Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 23
lega eins og vinnufélögum. Öðruvísi
hefði ég ekki getað lifað að fullu og
öllu sem kona í þessi tvö ár sem kraf-
ist var fyrir aðgerð.“
Á fimm barnabörn
Þegar Anna kom heim vakti hún
mikla athygli í samfélaginu. Hún
segist ekki hafa leitað eftir athygli
en að fólk hafi verið forvitið og hún
hafi ekki viljað ljúga heldur svarað
hreinskilnislega. Hún viðurkennir
að sumir hafi átt afar erfitt með að
sætta sig við ákvörðun hennar en
að flestir sem hafi verið neikvæðir í
upphafi hafi nú breytt sinni afstöðu.
Hún er í sambandi við tvö af börn-
um sínum og á fimm barnabörn sem
hún segir yndisleg. Hún hefur starf-
að hjá Orkuveitu Reykjavíkur í 13 ár
og líkar vel og segir andrúmsloftið
í vinnunni notalegt. Aðspurð seg-
ir hún karlana í vinnunni lítið kippa
sér upp við þá staðreynd að hún sé
trans. „Þeir verða bara að sætta sig
við mig og það gefur augaleið að
þegar maður er búinn að vera þetta
mörg ár á vinustað að þá væru menn
löngu búnir að grípa til aðgerða ef
þeir vildu losna við mig. Þarna ríkir
vinátta og við erum ekkert að káss-
ast hvert upp á annað. Ég er ánægð í
vinnunni en það er helst að ég sakni
sjómennskunnar.“
Hrifin af Jóhönnu
Anna hefur alltaf haft sterkar skoð-
anir á málunum eins og sést hefur á
vinsælu bloggi hennar og Facebook-
færslum. Hún segir skelfilegt ástand
ríkja á Íslandi og er fokreið forsetan-
um fyrir að hafa synjað Icesave-lög-
unum. „Ég næ ekki upp í hvað mað-
urinn er að gera. Ætlar hann að rústa
samfélaginu? Þetta eru ekki eins og
einhver fjölmiðlalög sem enginn
er að velta fyrir sér. Þetta er miklu
stærra mál og hefur þegar valdið
miklum skaða. Nú verður fólk að fara
gera eitthvað og Össur og félagar að
fara út og láta í sér heyra,“ segir Anna
sem er hrifin af Jóhönnu. „Jóhanna
er misskilin og ég held að hún sé
ekki þessi mannafæla sem fólk seg-
ir hana vera. Enginn annar forsæt-
isráðherra hefur komið jafnoft fram
í fjölmiðlum og haldið jafnmarga
fjölmiðlafundi og hún. Ef um Davíð
og Halldór væri að ræða myndu þeir
nú halda sig í sínum fílabeinsturni.
Jóhanna hefur hins vegar ekki viljað
gefa færi á sér og sínu einkalífi í fjöl-
miðlum og þaðan er þessi misskiln-
ingur komin. Hún veit sem er að er-
lendir fjölmiðlar vijla helst ræða við
hana um samkynhneigð hennar en
kannski ætti hún að opna sig meira
og nota tækifærið í leiðinni til að laga
ímynd Íslands á erlendum vettvangi.
Jóhanna ætlaði aldrei í formanninn
og var á leið út úr pólitík þegar hún
var hvött af flokksmönnum til að taka
þetta að sér og mér finnst flokkurinn
ekki hafa staðið nógu vel við bakið
á henni,“ segir Anna og bætir við að
það verði erfitt fyrir stjórnina að sitja
áfram verði Icesave fellt með þjóð-
aratkvæðagreiðslu ef til þjóðarat-
kvæðagreiðslu komi.
Býr ein með kisunum
Anna segir fyrstu kynskiptiaðgerðina
hafa verið framkvæmda hér á landi
árið 1997, tveimur árum eftir að hún
lauk sínu ferli. Í dag sé auðveldara
að fá samþykki fyrir aðgerð en þeg-
ar hún barðist við kerfið. „Í dag búa á
Íslandi milli fimm til átta manns sem
hafa farið í þessa aðgerð og ég var lík-
lega önnur eða þriðja í röðinni. Þrír
einstaklingar hafa farið hér heima
en aðrir erlendis. Ég veit líka um þrjá
einstaklinga sem eru fæddir úti en
búa hér og svo er nokkuð stór hópur
íslensks transfólks sem býr erlend-
is,“ segir Anna sem átti stóran þátt í
að ryðja leiðina fyrir transfólk á Ís-
landi. „Vissulega hefði ég viljað fæð-
ast sem kona og losna við allt þetta
vesen sem ég hef gengið í gegnum en
því miður var það ekki þannig,“ segir
hún en bætir við að hún sé ekki reið,
hvorki við sjálfa sig, samfélagið né
guð. „Auðvitað kemur stundum upp
í mér kergja og þá út í samfélagið,
að fæðast sem trans hefur sett mark
á allt mitt líf en ég hef það ágætt í
dag. Fólk er löngu hætt að horfa á
mig eins og var fyrst þegar ég kom
heim sem mér fannst alltaf dálítið
pínlegt,“ segir hún. Aðspurð segist
hún ekki vera í sambandi en að hún
búi ein með köttunum sínum. „Mig
langar ekki í samband og er sátt við
mig eins og ég er í dag,“ segir hún og
vill síður svara spurningunni hvort
hún sé samkynhneigð. „Er ekki eitt-
hvað til sem heitir tvíkynhneigð? Ég
hef aldrei lifað nógu lengi með öðru
hvoru kyninu til að hafa náð að þróa
kærleika eða hneigð í aðra hvora átt-
ina,“ segir hún og jánkar að ef til vill
hræðist fólk að nálgast hana á róm-
antískum nótum.
Trans er regnhlíf
Skilgreining Önnu á trans er í raun-
inni einföld. „Trans er regnhlíf. Allt
sem ekki er annaðhvort karl eða kona
er þar. Mitt tilfelli kallast transsexual,
sem er róttækasti þátturinn eða þegar
fólk vill ganga alla leið og klára þetta
með aðgerðarferli sem lokapunkt,“
segir hún en bætir við að minna fari
fyrir skilgreiningum en hér áður fyrr.
„Við skiptum okkur ekki lengur í „okk-
ur“ og „hina“ líkt og áður. Fyrir um 20
árum fór að örla á breytingum inn-
an okkar hóps líka en þar hafa einn-
ig verið fordómar. Í dag er fólk mun
frjálslyndara. Hér áður fyrr leit trans-
sexual hópurinn á sig sem eðalhóp-
inn og aðra sem óæðri. Þetta er sem
betur fer að mestu horfið.“
Aðspurð hvort hún vilji koma
einhverjum skilaboðum til þeirra
sem vanti kjarkinn til að koma
hreint út og viðurkenna að þeir séu
trans segir hún að erfitt sé að setja
sig í annarra manna spor. „Fólk
verður að ákveða sjálft fyrstu skrefin
og það fer eins langt og það treyst-
ir sér til. Ég get ekki né má ýta fólki
af stað því þá er ég að taka á mig
ákveðna ábyrgð. Fólk verður alfar-
ið að finna það hjá sjálfu sér hvort
það sé tilbúið en svo get ég verið til
staðar og bent á réttu leiðina,“ seg-
ir hún og minnir á Félag transfólks
á Íslandi bæði fyrir transfólk og að-
standendur þeirra. „Svona fréttir
geta reynst erfiðar fólkinu í kring og
við erum að reyna koma á einhvers
konar aðstandendahópi innan fé-
lagsins en svo er líka hægt að hafa
samband við Samtökin 78 en þar er
virkt félag fyrir aðstandendur,“ seg-
ir Anna sem er ánægð með hversu
langt þessi mál eru komin á veg.
Það megi þó alltaf gera betur. „Sem
betur fer er afstaða yfirvalda gagn-
vart transfólki mun frjálslyndari en
hún var. Þetta er orðið allt miklu já-
kvæðara enda hafa rannsóknir sýnt
fram á að hæfilegt frjálslyndi er góðs
viti. Ég á mér einfalda framtíðarsýn.
Það eina sem ég vil er að öllum sé
sama þó þessi eða hinn sé trans og
að trans verði það viðurkennt að við
hættum að velta okkur upp úr því
hvort náunginn við hliðina hafi far-
ið í kynskiptiaðgerð eða ekki.“
indiana@dv.is
FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 23
„Sé ekki eftir neinu“
„Ég átti erfitt með að finna mér stað á meðal
félaganna og það kom ekki til greina að segja frá
hvað væri að angra mig. Þeir fáu hommar sem
þorðu að koma út úr skápnum fengu slæmt umtal
og allt slíkt var illa liðið.“
„Er ekki eitthvað til sem
heitir tvíkynhneigð?
Ég hef aldrei lifað nógu
lengi með öðru hvoru
kyninu til að hafa náð
að þróa kærleika eða
hneigð í aðra hvora
áttina.“
„Þeir verða bara að sætta sig við mig og það
gefur augaleið að þegar maður er búinn að
vera þetta mörg ár þá væru menn löngu búnir
að grípa til aðgerða ef þeir vildu losna við mig.“