Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 24
SKAMMAÐI ZOLA Í VARALIÐSLEIK John Terry, fyrirliði Chelsea, segir að
hann, Frank Lampard og Dider Drogba ráði öllu hjá Chelsea - ekki stjórinn. Árangurinn sé þeim að
þakka og samstöðunni hjá leikmönnum. „Það hafa svo margir komið og farið undanfarið og við
erum hjarta og sál liðsins,“ segir Terry en Jose Mourinho, Avram Grant, Luiz Felipe Scolari, Guus Hidd-
ink og nú Carlo Ancelotti hafa verið við stjórnvölinn hjá Chelsea undanfarin ár. Terry sagði einn-
ig að Gianluca Vialli hefði hrósað sér fyrir að skamma Gianfranco Zola í varaliðsleik. „Hann
missti boltann og ég öskraði á hann. Sumir leikmenn sögðu mér að ég mætti ekki gera
svona en ég spurði á móti hvers vegna ekki. Vialli hrósaði mér mikið fyrir þetta.“
Íslendingaliðið Reading mætir
Liverpool í enska bikarnum í kvöld,
miðvikudag, í endurteknum leik.
Reading náði jafntefli gegn Liver-
pool í fyrri leik liðanna á heimavelli
Reading, 1-1, þar sem neðri deildar
liðið var á löngum köflum töluvert
betra en stórliðið frá Bítlaborginni.
Reading leikur í næstefstu deildinni
í Englandi, eins og flestir vita, en þar
eru á mála þrír Íslendingar, þeir Ívar
Ingimarsson, Brynjar Björn Gunn-
arsson og hinn ungi Gylfi Þór Sig-
urðsson.
Sá síðastnefndi, Gylfi Þór, hefur
farið á kostum á leiktíðinni eftir að
hann náði loks að brjóta sér leið inn
í liðið. Hann hefur skorað sjö mörk
af vængnum það sem af er, þar af
þrjú í desember, en hann var valinn
leikmaður desembermánaðar hjá
félaginu. Gylfi átti fínan leik gegn
Liverpool þegar liðin mættust í fyrra
skiptið.
Þar aftur á móti skein stjarna
miðvarðarins Ívars Ingimarssonar
hvað skærast. Hann átti stjörnuleik
og náði að halda hinum annars stór-
kostlega Fernando Torres hjá Liver-
pool í skefjum. Þá átti Brynjar Björn
fínan leik í stöðu hægri bakvarðar
en Brynjar hefur lítið fengið að spila
og er væntanlega á förum frá félag-
inu.
„Ég var tiltölulega sáttur við jafn-
teflið en við hefðum viljað vinna
leikinn,“ sagði Gylfi Þór við DV í vik-
unni um fyrri leik liðanna. „Það var
samt allavega gaman að spila á móti
þessum leikmönnum. Það var skrít-
ið að spila á móti þeim fyrstu mín-
úturnar en það vandist fljótt,“ sagði
Gylfi sem ætlar að gera sitt til þess
að leggja stórliðið að velli í bikarn-
um. „Ég ætla að reyna það. Ég er
United-maður þannig að það væri
nú ekki leiðinlegt.“
tomas@dv.is
Liverpool tekur á móti Reading í bikarnum:
ANNAÐ TÆKIFÆRI ÍSLENDINGANNA
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 SPORT
n Síðasti séns fyrir Íslendinga að
sjá strákana okkar í handbolta-
landsliðinu áður en þeir halda
á EM er í kvöld, miðvikudag.
Þá tökum við á móti Portúgal í
Laugardalshöllinni í æfingaleik
en leikurinn er liður í undir-
búningi fyrir Evrópumótið sem
hefst hjá Íslandi þann 19. janúar.
Leikurinn hefst klukkan 20:15
og kostar 1.500 krónur inn. Miða
er hægt að kaupa á þeirri ágætu
síðu midi.is. Gott er að tryggja
sér miða sem allra fyrst.
n Draumar hornamannsins
Þóris Ólafssonar um að leika á
Evrópumótinu í Austurríki eru
úti eftir að hann meiddist aft-
ur á kálfa á
æfingu. „Við
erum ekki
með góð-
ar fréttir af
Þóri eftir
æfinguna í
morgun[gær-
morgun ]. Ég
reikna ekki
með hann fari
með á EM,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari
á blaðamannafundi í gær. Þórir
hefur verið að leika frábærlega
með landsliðinu í undankeppn-
inni og skoraði þar 25 mörk í átta
leikjum, þar af mikilvægt jöfnun-
armark gegn Noregi ytra þegar
fáeinar sekúndur voru eftir.
n Og meira af meiðslum. Guð-
mundur sagði á blaðamanna-
fundinum að hann vonaðist til
þess að Logi
Geirsson yrði
með á EM.
Hann fær eina
æfingu á mið-
vikudaginn
og svo leikinn
gegn Portúgal
til þess að sjá
hvort hann
geti beitt sér
að fullu. Sjálfur hefur Logi sagt
að hann vilji ekki fara út nema
hann sé hundrað prósent maður.
Aðrir leikmenn liðsins eru heilir,
að sögn Guðmundar. „Sjö, níu,
þrettán,“ sagði landsliðsþjálfar-
inn og bankaði í borðið.
n Íslendingar eru áhugasam-
ir um landsliðið, að vanda, og
ætlar hópur fólks að fylgja strák-
unum okkar
í gegnum
mótið. Einar
Þorvarðar-
son, fram-
kvæmdastjóri
HSÍ, sagði á
blaðamanna-
fundi í gær
að einir 25
einstaklingar
yrðu með úti frá upphafi til enda
mótsins. Þá væri sambandið búið
að redda 70 öðrum miðum sem
beðið var um. Einar sagðist enn
fremur vongóður um að slatti af
Íslendingum yrði á mótinu þar
sem til dæmis væri sterkt Íslend-
ingafélag í Austurríki.
MOLAR
Brynjar Björn Lék vel í stöðu hægri
bakvarðar í fyrri leiknum gegn Liverpool.
„Mér hefur gengið vel og því er ég
ánægður með að ég skyldi taka þetta
skref,“ segir varnarrisinn með gull-
hjartað, Sverre Jakobsson, um dvöl
sína hjá þýska úrvalsdeildarliðinu
Grosswallstadt. Sverre sem var kom-
inn heim til Íslands og lék með HK
á síðasta tímabili fór óvænt aftur út
síðastliðið sumar. Hann samdi þá við
Grosswallstadt sem vildi upphaflega
fá hann í byrjun árs 2010. Þar á bæ
snerist mönnum svo hugur og vildu
þeir fá Sverre strax. Það hefur marg-
borgað sig því Sverre hefur tekið varn-
arleik liðsins í gegn og með góðri vörn
og besta markverði deildarinnar í ár,
Svíanum Matthias Andersen, hefur
Grosswallstadt stimplað sig inn sem
spútnikliðið í ár.
Persónulegur sigur
„Við erum með 21 stig núna en liðið
fékk alls 26 stig í fyrra,“ segir Sverre,
hæstánægður með gengi liðsins. Það
situr sem stendur í áttunda sæti sterk-
ustu handboltadeildar heims, þýsku
deildarinnar. Hjólin byrjuðu að snú-
ast aftur í átt að Þýskalandi þegar Fus-
che Berlín sýndi honum áhuga. „Það
er svo mikið af tilviljunum sem hefur
ráðið á mínum ferli. Ég var endanlega
kominn heim en þegar fyrirspurnin
kom frá Berlín fór áhugi minn á að
komast út aftur að aukast. Það var líka
þægilegt að vita hvað maður átti að
gera. Ég átti bara að koma inn og laga
varnarleikinn og stjórna honum,“ seg-
ir Sverre og það hefur svo sannarlega
gengið eftir. „Varnarleikurinn hefur
verið góður og svo hjálpar líka til að
vera með Matthias Anderson í mark-
inu sem hefur verið bestur í deildinni
í ár. Þetta hefur verið persónulegur
sigur fyrir mig fyrst þetta hefur gengið
svona vel,“ segir Sverre. „Ef við höld-
umst heilir ættum við að geta náð
sjötta sæti.“
Eiga meira inni
Varnarleikur hefur sjaldan verið sterk-
asta hlið íslenska landsliðsins. En allt
í einu dúkkaði upp þetta líka rosalega
miðvarðarpar, Sverre og Ingimundur
Ingimundarson, betur þekktur sem
Diddi. Varnarleikur liðsins var frábær
á Ólympíuleikunum í Peking og hélt
áfram að vera sterkur í gegnum und-
ankeppni EM sem hjálpaði mikið til
þegar liðið var án margra lykilmanna.
Ísland lék æfingaleiki gegn Þýska-
landi um helgina en þar vantaði ei-
lítið upp á vörnina. Sverre tók undir
það. „6:0 vörnin var allt í lagi en ekk-
ert spes. 5+1 vörnin var samt fín og í
raun náum við að snúa leikjunum
okkur í hag með henni. Það er gott að
eiga 6:0 vörnina inni,“ segir Sverre og
hlær við.
Það má líkja varnarvinnu Sverres
og Didda saman við enskt framherj-
apar af gamla skólanum. Einn stór og
einn lítill. „Við vegum hvor annan vel
upp og vinnum vel saman. Það hefur
allavega gengið vel að undanförnu og
vonandi verður framhald þar á,“ segir
Sverre Jakobsson.
Sverre Andreas Jakobsson, varnarsérfræðingur íslenska landsliðsins í handbolta, er
í fantaformi þessa dagana. Hann fór óvænt út í atvinnumennskuna aftur í haust þegar
hann var fenginn til að stýra varnarleik Grosswallstadt. Þar hefur Sverre blómstrað
og verið á meðal bestu varnarmanna þýsku deildarinnar.
PERSÓNULEGUR
SIGUR RISANS
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Frábær Sverre var
magnaður í vörninni á
Ólympíuleikunum og
undankeppni EM. MYND AFP
Var kominn heim Sverre var kominn
í HK áður en hann fór aftur út. MYND
HEIÐA HELGADÓTTIR