Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Blaðsíða 23
úttekt 9. júní 2010 miðvikudagur 23 Ég vissi voðalega lítið um sjúkdóminn og skildi ekki hvernig mér gæti liðið svona illa þegar ég var ný-búin að eignast svona yndislegt barn,“ segir Hafdís Priscilla Magnúsdóttir sem fékk fæðingarþunglyndi eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn þegar hún var að verða tví- tug. Hafdís segist hafa mætt litlum skilningi í samfélaginu gagnvart sjúkdómnum. „Fólk áttaði sig ekki á því hvað var í gangi og vissi ekki hvernig ætti að höndla þetta. Ég ákvað að vera opin með þetta og sagði fólki frá sjúkdómnum og ég gleymi ekki augnaráðinu sem ég fékk t.d. í mömmu- klúbbnum. Hinar mömmurnar horfðu hneykslaðar á mig og vildu helst ekkert ræða þessi mál. Í dag er þetta breytt, sem betur fer.“ Nokkrum mánuðum eftir að fyrsta barn Hafdísar fæddist ræddi hún vanlíðan sína við mömmu sína og fór að lokum til læknis. „Hann skrifaði upp á þunglyndislyf en ég leysti þau aldrei út. Það var nóg fyrir mig að ræða við einhvern. Þegar annað barn mitt kom í heiminn fékk ég líka vott af þunglyndi en ég var dugleg að ræða líðan mína og náði að vinna mig strax út úr þeim tilfinningum. Núna er yngsta barnið að verða eins árs og ég segi reglulega við mann- inn minn að ég sé enn að bíða eftir þunglyndinu. Þetta var erfið fæðing og meðganga og stelpan kom fyrir tímann en það sem hefur bjargað mér, held ég, er hversu dugleg ég var að ræða málin og láta vita þegar mér leið illa.“ Er bara mannleg Hafdís segir fæðingarþunglyndið hafa lýst sér í mikilli vanlíðan. „Ég grét mikið og þjáðist af samviskubiti vegna hugsana minna og fékk enn meira samviskubit yfir því hversu illa mér leið. Þetta gekk svo langt að ég var farin að horfa til sjávar og far- in að hugsa um hvort barnið væri kannski bet- ur komið án mín,“ segir hún og bætir við að það sé afar slæm tilfinning að finnast maður vera vond mamma. „Ég var ekki beint með neikvæðar hugs- anir gagnvart barninu en þegar álagið var mik- ið og barnið kannski með kveisu átti ég erf- itt, var pirruð og langaði oft að öskra. Maður er hins vegar bara mann- legur og getur ekki ráð- ið við allt og ég held að við mömmur verðum að vera duglegri við að biðja um hjálp.“ Hafdís segir meiri skilning gagnvart sjúkdómnum í dag en þeg- ar hún eignaðist sitt fyrsta barn árið 2003. „Í dag hefur umræðan aðeins opnast en þó ekki nóg. Stór hluti þjóð- arinnar hefur fengið þunglyndi og það er ekkert til að skammast sín fyrir. Við mömmur eigum að vera algjörar súpermömmur og geta séð um allt og alla en stundum er bara ekki hægt að bíta á jaxlinn. Fæðingarþunglyndi getur lagst á hvern sem er og ég mæli með að konur ræði málin við sína nánustu. Það bjargaði mér allavega.“ Aðstæður mínar voru mjög góðar. Við vorum búin að koma okkur fyrir í góðri íbúð og það var ekkert sem átti að geta valdið mér áhyggjum eða þunglyndi auk þess sem ég hafði alltaf verið kát og lífsglöð stúlka,“ segir Þórhildur Sif Þórmundsdóttir nemi í lögfræði sem fékk slæmt fæðingarþunglyndi þegar hennar fyrsta barn fæddist. „Ég fékk að komast að inni á geðdeild og dvaldi þar í tvær vikur með barnið með mér og tók svo lyf þar til barnið var orðið fimm mánaða. Þá fór ég að vinna og allt gekk vel. Sjö árum seinna eign- aðist ég annað barn og allt gekk vel en skell- urinn kom árið 2004 þegar ég eignaðist mitt þriðja barn.“ Þórhildur segir að þá hafi hún fundið á sér að ekki væri allt með felldu. „Ég spjallaði við ljósmóður sem sagði að það væri eðlilegt að mæður væri niðurdregnar eftir fæðingu en ég vissi að þetta væri eitthvað meira en það. Ég beið samt í mánuð eins og hún hafði ráðlagt mér en fór þá inn á geðdeild og bað um hjálp sem ég fékk,“ segir hún en Þórhildur var í eitt ár á göngudeild. „Eftir það varð ég að standa á eig- in fótum og það var erfitt því geðlæknirinn sem hafði séð um mig hætti og enginn hefur viljað taka við mér eftir það. Það er rosalega erfitt að vera veikur og þurfa að sækja alla hjálp sjálf- ur, sérstaklega þegar það að taka upp símtólið virðist jafnerfitt og að hlaupa heilt maraþon.“ Flosnaði upp úr námi Þórhildur segist hafa mætt afar litlum skiln- ingi vegna veikindanna. Hún hafi meðal ann- ars flosnað upp úr námi þar sem hún hafi verið skikkuð í fjarnám og að kennararnir hafi tekið lítið sem ekkert tillit til sjúkdómsins. „Ég leit- aði til kennaranna í von um að fá enn meiri að- gang að þeim vegna veikindanna en fékk engan skilning. Einn þeirra svaraði aldrei tölvupóst- unum mínum og felldi mig og annar hleypti mér í gegn með 5. Kennararnir voru engan veginn með mér í liði og það er alveg ótrúlega óþægileg tilfinning. Mér leið ekki sem þriðja flokks einstaklingi heldur fimmta flokks. Ég var með jafngóðan grunn fyrir þetta nám eins og hver annar en þurfti bara að fá góðan aðgang að kennurunum en það gekk ekki svo ég fann mér annað nám sem hentaði mér betur.“ Annað barn ekki möguleiki Þórhildur Sif hefur það gott í dag og hún þakkar það stuðningi vina, fjölskyldu og eiginmanns. „Ég nýt skilnings alls staðar í kringum mig í dag og það heldur mér nokkuð góðri. Ég var lengi með samviskubit gagnvart börnunum og þurfi meðvitað að breyta hugsanagangi mínum og gera sjálfri mér grein fyrir að ég hafi ekki beð- ið um að verða veik. Ég var bara óheppin að lenda í þessu,“ segir hún og bætir við að hún hafi alltaf verið skipulögð og dugleg og með allt sitt á hreinu. „Þegar ég gat svo ekki staðið við allt það sem ég var vön að sjá um olli það mik- illi vanlíðan. Mér fannst eins og ég væri minni manneskja en ég hafði verið og á mig leituðu alls kyns slæmar hugsanir. Þó aldrei alvarlegar sjálfsvígshugsanir, þótt slíkt hafi alveg hvarflað að mér.“ Aðspurð segist Þórhildur ekki viss um hvort hún ætli að eignast fleiri börn. „Þegar ég var yngri gat ég hugsað mér að eignast mörg börn en í dag, þegar maður er eldri, er málið ekki jafn einfalt. Eins og staðan er í dag þá ætlum við hjónin ekki að taka ákvörðun um að eign- ast annað barn. Það væri gaman að hafa þann möguleika en á meðan ég fæ engan geðlækni höfum við hann ekki.“ indiana@dv.is Vanlíðan á hamingjutímum Bað ekki um að verða veik Þórhildur Sif Þórmundsdóttir var lengi með sam- viskubit gagnvart börnunum sínum eftir að hafa fengið slæmt fæðingarþunglyndi. Hafdís Priscilla mætti litlum skilningi gagnvart sjúkdómi sínum. Ekkert til að skammast sín fyrir Hafdís Priscilla Hafdís segir að sú tilfinning að vera ekki nógu góð mamma sé ekki skemmtileg. myndir Hörður SvEinSSon Fimmta flokks Þórhildur Sif segist ekki hafa mætt neinum skilningi í skólanum svo hún hafi upplifað sig sem fimmta flokks manneskju. myndir Hörður SvEinSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.