Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Page 2
2 MÁNUDAGUR 15. febrúar 2010 FRÉTTIR Gunnar Gunnarsson, lögfræðingur og fyrrverandi starfsmaður KPMG og Milestone, er ráðgjafi Portúgal- ans Cristianos Ronaldo, leikmanns Real Madrid. Ronaldo og Gunn- ar tengjast meðal annars í gegn- um íþróttadrykkjaframleiðandann Leppin International sem gerði samning við portúgalska leikmann- inn árið 2008 um að vera andlit nýs íþróttadrykkjar, Soccerade. Gunnar er í stjórn félagsins sem á Leppin en það heitir O32 ehf. Ronaldo er ekki eini fótbolta- maðurinn sem notið hefur ráðgjafar Gunnars í fjár- og skattamálum. Af öðrum ber að nefna Eið Smára Guð- johnsen og Birki Kristinsson, mark- vörðinn fræga. Eiður á sömuleiðis hlut í Leppin. Gunnar, Eiður Smári og Cristi ano Ronaldo tengjast því allir í gegnum Leppin International. Gunnar er stjórnarmaður í félaginu, Eiður er hluthafi í því og Ronaldo hefur leik- ið í auglýsingum fyrir það. Vinnur fyrir auðmenn Þessir íþróttamenn eru þó aðeins nokkrir þeirra fjölmörgu einstakl- inga sem Gunnar hefur unnið fyrir á liðnum árum. Hann sérhæfir sig í að aðstoða fólk við að borga ekki skatta að óþörfu ef það getur komist hjá því á löglegan hátt. Snilld Gunnars á þessu sviði – hann sjálfur hefur sagst vera fremsti skattalögfræðing- ur landsins samkvæmt heimildum DV – gerði það að verkum að eignar- haldsfélagið Milestone fékk hann til liðs við sig frá KPMG og átti Gunn- ar þátt í að teikna upp skattalegu hliðina á mörgum af þeim flóknu viðskiptum sem eignarhaldsfélagið stundaði og greint hefur verið frá í fjölmiðlum frá hruninu 2008. Samhliða starfi sínu hjá Mile- stone veitti hann mörgum auð- mönnum skattaráðgjöf, með- al annars apótekaranum Róbert Melax, stofnanda Lyfju, og Magnúsi Krist- inssyni, útgerðarmanni frá Vestmannaeyjum. Gunnar tilheyrir án nokkurs vafa þeim hópi manna sem nefndir hafa verið arkitektar hrunsins hér á síðum DV. Þetta eru þeir sérfræðingar – lögmenn, endurskoð- endur og fleiri – sem unnu fyrir helstu leik- mennina í íslensku viðskiptalífi á árun- um fyrir hrunið og sáu um að fram- kvæma við- skipti þeirra. Lítið hef- ur hins veg- ar verið rætt um þátt þess- ara manna í hruninu hingað til og hvernig sérfræðiþekking þeirra á ákveðnum sviðum hjálpaði auð- mönnunum að stunda viðskipti sín. Þessir menn voru verkfæri fjár- magnseigendanna, ef svo má segja. Slapp við að borga 700 milljónir Bræðurnir Birkir og Magnús Krist- inssynir leituðu meðal annars til Gunnars í febrúar árið 2008 til að fá ráð um hvernig hægt væri að losna við að greiða fjármagnstekjuskatt af sjö milljarða króna viðskiptum þeirra á milli. Birkir hafði selt Magnúsi bróður sínum hlut sinn í fjárfestingafélag- inu Gnúpi fyrir umrædda upphæð árið 2007. Vandamálið var hins veg- ar að Birkir hefði þurft að greiða 700 milljónir króna í fjármagnstekju- skatt ef viðskiptin hefðu verið fram- kvæmd á þann einfalda hátt sem þeir bræður höfðu ráðgert. Gunnar teiknaði upp töluvert flóknari viðskipti þar sem Birkir „… hefði þurft að greiða fjármagns- tekjuskatt og að MK [Magnús Kristinsson, innskot blaðamanns] stóð eftir með tiltölulega flókinn strúktúr utan um eignarhald í Gnúp.“ Þess vegna, að því er seg- ir í skjali um viðskiptin sem DV hefur undir höndum, höfðu þeir samband við Gunnar Gunnars- son sem þá var starfsmaður Mile- stone. Eftir vinnu Gunnars, sem KPMG og Logos fóru yfir að því er segir í skjalinu, var ákveðið að breyta við- skiptum bræðranna þannig að í stað þess að gerður væri einn kaup- samningur í tengsl- um við viðskiptin voru gerðir þrír kaup- samningar. Afleiðingin af viðskipt- unum varð sú að Birkir fékk 7 millj- arða króna fyrir hlut sinn í Gnúpi og losnaði við að greiða 700 milljóna fjármagnstekjuskatt af upphæð- inni með því að greiða sér meira en helminginn af kaupverðinu sem arð. Það er því ekki að ósekju sem menn eins og Gunnar eru vinsæl- ir starfskraftar: Með því að nýta sér þekkingu þeirra er hægt að kom- ast hjá því á löglegan hátt að greiða hundruð milljóna í skatta og jafnvel meira. Lykilmaður hjá Milestone Áður en Gunnar var ráðinn til starfa hjá Milestone árið 2007 starfaði hann sem yfirmaður á skattasviði endurskoð- endaskrifstofunnar KPMG. Hann tók við sem yfirmaður skatta- sviðs KPMG þegar Bernhard Bogason gerðist framkvæmda- stjóri lögfræðisviðs FL Group. Gunn- ar starfaði svo hjá Milestone fram að bankahruninu en hefur starfað sjálf- stætt síðan sem og við kennslu í skattarétti við Háskólann í Reykja- vík. Gunnar var lykilmaður hjá Mile- stone fyrir bankahrunið og herma heimildir DV að hann hafi séð um að útfæra tæknilegan hluta við- skipta félagsins ásamt forstjóra þess, Guðmundi Ólasyni. Þeir voru heil- arnir í samstæðunni ef svo má segja. Gunnar teiknaði til að mynda upp hvernig Milestone fjárfesti í ein- stökum fasteignum og öðrum eign- um á flókinn hátt í gegnum nokkur Einn aðalmaðurinn í Milestone-samstæðunni var skattalögfræð- ingurinn Gunnar Gunnarsson. Hann vinnur sömuleiðis fyrir marga þekkta einstaklinga eins og knattspyrnumennina Ronaldo hjá Real Madrid, Eið Smára og Birki Kristinsson. Sérsvið hans er að hjálpa mönnum að komast hjá því á löglegan hátt að greiða skatta. RÁÐGJAFI RONALDOS n Gunnar Gunnarsson starfaði sem lögfræðingur hjá Milestone. Fyrir það starfaði hann sem yfirmaður skattasviðs KPMG. Gunnar er með meistaragráðu í alþjóðlegum skattarétti og kennir skattarétt við Háskólann í Reykjavík. Hann er skattaráðgjafi fjölmargra þekktra einstaklinga eins og Cristianos Ronaldo hjá Real Madrid, Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Tottenham, Birkis og Magnúsar Kristinssona og Róberts Melax. Sérgrein hans er að búa þannig um hnútana, á löglegan hátt, að viðskiptavinir hans þurfi ekki að greiða skatta af viðskiptum sínum. Gunnar hefur sjálfur sagt að hann sé færasti skattalögfræðingur landsins. Áður en Gunnar haslaði sér völl í íslensku viðskiptalífi var hann hvað þekktastur fyrir að leika knattspyrnu með Val og Þrótti. Gunnar var góður og lipur framherji og þótti fínn markaskorari. Hann þótti frár á fæti og hlaut af þeim sökum viðurnefnið Gunni sprettur og gengur hann undir því enn þann dag í dag. Þessi fortíð hans úr heimi knattspyrnunnar útskýrir líklega að hluta til af hverju hann hefur unnið svo mikið með fótboltamönnum á síðustu árum. Hver er Gunnar Gunnarsson? INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Gunnar, Eiður Smári og Cristiano Ronaldo tengjast því allir í gegnum Leppin International. Skattaráðgjafi Gunnar Gunnarsson er væntanlega einn af færari skattalögfræðingum landsins enda hefur hann verið vinsæll sem slíkur hjá ýmsum þekktum einstaklingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.