Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Síða 11
FRÉTTIR 26. apríl 2010 MÁNUDAGUR 11 „Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til laga um fjölmiðla er stórhættulegt. Það ber allt yfirbragð þess að ríkið ætli sér með beinum og óbeinum hætti að stýra fjölmiðlum eða hafa áhrif á efnistök þeirra,“ segir Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Hann tók nýverið sæti Þorgerð- ar Katrínar Gunnarsdóttur í Suð- vesturkjördæmi eftir að hún sagði af sér varaformennsku í Sjálfstæð- isflokknum og vék af þingi, að minnsta kosti tímabundið. Markmið laganna er að stuðla að tjáningarfrelsi, rétti til upplýs- inga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun sem og að efla vernd neytenda. Þá er einnig ætl- unin að samræma og hafa ein lög um fjölmiðla óháð tegund miðlun- ar. Sérstök eftirlitsstofnun - Fjöl- miðlastofa - verður sett á fót. Yfir henni verður þriggja manna stjórn sem skipuð verður fulltrúa frá há- skólasamfélaginu, menntamála- ráðherra og Hæstarétti. Ráðinn verður framkvæmda- stjóri yfir Fjölmiðlastofu sem ætlað er að annast framkvæmd laganna ekki síst með hag fjölmiðlanotenda í huga. Brugðist við gagnrýni „Mér sýnist frumvarpið að nokkru koma til móts við gagnrýni sem sett er fram í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis um fjölmiðla,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra. „Frumvarpið leysir útvarpsrétt- arnefnd af hólmi og felur í sér inn- leiðingu tilskipunar ESB um fjöl- miðla. En þar fyrir utan hefur verið gagnrýnt að ekki hefur verið vett- vangur til faglegrar gagnrýni á störf fjölmiðla. Við ættum ekki að mála skrattan á vegginn fyrirfram. Þarna er líka tekið á gagnsæi varðandi eignarhald á fjölmiðlum. Vitanlega má deila um eftirlit,“ segir Katrín en bendir meðal annars á hvernig í frumvarpinu er tekið er á hatursá- róðri í fjölmiðlum. Stjórnlyndi og ríkisafskipti „Hugmyndin að stofnun Fjöl- miðlastofu er enn hættulegri en ella vegna þess hve einstök ákvæði í frumvarpinu eru óljós og opin fyr- ir túlkun hinnar opinberu eftirlits- stofnunar. Verði frumvarpið að lögum er ljóst að greið leið verður fyrir rík- isvaldið að skipta sér með bein- um hætti af efni og efnistökum fjölmiðla. Í lýðræðisríki verður að berjast af hörku gegn öllu slíku. Ég hélt raunar að við hefðum lært okkar lexíu í þessum efnum.“ Óli Björn segir að nú sé sérstakt and- rúm í þjóðfélaginu sem myndað hafi jarðveg fyrir hugmyndir stjórn- lyndra stjórnmálamanna. „Þetta hefur þýtt að almenningur virðist vera hættur að velta fyrir sér hlut- verki ríkisins, hann sættir sig við að allt eftirlit sé aukið, nýjar stofnanir séu settar á fót og áhrif stjórnmála- manna og embættismanna á allt daglegt líf stóraukið. Verst finnst mér að fjölmiðlar virðast ætla að láta þetta yfir sig ganga án þess að spyrna við fótum,“ segir Óli Björn og bætir við að ekki sé allt alslæmt í lagafrumvarpinu. Hvar liggur ábyrgð? Í greinargerð með frumvarpinu segir meðal annars að nauðsyn- legt hafi verið að víkka sjóndeildar- hringinn verulega frá gildandi út- varpslögum og prentlögum. „Þetta felst meðal annars í til- lögum um gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum, reglum um aðgang efnisveitna að ólíkum dreifiveitum og flutningsrétt dreifiveitna á efni, auk grundvallarbreytinga á stjórn- sýslu á þessu sviði,“ segir í greinar- gerð með lögunum. Í furmvarpinu eru ábyrgðar- reglur samræmdar þannig að ekki gildi mismunandi ábyrgð um mis- munandi fjölmiðla. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir að ábyrgð rit- stjórna eða einstakra blaðamanna gagnvart viðmælendum verði sam- ræmd. Vísa má til þess að dómar hafa fallið sem varpa ábyrgð á um- mælum viðmælenda prentmiðla yfir á viðkomandi ritstjórn eða blaðamann. Ísland og Lúxemborg Í greinargerð frumvarpsins er vísað til þess að fjölmiðlatilskipun ESB varðandi hljóð- og myndmiðla geri ráð fyrir sjálfstæðum eftirlitsaðila sem framfylgi ákvæðum hennar. Í öðru lagi felur lögleiðing ákvæða tilskipunarinnar í sér brýna þörf á tilkomu slíks eftirlitsaðila með hliðsjón af hinu rýmkaða gildis- sviði og umfangi þeirra verkefna sem af tilskipuninni leiðir. Þess er getið að öll aðildarríki EES-samn- ingsins að Íslandi og Lúxemborg undanskildum hafi nú þegar kom- ið á fót eftirliti í anda tilskipunar- innar. „Eigi Ísland ekki að drag- ast enn frekar aftur úr í alþjóðlegu samstarfi á þessum vettvangi er nauðsynlegt að ákvæði frumvarps þessa um stofnun Fjölmiðlastofu og breytta stjórnsýslu verði í lög leidd.“ Starfsemi Fjölmiðlastofu og hlutverk hennar verður breytt frá því sem nú gildir um útvarpsrétt- arnefnd ekki síst af þeirri ástæðu að henni er nú ætlað að ná utan um alla fjölmiðla í landinu, hverju nafni sem þeir nefnast. Eignarhald upplýst Í greinargerðinni er lagt til að öll fjölmiðlaþjónusta, sem heyrir undir lögsögu íslenska ríkisins, sé skráningarskyld til Fjölmiðlastofu í því skyni að auðvelda henni að rækja starf sitt. Skráningarskylda fjölmiðla hefur til þessa einkum tengst úthlutun tíðnisviðs fyrir út- varp og sjónvarp og hefur verið í höndum útvarpsréttarnefndar. Það nýmæli er tekið upp sam- kvæmt lögunum að fjölmiðlum verður skylt að gefa tæmandi upp- lýsingar um eignarhald. „Er með því lagt til að leidd verði í lög sú tillaga síðari fjölmiðlanefndar að upplýsingar um eignarhald fjöl- miðlafyrirtækja á hverjum tíma séu almenningi ávallt aðgengileg- ar.“ Með síðari fjölmiðlanefnd er átt við þá nefnd sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi mennta- málaráðherra, setti á fót eftir að umdeild lög um eignarhald á fjöl- miðlum höfðu verið afnumin á sumarþingi árið 2004 í kjölfar þess að forseti Íslands beitti málskots- rétti sínum gagnvart lögunum. Óli Björn Kárason, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir frumvarp um fjölmiðla harðlega og segir það fela í sér óeðlileg ríkisafskipti af efni og efnistökum fjölmiðla. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra segir óþarft að mála skrattann á vegginn. RÍKIÐ VILL RITSTÝRA JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Verst finnst mér að fjölmiðlar virðast ætla að láta þetta yfir sig ganga án þess að spyrna við fótum. Fjölmiðlar í ríkisforsjá Óli Björn Kára- son, Sjálfstæðisflokki, segir hugmynda- fræði ríkisforsjár einkenna frumvarp menntamálaráðherra um fjölmiðla. Deila má um eftirlit Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir ástæðulaust að mála skrattann á vegginn. Um 36. grein í frumvarpi til laga um fjölmiðla: „Aðili sem telur að lögmætir hagsmunir hans, einkum æra hans eða orðspor, hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli hefur rétt til andsvara í viðkomandi miðli eða til annarra jafngildra úrræða. Andsvör skulu birt eða þeim miðlað þegar eftir að rök hafa verið færð fyrir beiðni þar um. Þegar um prentmiðil eða rafrænan ritmiðil er að ræða skal birta andsvör með sama hætti og annað efni viðkomandi miðils og á þeim stað að eftir verði tekið og þegar um hljóð- eða myndmiðil er að ræða skal andsvörum miðlað á þeim tíma þegar hlustun eða áhorf er mest og með þeim hætti sem best hæfir miðlun þess efnis er beiðnin tekur til. Fjölmiðlaþjónustuveitanda er óheimilt að óska eftir greiðslu fyrir birtingu eða miðlun andsvars. “ n Fjölmiðill getur synjað beiðni um andsvar við ýmsar aðstæður sem tilgreindar eru í frumvarpinu. n Synjun skal tilkynnt hlutaðeigandi innan þriggja sólarhringa frá því að beiðni um andsvar er sett fram. n Synji fjölmiðill beiðni um andsvar eða bregðist hann ekki við beiðni aðila innan þeirra tímamarka sem þar eru tilgreind getur hlutaðeigandi beint erindi sínu til Fjölmiðlastofu sem tekur ákvörðun um hvort viðkomandi eigi rétt á að koma andsvörum á framfæri. Ákvörðun skal tekin innan viku frá því að Fjölmiðlastofu berst erindi þar um og skal stofnunin leggja fyrir viðkomandi fjölmiðlaþjónustuveitanda að miðla andsvari án tafar þegar við á. n Samkvæmt 36. greininni skulu fjölmiðlar hafa aðgengilegt á heimasíðu sinni, eða með öðrum opinberum hætti, hvert aðili geti leitað telji hann að lögmætir hagsmunir sínir hafi beðið tjón. Atriði úr frumvarpinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.