Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Side 25
Liverpool tekur á móti Reading í bikarnum: ANNAÐ TÆKIFÆRI ÍSLENDINGANNA Michael Schumacher settist um borð í eins sætis kappakstursbíl í fyrsta skiptið í langan tíma í vik- unni. Schumacher var við æfingar í GP2-bíl á Yerez-brautinni á Spáni sem hann kannast nú vel við, enda hefur Ferrari stundað æfingar sín- ar þar í mörg ár. Schumacher verð- ur við æfingar á GP2-bílnum fram að helgi en hann er að koma sér í gírinn fyrir tímabilið í Formúlunni sem hefst í mars. Michael Schumacher sem er sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 samdi við lið Mercedes fyrir keppn- istímabilið en það hét áður Brawn GP og er ríkjandi heimsmeistari í greininni. Nýr bíll þeirra Mercedes- manna verður ekki klár til prófunar fyrr en í lok mánaðarins og því getur Schumacher ekki hafið æfingar fyrr. Í GP2-mótaröðinni keyra allir á eins bílum og er Schumacher því einn- ig að gefa af sér í leiðinni. Hann var beðinn um það af framkvæmda- stjóra GP2-mótaraðarinnar, Bruno Michel, að hjálpa til við þróun nýja bílsins fyrir næsta keppnistímabil. Sá sem hannar nýja Merced- es-bílinn er verkfræðisnillingurinn Ross Brawn sem gerði Brawn GP að meisturum á síðasta tímabili á sínu fyrsta ári með liðið. Hann umbreytti þá Hondabílnum þegar hann keyptir rústir þess liðs og skellti í bílinn vél frá Mercedes. Þegar þeir félagarnir Schumacher og Brawn störfuðu síðast saman voru þeir ósigrandi. Alls vann Schumacher heimsmeistaratitilinn fimm sinn- um á Ferrari-bíl gerðum af Brawn, þar af fjórum sinnum í röð á sínum tíma. tomas@dv.is Fyrsta skiptið í langan tíma í kappakstursbíl: SCHUMACHER SEST UNDIR STÝRI FLETCHER ER ENN BRJÁLAÐUR Darren Fletcher, miðjumaður Manchester United, er alveg brjálaður út í Mark Clatten- burg fyrir að veifa rauða spjaldinu framan í hann í leik gegn Birming- ham. „Það var búið að brjóta nokkrum sinnum á mér og ég talaði við Clattenburg. Hann svaraði með hroka og sagði að þetta væri íþrótt fyrir karlmenn. Þá fór ég harðar í allar tæklingar og viti menn - ég fékk strax gult. Seinna gula spjaldið var síðan fyrir ekki neitt neitt. Við erum samt með nógu marga miðjumenn til að koma í minn stað en hættan er að þeir standi sig of vel þannig ég komist ekki aftur í liðið.“ HICKS LOFAR LEIKMÖNNUM Tom Hicks, annar eigandi Liverpool, hefur lofað stuðningsmönnum liðsins að hann og George Gillett muni eyða peningum í sumar. „Skuldir okkar eru viðráð- anlegar, sjáið bara Man. Utd. Vextir af 200 milljóna punda láni okkar eru 16 milljónir punda. Það ráðum við við. Nýr leikvangur mun breyta öllu fyrir okkur,“ segir Hicks en þeir félagar þurftu að fresta byggingu nýja leikvangsins vegnar heimskreppunnar. „Janúar er erfiður mánuður en ég get lofað því að sumarið verður stórt. Við þurfum meiri breidd í liðið og munum tækla það í sumar.“ SPORT 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25 n Miðvörðurinn Sol Campbell er genginn aftur í raðir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur verið samningslaus síð- an í haust þegar hann hætti hjá fjórðu deild- ar félaginu Notts County eftir að hafa aðeins spilað einn leik með liðinu. Átti hann að vera stoð og stytta í uppbygg- ingu þess liðs sem stendur þó nú á brauðfót- um vegna bágrar fjárhagsstöðu. Campbell lék á sínum tíma í fimm ár með Arsenal en þaðan kom hann frá erkifjendunum í Tottenham og er ekki vinsæll fyrir vikið. n Arnór Sveinn Aðalsteinsson, stundum þekktur sem skeið- arinn, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, fer um næstu helgi til reynslu hjá danska 1. deildar fé- laginu Vejle. Þetta kom fram í Morg- unblaðinu. Þar kom einn- ig fram að ekki væri vitað um áhuga AaB á stráknum en þar æfði hann fyrr í vetur. Arnór hefur verið lykil- maður í Breiðabliki undanfar- in ár, leikið ýmist í bakverði, á kantinum eða á miðjunni. Hann vann sér inn landsliðssæti fyrir frammistöðu sína í sumar og fór með liðinu til Teheran í vetur. n Karlalið FH í handbolta heldur sér uppteknu þrátt fyrir langt frí í boltanum hér heima. Það leikur á næstu dögum á fjögurra liða móti í Svíþjóð sem heitir Kurieen Cup en mótið er haldið í Eskil- stuna. Ásamt FH leika sænsku liðin GUIF og Lindesberg, ásamt norsku bikarmeistrunum, í El- verum. Nóg verður af Íslending- um á svæðinu því lið GUIF þjálf- ar Haukur Andrésson og bróðir hans, Kristján, leikur með liðinu. Hjá Elverum er Eyjapeyinn Sig- urður Ari Stefánsson. n Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana í handbolta, segir leik Dan- merkur gegn Íslandi á EM enda með jafntefli. Hann var að spá í spilin hjá TV2 en með Íslandi og Dönum í riðli eru Austur- ríki og Serbía. „Þeir eru eins góðir og við og þessum leik lyktar með jafntefli,“ segir Wilbek um leik Íslands og Danmerkur. Leikir liðanna hafa verið ævin- týralega jafnir á síðustu árum og lauk síðasta leik frændþjóðanna með jafntefli á dramatískan hátt á Ólympíuleikunum. Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að Wil- bek hafi tryllst eftir þann leik. MOLAR Schumacher Keyrir fyrir Mer- cedes á næsta tímabili. MYND AFP Framherjinn Carlos Tevez hjá Manchester City varð á mánudaginn fyrsti Argentínumaðurinn til að skora þrennu í ensku úrvalsdeildinni frá stofnun hennar. Það sem meira er að þetta var fyrsta þrennan á nýju ári en sú áttunda frá því leiktíðin hófst í ág- úst. Leikmenn deildarinnar hafa ver- ið duglegri að setja þrennur í ár en í fyrra en alls voru sex þrennur skoraðar á síðasta tímabili. Burnley hefur legið vel við höggi á tímabilinu og fengið á sig þrjár þrennur. Alan Shearer er lan- gefstur hvað þrennur varðar og er erfitt að sjá nokkurn mann slá þrennumet hans í bráð. Defoe og Torres á hraðferð Jermaine Defoe hefur verið einn skæðasti framherji ensku úrvalsdeild- arinnar síðustu árin en þrennur hafa þó vafist fyrir honum. Hann hafði ekki skorað nema eina fyrir yfirstandandi tímabil en í ár hefur hann skorað tvær. Hann er því kominn með þrjár þrenn- ur eins og Liverpool-maðurinn Fern- ando Torres, sem siglir hraðbyri upp listann með þrjár þrennur á tveimur árum. Defoe setti þrennu, bæði á Burnley og Wigan, en það eru þau lið sem hafa fengið flestar þrennur á sig í ár. Burn- ley fékk á sig þrjár af þeim átta sem hafa verið skoraðar og Wigan tvær. All- ar þrennur nema ein á tímabilinu hafa verið skoraðar á heimavelli. Wayne Rooney er sá eini sem skorað hef- ur þrennu á útivelli, það gerði hann á Fratton Park, heimavelli Portsmouth, í 4-1 sigri. Owen næst metinu Alan Shearer var iðinn við kolann á sínum tíma. Þrennumet hans er heilar ellefu þrennur. Skondið er þó að hugsa til þess að þær hefðu hæglega getað orðið mun fleiri. Hann setti níu þrenn- ur með Blackburn frá 1993-1996 en aðeins tvær með Newcastle það sem eftir lifði ferils hans. Næstur honum kemur Robbie Fowler með níu þrenn- ur en báðir eru þeir hættir keppni í úr- valsdeildinni. Sá sem á hvað raunhæfasta mögu- leika á að ná meti Shearers er Michael Owen. Owen raðaði inn mörkunum með Liverpool á sínum tíma og setti eina með Newcastle. Hann hefur skor- að átta þrennur eins og Thierry Henry en munurinn á þeim er að Owen er enn að spila í deildinni. Finni Owen markaskóna á næstunni og haldi þeim á sér næstu árin gæti hann stimplað sig inn en til þess verður hann þó að spila. Owen hefur setið meira og minna á tréverkinu hjá Ferguson síðan hann einmitt skoraði þrennu gegn Wolfs- burg í meistaradeildinni í desember. FYRSTA ÞRENNA ÁRSINS TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Carlos Tevez varð á mánudagskvöldið fyrsti Argentínumaðurinn til að skora þrennu í ensku úrvalsdeildinni. Þrennan var sú fyrsta í úrvalsdeildinni á árinu 2010 en sú áttunda á tímabilinu. Það er tveimur fleiri en á öllu síðasta tímabili. Leikmaður Leikur Dagsetning Jermaine Defoe Tottenham 5 - 1 Burnley 19. ág. 2009 Yossi Benayoun Liverpool 4 - 0 Burnley 12. sept. 2009 Fernando Torres Liverpool 6 - 1 Hull 26. sept. 2009 Robbie Keane Tottenham 5 - 0 Burnley 26. sept. 2009 Aruna Dindane Portsmouth 4 - 0 Wigan 31. okt. 2009 Jermaine Defoe Tottenham 9 - 1 Wigan 22. nóv. 2009 Wayne Rooney Portsmouth 1 - 4 Man. United 28. nóv. 2009 Carlos Tevez Man. City 4 - 1 Blackburn 11. jan. 2010 Þrennurnar átta á tímabilinu Flestar þrennur í úrvalsdeildinni n 11 - Alan Shearer (Blackburn 9, Newcastle 2) n 9 - Robbie Fowler (Liverpool 8, Leeds 1) n 8 - Thierry Henry (Arsenal) og Michael Owen (Liverpool 7, Newcastle 1) n 5 - Andy Cole (Newcastle 2, Man. United 3), Ruud van Nistelrooy (Man. United), Ian Wright (Arsenal) n 4 - Kevin Campbell (Arsenal 2, Nott. Forest 1, Everton 1), Les Ferdinand (QPR 2, Newcastle 1, Tottenham 1), Jimmy Floyd Hasselbaink (Chelsea 3, M. Boro 1), Matthew Le Tissier (Southampton), Teddy Sheringham (Tottenham 2, Man. United 1, Portsmouth 1), Chris Sutton (Norwich 1, Blackburn 3), Dwight Yorke (A. Villa 1, Man. United 3). n 3 - Emmanuel Adebayor, Yakubu, Nicolas Anelka, Tony Cottee, Jermaine Defoe, Dion Dublin, Robbie Keane, Ole Gunnar Solskjær, Fernando Torres Fyrsta þrenna Tevez Hann fagnaði henni með dansi. Michael Owen Gæti komist á toppinn fái hann að spila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.