Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 20
Til eru þeir pólitíkusar á Íslandi sem hafa níu líf, rétt eins og kötturinn. Meðal þeirra sem virðast vera fallnir í valinn en
rísa jafnharðan upp aftur er Gunnar
Birgisson, héraðshöfðingi í Kópavogi.
Gunnar hefur marga fjöruna sopið
eða ætti að segja drukkið heilu
hafsvæðin af spillingarsjó. En það
er alveg sama hvað dynur á í hans
pólitíska lífi. Hann rís alltaf upp
aftur og lýðurinn í Kópavogi heill-
ar meistara sinn.
Gunnar var einn vinsæl-asti bæjarstjóri allra tíma í heimabæ sínum. Hann
stjórnaði þessu unga
sveitarfélagi af festu og
með jákvæðri hvatn-
ingu. Og húsin í bænum
þutu upp á mettíma.
Til þess að það gengi
snurðulaust gætti bæjar-
stjórinn þess að hafa gott
samband við valda verk-
taka sem fengu verkefni úr
lófa bæjarstjórans. Þannig
var líklegast að húsin yrðu
ekki byggð á sandi. Og það
er komið á daginn að bygg-
ingarnar í Kópavogi hafa
staðist tímans tönn.
Einhverjir hneyksluð-ust á því að fyrirtæki dóttur bæjarstjór-ans fékk
valin verkefni, án
útboðs, frá bænum.
Þetta var miskunn-
arlaust notað gegn
hinum vinsæla bæj-
arstjóra sem tók bak-
föll undan brot-
sjóum þeirra
sem sáu
spill-
inguna í hverju horni. Auðvitað var
dóttirin valin. Gunnar þekkti vel til
verka hennar og vissi að það var bæn-
um einkar hagstætt að fá hana til að
leysa hin ýmsu útgáfumál bæjarins.
Þótt einhverjir hafi verið andvígir
barnsvæðingunni í Kópavogi var aug-
ljóst að ekki mátti stúlkan gjalda fyrir
að vera dóttir bæjarstjórans.
En það komu upp fleiri mál í Kópavogi sem notuð voru
gegn bæjarstjóranum.
Hann hafði, eftir mikla
hvatningu, fallist
á að sitja í stjórn
lífeyrissjóðs
starfs-
manna bæjarins. Þegar bæinn vantaði
skotsilfur var nærtækast að bæjar-
stjórinn leitaði til lífeyrissjóðsins.
Þarna var klár ávinningur bæði sjóðs
og bæjar. Vextir voru háir og greiðslu-
geta Kópavogs klár. Samt var þetta
notað gegn Gunnari af fullum fanta-
skap. Pólitískir andstæðingar hans
og Fjármálaeftirlitið tóku höndum
saman um að fordæma aðgerðina.
Málinu var vísað til lögreglu og Gunn-
ar neyddist til að segja af sér sem bæj-
arstjóri og bæjarfulltrúi. Hann virtist
vera kominn á leiðarenda.
En það er með Gunnar eins og nafna hans á Hlíðarenda að báðir eru vígamenn. Að vísu er ekki ljóst hvort Gunnar
Birgisson nær að stökkva hæð sína í
öllum herklæðum. En það er þó víst
að enginn sér við honum á vígvelli
stjórnmálanna í Kópavogi. Nú hefur
hann komið málum þannig fyrir að
arftaki hans, Gunnsteinn Sigurðsson,
hefur lýst yfir flótta sínum úr pólitík-
inni. Milli gráthviðnanna lýsti hann
því að gamli bæjarstjórinn hefði grafið
markvisst undan sér með áðurnefnd-
um afleiðingum. Kópavogsbúar eru
aftur á móti alsælir með að fá kónginn
sinn aftur. Eftir pólitískt heljarstökk
í öllum herklæðum er hann á hraðri
leið í leiðtogastólinn aftur. Bæjarstjór-
inn hefur snúið til baka úr útlegðinni.
GUNNAR Á LEIÐARENDA
SPURNINGIN
„Ég er allavega
jafnmagnaður,“
segir myndlistar-
maðurinn Snorri
Ásmundsson.
Hann hefur gefið
út nýja bók sem
nefnist „Beauty
Swift Generation
Revolution“.
Snorri telur hana
eiga eftir að hafa sterkari áhrif á fólk en
Biblían og Kóraninn.
ERTU STÆRRI
EN JESÚS?
„Hún kann ekki
að ryksuga.“
n Gissur Gissurarson,
fréttamaður á Bylgjunni, um gæði nýrrar
kynlífsdúkku sem kynnt var á dögunum. - Bylgjan
„Og Njarðvík vann Fjölni,
nei, ég skrifaði Fjölni
hérna aftur. Njarðvík var
að spila við ÍR, að mig
minnir, og hafði sigur.“
n Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður,
nývaknaður með íþróttafréttirnar í Bítinu. - Bylgj-
an
„Þetta er bara æðislegt.“
n Hera Björk söng lagið Someday í
undankeppni dönsku Eurovision-keppninnar í
fyrra og var það kosið besta lagið sem ekki komst
í keppnina. - Fréttablaðið
„Hann spókaði sig á
Kanarí um jólin á meðan
landinn var pikkfastur í
Icesave-deilum.“
n Frosti Logason, útvarpsmaður, um Sigurjón Þ.
Árnason, Icesave-frömuð, sem varð þriðji í kjörinu
um skítseiði ársins á X-inu. - X 97,7
„Varnarleikurinn verður
að vera betri
og stöðugri.“
n Guðmundur
Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í
handbolta, hefur í
mörg horn að
líta fyrir
EM. - DV
Útibússtjóri nærist á Icesave
LEIÐARI
Maðurinn sem stýrði útibúi Lands-bankans í London, og þar með Icesave-reikningunum sem falla á okkur núna, var ekki látinn fara
eftir að ríkið tók yfir leifarnar. Þvert á móti er
hann enn þá við stjórnvölinn í dag, 15 mán-
uðum eftir hrun, og er líklega einn launahæsti
Íslendingurinn. Til að fullkomna allt dragast
launin hans frá eignunum sem eiga að fara
upp í Icesave-skuldina, sem þjóðin erfði frá
honum og félögum hans.
Að því gefnu að menn fái laun um það bil
eftir afrakstri verka sinna, getu og tilheyrandi
eftirspurn hlýtur Baldvin Valtýsson að vera
einn færasti Íslendingur í heimi. Afraksturinn
sýnir það reyndar ekki, en miðað við laun hans
hlýtur að blunda í honum einhver yfirvofandi
snilld sem veldur því að hann heldur stjórnun-
arstöðunni, þvert gegn alvarlegum afleiðing-
um starfa hans fyrir íslenska ríkið.
Fyrir hrun var Baldvin með um 280 millj-
ónir í árslaun. Það er meira en vel launaður
maður með 500 þúsund króna mánaðarlaun
aflar sér á 40 árum. Það voru ekki síst Icesave-
reikningarnir sem fjármögnuðu brjálæðis-
leg laun útibússtjórans. Hann telur sig reynd-
ar hafa verið hlunnfarinn. Fyrir skemmstu
lagði hann fram 50 milljóna króna launakröfu
á bankann vegna þess að honum þótti hann
ekki hafa fengið nóg.
Nú situr hann í umboði íslensku þjóðar-
innar í byggingu í London sem er látin vera
ómerkt vegna skammarinnar sem störf hans
og annarra leiddu yfir bankann og þjóðina.
Og í hverjum mánuði eru dregnar milljón-
ir króna af eigum gamla Landsbankans sem
eiga að ganga upp í Icesave-skuldina og þær
lagðar inn á reikning mannsins sem stýrði
Icesave-reikningunum til hruns. Upplýsingar
um laun hans nú eru hins vegar ekki nákvæm-
ar. Almenningur hefur ekki aðgengi að þeim
upplýsingum, þótt hann muni á endanum
greiða launin.
Lágmark væri að taka útibússtjórann af
blóðmjólkuðum Icesave-spenanum og leyfa
honum að lifa á forðabúrinu sem hann fyllti
með því sem hann aflaði sér meðal bresks al-
mennings og verður endurgreitt af íslenskum
almenningi. Jafnvel þótt hann sé tær snilling-
ur brjóta áframhaldandi störf hans í bága við
verðleika, réttlæti, siðferði, ímyndarsköpun,
heilbrigða skynsemi og flest annað sem ein-
kennir farsæl fyrirtæki og samfélög.
Það skilar hins vegar litlu að áfellast útibús-
stjórann. Hann hefur eflaust sömu skýringar
og allir aðrir sem tengjast óförum Íslendinga,
að ástæðan sé utanaðkomandi. Það er skila-
nefndin sem ber ábyrgð á útibússtjóranum. Og
á henni ber rauðgræna velferðarríkisstjórnin
ábyrgð. Hún getur ekki hlíft þjóðinni við fjár-
hagstjóni, en gott siðferði kostar ekkert.
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Lágmark væri að taka útibússtjórann af blóðmjólkuðum Icesave-spenanum.
BÓKSTAFLEGA
20 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
n Spennan vegna prófkjörs
sjálfstæðismanna í Kópavogi
fer nú vaxandi. Flestir telja nær
sjálfgefið að Gunnar Birgis-
son, fyrrverandi bæjarstjóri, nái
efsta sæti á
lista flokks-
ins. Jafn-
framt hafa
menn af því
áhyggjur
að Gunnar
muni ekki fá
framsókn-
armenn til
að samþykkja að hann fái aftur
bæjarstjórastólinn. Því er nú
horft til annars valkosts varð-
andi leiðtoga sem gæti samein-
að flokkana tvo. Þar þykir Hildur
Dungal, fyrrverandi forstjóri
Útlendingastofnunar, vera góður
kostur.
n Norðlenski skipstjórinn Björn
Valur Gíslason þykir hafa fót-
að sig vel sem alþingismaður
vinstri-grænna. Hann hef-
ur verið ófeiminn við að taka
sjálfstæða afstöðu og fylgja eft-
ir óvinsælum málum. Þannig
hefur hann staðið þétt að baki
leiðtoga sínum, Steingrími J. Sig-
fússyni, og varið samninga ríkis-
stjórnarinnar varðandi Icesave.
En þetta hefur jafnframt kostað
hann óbeit náhirðar Sjálfstæðis-
flokksins. Það birtist meðal ann-
ars í grein í Mogganum þar sem
rifjað var upp 20 ára gjaldþrota-
mál sem hann átti aðild að.
n Einhverjir hafa ruglað sam-
an þingmanninum Birni Vali
Gíslasyni og ofurbloggaranum
Björgvini Vali Gíslasyni sem vek-
ur athygli á
þessum mis-
skilningi á
bloggi sínu.
„Ég er ekki
viss um að
Björn Valur
Gíslason
hafi ástæðu
til að gleðj-
ast yfir þessum ruglingi sem
kemur helst upp þegar ég skrifa
eitthvað sem ekki hæfir sóma-
kærum þingmanni.
Ég er hvorki sómakær né þing-
maður. Þess utan er margt sem
greinir okkur að. Björn Valur er
mun betur gefinn en ég, hann er
sætari en ég, hann er grennri... “
bloggar Björgvin Valur.
n Algengt er í dag að útrásar-
víkingar flýi Ísland og skrái
lögheimili sitt í útlöndum. Ekki
er ólíklegt að það sé öðrum
þræði til að forðast óþægilega
rannsókn. Frægir flóttamenn er
Kaupþingsmennirnir Hreiðar
Már Sigurðsson og Sigurður
Einarsson
sem hafa
fótað sig í
Lúxemborg
og London.
Sá útrásar-
víkingur sem
síðast sneri
baki við Ís-
landi er Jón
Helgi Guðmundsson, aðaleig-
andi Byko, Krónunnar og Nóa-
túns, sem telur hag sínum betur
borgið í Lettlandi þar sem hann
á miklar eignir.
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRAR:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.