Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Page 24
24 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010
STÓRSIGUR CHELSEA Chelsea ætlar sér að landa enska titlinum en það sann-
aði liðið svo um munaði þegar það niðurlægði Stoke, 7-0, á sunnudaginn. Chelsea þurfti
sigur til að komast aftur upp fyrir Manchester United og gerði það með stæl. Salomon Kal-
ou skoraði þrennu fyrir Chelsea, Frank Lampard tvö, Florent Malouda eitt og Daniel Sturridge
eitt mark. United-menn höfðu vonast eftir smá hjálp frá liði Stoke sem vanalega leikur
sterkan varnarleik. Hjálpin var þó engin enda átti Stoke aldrei möguleika í frábært
Chelsea-lið sem gjörsamlega valtaði yfir gestina. Stórsigurinn gerir líka mikið fyrir
markatölu Chelsea sem hefur nú það „aukastig“ í hendi á Manchester United í
baráttunni um titilinn.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
MAN. UNITED - TOTTENHAM 3-1
1-0 Ryan Giggs (58. víti), 1-1 Ledley King (70.), 2-1 Nani (81.), 3-1
Ryan Giggs (86. víti).
BOLTON - PORTSMOUTH 2-2
1-0 Ivan Klasnic (26.), 2-0 Kevin Davies (28), 2-1 Aruna Dindane
(54.), 2-2 Aruna Dindane (68.).
HULL - SUNDERLAND 0-1
0-1 Darren Bent (7.).
WEST HAM - WIGAN 3-2
0-1 Jonathan Spector (4. sm), 1-1 Ilan (31.), 2-1 Radoslav Kovac
(44.), 2-2 Hugo Rodallega (52.), 3-2 Scott Parker (77.).
ÚLFARNIR - BLACKBURN 1-1
0-1 Ryan Nelsen (28.), 1-1 Sylvain Ebanks-Blake (81.).
ARSENAL - MANCHESTER CITY 0-0
ASTON VILLA - BIRMINGHAM 1-0
1-0 James Milner (83. víti)
BURNLEY - LIVERPOOL 0-4
0-1 Steven Gerrard (52.), 0-2 Steven Gerrard (59.), 0-3 Maxi
Rodriguez (74.), 0-4 Ryan Babel (90.).
EVERTON - FULHAM 2-1
0-1 Erik Nevland (36.), 1-1 Chris Smalling (50.), 2-1 Mikel Arteta
(90.).
CHELSEA - STOKE 7-0
1-0 Salomon Kalou (24.), 2-0 Salomon Kalou (31.),
Frank Lampard (44. víti), 4-0 Salomon Kalou (68.), 5-0 Frank
Lampard (81.), 6-0 Daniel Sturridge (87.), 7-0 Florent Malouda
(89.).
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Chelsea 36 25 5 6 93:32 80
2. Man. Utd 36 25 4 7 81:28 79
3. Arsenal 36 22 6 8 78:39 72
4. Tottenham 35 19 7 9 63:37 64
5. Aston Villa 36 17 13 6 51:35 64
6. Man. City 35 17 12 6 69:42 63
7. Liverpool 36 18 8 10 61:33 62
8. Everton 36 15 12 9 59:49 57
9. Birmingham 36 12 11 13 35:44 47
10. Sunderland 36 11 11 14 47:53 44
11. Blackburn 36 11 11 14 38:54 44
12. Fulham 35 11 10 14 36:39 43
13. Stoke City 35 10 13 12 33:44 43
14. Bolton 36 9 9 18 40:65 36
15. Wolves 36 8 11 17 29:52 35
16. Wigan 36 9 8 19 35:69 35
17. West Ham 36 8 10 18 44:62 34
18. Hull 36 6 10 20 32:73 28
19. Burnley 36 7 6 23 37:78 27
20. Portsmouth 36 6 7 23 31:64 16
CHAMPIONSHIP
BARNSLEY - QPR 0-1
BRISTON - DERBY 2-1
CARDIFF - SHEFF. WED 3-2
DONCASTER - SCUNTHORPE 4-3
M.BORO - COVENTRY 1-1
Aron Einar Gunnarsson var að vanda í byrjunarliði Coventry og
skoraði jöfnunarmarkið á 58. mínútu. Hann spilaði allan leikinn.
NEWCASTLE - IPSWICH 2-2
NOTT. FOREST - PLYMOUTH 3-0
Kári Árnason var í byrjunarliði Plymouth en var tekinn af velli
á 84. mínútu.
PETERBOROUGH - BLACKPOOL 0-1
PRESTON - LEICESTER 0-1
SHEFF. UTD - SWANSEA 2-0
WATFORD - READING 3-0
Heiðar Helguson var í byrjunarliði Watford og skoraði annað
mark liðsins. Gylfi Sigurðsson var í byrjunarliði Reading og
lék allan leikinn en Brynjar Björn Gunnarsson var ónotaður
varamaður í liði Reading.
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Newcastle 45 29 12 4 89:35 99
2. WBA 44 26 11 7 87:46 89
3. Nott. Forest 45 22 12 11 63:38 78
4. Cardiff 45 22 10 13 73:52 76
5. Leicester 45 20 13 12 59:45 73
6. Blackpool 45 19 12 14 73:57 69
7. Swansea 45 17 17 11 40:37 68
8. Middlesbro 45 16 14 15 58:48 62
9. Sheff. Utd 45 16 14 15 59:54 62
10. Bristol City 45 15 17 13 55:64 62
11. Reading 45 16 12 17 64:62 60
12. Doncaster 45 15 14 16 59:58 59
13. QPR 45 14 15 16 58:64 57
14. Ipswich 45 12 20 13 50:58 56
15. Preston 45 13 15 17 57:69 54
16. Coventry 45 13 15 17 47:60 54
17. Derby 45 14 11 20 51:63 53
18. Barnsley 45 14 11 20 52:68 53
19. Watford 45 13 12 20 57:68 51
20. Scunthorpe 45 14 9 22 60:82 51
21. C. Palace 44 14 15 15 47:50 47
22. Sheff. Wed. 45 11 13 21 47:67 46
23. Plymouth 45 11 8 26 41:66 41
24. Peterborough 45 7 10 28 44:79 31
ENSKI BOLTINN
Hull er 99,99% fallið úr ensku úr-
valsdeildinni. Til þess að halda
sér uppi verður Hull að vinna
næstu tvo leiki á meðan West
Ham tapar báðum sínum og auk
þess þarf Hull að vinna upp 23
mörk á West Ham. Slíkt gerist
ekki og er því morgunljóst að Hull
kveður deildina eftir tveggja ára
veru á meðal þeirra bestu. Liðið
tapaði um helgina heimaleik gegn
Sunderland, 1-0, á meðan West
Ham gerði það sem það þurfti og
lagði Wigan að velli. Þar með voru
örlög Hull ráðin. Stjórn Hull við-
urkennir fúslega góðærishugsun-
arhátt sinn og er félagið skuldum
vafið. Hull verður að skera niður
launakostnað strax, stærstu leik-
mennirnir fara og notast verð-
ur við unga leikmenn til þess að
koma liðinu upp aftur sem fyrst.
Verðum að halda stoltinu
Iain Dowie var fenginn til að
stýra Hull í síðustu níu leikjum
tímabilsins eftir að Phil Brown,
maðurinn sem kom liðinu upp
á meðal þeirra bestu, var rek-
inn. Honum tókst ekki ætlunar-
verk sitt enda liðið í vondum mál-
um þegar hann tók við því. „Ég er
virkilega vonsvikinn, sérstaklega
með hvernig við töpuðum. Þetta
er samt allra verst fyrir stuðnings-
mennina. Þeir studdu okkur allan
tímann og klöppuðu fyrir strákun-
um eftir leikinn. Þeir vissu að all-
ir hérna lögðu allt sitt í verkefnið,“
sagði Dowie súr í bragði við BBC
eftir leikinn.
Í stöðunni 1-0 skaut Jimmy
Bullard í stöngina úr vítaspyrnu.
„Kevin Kilbane klúðraði dauða-
færi í miðri viku gegn Aston Villa
og svo skaut Bullard í stöngina í
dag. Þegar heppnin er ekki með
manni er hún svo sannarlega ekki
með manni. Það er alltaf hægt að
fara í leikinn ef og hefði en stað-
reyndin er bara svona fyrir okkur.
Það var hungur og áræðni í leik-
mönnum í dag en því miður var
það bara ekki nóg,“ sagði hann.
Hull á nú tvo leiki eftir en
það endar tímabilið heima gegn
Liverpool. „Ég hef verið í þessari
stöðu áður þannig að ég nýtti bara
svekkelsið inni í klefa áðan til þess
að passa að þetta komi ekki fyrir
menn aftur. Þá langar ekki að líða
svona í bráð. Nú þurfum við bara
að enda tímabilið almennilega og
spila fyrir stoltið í síðustu tveim-
ur leikjunum. Hvað mig varðar
veit ég ekki hvort ég haldi áfram.
Ef ég verð beðinn er ég alltaf til í
erfið verkefni, þú sérð nú hvar ég
er núna,“ sagði Iain Dowie.
Mikill fjármálavandi
Úrvalsdeildin hefur tekið sinn toll
hjá Hull en félagið hefur eytt mikl-
um peningum í leikmenn þó megi
alveg skeggræða gæði margra
þeirra. Leikmannakaup og launa-
greiðslur eru að gera út af við fé-
lagið sem er ekki langt frá því að
fara í greiðslustöðvun. Stjórnar-
formaður félagsins, Adam Pear-
son, ætlar að stýra félaginu frá
gjaldþroti en til þess þarf að skera
niður mikinn kostnað.
„Við þurfum að lækka allan
kostnað og það strax. Reksturinn
er mjög erfiður fjárhagslega en
ég get ekki sagt of mikið um það
núna. Eitt er víst að við þurfum að
lækka launakostnað undir eins og
skera niður í fleiri kostnaðarliðum.
En við tökumst á við þetta stjórn-
armennirnir, til þess erum við nú,“
sagði Pearson við BBC eftir tapið
gegn Sunderland.
„Þetta er bara ákall um vakn-
ingu til okkar allra sem stýrum fé-
laginu. Það er mikið af skuldum
sem við þurfum nú að hagræða
hvernig við borgum. Nú förum við
að hlúa meira að unglingstarfinu
sem er gott hérna. Okkar feitustu
bitar sem fá mest í laun verða seld-
ir sem fyrst. Við verðum að vera
snjallir næstu mánuðina. Næstu
þrír mánuðir skipta félagið sköpum
og allar ákvarðanir verða að vera
hárréttar. Við ætlum okkur upp aft-
ur sem fyrst til að nýta björgunar-
greiðslunar sem við fáum sem best.
Ég mun standa vaktina áfram því
þetta er mitt félag og ég vil því allt
hið besta,“ sagði Adam Pearson.
GAMANIÐ BÚIÐ
HJÁ HULL
Ekkert nema sameinað
kraftaverk allra guða sem til
eru á skrá getur bjargað Hull
frá falli úr ensku úrvalsdeild-
inni. Til að bæta gráu ofan á
svart er fjárhagsstaða liðsins
hrikaleg og verður að skera
niður allan launakostnað eins
fljótt og hægt er. Sterkustu
leikmenn liðsins verða seldir
hið snarasta.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is LIÐIÐ
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Við þurfum að lækka allan
kostnað og það strax.
Reksturinn er mjög
erfiður fjárhagslega
en ég get ekki sagt of
mikið um það núna.
HETJAN OG SKÚRKURINN Phil Brown kom liðinu upp en á síðan mesta sök á
að það sé komið niður aftur. MYND AFP
SKAMMARRÆÐAN FRÆGA
Phil Brown skammaði sína
menn fyrir framan stuðn-
ingsmennina á fyrsta tímabili
liðsins. Það eyðilagði móralinn
í liðinu sem vann ekki leik
eftir það. Jimmy Bullard gerði
síðan grín að atvikinu í ár en
nú er grínið búið því Bullard er
félaginu dýr og verður seldur
eins fljótt og hægt er. MYND AFP