Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Síða 12
Í Búlgaríu og Tékklandi geturðu,
þrátt fyrir gengishrun krónunnar,
keypt fimm bjóra fyrir þann pen-
ing sem einn bjór kostar á Íslandi. Í
Tyrklandi og á Spáni færðu tvo bjóra
á verði eins á Íslandi en í Noregi er
bjórinn allt að helmingi dýrari en hér
heima.
Þetta miðast við tölur af vefsíð-
unni pintprice.com en þær byggja
á upplýsingum frá bjórneytend-
um um allan heim. Ef bjórverð er
dæmigert fyrir verðlag má ljóst vera
að hagstæðast er fyrir Íslendinga að
fara til landa í austanverðri Evrópu;
Búlgaríu, Tékklands, Rússlands,
Póllands, Ungverjalands og Króa-
tíu en einnig er hagstætt að fara til
Portúgal og Kína.
Líran líka hrunið
Tyrkneska líran er sá gjaldmiðilll
sem minnst hefur fallið gagnvart ís-
lensku krónunni frá hruni. Líran
kostar nú „aðeins“ rúmlega helmingi
meira en hún gerði fyrir um tveim-
ur árum, áður en krónan hrundi, en
hún er, rétt eins og íslenska krónan,
hávaxtamynt. Tyrkland er því ef til
vill álitlegasti áfangastaðurinn fyrir
íslenska ferðalanga í sumar. Raun-
ar hefur nígerísk næra fallið heldur
minna en Nígería verður seint tal-
in vinsæll áningarstaður Íslendinga,
þegar horft er til sumarleyfa.
DV tók saman til hvaða landa álit-
legast er að ferðast, sé mið tekið af
því hvernig gjaldmiðlar landanna
hafa þróast samanborið við íslensku
krónuna.
Tyrkland álitlegur
áfangastaður
Eins og áður sagði hefur krónan fall-
ið minnst gagnvart tyrkensku lírunni,
eða um 56 prósent á tveimur árum.
Sterlingspundið, rússneksa rúblan
og suðurkóreskt vonn hafa fallið um
60 prósent á síðustu tveimur árum,
gagnvart krónunni. Þar á eftir kem-
ur mexíkóskur pesi, pólskt slot og
indverks rúpía en þessir gjaldmiðlar
hafa fallið um 65 til 66 prósent.
Ofantaldir áfangastaðir skera sig
nokkuð úr, eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu.
Jen hækkað mest
Þegar horft er á þá gjaldmiðla sem
mest hafa hækkað í verði, gagnvart
krónunni, sker japanskt jen sig úr.
Sá sem keypti gistingu á hóteli í Jap-
an fyrir tveimur árum, og þurfti að
greiða 10 þúsund krónur fyrir nótt-
ina, getur nú gert ráð fyrir því að
þurfa að borga rúmlega 21 þúsund
krónur. Þetta miðast við fast verðlag
en verðbólga í Japan hefur undan-
farin ár verið frekar lítil. Verðlag hef-
ur því ekki hækkað verulega. Jenið er
engu að síður 132 prósentum dýrara
en fyrir tveimur árum.
Fleiri gjaldmiðlar hafa hækk-
að um meira en 100 prósent gagn-
vart krónunni á umliðnum tveimur
árum. Þannig hefur ástralski dalur-
inn hækkað um 100 prósent, svissn-
eskur franki um 106 prósent og kín-
verskt júan um 107 prósent. Það er
því orðið meira en tvöfalt dýrara
að ferðast til landa sem hafa þessa
gjaldmiðla en var fyrir tveimur árum.
Ódýrari dalur
Þeir sem fóru utan í fyrra og vilja
bera gengi gjaldmiðlanna saman við
þann tíma geta huggað sig við það að
MAGNINNKAUP
Langoftast borgar sig að kaupa
mikið magn matvöru í einu
og geyma í fyrstinum. Kjöt í
skrokkum, fiskur og grænmeti
eru dæmi um slíkt. Þú getur
sparað verulegar fjárhæðir á því
að kaupa matvöru á þeim árs-
tímum sem verðið er hagstæð-
ast og geyma í frystinum. Skiptu
fiski, kjöti og öðrum matvælum
niður í hæfilega stóra skammta
og pakkaðu hverjum þeirra inn
fyrir sig, annars þarftu að þíða
meira en þú notar hverju sinni.
n Viðskiptavinur með
nýjan, bilaðan en
nothæfan síma fór
með hann í viðgerð í
Hátækni. Honum var
sagt að leggja símann inn en
ekkert yrði gert innan fimm
daga. Þá yrði síminn skoðaður.
Átján dagar liðu þar til hann
fékk að vita að síminn væri
tilbúinn. Vodafone, samstarfsaðili
Hátækni,
hafði sent SMS
í rangt númer.
n Lofið fær Húsasmiðjan fyrir að
selja fullkomna Severin-kaffi-
könnu á 13.500 krónur. Sams
konar kaffikanna kostar
16.900 í Hagkaup en um 20
þúsund í Byggt og Búið, að sögn
viðskiptavinar.
Verðmunurinn er
nærri 50 prósent.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 194,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,9 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 194,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
„EKKI STÖÐUGT EFTIRLIT“
„Það er ekki stöðugt eftirlit með
fæðubótarefnum. Þau flokkast und-
ir matvæli og eru almennt í frjálsu
flæði milli landa,“ segir Jónína Stef-
ánsdóttir, matvælafræðingur hjá
Matvælastofnun, spurð hvernig eft-
irliti með fæðubótarefnum sé hátt-
að. DV hefur undanfarið fjallað ítar-
lega um fæðubótarefni.
Jónína bendir á að Ísland sé hluti
af Viðvörunarkerfi Evrópu (Rasff) og
þaðan komi tilkynningar um fæðu-
bótarefni sem gerðar hafa verið at-
hugasemdir við í Evrópu.
Jónína segir að innflytjendum
fæðubótarefna og annarra matvæla
sé skylt að tilkynna um ný matvæli
sem flutt eru til landsins. Hún segir
þó aðspurð að eitthvað vanti upp á
að þeim reglum sé framfylgt. Heil-
brigðiseftirlitið sjái um að fylgjast
með markaðnum en ekki sé sér-
stakt eftirlit með fæðubótarefnum
umfram önnur matvæli. „Eftirlit-
ið mætti svo sannarlega efla,“ segir
Jónína en hún segist ekki viss um að
það verði á næstunni. Hún segir við-
urlög við því að tilkynna ekki um ný
matvæli ekki ströng. „Það er hægt að
veita áminningu og eftir ítrekuð brot
er hægt að stöðva dreifingu,“ segir
hún.
Þess má geta að með breytingu
á matvælalögum sem taka gildi 1.
mars styrkist eftirlit matvæla frá
þremur ríkjum, þar á meðal Band-
raíkjunum. „Sífellt aukin áhersla er
á það í löggjöfinni að fyrirtækin séu
ábyrg fyrir því að vera með örugga
vöru,“ segir Jónína. baldur@dv.is
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
12 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 NEYTENDUR
LÁNIN LÆKKA
Lán á tuttugu milljóna króna
íbúðarhúsi lækkar um 62.000
krónur vegna lækkunar vísitölu
sem varð nú í janúar. Vísitala
neysluverðs, sem stýrir verð-
bótum, lækkaði um 0,31 prósent
í janúar. Það jafngildir ríflega
60 þúsund króna lækkun á 20
milljóna króna húsnæði. Hag-
stofan segir að vegna útsalna
hafi verð á fötum og skóm lækk-
að um 10 prósent að jafnaði
og húsgögn, heimilistæki og
fleira um 3,8 prósent. Kostnað-
ur vegna húsnæðis hafi lækk-
að um 2,9 prósent í mánuðin-
um og flugfargjöld til útlanda
hafi lækkað um 21,3 prósent.
Allt þetta hefur áhrif á vísitölu
neysluverðs og hefur leitt til
þess að lán fólks lækka lítillega.
Þá kemur fram að bensín og dís-
ilolía hækkaði um 5,7 prósent í
verði og áfengi og tóbak um 6,3
prósent. Þar koma skattahækk-
anir ríkisstjórnarinnar til.
Best er fyrir Íslendinga að ferðast til
Tyrklands, Rússlands eða Póllands ef
gengisþróun gjaldmiðla og verð á bjór
er lýsandi fyrir verðlag. Dýrast er að
fara til Japans og Noregs. Nú er rúmlega
helmingi dýrara að kaupa tyrkneska líru
en fyrir gengishrunið en líran er sá gjald-
miðill sem minnst hefur hækkað í verði
undanfarin tvö ár.
ALLIR TIL AUSTUR-EVRÓPU
KANADA
+88%
1,4
BANDARÍKIN
+95%
2,0
BJÓRVERÐ ERLENDIS
Prósentutalan segir til um hversu mikið gengi gjaldmiðils í viðkomandi landi hefur
hækkað gagnvart krónunni frá janúar 2008. Rauða talan segir til um hversu marga
bjóra hægt er að fá á verði eins íslensks bjórs.
Skylda er að tilkynna um efni sem markaðssett eru í fyrsta sinn:
Ekki sérstakt eftirlit Tilkynna ber um
ný efni sem fara á markað. Því er ekki
alltaf framfylgt.
50–70%
70–90%
90% +
Lífið á ströndinni Þeir sem ætla til útlanda í sumar og vilja fara
sparlega með fé ættu að leita austarlega í Evrópu að heppilegum
áfangastað. Þar er verðlag Íslendingum hagstætt.