Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Qupperneq 6
Vinaráðning n Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavík- ur, og Dagur B. Eggertsson, banda- maður hans og oddviti Samfylkingar- innar í borginni, hafa vakið mikla hneykslun og reiði með því að gera Harald Flosa Tryggvason að stjórnarformanni Orkuveitunnar. Haraldur starfaði sem kunnugt er síðast sem yfirlögfræðingur Lýsingar og hefur það orð á sér að vera grjót- harður og ósveigjanlegur í samskipt- um við lántakendur, sem margir hafa misst allt sitt til Lýsingar. Haraldur Flosi viðurkenndi sjálfur í viðtali við DV að hann væri gamall skólafélagi margra í Besta flokknum og þar væru margir vinir hans. Ráðning Harald- ar er því hefðbundin vinaráðning að hætti gamla Íslands. Fyrir kosningar gaf Besti flokkurinn það út að hann ætlaði að ráða vini sína til starfa í hin ýmsu störf. Þarf ráðning Haraldar því ekki að koma neinum á óvart. Sparneytinn LáruS n Myndskeið sem birt var á DV.is, þar sem Lárus Welding sést spóka sig frjálslega á götu í London íklæddur stuttbuxum og íþróttatreyju, vakti athygli margra lesenda. Af klæðaburði Lárusar að dæma var hann senni- lega á leið í rækt- ina, þó ekkert sé hægt að fullyrða í þeim efnum. Glöggur lesandi á vefnum gerði því skóna að sennilega væri forstjórinn fyrrverandi á leið í Armoury Fitness Center, sem er líkamsræktarstöð í ná- grenninu. Samkvæmt vefsíðu stöðv- arinnar er ekki um að ræða neina sér- staka lúxusstöð að hætti bankastjóra. Árskortið þar kostar til að mynda sem nemur tæplega 100 þúsund íslensk- um krónum, sem telst vart mikið mið- að við lífsstíl útrásarvíkinganna. Þeg- ar Lárus var bankastjóri Glitnis sást hann gjarnan í World Class í Laugum í góðra vina hópi. Þeir Sem töpuðu ViLja StóLinn n Listi umsækjenda um stöðu bæjar- stjóra Akureyrarbæjar er litaður af fólki sem reynt hefur fyrir sér í öðr- um sveitarfélög- um með slökum árangri. Þar eru meðal ann- ars Sigrún Elsa Smáradóttir, sem var hafnað í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í vor, og sömuleiðis flokksbróðir hennar Dofri Hermanns- son, sem komst aldrei í borgarstjórn. Þá er Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, meðal umsækjenda. Hann reyndi að komast til æðstu metorða hjá Framsókn í Kópavogi en það gekk ekki hjá honum. Sömu sögu er að segja um Pál Magnússon, formanns- frambjóðanda í Framsókn. Vongóðir farand- bæjarStjórar n Fleiri fyrrverandi sveitarstjórn- armenn ásælast bæjarstjórastólinn á Akureyri. Ólafur Örn Ólafsson, fyrrverandi bæj- arstjóri Grinda- víkur, sækir um starfið. Hann komst í fréttirn- ar skömmu fyrir hrun þegar í ljós kom að hann var á ofurlaunum hjá Grindavíkurbæ út síðasta kjörtímabil, auk þess sem bærinn skuldbatt sig til að kaupa einbýlishús hans í Grindavík. Aðrir fyrrverandi bæjarstjórar eru Eiríkur Björn Björgvinsson á Egilsstöðum, Ragnar Jörundsson í Vesturbyggð og Þórir Kristinn Þórisson í Fjallabyggð. sandkorn 6 fréttir 25. júní 2010 föstudagur skoða lokun heilsugæslu Síðdegisvakt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var í síðustu viku lokað út sumarið í sparnaðarskyni. Þangað sóttu um sjö þúsund og átta hundruð manns á sama tíma- bili í fyrra. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra óskaði eftir kostnaðargreiningu vegna lokunar vaktarinnar. Ætla má að heildarsparnaður ríkisins vegna lokunar síðdegisvaktar Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins geti að- eins orðið um tíu milljónir króna, eða um helmingi minni en það sem spara átti með aðgerðinni. Áætlað var að um tuttugu og sjö milljóna króna sparnaður yrði í rekstri heilsu- gæslunnar með lokun síðdegisvakt- arinnar yfir sumartímann. Lokunin getur hins vegar haft það í för með sér að ríkið þurfi að auka framlög til annarra sviða. Heilsugæslunni var gert að skera niður um níutíu millj- ónir króna í rekstri sínum á þessu ári og var lokunin einn liður í þeim að- gerðum. Sextán milljónir fluttar til Á sama tímabili í fyrra sóttu um 7.872 einstaklingar síðdegisvaktina. Þess- ir einstaklingar gætu þurft að sækja þjónustu Læknavaktarinnar þetta árið. Móttaka læknavaktarinnar er opin frá klukkan fimm á daginn og fram til klukkan hálf ellefu á kvöldin. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands má áætla að umframkostnaður stofnunar- innar við hvern sjúkling sem sækir Læknavaktina sé tvö þúsund krónur. Sæki sá fjöldi sjúklinga sem fór á síð- degisvaktina síðasta sumar Lækna- vaktina nú, má því áætla að kostnað- ur Sjúkratrygginga Íslands verði um sextán milljónir króna. Samkvæmt þjónustusamningi ríkisins við Læknavaktina er greidd út heildarupphæð sem miðast við komur 41.360 til 46.640 sjúklinga á ári. Greitt er sérstaklega fyrir komur sem eru umfram þann fjölda. Síð- ustu ár hafa um sextíu þúsund sjúk- lingar leitað til Læknavaktarinnar að jafnaði. Fjöldi sjúklinga ofmetinn Gunnar Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Læknavaktarinnar, segir mikið ofmat að 7.800 manns muni sækja þjónustu Læknavaktar- innar vegna lokunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Hér á bæ er reiknað með þrjú þúsund komum aukalega sem virðist vera mjög raun- hæft miðað við reynslu fyrstu dag- anna,“ segir Gunnar. Reynist Gunnar hafa rétt fyrir sér í þessum efnum má reikna með því að kostnaður vegna þessara um- framkoma feli í sér um sex milljóna króna kostnað fyrir Sjúkratryggingar Íslands. Greinileg þjónustuskerðing Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráð- herra óskaði eftir kostnaðargrein- ingu á því hver raunverulegur sparn- aður ríkisins væri af lokuninni og hvaða þjónusta kæmi á móti skerð- ingunni. Hún segir koma til greina að afturkalla ákvörðunina. Hún las fyrst um skerðinguna í DV í síðustu viku og kom fréttin Álfheiði í opna skjöldu. „Þetta er greinileg þjónustuskerð- ing og ég á eftir að sjá röksemdirn- ar fyrir henni, eins og hvernig skjól- stæðingum verður tryggð þjónusta á móti þessari skerðingu. Ef ákvarð- anir eru teknar undir þeim formerkj- um að hagræða og skila síðan ekki árangri verðum við að vera menn til að taka slíkar ákvarðanir aftur,“ segir Álfheiður. Einkastofur einnig í boði Þess ber að geta að Heilsuverndin í Holtasmára í Kópavogi hefur rek- ið læknamóttöku í rúm tvö ár þar sem fólk getur pantað tíma rafrænt í gegnum vefsíðuna doktor.is. Lækna- móttakan þar er opin frá klukkan tvö til sex á daginn og brúar því bil- ið sem myndast milli opnunartíma Læknavaktarinnar og síðdegisvaktar heilsugæslunnar. Þar eru komugjöld 2.500 krónur utan dagvinnutíma. Teitur Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Heilsuverndar, segir lækna- stofuna vera að fullu einkarekna og að greiðsluþátttaka ríkisins sé eng- in. Hann segir að á síðasta ári hafi Heilsuvernd verið skráð fyrir rúmum átta þúsund samskiptum. Þetta er greini-leg þjónustu- skerðing. RÓBERT HLynuR BaLDuRSSon blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Sjúklingar þurfa að leita annað Ef jafnmargirsjúklingarognýttusérsíðdeg- isvaktHeilsugæsluhöfuðborgarsvæðisins síðastasumarleitatilLæknavaktarinnar núkostarþaðríkiðsextánmilljónirkróna. Lettar vilja innleiða róttæk úrræði fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum: Gætunýstmörgumhérlendis Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmuna- samtökum heimilanna, segir að það yrði til bóta yrði boðið upp á sam- bærilegt úrræði fyrir fólk í greiðslu- erfiðleikum hérlendis og lettneska þingið samþykkti í síðustu viku. Þar er gert ráð fyrir því að fólk geti gengið frá skuldum sínum gegn því að kröfu- hafar leysi eigur þess til sín og borgi þeim síðan þrjátíu prósent af tekjum sínum í tvö ár. Að þeim tíma liðnum verði þær skuldir sem eftir standa felldar niður. Marinó segir að honum virðist sem Lettar gangi lengra en Ís- lendingar í eftirgjöf skulda. „Ég er klár á því að þetta gæti nýst mörgum en svona úrræði mega ekki vera of auðveld í notkun. Það verða að vera sambærilegar takmarkanir eins og þegar fólk fer í greiðsluaðlög- un. Menn mega ekki haga fjármálum sínum með óábyrgum hætti held- ur á þetta frekar að nýtast þeim sem lenda í óvæntum aðstæðum eins og tekjumissi eða vegna þess að hér hrundi allt og verðbólga fór upp úr öllu valdi. Það væri besta mál að hafa þetta úrræði og tengja það greiðslu- aðlögun, en þetta má ekki verða að auðveldri flóttaleið fyrir þá sem hafa tekið áhættu,“ segir Marinó. Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, hefur sagt að hún geti hugsað sér að nýta ýmislegt úr lettnesku löggjöfinni til að ná meiri sátt um lyklafrumvarpið hennar svo- kallaða. Þar er gert ráð fyrir því að fólk geti skilað inn lyklunum að eig- um sínum gegn því að kröfur falli ekki á það. Undir þetta tekur Marinó en minnir að sama skapi á að nú sé hugsanlega ekki eins mikil þörf fyr- ir lyklafrumvarpið og var áður en Hæstiréttur felldi dóm sinn um að gengistryggð lán væru ólögmæt. Þar með geti skuldastaða margra heimila batnað og þau ráðið betur við skuld- ir sínar. Hins vegar segir Marinó það vera óheilbrigt að í íslenskum lögum sé gjaldþrot nánast eina úrræðið sem sé notað geti fólk ekki staðið und- ir skuldum sínum og að hægt sé að halda eftir kröfum í gjaldþrota bú um aldur og ævi. „Það er nauðsynlegt að auka neytendavernd til muna í lána- viðskiptum,“ segir Marinó. rhb@dv.is Marinó G. njálsson SegirLettaganga lengraíeftirgjöfskuldaenÍslendingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.