Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 29
SMÁAUGLÝSINGAR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 29 NUDD Nudd fyrir heilsuna Ertu aum/ur í hálsi eða höfði ? Áttu erfitt með að komast framúr á morgnana? Þá er þetta rétta stofan fyrir þig. Er með 40 ára reynslu í nuddi. Með diplóma frá 4 löndum. Gerður Benediktsdóttir nuddari G. Ben Jurtavörur Timapantanir og uppl. í S. 588 2260 / 863 2261 »Kennsla ÖKUKENNSLA www.aksturinn.is S. 694 9515 Öku og bifhjólakennsla. Tek einnig að mér akstursmat. Uppl í síma 694 9515 Haukur Vigfússon. »Tómstundir GISTING Gista.is Bjóðum upp á gistingu á besta stað í bænum og 2ja og 3ja herbergja íbúðir, fullbúnar húsgögnum og uppbúnum rúmum. Internet-tenging er til staðar. S. 694 4314. www.gista.is »Húsnæði HÚSNÆÐI Í BOÐI Sm áa ug lý si ng ar SÍMINN ER 515 55 50 sm aa r@ dv .is Hafðu samb and í sím a 515 -5555 eða s endu tölvup óst á ask rift@d v.is - inn í h lýjuna Fáðu D V heim í áskrif t Tónlistarleikir hafa nú um nokkura ára skeið verið mjög vinsælir. Fyrst karíókíleikir eins og Singstar en svo komu hljómsveitarleikirnir sem tóku þetta á næsta stig. Guitar Hero og svo Band Hero þar sem er hægt að leika á öll helstu hljóðfæri sem þú þarft í alvöru rokkhljómsveit auk þess að syngja með. Nýjasta viðbótin er svo DJ Hero sem hefur einnig slegið rækilega í gegn. Í þessari vasaútgáfu af Band Hero er hægt að spila á þrjú hljóðfæri auk þess að syngja. Gítar og bassa sem spilast með sérstöku gítargripi sem er fest á Nintendo DS-vélina og svo trommur. Til þess að leika á þær rennir maður gúmmíhulsu yfir vél- ina sem gerir það að verkum að það eina sem þú þarft að spá í eru fjórir stórir takkar til að slá taktinn. Af hljóðfærunum sem eru í boði fannst mér trommurnar skemmti- legastar. Kannski vegna þess að ég hef litla reynsu af þessum leikjum og var ekki alveg að ná gítargripsdæm- inu. Það er nokkuð gott úrval af lög- um og maður kemst á flug með góð heyrnartól og vasatrommusettið. En það eru ekki bara feitir puttar mínir sem eru vandamálið heldur er gítar- gripið ekkert sérstaklega meðfæri- legt og nokkuð erfitt að ná upp góð- um takti á það einfaldlega sökum hönnunarinnar. Þá er snertiskjár- inn, sem yf- irleitt er frá- bær, nokkuð svikull svo maður verð- ur fljótt pirr- aður Grafíkin í leiknum er ekki upp á marga fiska enda er það hljóðið sem skiptir öllu og það er frá- bært. Það er ekki ólíklegt að í næstu útgáfu af leiknum verði búið að leysa alla þessa helstu hnökra. Þessi vasaútgáfa af Band Hero er þó bara nákvæmlega það og ef þú vilt grípa í trommurnar eða gítarinn í jólaboðinu þá er hann tilvalinn. Svo getur þú líka spilað með öðrum sem eiga leikinn sem er hörku fjör. Ásgeir Jónsson Með hljómsveit í vasanum Þessi dómur er löngu tímabær. Ég man þegar fyrri leikurinn kom út, hann var frábær. Þessi ennþá betri. MW2 eiginlega þrír leikir í einum, söguþráður, netspilun og co-op. Söguþráðurinn að þessu sinni er mun stórbrotnari en áður hefur þekkst, eða fyrir utan þá leiki sem fjalla um seinni heimsstyrjöldina, hún var helvíti stórbrotin. Í staðinn fyrir að standa í einhverju hefðbundnu stríðsbrölti yrir botni Miðjarðarhafs, stýra menn núna sérsveitarmönn- um, í atburðarás sem endar á því að Rússar ráðast inn í Bandaríkin. Verk- efnin eru mjög skemmtileg, og hæfi- lega politicly incorrect eins og nú- tímahernaður er oft. Þá sérstaklega verkefnið á flugvellinum, sem for- eldrar ættu helst ekki að heyra neitt af. Söguþráðurinn er hlaðinn hasar, og skemmtilegu stöffi, hann spilast mjög hratt í gegn, á einhverjum fimm tímum, en það er á einhvern hátt al- gjörlega fullnægjandi, að minnsta kosti þegar maður gerir sér grein fyr- ir því að öll netspilunin sé eftir. Og vindum okkur þá að henni. Einu orði sagt rosaleg. Þvílíkur hraði, og graf- ík sem enginn annar netleikur get- ur jafnað. Spennan og aðstæðurnar sem geta myndast eru nánast ávana- bindandi, að minnsta kosti hafa þrír menn á mínu heimili deilt með sér yfir 100 klukkustundum af brjálæði. Þarna er á ferðinni einhver besta skemmtun sem ég get ímyndað mér um þessar mundir. Co-op hluti leiks- ins heillaði mig reyndar ekki mikið, enda leiðist mér að deila 32” sjón- varpi í tvennt, en aðrir í kringum mig gjörsamlega elskuðu þetta. Modern Warfare 2 er enn eitt dæmið um hvað tölvuleikjaiðnaðurinn er rosalegur og hvað hugvit manna hefur sprengt af sér hverja aðra þrautina. Þetta er leikur ársins, ásamt Uncharted, ekki spurning. Og líklega eini leikurinn á markaðnum í dag, sem er í alvöru þess virði að borga meira en tíu þús- und spírur fyrir. Stríð hafa aldrei ver- ið jafn skemmtileg, sagði ég í dómi mínum um fyrri leikinn, og nú er það aftur við lýði. Tvennt væri ég þó til í að vita, hvað leggja vopnaframleið- endur mikið af aurum í leikinn, og breytir leikurinn viðhorfum barna til stríðs. Dóri DNA CALL OF DUTY: MODERN WARFARE 2 Tegund: Skotleikur Spilast á: PS3/Xbox360 TÖLVULEIKIR HIÐ STÓRKOST- LEGA STRÍÐ! Call of Duty - Modern Warfare 2 „Tvennt væri ég þó til í að vita, hvað leggja vopnaframleiðendur mikið af aurum í leikinn, og breytir leikurinn viðhorfum barna til stríðs.“  Ótrúlegur leikur „Spennan og aðstæðurn- ar sem geta myndast eru nánast ávanabindandi.“ BAND HERO Tegund: Tónlistarleikur Spilast á: Nintendo DS TÖLVULEIKIR Band Hero Er fínasta skemmtun. Á MÁNUDEGI AUKASÝNINGAR Á ÁSTARDRYKKNUM Tveimur aukasýningum á Ástardrykknum hefur verið bætt við í janúar, annars vegar föstudaginn 15. janúar klukkan 20 og hins vegar laugardaginn 23. janúar klukkan 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.