Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Síða 30
DAFNAR VEL Í
REYKJANESBÆ
„Ég flýg til London og sama dag til Miami með
Yorke. Þaðan förum í siglingu um Karíbahafið til
Mexíkó. Ég fer þriðja eða fjórða febrúar,“ segir of-
urbomban og fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardótt-
ir, kærasta Dwights Yorke, en hún er á leið í mikla
ævintýraferð – lúxusferð í hæsta gæðaflokki í boði
Yorkes.
Kristrún Ösp er í flokki með fallegustu konum
landsins og vekur athygli hvert sem hún fer.
Áður hefur verið fjallað um samband Kristrúnar
og Yorkes í íslenskum fjölmiðlum en íslenskir íþrótta-
unnendur ættu að kannast vel við Dwight Yorke sem
gerði garðinn frægan með Manchester United. Þar
var hann hluti af liði sem vann hina heilögu þrennu
árið 1999. Ensku deildina, enska bikarinn
og Meistaradeildina. Var Yorke þá talinn
einn allra besti framherji í heimi.
Þessi glæsilegu skötuhjú eru miklir
vinir og ekki beint í sambandi – vilja leika
sér þegar þau eru hvort í sínu landinu. En
ástin togar – jafnvel á milli landa.
Á LEIÐ Í LÚXUSFERÐ
UNGBEST
OFURSKVÍSAN KRISTRÚN ÖSP:
STJÖRNUHUNDURINN LÚKAS:
Rapparinn og grínistinn Halldór
Halldórsson, betur þekktur sem
Dóri DNA, mun stýra útvarps-
þættinum Haförninn sem hef-
ur göngu sína á Rás 2 í byrjun
febrúar. Íslenskt rapp verður
viðfangsefni þáttarins þar sem
verður að finna sértæka og fag-
urfæðilega umræðu um senuna
hér á landi. Halldór mun meðal
annars fá til sín bókmenntafræð-
ing þar sem rýnt verður í nokkra
þekkta íslenska rapptexta. Dóri
ætti að vera á heimavelli í þætt-
inum, enda einn þekktasti rapp-
ari landsins og verið að í mörg ár
þrátt fyrir ungan aldur.
30 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FÓLKIÐ
DNA ER
HAFÖRNINN
REMIX
Besti flokkur Jóns Gnarrs er kom-
inn í gírinn fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar og hefur stofnað
ungliðahreyfinguna Ungbest. Helstu
baráttumál Ungbest eru kynnt á vef-
síðu flokksins, bestiflokkurinn.mobi,
en þau eru aðallega þrjú. Í fyrsta lagi
að ríkið eyði ekki fjármunum í kaup
á drykkjarvatni þar sem besta vatn
heims sé fáanlegt úr krönum hér á
landi, að alls konar mannréttindi
verði tryggð í stjórnarskrá en ekki
bara sum og að opið ræðupúlt verði
með reglulegu millibili á Alþingi fyr-
ir ungt fólk. Lagið Simply The Best
með Tinu Turner hefur
verið einkenn-
islag flokksins
á síðunni en
Ungbest hafa
nú skipt Tinu út
fyrir „Cool rem-
ix“ af laginu sem
er öllu hressara.
MEÐ YORKE Glæsipar Kristrún Ösp og Dwight Yorke. Ánægð og ástfangin.
„Það er allt fínt að frétta af okkur. Ég er að læra
hundaþjálfun hjá HRFÍ,“ segir Kristjana Mar-
grét Svansdóttir, eigandi Lúkasar, eins frægasta
hunds landsins. Lúkasi skaut upp á stjörnu-
himininn eftir að hann týndist árið 2007 og
er trúlega eini hundurinn sem hefur leikið í
Áramótaskaupinu, ekki eitthvert aukahlut-
verk heldur var hann í einu af aðalhlutverk-
unum.
Kristjana segir að Lúkas dafni vel sunn-
an heiða en hún fluttist frá Akureyri rétt
fyrir jólin og býr í Reykjanesbæ. „Lúkas er
mjög duglegur og dafnar vel. Hann stendur
sig með prýði og kann öll trixin í bókinni –
svona eins og Einar Bárðarson,“ segir hún
og hlær en eins og frægt er orðið gaf önnur
hetja Suðurnesja, Einar Bárðarson, út bók
með þeim titli.
Lúkas er hreinræktaður faxhundur af
chinese crested-tegund. Hann týndist
sumarið 2007 og fannst ekki fyrr en eftir 2
mánuði. Var hann þá illa á sig kominn, orð-
inn horaður, stressaður og hræddur. Hann
þurfti að fá ýmis lyf og vítamín en með
mikilli þolinmæði og lagni tókst Kristjönu
að koma honum aftur í gott líkamlegt og
andlegt ástand. Málið náði miklum hæð-
um í fjölmiðlum eftir að óprúttnir aðil-
ar sökuðu Helga Rafn Brynjarsson um að
hafa sett Lúkas í íþróttatösku og síðan sparkað í
hann til ólífis. Helgi mátti þola gífurlegar ofsókn-
ir vegna málsins og fjölmargir reiðir bloggarar
fordæmdu verknaðinn. Oft var Helga hótað líf-
láti á vefsíðum og hálfgerð sefasýki greip um sig
meðal álitsgjafa veraldarvefjarins. Málið tók síð-
an óvænta stefnu þegar fregnir bárust af því að
Lúkas væri á lífi. Helgi kærði og er það mál nú í
farvegi eins og það kallast. Og nú er von á öðrum
hundi af sama kyni.
„Ég er að flytja inn annan hund af sama kyni
og Lúkas. Þeir eru samt eins og svart og hvítt, eiga
ekkert sameiginlegt nema að vera af sama kyni,“
segir Kristjana og hlær sínum smitandi hlátri.
benni@dv.is
Lúkas
Kristjana Margrét Svansdóttir, eigandi Lúkasar, eins fræg-
asta hunds á Íslandi, er flutt suður yfir heiðar þar sem hún
nemur hundaþjálfun. Hún segir að Lúkas hafi það fínt og
stefnir á að flytja inn annan hund af chinese crested-kyni.
Nýkomin heim Kristjana er mikið
með hundana úti í náttúrunni. Hér
er hún nýkomin úr göngutúr og
hundarnir því ógreiddir.
Dafnar vel Lúkasi líður
vel, tveimur árum eftir
að hann var talinn af.