Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Qupperneq 3
FRÉTTIR 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 3
Heildarvirði eigna Landsbanka Ís-
lands hf. var metið á 816 milljarða
króna í apríl í fyrra. Við þessa upphæð
átti að bætast 284 milljarða króna
greiðsla vegna þeirra eigna sem flutt-
ar voru inn í Nýja Landsbankann í
október 2008. Eignirnar nema því um
1.100 milljörðum króna.
Samtals 62 starfsmenn vinna
fyrir gamla Landsbankann á Íslandi
en 75 í London. Útibúið í London
er stærsta og mikilvægasta erlenda
starfsstöð Landsbanka Íslands hf.,
samkvæmt yfirliti frá skilanefnd
bankans sem kynnt var í október.
Yfir þessari starfsstöð er Bald-
vin Valtýsson. Í eignasafni útibús-
ins vega ýmiss konar útlánasöfn
þyngst. Þau skiptast í grófum drátt-
um í tvennt: sjóðstreymislán, en
ætlað endurheimtuhutfall þeirra er
um 67 prósent, og eignatryggð lán,
með áætlað endurheimtuhlutfall
um 97 prósent. Þeir 75 starfsmenn
sem vinna í útibúinu í London
vinna við að sjá um og halda utan
um þessar eignir dag frá degi.
Einnig má geta þess að verð-
bréfasöfn bankans, skuldabréf og
hlutabréf, eru að mestu bókfærð
í útibúinu í London. Útgefend-
ur þessara bréfa eru flestir erlend
hlutafélög og verðbréfin mörg hver
skráð á markaði erlendis. Útibúið í
London er því afar mikilvægt fyrir
uppgjörið á gamla Landsbankan-
um sem nú fer fram og eignirnar
sem sýslað er með þar eru gríðar-
lega miklar.
Eignasafn Landsbankans
og starfsemin í London
Tekjuhæstir
2008
7 Rósant Már Torfason, fyrrverandi framkvæmdastjóri
hjá Glitni -
7,3 milljónir
10 Vilhelm Már Þorsteinsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
hjá Glitni,
6 milljónir
1
Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings -
37,3 milljónir
2
Sigurjón Þ. Árnason,
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans -
23,9 milljónir
3
Elín Sigfúsdóttir,
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans -
12,5 milljónir
4
Jón Sigurðsson,
forstjóri FL Group -
9,4 milljónir
5
Steinþór Gunnarsson,
fyrrverandi yfirmaður verðbréfa-
deildar Landsbankans -
8,3 milljónir
6 Steinþór Baldursson, fyrrverandi yfirmaður
fyrirtækjaráðgjafar Lands-
bankans -
7,5 milljónir
8
Halldór J. Kristjánsson,
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans -
7 milljónir
9
Sólon Sigurðsson,
fyrrverandi bankastjóri
Búnaðarbankans -
6,5 milljónir
ENN Á OFURLAUNUM Í LONDON
Var einn sá launahæsti
Baldvin var einn launahæsti
bankamaðurinn fyrir hrun og
er með tugmilljónir króna í
árslaun. Hann vill þó ekki gefa
laun sín í dag upp.
Engin merki um Landsbankann Húsið
við 128 Queen Victoria Street í City-hverf-
inu í London, þar sem Landsbankinn er til
húsa, er ekki merkt bankanum.
n Baldvin, sem er viðskiptafræðingur að mennt, er útibússtjóri Landsbankans í
London. Hann starfar þar á vegum skilanefndar bankans. Baldvin var sömuleiðis
útibússtjóri bankans fyrir hrun og var þá einn launahæsti bankamaður landsins.
n Baldvin hóf störf í Landsbankanum árið 2003 þegar um 35 starfsmenn
Búnaðarbankans yfirgáfu bankann og fóru yfir í Landsbankann með Sigurjóni
Árnasyni. „Stóra-bankamannaránið” er þessi atburður kallaður í fjármálaheiminum
og þótti marka mikil tíðindi þar sem flestir stjórnendur Búnaðarbankans færðu
sig um set.
n Þetta kom sér þó ágætlega þar sem stjórnendur Kaupþings tóku við flestum
stjórnendastöðum eftir að sá banki var sameinaður Búnaðarbankanum árið 2003.
n Í Búnaðarbankanum hafði Baldvin borið ábyrgð á viðskiptum við stærstu
viðskiptavini bankans. Hann hélt þessu áfram í Landsbankanum á Íslandi áður en
hann tók við útibússtjórastöðunni í London af Lárusi Welding í lok apríl 2007.
Hver er Baldvin Valtýsson?