Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 ÚTTEKT
Afbrýðisemi getur haft mikil og neikvæð áhrif
á tilfinninga- og kynferðislegt samband para,
sérstaklega þegar um gift hjón er að ræða.
Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn sem gerð
var af sálfræðideild háskólans í Iowa. „Þeg-
ar pör ganga í það heilaga eykst sameiginlega
ábyrgðin. Fólk eignast börn, eignir og samein-
ar fjölskyldur sínar,“ segir höfundur rannsókn-
arinnar, sálfræðingurinn Anthony Paik. Niður-
stöður Paiks, sem birtust í tímaritinu Journal of
Sex Research, gefa til kynna að þeir einstakl-
ingar sem upplifa ekki afbrýðisemi eru mun
hamingjusamari í hjónabandi sínu en þeir sem
viðurkenna tilvist „græneygða skrímslisins“.
Í ljós kom að afbrýðisemi hefur ekki jafnmik-
il áhrif á hamingju ógiftra para. „Gift hjón hafa
gert með sér mikinn samning og brot á honum
hefði gífurlegar afleiðingar,“ segir Paik og annar
sálfræðingur, Wendy M. Troxel í sálfræðideild
háskólans í Pittsburgh, tekur undir: „Gift hjón
hafa lagt allt undir svo áfallið þegar upp kemst
um framhjáhald annars er mun meira en í
sambandi kærustupara og sambýlinga.“
Ekki sáttakynlíf eftir hliðarspr
Samkvæmt prófessornum Kenneth N. Levy, frá
Pennsylvania-háskólanum, mæla niðurstöður
Paiks gegn mýtunni um „sáttakynlíf“ því að „í
rannsókninni kom í ljós að einstaklinga langar
síður að elskast með maka sínum eftir að hafa
heyrt af framhjáhaldi hans,“ segir Levy og bæt-
ir við til sé fjöldi dæma um að afbrýðisemi hafi
farið úr böndunum og endað með heimilisof-
beldi og jafnvel morði.
Sjálfur hefur Levy rannsakað afbrýði-
semi en hans niðurstöður birtust í tímarit-
inu Psychological Science. Þar kemur fram
að gerð sambands skiptir mestu þegar kem-
ur að afbrýðisemi en ekki kynið eins og lengi
hefur verið haldið fram. „Margir félagsvís-
indamenn telja að karlmenn líti alvarlegri
augum á framhjáhald ef það felur í sér kynlíf
á meðan konur líti alvarlegri augum á fram-
hjáhald sem snýst um tilfinninganánd,“ seg-
ir Levy og bætir við að sú kenning sé útskýrð
á þann hátt að karlmenn lifi í sífelldum ótta
um að afkvæmin séu í raun ekki þeirra og
konur í ótta við að þurfa ala börnin upp ein-
ar.
Tilfinningalegt – líkamlegt
Rannsókn Levys gefur til kynna að karlmönn-
um líður í raun verr eftir að hafa haldið fram
hjá líkamlega og að konum líði verr ef þær hafa
haldið fram hjá tilfinningalega. Hins vegar, seg-
ir Levy, fer þetta ekki algjörlega eftir kyni held-
ur eru til konur sem telja verra að sofa hjá öðr-
um en að tengjast tilfinningalega og öfugt.
„Þess vegna hlýtur eitthvað annað að
spila inn í,“ segir Levy sem ákvað að athuga
málið. Hann flokkaði sambönd þátttakenda
í „ótengd“ og „örugg“ og komst að því að
„ótengdur“ einstaklingur sér ekki virði sam-
bandsins og leggur meiri áherslu á einstakl-
ingsfrelsi. Á hinn bóginn sjá þeir sem flokkast
í „öruggu sambandi“ styrkinn í sambandinu
og líður vel með samofin líf sín. „Mín skoðun
er sú að þeir sem eiga í góðu sambandi líta al-
varlegri augum á tilfinningalegt framhjáhald
á meðan þeir sem séu ótengdir í sambandi
líti alvarlegri augum á kynferðislegt framhjá-
hald,“ segir Levy sem fékk 400 stúdenta til að
láta reyna á kenninguna. Eftir að hafa skil-
greint tegund ástarsambanda þátttakenda
voru þeir beðnir um að segja hvort þeim þætti
alvarlegra - tilfinningalegt eða líkamlegt fram-
hjáhald. Niðurstöður gáfu kenningu Levys byr
undir báða vængi: Karlmenn í „ótengdum“
samböndum telja að kynferðislegt framhjá-
hald sé alvarlegra en tilfinningalegt á meðan
karlmenn í „öruggum“ samböndum telja til-
finningalegt framhjáhald verra. Og það sama
var uppi á teningnum hjá konunum.
Einhverjir myndu líklega halda fram
að framhjáhald af hvoru tagi myndi ekki
valda miklu hugarangri hjá einstaklingum
í „ótengdu“ sambandi en Levy segir að um
varnarviðbrögð sé að ræða. „Einstaklingar
í samböndum þar sem innileika skortir af-
tengja sig tilfinningalega af ótta við að vera
særðir. Það að þeir óttist líkamlegt framhjá-
hald sannar hins vegar að þeim er ekki sama,“
segir Levy.
ÞJÁISTU
AF AFBRÝÐISEMI?
Lengi hafa vísindamenn talið að kynin taki mismunandi á hliðarsporum maka. Því hefur lengi verið haldið
fram að karlmenn líti líkamlegt framhjáhald alvarlegri augum en tilfinningalegt framhjáhald og öfugt með
konur. Nýleg rannsókn gefur til kynna að kynið skipti ekki mestu varðandi framhjáhald og afbrýðisemi heldur
tegund sambandsins. Önnur rannsókn sýnir að giftir einstaklingar telja framhjáhald alvarlegra en þeir ógiftu.
10 ráð til að sigrast á afbrýðisemi
1. Spurðu sjálfa/n þig af hverju:
Hvaðan er þessi óþægilega tilfinning sprottin?
Af fyrri reynslu? Hélt fyrrverandi kærasti/kærasta þín fram hjá þér
og ertu á tánum síðan?
Af eigin reynslu? Ertu sjálf/ur ótrú/r og viss um að svoleiðis hagi sér
allir?
Ofnotarðu áfengi eða eiturlyf? Fíkn getur valdið paranoju.
Hræðistu félagsskap? Ef þú ert ekki vanur/vön því að makinn sé
ávallt umkringdur vinum gæti það kveikt á ótta við framhjáhald.
Ertu óörugg/ur? Finnst þér þú ekki nógu góð/ur fyrir hann/hana og
ertu að gera þig brjálaða/n af ótta að missa hana/hann?
Ertu of neikvæð/ur? Ef þú ert viss um að allir góðir hlutir taki enda
verður það þannig.
Er hann/hún alltaf til í tuskið? Afbrýðisemi gæti sprottið af því að
makinn virðist hafa endalausa kynlífslöngun. Hvað gerist ef þú ert
ekki nálæg/ur?
2. Láttu makann apa eftir
Það virkar fátt jafnvel til að gera sér grein fyrir eigin fáránleika og
spegill. Ef þú hringir á klukkutíma fresti til að forvitnast um hennar/
hans ferðir láttu hana/hann gera það sama við þig. Eftir nokkra
daga af pirrandi og óþarfa símtölum gerirðu þér grein fyrir að þú
ert að gera illt verra og fattar að það er allt í lagi þótt þið séuð ekki
saman 24/7.
3. Talaðu við fjölskyldu og vini
Talaðu af hreinskilni við fólkið sem þekkir maka þinn best og
láttu það sannfæra þig um að þú sért með gullmola í höndunum.
Reyndu líka að kynnast hennar/hans vinum til að gera þér grein
fyrir „heiminum án þín“.
4. Horfstu í augu við óttann
Ef þú heldur að makinn sé á djamminu til að reyna við aðra farðu
þá með honum út á lífið. Reyndu að kynnast öllum vinum makans,
sér í lagi þeim sem eru af gagnstæðu kyni. Gallharðar sannanir
bjarga þér frá fjörugu ímyndunaraflinu.
5. Spurðu
Ef þú ert að farast úr afbrýðisemi er best að ræða við makann.
Biddu hann um að hjálpa þér að komast yfir þessa óþægilegu
tilfinningu með því að sýna þér skilning.
6. Skiptu abrýðiseminni út
fyrir stolt
Ef þú kemst ómögulega yfir afbrýðisemi reyndu þá að líta á
hana öðrum augum. Næst þegar þig langar að öskra og berja
þann sem leit tvisvar á elskuna þína, róaðu þig þá og taktu
glápinu sem hóli. Mundu að það ert þú sem vaknar við hliðina
á þessari fallegu mannesku sem aðrir geta ekki annað en horft
á.
7. Rifjaðu upp hvernig er að
vera á „markaðnum“
Manstu hvernig það er að vera einhleyp/ur og vera stanslaust
hafnað? Manstu hvað það var skelfilegt þegar skotmark þitt sýndi
þér giftingarhring? Hafðu þetta í huga. Þeir/þær sem gætu óvart
reynt við maka þitt þurfa að takast á við höfnun vikulega, jafnvel
daglega. Greyið þau.
8. Prófaðu makann
Ef þú ert að fara yfir um verðurðu líklega að fá að vita í eitt skipti
fyrir öll hvort makinn sé þér trúr eða ekki. Fáðu myndarlega konu/
karl til að reyna við hann. Ímyndunaraflið, sem sýnir þér elskuna
þína uppi í rúmi með öðrum en þér, gæti horfið á augabragði þegar
þú verður vitni að því þegar hún/hann hafnar jafnómótstæðilegu
boði.
9. Ráddu einkaspæjara
Kannski einum of bandarískt en þú gætir fengið vin eða kunningja
til að fylgjast með honum/henni. Vonandi kemur í ljós að þú þarft
ekki að hafa neinar áhyggjur.
10. Leitaðu þér aðstoðar
Ef allt annað bregst og þú þjáist af afbrýðisemi sem hefur
slæm áhrif á samband ykkar þarftu á hjálp sérfræðings að
halda.