Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Síða 15
þeirra sem hafa flosnað upp séu virt.
Samtökin fara þess einnig á leit að
konur og stúlkur fái vernd gegn kyn-
bundnu ofbeldi.
Vera hermanna gagnrýnd
Ítalski embættismaðurinn Guido
Bertolaso, sem fór með yfirstjórn að-
gerða eftir jarðskjálftann í L’Aquila í
apríl á síðasta ári, hefur gefið hjálp-
arstarfi á Haíti falleinkunn. Bert-
olaso sagði að aðstoðin væri óskipu-
lögð „hégómleg sýning“. Orð sín lét
Bertolaso falla í aðdraganda alþjóð-
legrar ráðstefnu um uppbyggingu
Haítí.
Skoðun Guidos Bertolaso, yfir-
manns almannavarna á Ítalíu, er að
erlend aðstoð á Haítí hingað til hafi
einkennst af stjórnleysi og varaði við
því að vera bandarísku hermann-
anna á Haítí væri ekki að öllu leyti
hjálpleg.
„Bandaríkjamenn eru framúr-
skarandi, en frammi fyrir miklu öng-
þveiti eiga þeir til að rugla saman
hernaðarlegu inngripi og neyðarað-
stoð sem ekki er hægt að treysta her-
num fyrir,“ hafði fréttastofa Reuters
eftir Bertolaso.
„Hégómleg sýning“
„Neyðarástand verður kveikjan að
hégómlegri sýningu. Þar ber að fjölda
fólks sem æst er í að sýna að þess land
sé stórt og mikilvægt,“ sagði Guido
Bertolaso einnig.
Utanríkisráðherra Ítalíu, Franco
Frattini, brást skjótt við í tilraun til
að fullvissa Bandaríkjamenn um að
ríkisstjórnin deildi ekki skoðunum
Guidos Bertolaso. Frattini sagði að
Bertolaso hefði „... ráðist beint gegn
Bandaríkjamönnum og alþjóðlegum
stofnunum.“ Á fréttamannafundi í
Washington sagði Frattini aukinheld-
ur að ítalska ríkisstjórnin deildi ekki
fullyrðingum með Guido Bertolaso.
Hjálparstarf á Haítí hefur sætt
gagnrýni fyrir þá sök að allt of lang-
an tíma hafi tekið að koma matvæl-
um, vatni og skýlum til fórnarlamba
skjálftans.
Amnesty International vekur í
ályktun sinni máls á verkefnum og
ábyrgð alþjóðlegra hersveita og frið-
argæsluliða á Haítí. Að mati samtak-
anna verða mál sem varða ábyrgðar-
skyldu þeirra að vera skýr frá upphafi
og tryggt að aðgerðir þeirra og fram-
ferði sé samkvæmt alþjóðlegum
mannréttindalögum og virkt ferli á að
vera til staðar sem tryggir að þau lög
séu virt öllum stundum af öllum að-
ilum.
FRÉTTIR 27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 15
Það er fjöldi vís-bendinga um
skjótar aðgerðir man-
sala sem svífast einskis.
HAÍTÍSK BÖRN Í HÆTTU
Yury Luzhkov, borgarstjóri í
Moskvu, er ekki þekktur fyrir að
draga dul á skoðanir sínar á sam-
kynhneigð. Luzhkov sagði í vi-
kubyrjun að hann myndi aldrei
heimila göngu samkynhneigðra
innan borgarmarka Moskvu. Yuri
Luzhkov sagði slíkar göngur „djöf-
ullegar“ og að þeir sem tækju þátt í
þeim ættu refsingu skilda.
„Ganga samkynhneigðra … get-
ur ekki kallast annað en djöfulleg-
ur verknaður,“ sagði Yury Luzhkov
á námsráðstefnu á mánudaginn,
samkvæmt fréttaveitu Interfax.
Luzhkov sagði að slíkar göngur
hefðu ekki verið leyfðar í borginni
og engin breyting yrði þar á í fram-
tíðinni.
Sem fyrr segir krafðist Luzhkov
þess að þátttakendur í slíkum
göngum sættu refsingum og sagði
að tími væri kominn til að láta af
allri vitleysu um mannréttindi og
láta baráttumenn fyrir réttindum
samkynhneigðra „finna fyrir fullum
krafti og réttlæti laganna“.
Þrátt fyrir bannið er baráttu-
maðurinn Nikolai Alexeyev stað-
ráðinn í að standa að göngu sam-
kynhneigðra sem áformuð er 29.
maí.
Yury Luzhkov sagði göngu sam-
kynhneigðra fyrst vera djöfullega
árið 2007 og uppskar meiðyrðamál-
sókn fyrir vikið. Þeir sem höfðuðu
málið á hendur honum höfðu ekki
erindi sem erfiði. Þrátt fyrir bann
hafa verið haldnar göngur sam-
kynhneigðra í borginni sem gjarna
hafa verið tilefni til árekstra and-
stæðra fylkinga.
Göngu síðasta árs bar upp á
sama dag og Eurovision-söngva-
keppnin var haldin í Moskvu og
gátu sjónvarpsáhorfendur fylgst
með því þegar Alexeyev og bar-
áttubræður hans voru á ruddaleg-
an máta dregnir inn í lögreglubíla
fyrir framan nefið á fréttamönnum.
Alexeyev og félagar hans voru síðar
sektaðir.
kolbeinn@dv.is
Borgarstjóri Moskvu fer ekki í grafgötur með skoðun sína á samkynhneigð:
„Djöfullegar“ göngur
Borgarstjóri Moskvu Samkynhneigðir
eru ekki í uppáhaldi hjá Yuri Luzhkov.
eftir börn sem engin áreiðanleg
skilríki hafi. Samtök á borð við Save
the Children hafa krafist þess að
ættleiðingar haítískra barna verði
stöðvaðar nú þegar.
Smyglað inn í
Dóminíska lýðveldið
Einnig hafa heyrst óstaðfestar frá-
sagnir af mansölum sem lokkað hafa
börn frá búðum með fyrirheitum um
mat og húsaskjól og útlendingum
með ill áform sem þykjast vera sjálf-
boðaliðar og læknar. Börn hafa horf-
ið af spítölum og sagði Margarett Lu-
bin hjá Save the Children að engin
leið væri að vita hvort þau hefðu ver-
ið sótt af foreldrum eða ókunnugum.
Að áliti hjálparstofnana standa
mansalar, þekktir sem „buscons“,
að baki smygli á börnum til Dóm-
iníska lýðveldisins. Þangað komin
enda börnin í þrældómi, vændi eða
í skipulögðum gengjum sem hafa
þann starfa að betla.
Áður en jarðskjálftinn reið yfir
Haítí er talið að fyrrnefndir „bus-
cons“ hafi ofurselt 2.000 til 3.000
börn í ánauð. Mannréttindasamtök-
in Amnesty International hafa hvatt
til þess að börn verði vernduð gegn
misnotkun og mansali og að réttindi
Haítísk börn í Leogane
Öngþveiti á Haítí veldur
ótta um örlög munaðar-
lausra barna. MYNDIR AFP
Bandarískir hermenn
að störfum á Haítí
Gera ekki mun á hjálpar-
starfi og hernaðaríhlutun,
segir Bertolaso.
Þátttaka Breta
ólögleg
Michael Wood, einn helsti lög-
fræðilegi ráðunautur Breta í
aðdraganda innrásarinnar í Írak
árið 2003, sagði í gær að hann
teldi hernaðaraðgerðirnar þar í
landi ólöglegar.
Wood, sem var hæst setti
lögfræðiráðunautur utanríkis-
ráðuneytis Bretlands til ársins
2006, sagði við vitnaleiðslur
vegna þátttöku Breta í hernaði í
Írak að þátttakan hefði verið háð
samþykki Sameinuðu þjóðanna.
Wood er þeirrar skoðunar að
slík heimild hafi ekki legið fyrir
af hálfu öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
Bandaríkjamet í
atvinnuleysi
Efnahagslægðin í Bandaríkj-
unum hefur komið sérstaklega
illa niður á ungum Bandaríkja-
mönnum. Tuttugu prósent
blökkumanna á aldrinum 20
til 24 ára eru hvorki í vinnu né í
skóla samkvæmt skýrslu sem var
birt á þriðjudag.
Unglingum gengur áberandi
verr að fá atvinnu síðan efna-
hagslægðin hófst síðla árs 2007
og í því tilliti farnast ungum
blökkumönnum og ungu fólki úr
lágtekjufjölskyldum einna verst.
Um 26 prósent bandarískra
ungmenna á aldrinum 16 til 19
ára höfðu atvinnu síðla síðasta
árs, segir í skýrslunni sem var
byggð á upplýsingum banda-
rísku hagstofunnar. Sú tala hefur
ekki verið lægri síðan árið 1948
þegar skráning hófst.
Sendinefnd Dalaí
Lama í Kína
Sendinefnd á vegum Dalaí
Lama, útlægs leiðtoga Tíbets, er
nú í Beijing til að reyna að blása
nýju lífi í samningaviðræður við
kínversk stjórnvöld. Samninga-
viðræðunum, sem hafa legið
niðri í fimmtán mánuði, var
hætt eftir að kínversk stjórnvöld
sögðu árangur þeirra engan.
Einn fulltrúa Dalaí Lama
sagði í viðtali við BBC að hugs-
anlega bæri það vitni um breytt
viðhorf kínverskra ráðamanna
ef viðræður kæmust á skrið að
nýju.
Samskipti Dalaí Lama og
Kínverja hafa aldrei verið góð
og versnuðu til muna árið 2008
vegna ólgu í Tíbet.