Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FRÉTTIR Hreinsanir á Morgunblaðinu halda áfram eftir að Elvu Björk Sverrisdóttur, varaformanni Blaða- mannafélagsins, var sagt upp störfum þegar hún sneri aftur úr fæðingarorlofi. Elva Björk er ein þeirra sem höfðu opinberlega lýst yfir áhyggjum af trúverðugleika Morgunblaðins vegna ráðningar Davíðs Oddssonar í starf ritstjóra. Fjölmargir blaðamenn hafa verið reknir en flokksgæðingar í Sjálf- stæðisflokknum verið teknir inn í staðinn. Þungavigtarmenn út Á síðustu mánuðum hafa tugir blaðamanna, sumir með áratug- areynslu, verið reknir af Morgun- blaðinu og skoðanabræður yfir- stjórnar blaðsins ráðnir í staðinn. Ólafur Stephensen ritstjóri var rek- inn í haust. Hann hafði starfað á Morgunblaðinu um langt skeið, en strax varð ljóst að nýjum eigendum blaðsins þótti hann of hallur undir Evrópusambandsaðild. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, for- maður Blaðamannafélagsins, vann til blaðamannaverðlauna á síðast- liðnu ári fyrir sjónvarpsfréttir sín- ar á mbl.is. Fréttaflutningur henn- ar fór hins vegar mikið í taugarnar á ákveðnum öflum í samfélaginu, sem þótti hún of höll undir sitjandi ríkisstjórn. Dæmi um það er sí- felld gagn- rýni á störf hennar á vefnum AMX. Svo fór að hún var með þeim fyrstu sem voru reknir eftir að Dav- íð tók við störfum. Aðrir þunga- vigtarmenn á Morgunblaðinu sem voru reknir í haust eru Björn Vign- ir Sigurpálsson, Þröstur Emilsson, sem var kosningastjóri Samfylk- ingarinnar vorið 2003, Árni Jörg- ensen og Freysteinn Jóhannsson, sem hafði starfað á Morgunblað- inu nær óslitið síðan 1967, svo dæmi séu nefnd. Boðið að falsa söguna Nokkrir blaðamenn til viðbótar hættu sjálfviljugir þegar nýir rit- stjórar tóku við. Þeirra á meðal nærri allir á viðskiptadeild blaðs- ins, en þeir fóru flestir yfir á Við- skiptablaðið, meðal annars fyrr- verandi viðskiptaritstjórinn, Björgvin Guðmundsson, sem var meðal fyrstu blaðamanna til að fjalla um ástarbréf Seðlabankans á forsíðu Morgunblaðsins. Þórð- ur Snær Júlíusson, hafði verið mjög atkvæðamik- ill í viðskiptafréttum á Morgunblaðinu. Hann fjallar um ástæðu þess að hann sagði starfi sínu lausu í grein í nýjasta hefti Reykjavík Grap- evine. Þar segir hann að sér hafi verið boðið að taka þátt í að falsa söguna. „Ráðningu Davíðs má líkja við að bankaræningi yrði skipað- ur dómari í Hæstarétti til þess að dæma í eigin sök. Það sést á sögu- skoðun Morgunblaðsins síðustu mánuði, sem er stýrt af manni sem hefur ríka hagsmuni af því að sag- an verði skrifuð á ákveðinn hátt, jafnvel þó að þessi söguskrif séu langt frá raunveruleikanum,“ skrif- ar Þórður Snær. Hann gagnrýnir að maður sem hefur aldrei áður starfað að ráði í fjölmiðlum og hafi því hvorki þekk- ingu né reynslu til, sé ráðinn sem ritstjóri. „Það er ósanngjarnt gagn- vart blaðamönnum Morgunblaðs- ins að vinna undir manni sem veit svörin við spurningum þeirra, en hvorki getur né vill svara þeim.“ Gæðingar inn Allar uppsagnir á Morgunblaðinu hafa verið sagðar vera í hagræðingarskyni og sem hluti af skipu- lagsbreytingum. Ár- vakur hefur glímt við mikinn rekstrarhalla og er talið að tap á rekstri útgáf- unnar nemi á aðra millj- ón króna á dag. Þess er beðið að til stórra tíð- inda dragi í útgáfu blaðs- ins á næstu mánuðum. Þrátt fyrir þessar uppsagnir hafa nokkrir blaðamenn verið ráðnir inn síðan Davíð varð ritstjóri. Þeirra á meðal er Ívar Páll Jónsson, nýráðinn við- skiptaritstjóri. Hann starfaði síð- ast fyrir Björgólfsfeðga. Ívar Páll er sonur Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar hæstaréttardómara, sem er náinn vinur Davíðs. Þórður Gunnarsson, fyrrver- andi blaðamaður á Viðskiptablað- inu og framkvæmdastjóri SUS, var einnig ráðinn inn, ásamt Erni Arn- arssyni, sem kom af Viðskiptablað- inu. Hlynur Sigurðsson, sem hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæð- isflokksins, var síðan ráðinn sem fréttastjóri Sjónvarpsfrétta Morg- unblaðsins og Skjás eins. HREINSANIR Á MOGGANUM Fjölmargir blaðamenn hafa verið reknir á Morgunblaðinu síðustu mánuði, en í stað þeirra hafa komið flokksmenn í Sjálfstæðisflokknum. Fyrrverandi blaðamað- ur Morgunblaðsins segir að sér hafi verið boðið að falsa söguna með því að starfa undir stjórn Davíðs Oddssonar sem ritstjóra blaðsins. „Ráðningu Davíðs má líkja við að bankaræningi yrði skipaður dómari í Hæstarétti til þess að dæma í eigin sök.“ VALGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Ólafur Stephensen Ritstjórinn þótti vera Evrópusinni, ólíkt eigendum Árvakurs. Elva Björk Sverrisdóttir Varafor- maður Blaðamannafélags Íslands gagnrýndi ráðningu Davíðs Oddsson- ar og var Elva Björk rekin þegar hún sneri aftur úr fæðingarorlofi. Fyrrverandi kosningastjóri Samfylkingar Þröstur Emilsson var einn þeirra blaðamanna sem voru reknir um það leyti sem Davíð tók við. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Formað- ur Blaðamannafélagsins var rekinn í haust en fékk nokkrum mánuðum áður verðlaunin Blaðamaður ársins. Rekin af Morgunblaðinu Haraldur Johannessen Hinn ritstjóri Morgunblaðs- ins er góðvinur Þorsteins Davíðssonar Oddssonar. Davíð Oddsson Rit- stjóri Morgunblaðsins hefur ráðið flokksmenn. Sonur Jóns Steinars Ívar Páll Jónsson er sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar, sem er náinn vinur Davíðs og var skipaður hæstaréttar- dómari í forsætisráðherratíð hans. Fer fyrir hlutahafahópnum Óskar Magnússon er útgefandi Morgun- blaðsins og fer fyrir Þórsmerkur- hópnum sem eignaðist Moggann. Forsetinn kom- inn til Indlands Ólafur Ragnar Grímsson for- seti og föruneyti hans komu til Mumbai á Indlandi á þriðju- dagsmorgun og hófst þá opinber heimsókn hans til landsins. Með- an á heimsókninni stendur tekur forsetinn við Nehru-verðlaunun- um og fundar meðal annars með forseta, varaforseta og forsætis- ráðherra Indlands. Í för með forseta eru Dorrit Moussaieff forsetafrú, embættis- menn, vísindamenn og sérfræð- ingar við Háskóla Íslands. Þar er hins vegar enginn ráðherra eins og til stóð áður en forsetinn synj- aði Icesave-lögum staðfestingar. Fyrsta daginn sat forsetinn málþing um tækni, orku og við- skipti og heimsótti skóla fyrir fá- tæk börn. Þrjú tilnefnd Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudagsmorgun að til- nefna Davíð Þór Björgvins- son, núverandi dómara við Mannréttindadómstólinn, Hjördísi Björk Hákonardótt- ur hæstaréttardómara og Pál Hreinsson hæstaréttar- dómara sem dómaraefni af Íslands hálfu við Mannrétt- indadómstól Evrópu. Mannréttindadómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja og er hver dómari skipaður til sex ára í senn. Kjörtímabil íslensks dómara við dóm- stólinn rennur út 31. október 2010 og fór Evrópuráðið því þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðuneytið að tilnefnd yrðu af Íslands hálfu þrjú dómaraefni.  Reiðslóðar á netinu Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, hefur nú aukið og endurbætt reiðslóðabanka sinn og gert hann aðgengilegan á netinu. 800 reiðslóðir má finna á heimasíðu hans, jonas.is. Þangað geta menn sótt sér reiðslóð- ir og hlaðið þeim inn á kort í tölvum sínum og staðsetningartækjum. Við- bæturnar eru einkum úr Dölun- um og Þingeyjarsýslum, Árnes- sýslu og Rangárvallasýslu. Af reiðslóðunum eru 130 reiðferlar, þar sem slóðirnar eru nákvæmlega stikaðar í GPS- tækjum. Hinar 670 slóðirnar eru reiðleiðir, sem mældar eru út eftir kortum, einkum gömlum herforingjaráðskortum og nýj- um útivistarkortum. Catalina verður áfram í varðhaldi Gæsluvarðhald yfir Catalinu Ncogo hefur verið framlengt til 9. febrúar, að kröfu lög- reglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Catalina var handtekin í desember vegna gruns um aðild að mansali og fyrir að hafa haft millligöngu um vændi. Úrskurð- ur Héraðsdóms Reykjaness var kærður til Hæstaréttar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.