Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Síða 7
fréttir 9. júní 2010 miðvikudagur 7 Björn L. Bergsson, settur ríkissak- sóknari í málum tengdum banka- hruninu, sem komst að þeirri nið- urstöðu í vikunni að ekki ætti að hefja sakarannsókn á þætti þriggja fyrrverandi seðlabankastjóra í hruninu segir  seðlabankastjórana fyrrverandi  þó ekki hafa fengið syndaaflausn. Í samtali við blaða- mann DV segir Björn: „Það er ekki verið að gefa út neina allsherjar- kvittun. Það er bara vísað til atriða sem tiltekin eru í þessari skýrslu.“ Björn bendir á að hann hafi bara haft fjögur mál til afgreiðslu. Þrjú mál tengd bankastjórunum þrem- ur og eitt er varðaði Jónas Fr. Jóns- son, fyrrverandi forstjóra FME. „Ef eitthvað kemur upp úr dúrn- um hjá sérstökum saksóknara, ef í ljós kemur að einhver önnur emb- ættisfærsla sýnir merki um van- rækslu er ekkert því til fyrirstöðu að það verði rannsakað,“ segir Björn og tekur fram fjórmenning- arnir  hafi ekki fengið neinn „fríp- assa“ í málum sem sérstakur sak- sóknari gæti fundið við rannsókn sína. „Þessir einstaklingar hafa ekki fengið neina syndaaflausn.“ Ekki sammála rannsóknarnefndinni Málin sem Björn segist hafa haft til  skoðunar snúa að vanrækslu fyrrverandi seðlabankastjóranna Davíðs Oddssonar, Eiríks Guðna- sonar og Ingimundar Friðrikssonar í starfi. Í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis um bankahrunið og að- draganda þess er komist að þeirri niðurstöðu að bankastjórarnir fyrr- verandi hafi sýnt af sér vanrækslu í starfi. Vanrækslan sneri meðal ann- ars að því  að seðlabankastjórarn- ir fyrrverandi höfðu ekki kannað til hlítar stöðu Landsbankans eftir að hann óskaði aðstoðar Seðlabank- ans við að færa  Icesave-reikning- ana yfir í dótturfélag. Einnig höfðu þeir ekki rannsakað nægilega stöðu Glitnis þegar bankinn bað Seðla- bankann um lán í september. Þing- mannanefnd sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sendi mál fjórmenninganna til Björns. Björn segir að hann hafi aug- ljóslega ekki viljað tjá sig um hvort honum hafi þótt erfitt að geta ekki rannsakað mál  fjórmenning- anna frekar.  Kom að Baugsmálinu Björn var skipaður af Rögnu Árna- dóttur, dómsmála- og  mann- réttindaráðherra, til að fara með hlutverk og valdheimildir ríkissak- sóknara gagnvart embætti sérstaks saksóknara. Björn var skipaður vegna vanhæfis Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara, en sonur hans var forstjóri Exista, sem var stór eigandi í Kaupþingi banka. Björn er fæddur 4. mars 1964 og lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1990. Hann hlaut héraðsdóms- réttindi árið 1992 og  varð  hæsta- réttarlögmaður árið 1999. Á tíma var hann einn lögmanna Neyðar- móttöku vegna nauðgana. Björn hefur starfað sem stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík á sviði opinbers réttarfars. Í dag á hann ásamt fleirum lögmannsstof- una Mandat. Athygli vekur að Björn var að- stoðarmaður ríkissaksóknara í Baugsmálinu. Því máli hefur oft verið stillt upp sem valdabaráttu Baugsfeðga gegn Davíð Oddssyni. Hann var einnig í forsvari fyrir kæru- nefnd jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að Björn Bjarna- son, fyrrverandi dómsmálaráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson sem hæstaréttardómara. Árið 2005 vann svo Björn ásamt Sif Konráðsdóttur lögfræðiálit fyr- ir þáverandi stjórnarandstöðu, um hæfi Halldórs Ásgrímssonar til þess að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins. Á mánudag komst Björn L. Bergsson, settur ríkissaksóknari í málum tengdum bankahruninu, að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að höfða mál á hendur fyrrverandi seðlabankastjórum og fyrrverandi forstjóra Fjár- málaeftirlitsins fyrir vanrækslu í starfi. Björn segist ekki hafa veitt fjórmenningunum neina syndaaflausn. Hann segir þá ekki hafa neinn „frípassa“ gagnvart rannsókn sérstaks saksóknara. „HAFA EKKi FENGiÐ NEiNA SYNDAAFLAUSN“ aðaLstEinn Kjartansson blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is Ef í ljós kemur að einhver önn- ur embættisfærsla sýnir merki um vanrækslu er ekkert því til fyrirstöðu að það verði rannsakað. Björn L. Bergsson „Þessir einstaklingar hafa ekki fengið neina syndaaflausn.“ Getur brosað Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, þarf ekki að verjast málsókn eftir ákvörðun Björns. Hann er þó ekki endanlega sloppinn. Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, segir vexti á inn- lánsreikningum viðskiptabank- anna í flestum tilfellum vera lága. Þeir séu flestir óverðtryggðir og ekki kostakjör fyrir fólk og fyrirtæki í ljósi verðbólgustigsins. Í riti Seðlabanka Íslands yfir fjár- málastöðugleika er þess getið að fé hafi safnast upp hjá viðskiptabönk- unum vegna mikillar útlánaáhættu. Innlán þeirra hjá Seðlabanka Ís- lands nema 160 milljörðum króna. Þar fá þeir sjö prósenta vexti, en vextir á almennum reikningum eru á bilinu 0,25 til fimm prósent. Að- spurður hvort þessi vaxtamunur sendi ekki almenningi slæm skila- boð segir Gylfi álitamál hvort mun- urinn sé meiri en æskilegt sé. Í riti Seðlabanka Íslands segir að lækkun vaxta hjá viðskiptabönkunum hafi leitt til meiri vaxtamunar en ella. „Hann hlýtur alltaf að vera einhver. Ég hef ekki lagst yfir það hver hann er í nágrannalöndunum, en þar er það líka vandamál að bankar taka við fé og setja inn í seðlabanka frek- ar en að lána það út og gera það þá með einhverjum vaxtamun. Inni- stæður banka í seðlabönkum eru greinilega öruggar að mati banka. Þetta endurspeglar áhættufælni á öllum mörkuðum,“ segir Gylfi. Aðspurður hvort staða bank- anna feli í sér svigrúm til þess að lána út peninga segir Gylfi frek- ar vanta upp á eftirspurn eftir fé en framboð á lánamörkuðum og að fólk sé tilbúið til að koma fram með góðar viðskiptahugmyndir og hætta sínu eigin fé til að hrinda þeim í framkvæmd með fjármögn- un frá bankakerfinu að auki. Að- spurður hvort hann telji bankana geta í auknum mæli komið til móts við fólk í greiðsluerfiðleikum, seg- ist Gylfi vonast til þess að þeir geri sem mest. „Þeir eru að gera ým- islegt en ég veit ekki hvort það sé von á einhverjum miklum nýmæl- um umfram það sem þegar hefur verið kynnt.“ Talið er að fjórðung- ur heimila muni lenda í greiðslu- erfiðleikum samkvæmt mati Seðla- banka Íslands. rhb@dv.is Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra: Vonast til að bankarnir geri sem mest Gylfi Magnússon Segir vexti bankanna lága. Rannsókn lokið á myndatökum í búningsklefum Völsungs: Klám til saksóknara

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.