Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Síða 25
26. apríl 2010 MÁNUDAGUR 25
JIMMY
BULLARD
HULL
n Maðurinn sem vanalega
bjargar liðum frá falli skaut
mikilvægri vítaspyrnu í
stöngina og Hull féll.
MARKVÖRÐUR
n Joe Hart - Birmingham
Tveir frábærir leikir í röð fyrir framan landsliðsþjálfarann. Hann
er búinn að tryggja sér sæti á HM. Þannig er það bara.
VARNARMENN
n Patrice Evra - Manchester United
Það hljóta að vera alveg tíu rokkstig að æla á völlinn en halda
samt áfram og vera ógnandi.
n Sol Campbell - Arsenal
Traustur sem klettur gegn City. Langbesti leikmaður
vallarins.
n Kolo Toure - Manchester City
Varnarmennirnir voru í aðalhlutverkum í leik Arsenal og
City. Toure var manna skárstur hjá Bláum.
MIÐJUMENN
n Morten Gamst Pedersen - Blackburn
Átti flottan leik í liði Blackburn. Dældi boltanum inn á
teiginn og var mjög skapandi.
n Steven Gerrard - Liverpool
Fyrirliðinn með tvö mörk og gjörsamlega stjórnaði
miðjunni gegn Burnley.
n Scott Parker - West Ham
Maður leiksins gegn Wigan. Skoraði glæsilegt mark
sem hélt West Ham í deildinni.
n Alberto Aquilani - Liverpool
Hann getur þá eitthvað. Kannski 20 milljónirnar
fari að borga sig að ári?
SÓKNARMENN
n Salomon Kalou - Chelsea
Falda hetjan í liði Chelsea.
n Nani - Manchester United
Fiskaði víti og skoraði mark í mikilvægum leik.
n Sylvan Ebanks-Blake - Úlfarnir
Hans annað mark í deildinni tryggði
Úlfunum áframhaldandi veru í deildinni.
LIÐ HELGARINNAR
UMDEILDA
ATVIKIÐ
SYLVAN
EBANKS-BLAKE
ÚLFARNIR
n Ebanks-Blake hefur ekk-
ert getað í ár. Hann skoraði
aðeins sitt annað mark í úr-
valsdeildinni gegn Black-
burn en það tryggði Úlfun-
um áframhaldandi veru í
úrvalsdeildinni.
HETJAN
SKÚRK-
URINN
VÍTIÐ Á BIRMINGHAM
n Á 83. mínútu í borgarslag Aston Villa og Birm-
ingham dæmdi Martin Atkinson víti þegar Roger
Johnson felldi Gabriel Agbonlahor í teignum.
Morgunljóst er að Johnson snerti boltann fyrst
en var það nóg til að láta ekki dæma víti?
Sol Campbell
Morten Gamst Pedersen
Joe Hart
Salomon Kalou
Alberto Aquilani
Steven Gerrard
Kolo TourePatrice Evra
Nani
Scott Parker
Sylvan Ebanks-Blake
JOE HART
BIRMINGHAM
n Aðra helgina í röð átti
hinn ungi Joe Hart magnaða
viðbragðs-markvörslu, beint
fyrir framan landsliðsþjálfar-
ann, Fabio Capello.
MARK-
VARSLAN
BURNLEY
n Ekkert óvænt hér. Þessu hafa all-
ir beðið eftir síðan Brian Laws var
ráðinn stjóri Burnley. Þetta annars
ágæta lið með Jóa Kalla innanborðs
kveður nú úrvalsdeildina, líklega í
langan tíma.
FALLIÐ
SCOTT PARKER
WEST HAM
n Scott Parker hefur verið að eflast
með hverjum leiknum eftir meiðsl-
in. Hann skoraði magnað mark fyrir
West Ham gegn Wigan, utanfótar
snudda af 25 metra færi sem tryggði
veru West Ham í deildinni.
MARKIÐ
ALAN HUTTON OG
JOZI ALTIDORE
n Je dúdda mía. Eftir smá stympingar
við hliðarlínuna ákvað Alan Hutton
að kasta boltanum í Altidore á meðan
hann lá. Altidore réðst á Hutton sem
lagðist vælandi í grasið. Altidore fékk
rautt fyrir viðbrögðin og þegar Hutt-
on var hættur að væla var hann líka
rekinn af velli, réttilega!
GUNNAR NIELSEN
MANCHESTER CITY
n Færeyingurinn Gunnar Nielsen
varð um helgina annar Íslendingur-
inn til að verja mark Manchester City
á eftir Árna Gauti Arasyni. Hann er
reyndar bara hálfur Íslendingur, móðir
hans borin og barnfæddur Siglfirðing-
ur. Hann stendur væntanlega vaktina
út tímabilið þar sem
Shay Given er frá
vegna meiðsla.
ÍSLENDINGURINN FÁVITARNIR