Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Síða 13
13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
AÐ HLUTA TIL BYGGT Á HEIMILISHANDBÓKINNI EFTIR CASSÖNDRU KENT
bletti eftir gæludýr eða barn. Einn hlutur
ediks á móti fimm hlutum vatns.
28. REYKINGALYKT Losna má
við vonda lykt úr ísskápnum
með því að setja borðedik
í litla skál og láta standa
yfir nótt. Þú getur einnig
losnað við reykingalykt
með því að hella ediki í skál
og geyma á stofuborðinu í
einn dag eða svo.
29. LYKT EFTIR MÁLUN Málning-
arlykt má eyða með því að hafa hálfan lauk,
með skurðsárið upp, á diski inni í herberginu
sem verið er að mála. Skiptið um lauk daglega
þar til lyktin hverfur.
30. AFÞÝÐIÐ ÍSSKÁPINN
Gott er að nota matarsóda og
volgt vatn til að þrífa innan úr ís-
skápnum og frystihólfinu. Takið
úr sambandi og stingið hárblásara
í samband í staðinn. Notið hann
til að flýta fyrir en gætið þess að blása
ekki lengi á plast. Ef ekki stendur til að nota
ísskápinn um hríð er gott að geyma skál með
kattasandi eða viðarkolum inni í ísskápnum.
Það eyðir ólykt.
MATVÆLI
31. FRYSTU RJÓMANN Ef rjóminn í
ísskápnum er að renna út er tilvalið að frysta
hann í klakapokum og eiga þannig alltaf rjóma
til taks í súpuna eða sósuna.
32. HEIMATILBÚINN RASPUR
Brauðskorpur og enda má þurrka í bréfpoka og
saxa í matvinnsluvél. Mylsnuna má nota sem
rasp utan á fisk eða kjöt.
33. TÓMATSÓSAN
FÖST Stundum reynist
erfitt að ná tómatsósu eða annarri þykkri sósu
úr glerflöskum. Gott ráð er að stinga sogröri
niður á botn og blása örlítið. Þá losnar sósan
um leið.
34. AÐ SALTA MAT Bætið salti snemma
út í súpur og kássur svo þær verði bragðmiklar.
Saltið kjöt hins vegar síðast. Ef það er saltað í
byrjun getur það orðið seigt.
35. OF MIKIL FITA Látið nokkra ísmola
í réttinn ef þið viljið minnka fituna. Takið þá
strax aftur upp úr. Fitan loðir
við ísmolana. Einnig má strjúka
salatblaði yfir fitubrákina.
36. BRENNDUR
MATUR Hellið matnum
í annan pott um leið og það
uppgötvast. Bætið vatni út
í auk chillipipardufts eða pipars til að deyfa
hugsanlegt brunabragð.
37. OF ÞUNN SÚPA Ef súpan er of þunn,
og þú átt ekki þar til gert mjöl, má nota kartöflur
til að þykkja hana. Ef sósan er eins er gott að
hræra hveiti saman við mjólk og hella varlega út
í á meðan hrært er. Þá þykknar sósan um leið.
38. SALTUR MATUR Ef maturinn er of
saltur má setja hráa kartöflu (eða kartöfluskíf-
ur) út í. Látið sjóða og takið kartöfluna upp úr.
Hún sýgur í sig saltið.
39. SVO EKKI SJÓÐI
UPP ÚR Minni líkur er á
því að mjólk sjóði upp úr ef
potturinn er fyrst skolaður
úr köldu vatni. Berið feiti á
pottbarma þegar aðrir vökvar
eiga í hlut.
40. ÞEGAR MJÓLK SÝÐUR UPP ÚR
Ef þú hefur gleymt þessu og mjólkin er alveg að
sjóða upp úr má lyfta pottinum upp og skella
honum harkalega á borðið.
41. ÞROSKAÐIR ÁVEXTIR Setja má
epli og perur í bréfpoka með þroskuðu epli og
flýta þannig fyrir því að þau þroskist. Stingið
nokkur göt á pokann og geymið á svölum,
dimmum stað.
EKKERT BRUNA- BRAGÐ!