA
n Jerald Nueva Vallesterol Sólheimum 1, Reykjavík
n Silke Leyk Skyggni, Flúðum
n Nanoq Christian B Bisgaard Veghúsum 7, Reykja-
vík
n Harpa Sigurðardóttir Melgerði 26, Reykjavík
n Skafti Rúnar Þorsteinsson Skútagili 1, Akureyri
n Kristinn Nikulás Edvardsson Eggertsgötu 26,
Reykjavík
n Jón Sigurfinnur Ólafsson Gunnarsbraut 51,
Reykjavík
n Bjarki Týr Gylfason Svölutjörn 55, Reykjanesbæ
n Hjördís Jónsdóttir Haukanesi 10, Garðabæ
n Hörður Daði Björgvinsson Hunkubökkum, Kirkju-
bæjarklaustri
40 ÁRA
n Roman Sergeisson Gokoryan Hraunbæ 100,
Reykjavík
n Júlía Sigurðardóttir Víkurströnd 6, Seltjarnarnesi
n Viðar Bragason Björgu 1, Akureyri
n Sigurjón G Halldórsson Hvammsgerði 1, Reykjavík
n Bryndís Ingimundardóttir Hulduhlíð 14, Mos-
fellsbæ
n Borgar Antonsson Holtsenda, Höfn í Hornafirði
n Hálfdán Sveinbjörn Kristinsson Víðimel 21,
Reykjavík
n Guðfinna Rósantsdóttir Bakkaflöt 1, Akranesi
n Elberg Þorvaldsson Hveramörk 21, Hveragerði
n Sigrún Huld Hrafnsdóttir Bröndukvísl 17, Reykjavík
50 ÁRA
n Hans Olav Andersen Hávallagötu 21, Reykjavík
n Jörgen Boman Kársnesbraut 123, Kópavogi
n Eva Jóhannsdóttir Hlíðarási 39, Hafnarfirði
n Guðjón Óli Helgason Hátúni 6, Reykjavík
n Birgir Guðmundsson Selvogsbraut 1, Þorlákshöfn
n Kristín Theódóra Óladóttir Ásbúð 80, Garðabæ
n Gunnar Már Eiríksson Klukkurima 6, Reykjavík
n Kjartan Már Kjartansson Barðastöðum 17,
Reykjavík
n Axel Reynisson Baldursbrekku 12, Húsavík
n Kristín Runólfsdóttir Fagurgerði 4a, Selfossi
60 ÁRA
n Sigurgeir Högnason Heiðarhjalla 13, Kópavogi
n Herdís Ívarsdóttir Barrholti 17, Mosfellsbæ
n Erlín Óskarsdóttir Eystri-Hellum, Selfossi
n Hlynur Halldórsson Miðhúsum, Egilsstöðum
n Kristín Sigurbjörg Karlsdóttir Laufási 1, Hellis-
sandi
n Árni Guðjónsson Vestri-Tungu, Hvolsvelli
n Hörður Júlíusson Hlíðarhjalla 53, Kópavogi
n Steinunn Thorsteinson Hörðukór 5, Kópavogi
70 ÁRA
n Daníel J Kjartansson Borgarheiði 9v, Hveragerði
n Hanna Helgadóttir Hringbraut 2a, Hafnarfirði
n Bjarni Th. Mathiesen Þorláksgeisla 1, Reykjavík
75 ÁRA
n Ásta Heiður Tómasdóttir Rekagranda 5, Reykjavík
n Ásmundur Ari Sigurjónsson Hvassaleiti 10,
Reykjavík
80 ÁRA
n Borgar Símonarson Goðdölum, Varmahlíð
n Þrúður Júlíusdóttir Kirkjusandi 1, Reykjavík
85 ÁRA
n Jarþrúður Jónsdóttir Varmalæk, Borgarnesi
n Guðrún de L Etoile Jóruseli 4, Reykjavík
95 ÁRA
n Kristín Kristjánsdóttir Bláskógum 12, Reykjavík
Sm
áa
ug
lý
si
ng
as
ím
in
n
er 515
55
50
smaar@dv.is
Hafðu samband
í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift