Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Side 25
Egyptaland á enn möguleika á að
verða Afríkumeistari þriðja skiptið í
röð en liðið lagði firnasterka Kame-
rúna í átta liða úrslitum, 3-1.Egyptar
mæta erkifjendunum í Alsír í und-
anúrslitum á fimmtudagskvöldið á
meðan annað mjög sigurstranglegt
lið, Gana, mætir Nígeríu.
Egyptar lentu undir gegn Kame-
rún í átta liða úrslitunum með sjálfs-
marki þeirra besta manns, Ahmed
Hassan. Hann bætti þó fyrir mistökin
og skoraði tvö mörk fyrir sína menn,
það þriðja og síðasta var reyndar
aldrei mark þar sem boltinn fór ekki
yfir marklínuna. Egyptar hafa unn-
ið Afríkumótið undanfarin tvö skipti
frekar sannfærandi og svo sannar-
lega verið besta lið álfunnar.
Þeir mæta Alsír í undanúrslitum
sem eru svo sannarlega erkifjendur
þeirra. Alsír og Egyptaland mættust
í svakalegum viðureignum um sæti
á Heimsmeistaramótinu í undan-
keppni Afríkuliðanna og hafði Alsír
sigur í hreint mögnuðum leik þar
sem allt ætlaði upp úr að sjóða.
Í hinum undanúrslitaleiknum
mætir Gana liði Nígeríu. Nígería
sem var á árum áður ein albesta Afr-
íkuþjóðin er að koma sterk upp aft-
ur og vann sér meðal annars sæti á
Heimsmeistaramótinu á dramatísk-
an hátt. Gana er þó talið eitt alsigur-
stranglegasta liðið, enda uppgangur
í knattspyrnunni mikill þar í landi.
Til dæmis má nefna að Gana varð
síðastliðið sumar heimsmeistari liða
undir 20 ára aldri, fyrst Afríkuþjóða
til að takast það. Úrslitaleikurinn
verður síðan á sunnudaginn en leik-
ið verður um bronsið á laugardag-
inn.
tomas@dv.is
Undanúrslit í Afríkukeppninni:
EGYPTAR EYGJA ÞANN ÞRIÐJA Í RÖÐ
ROONEY ELSKAR SEEDORF Wayne
Rooney segir að Clarnece Seedorf, leikmaður AC Milan, sé
besti leikmaður sem hann hafi mætt á fótboltavellinum.
Manchester United mætir einmitt AC Milan í 16 liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar. „Seedorf er klárlega sá maður
hjá Milan sem ég óttast mest. Hann er trúlega sá besti
sem ég hef mætt. Það sem hann gerir inni á vellinum er
oft ótrúlegt og það má aldrei skilja hann eftir - ekki eitt
sekúndubrot,“ segir Rooney.
HARTSON VILL LIFA FYRIR BÖRNIN John
Hartson segir að hann sé vonandi kominn yfir það versta í baráttu sinni
gegn krabbameininu sem hann hefur verið að glíma við. Hartson sem
lék við góðan orðstír hjá fjölda liða í enska boltanum fékk krabbamein í
eistun sem breiddist síðan í lungun og í heilann. „Þetta er það erfiðasta
sem ég þurft að fást við en vonandi er ég kominn yfir það versta. Ég fór
á fund nýlega þar sem ég fékk góðar fréttir og ég grét,“ segir Hartson
en hann á þrjú lítil börn og það fjórða á leiðinni. „Ég var í sundi með
börnunum mínum og ég áttaði mig á að ég vil lifa. Lifa fyrir þau.“
SPORT 27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25
SIF TIL
ÞÝSKALANDS
n Sif Atladóttir, miðvörður Ís-
lands- og bikarmeistara Vals, er
gengin til liðs við Saarbrucken í
Þýskalandi.
Saarbruck-
en leikur í
þýsku úrvals-
deildinni,
eða Bundes-
ligunni. Sif
gerði samning
út tímabil-
ið en síðasti
leikur liðsins er 8. maí. Missir Sif
því af fyrstu tveimur leikjum Vals
á næsta tímabili en þangað ætlar
hún sér að snúa aftur. „Liðið er
í svipuðum styrkleika og þau lið
sem maður hefur verið að spila
á móti heima undanfarin ár, en
það er að styrkja sig nú fyrir seinni
hluta mótsins og vonandi gengur
það eftir,“ sagði Sif við knatt-
spyrnuvefsíðuna Fótbolta.net um
vistaskiptin.
LANDSLIÐSMAÐUR
TIL MEISTARANNA
n Íslandsmeistarar KR í körfu-
bolta hafa fengið til sín heldur
betur góðan liðstyrk. Landsliðs-
bakvörðurinn Pavel Ermolinskij
hefur samið við Vesturbæjarstór-
veldið um að leika með liðinu út
tímabilið. Pavel er sem stendur
samningsbundinn spænska lið-
inu Caceres en hann hefur leikið
í atvinnumennsku á Spáni frá því
hann var 16 ára gamall. Hann er
23 ára í dag. Gangi allt upp leik-
ur Pavel sinn fyrsta leik með KR
4. febrúar gegn liðinu sem fyrir
tímabilið var spáð Íslandsmeist-
aratitlinum, Grindavík. KR er sem
stendur efst í deildinni með 24
stig, hefur tveggja stiga forskot á
næstu lið.
NADAL ÚR LEIK
n Tenniskappinn Rafael Nadal
er úr leik á fyrsta risamóti ársins,
ástralska meistaramótinu sem
fer nú fram í
Sydney. Hann
neyddist til að
hætta keppni
í átta manna
úrslitum gegn
Skotanum
Andy Murray
sem komst
því auðveld-
lega inn í undanúrslitin. Hinn
22 ára gamli Murray sem átti frá-
bært ár í fyrra var með yfirhönd-
ina í leiknum þegar Nadal gafst
upp. Murray mætir því Króatan-
um Marin Cilic í undanúrslitum.
Breskir tennisáhugamenn bíða í
ofvæni eins og Murray sjálfur eftir
fyrsta risatitli kappans en hann á
enn eftir að vinna slíkan þrátt fyrir
sigur á mörgum mótum og frá-
bært gengi undanfarin ár.
JAY-Z HELDUR
MEÐ ARSENAL
n Þegar rapparinn og pródús-
entinn Jay-Z mætti á heimavöll
Manchester City í fyrra var því
haldið fram að þessi mikli áhrifa-
maður í bandarískri tónlistargerð
væri stuðningsmaður ríkisbubb-
anna í bláa hluta Manchester.
Rapparinn hefur nú leiðrétt þann
misskilning og gert öllum það
morgunljóst að hann heldur með
Arsenal. „Ég er ánægður að Ars-
enal-menn viti nú að ég styð þá.
Það væri gaman að hitta þá alla
og sérstaklega Fabregas einhvern
tíma yfir hádegisverði og ræða
málin,“ segir Jay-Z sem er hvað
hrifnastur af spænskum fyrirliða
liðsins, Cesc Fabregas.
MOLAR
NORÐMENN SÍÐASTA HINDRUNIN
við spurður um Loga Geirsson og
hvort hann væri að spara Loga fyr-
ir leikinn gegn Noregi: „Það kem-
ur í ljós. Ég vil ekkert segja um það
núna.“
Ólafur Guðmundsson var bros-
andi út að eyrum eftir leikinn. „Þetta
var æðislega gaman og ég var bú-
inn að bíða lengi eftir þessu. Ég var
kannski fullgraður á tímabili en ég
ætlaði bara að sanna mig. Ég var alveg
ákveðinn í því,“ sagði Hafnfirðingur-
inn ungi við RÚV.
Norðmenn síðasta hindrunin
Íslendingar eru nú í dauðafæri á að
ná sæti í undanúrslitum mótsins
og þar með öruggan leik um verð-
laun. Til þess þurfa strákarnir að
leggja Norðmenn á fimmtudaginn.
Verkefni sem liðið getur vel klárað
en verður hægara sagt en gert. Nor-
egur hefur sjaldan verið með betra
lið og hefur leikið vel á mótinu. Það
vann Rússana ekki með jafnmiklum
mun og Ísland en það verður að taka
með í dæmið hvenær liðin mætt-
ust. Norðmenn voru með Rússum í
riðli á meðan Ísland mætti Rússun-
um þegar þeir höfðu að afar litlu að
keppa.
Norska liðið er stútfullt af frábær-
um leikmönnum. Aftastur er mark-
vörðurinn Steinar Ege sem leikur með
Arnóri Atlasyni hjá FCK í Danmörku.
Ege er afar góður markvörður sem
getur breyst í einn þann besta í heimi
á góðum degi. Annar samherji Arnórs
Atlasonar, Erlend Marmelund, er afar
öflug skytta sem lék Íslendinga grátt
í undankeppni mótsins en þar gerðu
liðin tvívegis jafntefli.
Í norska liðinu eru einnig tveir
stórkostlegir línumenn. Eiginlega
tveir af bestu línumönnum heims.
Þeir Frank Loke og Bjarte Myrhol
en sá síðarnefndi leikur með Rhein-
Neckar Löwen, sama liði og Guðjón
Valur, Snorri Steinn og Ólafur Stef-
ánsson. Þeir eru frábærir bæði í vörn
sem sókn. Svo má ekki gleyma nítján
marka manninum, sem er „persona
non grata“ á Íslandi, Kjetil Strand.
Egyptar Hafa unnið keppnina undanfarin tvö skipti. MYND AFP