Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Page 19
FRÉTTIR 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 19
Á sama tíma og Peter Robinson tekur sér sex vikna frí til að sinna fjölskyldumálum
er hafin herferð til að koma Mrs. Robinson, gömlu lagi eftir Paul Simon, í efsta sæti
bresks lagalista. Lagið heyrðist fyrst í kvikmynd sem fjallaði um samband ungs manns
og roskinnar konu.
Fjölskylduharmleikur forsætisráð-
herra Norður-Írlands hefur verið um-
fangsmikill í fréttum breskra fjölmiðla
undanfarna daga. Umfjöllunin fór á
skrið eftir að Iris Robinson, sextug eig-
inkona Peters forsætisráðherra, upp-
lýsti að hún hefði gert sjálfsvígstilraun
á síðasta ári í kjölfar ástarsambands
við ungan mann, Kirk McCambley,
sem þá var nítján ára.
Til að bæta gráu ofan á svart viður-
kenndi Iris, sem er, eða var, hátt sett-
ur stjórnmálamaður í Lýðræðisflokki
sambandssinna, að hafa tryggt hinum
unga elskhuga 50.000 sterlingspunda
lán frá tveimur kaupsýslumönnum
svo hann gæti komið komið á laggirn-
ar eigin kaffihúsi í Belfast.
Peter Robinson er eðlilega í sár-
um eftir uppljóstranirnar en þvertek-
ur fyrir að hafa haft vitneskju um fjár-
málavafstur eiginkonunnar og hefur
heitið að hreinsa nafn sitt. Peter, sem
hefur farið fram á rannsókn á lána-
málinu, steig til hliðar í gær og hyggst
taka sér sex vikna frí til að greiða úr
fjölskyldumálunum.
Frú Robinson
Ástarævintýri Irisar Robinson hefur
haft áhrif út fyrir landsteina Írlands
og vettvang stjórnmálanna því að á
netinu er hafin herferð til að koma
lagi Pauls Simon, Mrs. Robinson,
sem hann flutti ásamt Art Garfunkel,
í fyrsta sæti breskra lagalista.
Lagið heyrðist fyrst árið 1976
í kvikmynd Mikes Nichols, The
Gradu ate, sem fjallaði um útskriftar-
nema sem er táldreginn af sér mun
eldri konu. Það voru Dustin Hoffman
og Anne Bancroft sem léku aðalhlut-
verkin í kvikmyndinni, en margir sjá
í henni samsvörun í raunverulegu
ástarævintýri hinnar sextugu forsæt-
isráðherrafrúar og hins unga manns.
Árið 1976 varð kvikmyndin mik-
il lyftistöng fyrir lag Pauls Simon og
komst það í fyrsta sæti bandaríska
Billboard-listans. Nú vonast for-
svarsmenn herferðarinnar til þess
að lagið nái fyrsta sæti á lista næsta
sunnudags á Bretlandi „til heiðurs
hinni forsmáðu forsetafrú Norður-
Írlands“. Til að það takist verða þátt-
takendur að hala laginu niður á net-
inu.
„ÞÉR TIL HEIÐURS,
FRÚ ROBINSON“
Lagið heyrðist fyrst árið 1976 í kvikmynd Mikes
Nichols, The Graduate, sem fjallaði um útskriftar-
nema sem er táldreginn af sér mun eldri konu.
Elskhuginn ungi Kirk McCambley fékk
himinhátt lán fyrir tilstilli forsætisráð-
herrafrúarinnar. MYND AFP
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Hjónin þegar allt lék í lyndi Robinson-
hjónin eiga ekki sjö dagana sæla nú um
stundir. MYND AFP
Sarah Palin fær nýtt starf hjá hægrisinnaðri fréttastöð:
Stjórnmálaskýrandi hjá Fox
Söruh Palin skaut upp á stjörnuhim-
ininn í kosningaslagnum um emb-
ætti forseta Bandaríkjanna árið 2008
og sýndi þó nokkra stjörnueiginleika,
meðal annars í þættinum Saturday
Night Live og síðar með útgáfu end-
urminninga sinna sem urðu metsölu-
bók. Einnig varð hún hugljúfi reiðra
repúblikana á síðasta ári og nefnd
til sögunnar sem fyrirmynd upp-
rennandi stjórnmálakvenna. Nú hef-
ur Sarah bætt nýrri fjöður í sinn hatt
því Fox-fréttastöðin hefur staðfest að
Sarah muni verða í hlutverki stjórn-
málaskýranda í nokkrum föstum
þáttum sjónvarpsstöðvarinnar.
Engum blöðum er um það að fletta
að staðan getur reynst Söruh ómetan-
legur vettvangur til að ná til milljóna
hugsanlegra kjósenda, enda hefur
hún viðrað þann möguleika að hún
kunni að sækjast eftir forsetaembætt-
inu árið 2012.
Ráðning Söruh Palin til Fox bind-
ur enda á vangaveltur sem vöknuðu
um áform hennar þegar hún sagði
ríkisstjóraembætti sínu í Alaska
lausu um mitt síðasta ár. Lítil áhöld
eru um að Sarah Palin mun falla vel
inn í hópinn á fréttastöð Fox, enda
gat hún í ólgusjó kosningabaráttunn-
ar talið til bandamanna sinna ýmsa
þungavigtarmenn á þeim bæ.
Í sama hlutfalli og andstaða við
ríkisstjórn Baracks Obama hefur
aukist hafa tengsl Söruh Palin og
Fox styrkst. Þegar margar aðrar sjón-
varpsstöðvar fóru ómjúkum hönd-
um um Söruh, ekki síst CBS þar sem
Katie Couric átti við hana röð viðtala
sem urðu Söruh vægast sagt ekki til
framdráttar, mætti hún frekar blíðu
viðmóti hjá þáttastjórnendum Fox-
stöðvarinnar.
Að eigin sögn hlakkar Palin til að
hefja störf hjá Fox og „öðlast sess á
stað sem hefur í hávegum sanngjarn-
ar og hlutlausar fréttir.“
Fyrrverandi
varaforseta-
frambjóðandi
Sarah Palin
getur nú komið
skilaboðum
sínum til milljóna
Bandaríkja-
manna.
MYND: AFP
24 milljónir
piparsveina
Samkvæmt skýrslu eins helsta
hugmyndabanka Kína kann „ein
hjón, eitt barn“-stefna þarlendra
stjórnvalda að gera að verkum að
24 milljónum karlmanna verði
ómögulegt að finna sér kvon-
fang eftir áratug. Eðlilegt hlutfall
fæddra drengja og stúlkna, 103 til
107 drengir á móti 100 stúlkum,
fór að breytast upp úr 1980 og var
árið 1982 108 drengir á hverjar
100 stúlkur, árið 1990 111 drengir
og áratug síðar var hlutfallið 116
drengir á móti 100 stúlkum.
Mestur munur er í afskekkt-
um héruðum þar sem hlutfallið
var mest 140 drengir á móti 100
stúlkun, á aldrinum eins til fjög-
urra ára. Í skýrslunni segir þó að
eftir 2005 hafi dregið saman með
fjölda fæddra drengja og stúlkna.
Benda á Vestur-
lönd og Ísraela
Stjórnvöld Írans skella skuldinni
á dauða kjarnorkuvísindamanns-
ins Massouds Ali-Mohammadi
á „málaliða“ sem fjármagnaðir
voru af vestrænum og ísraelskum
leyniþjónustum og segja tilgang-
inn vera að raska kjarnorkuáætl-
un landsins.
Massoud Ali-Mohammadi,
sem fórst í gærmorgun í srengju-
tilræði í Teheran höfuðborg
landsins, var í ríkisfjölmiðlum
sagður harður stuðningsmaður
íslamska lýðveldisins, en á vefsíð-
um stjórnarandstöðunnar voru
leiddar að því líkur að hann hefði
verið myrtur vegna þess að hann
hafði hneigst til hinnar svonefndu
Grænu hreyfingar stjórnarand-
stöðunnar.
Byggðir af frjáls-
um mönnum
Uppgötvun grafhýsa meðfram
pýramídunum í Gíza í Egyptal-
andi í vikunni er talin geta varpað
nýju ljósi á hverjir unnu við að
byggja þá. Löngum hefur verið
talið að þrælar hafi verið pískað-
ir áfram við byggingu pýramíd-
anna, en Zahi Hawass, yfirmaður
fornleifarannsókna í Egyptalandi,
sagði að fundurinn styddi þá
skoðun að þeir hefðu verið byggð-
ir af frjálsum, launuðum verka-
mönnum - „ekki þrælum“.
Grafhýsin voru byggð við hlið
pýramídanna og sagði Hawass
það gefa til kynna að verkamenn-
irnir hefðu ekki verið þrælar, því
ef sú hefði verið raunin hefðu þeir
ekki fengið leyfi til að útbúa eigin
grafir við hlið kónga sinna.