Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Side 3
FRÉTTIR 27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 EIÐUR TAPAÐI Í HONG KONG Askar Capital tapaði fjármunum á fjárfestingaverkefninu Chest- er Court í Hong Kong, samkvæmt Bjarka Brynjarssyni, framkvæmda- stjóra fyrirtækjaráðgjafar bankans. Fjárfestarnir sem tóku þátt í verk- efninu töpuðu því einnig fjármun- um á því, þar með talinn Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnu- maður hjá AS Monaco. Eiður fjár- festi í Chester Court-verkefninu, líklega í gegnum einkabanka sinn, Kaupþing í Lúxemborg, árið 2007. „Nokkuð gott verkefni“ „Það átti að gera þessa niðurníddu byggingu að svona millistéttarhúsi en það er í B-hluta Hong Kong þar sem fasteignaverð er hátt,“ seg- ir Bjarki Brynjarsson, en Askar átti 40 prósenta hlut í Chester Court- verkefninu í gegnum eignarhalds- félagið Randolph International. „Þetta var nokkuð gott verkefni. Markaðurinn var hins vegar far- inn að hægja á sér þegar þetta var og við fengum ekki eins mikið fyrir bygginguna og við höfðum ætlað,“ segir Bjarki og bætir því við að vel hafi tekist að gera bygginguna upp og að áhættan í viðskiptunum hafi ekki verið mjög mikil. Bjarki segir að Askar hafi tap- að á fjárfestingunni í verkefninu en hann vill ekki gefa upp hversu miklu né hversu hátt verð fékkst á endanum fyrir bygginguna. „Verk- efnið var selt, bankinn fékk pen- inga sína til baka og aðrir hluthaf- ar fengu sinn skerf af söluverðinu,“ segir Bjarki. Eiður fékk lánað fyrir Chester Court Eiður Smári fjárfesti í Chester Court-verkefninu um mitt ár 2007. Heimildir DV herma að hluti við- skiptavina einkabankaþjónustu Kaupþings í Lúxemborg hafi fjár- fest í Chester Court-verkefninu að áeggjan Kaupþings. Líklegt er Eið- ur Smári hafi fjárfest í verkefninu í gegnum sinn ráðgjafa í einka- bankaþjónustunni í Kaupþingi í Lúx, Lárus Sigurðsson. Heimildir DV herma að búinn hafi verið til sjóður í Kaupþingi í kringum fjár- festinguna í Chester Court. Hlut- hafarnir hafi svo átt hlut í sjóðnum. Í júní árið 2007 sendi Sigurður Kiernan, starfsmaður Askar sem stjórnaði Randolph International Limited, bréf til Kaupþings í Lúx- emborg og bað um að greiðsla Eiðs Smára á hlut hans í Chester Court yrði innt af hendi. Um var að ræða kröfu upp á rúmar 110 millj- ónir króna, tæplega 14 milljón- ir Hong Kong dollara, sem standa átti skil á til að Eiður lyki við kaup sín á Chester Court-eigninni. Ekki er vitað hversu stór hluti þetta var af heildarkaupverðinu en traustar heimildir DV herma að Kaupþing í Lúxemborg hafi fjármagnað hluta af kaupverðinu þegar Eiður Smári fjárfesti í Chester Court-verkefn- inu. Söluverðið rann beint til Kaupþings í Lúx Af þessum sökum runnu þeir fjár- munir sem Eiður fékk í sinn hlut, þegar Chester Court-verkefnið var selt í fyrrasumar, beint í gegnum reikning Eiðs í Kaupþingi í Lúx- emborg og til bankans sjálfs. Eiður Smári skrifaði undir samning við Askar og Kaupþing í Lúxemborg í júní í fyrra þar sem þetta sam- komulag er innsiglað. Greiðslan sem Eiður fékk fyr- ir sinn snúð, sem notuð var til að grynnka á um 800 milljóna króna skuldum Eiðs við bankann, var hins vegar ekki nærri því eins há og sú sem hann lagði til verkefnisins fyrir þremur árum. Askar greiddi Eiði Smára rúmlega 3,2 milljónir Hong Kong dollara, rúmar 52 millj- ónir króna á þáverandi gengi, um miðjan ágúst 2009 fyrir hlut hans í Chester-Court verkefninu. Ekki er vitað hvort skuldir Eiðs Smára við Kaupþing vegna þessa tiltekna fjárfestingaverkefnis hafi þá talist uppgreiddar eða hvort Eið- ur skuldar bankanum enn þá vegna Chester Court. Alveg ljóst er hins vegar að það fé sem hann fékk í sinn hlut fyrir bygginguna í Hong Kong sumarið 2009 fór til Kaupþings. Skuldar 1.200 milljónir Upphæðirnar sem hér um ræðir eru þó ekki mjög háar þegar litið er á heildarskuldir Eiðs sem námu um 1.200 milljónum króna í fyrra- haust. Eiður mun því þurfa að halda áfram að greiða Banque Havilland, áður Kaupþingi í Lúxemborg, upp í skuldirnar á næstu árum líkt og hann og bankinn hafa sammælst um – greint hefur verið frá því áður í DV. Ljóst er hins vegar að fjárfest- ingar hans í Chester Court fóru alls ekki eins vel og til var ætlast, líkt og í tilfelli annarra sem fjárfestu í verk- efninu, og þurftu hluthafarnir að sætta sig við tap. Í þeim tilfellum þar sem hluthafarn- ir töpuðu sínum eigin fjármun- um hefur tap- ið líklega ver- ið léttbærara en í tilfelli Eiðs þar sem kaupin voru fjármögn- uð að hluta með lánsfé. Ekki hef- ur náðst í Egg- ert Skúlason, talsmann Eiðs Smára. Það átti að gera þessa niður- níddu byggingu að svona millistéttarhúsi. Askar Capital tapaði á fasteignaverkefninu Chester Court í Hong Kong í Asíu. Eiður Smári Guðjohnsen fékk sömuleiðis minna greitt til baka en hann lagði í verkefnið árið 2007. Hann tók þátt í Chester Court í gegnum Kaupþing í Lúxemborg. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is n Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður var einn þeirra sem fengu lán til að taka þátt í fasteignaverkefni Askar í Hong Kong. Heimildir DV herma að hluti viðskiptavina einkabanka- þjónustu Kaupþings í Lúxemborg hafi fjárfest í Chester Court-verkefninu að áeggjan Kaupþings og með lánum frá þeim. Talið er að Eiður hafi að minnsta kosti lagt um 110 milljónir króna í verkefnið í Hong Kong og fengið rúmlega 50 milljónir til baka. Endurgreiðslan sem Eiður fékk fyrir sinn snúð var notuð til að grynnka á um 800 milljóna króna skuldum Eiðs við Kaupþing, en samtals skuldaði Eiður um 1,2 milljarða króna síðasta haust. Skuldaði um 1,2 milljarða n Fasteignaverkefnið Chester Court snerist um að Askar keypti fjölbýlishús í Hong Kong sem var í niðurníðslu og gerði það upp. Niðurníddu byggingunni í B-hluta Hong Kong, þar sem fasteignaverð er mjög hátt, átti að breyta í millistéttarhúsnæði með 12 íbúðum og selja það svo. Askar hafði áður farið í slík verkefni með góðum árangri. Fasteignamarkaðurinn var hins vegar þegar farinn að hægja á sér þegar farið var út í verkefnið. Ýmsir fjárfestar komu svo inn í verkefnið, meðal annars Eiður Smári. Íslenska efnhagshrunið setti strik í reikninginn og þurfti Askar að selja bygginguna síðastlið sumar á lægra verði en þeir hefðu viljað. Askar Capital tapaði á verkefninu, en ekki fæst upp gefið hversu mikið eða hversu hátt verð fékkst fyrir bygginguna á endanum. Allar íbúðirnar í húsinu voru seldar til eins og sama aðila. Ætluðu að gera upp og græða NEYDD TIL AÐ VERA GIFT úr hjónabandinu fyrir þessa ungu konu. Annars vegar að eiginmað- urinn sættist á málamiðlun eða að skiptin fari fyrir dómstóla en þá þarf móðirin að greiða fjárhæð sem hún á ekki til. Í dag eru því báðar leið- irnar lokaðar. Hún er einstæð með börn á framfæri, á atvinnuleysis- bótum, í leiguíbúð og án meðlags frá barnsföðurnum. Það er liðið ár frá því hún vildi losna úr hjóna- bandinu en hún situr föst. Fólk er strandaglópar Jóhann Thoroddsen sálfræðing- ur finnur einnig fyrir afleiðing- um hrunsins á þennan máta. „Ég þekki svoleiðis dæmi þar sem fólk er flutt í sundur en með allt sameig- inlegt af því það getur ekki losnað við eignir,“ segir hann og bætir við að það geri skilnaðinn ekki betri. Til hans hefur leitað fólk sem á erf- itt með að vinna sig út úr skilnaði eða áfalli vegna þess að það er fast í viðjum skulda. „Þetta er í raun áfall á áfall ofan. Fólk stendur ekki vel fjár- hagslega í dag ef svo má að orði komast og hefur jafnvel ekki efni á að kaupa nýtt húsnæði. Þá þarf að leigja og leigan er ekki ódýr. Mér hefur fundist þetta flækja málin mjög mikið hjá fólki,“ segir Jóhann. „Þegar maður fer að horfa í andlegu hliðina þá er erfitt að byrja nýtt líf ef það gamla er ekki frágengið. Fólk er strandaglópar í þessu,“ segir Jóhann. Það er ekki eins og ég geti og vilji setja mínar skuldir á hans nafn en hann vill gera það við mig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.