Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 32
32 viðtal 25. júní 2010 föstudagur Ég var skipaður formaður Strætós fyrir hönd Reykjavíkurborgar og sú tilskipun lak í gegnum allt stjórnkerfið án þess að nokkur fetti fingur út í það. Svo kom það upp úr dúrnum að ég væri ólöglegur í þetta starf vegna þess að reglunum hefði verið breytt 2004 yfir í að það yrði að vera aðalmaður í borgarstjórn í þessu „djobbi“. Það þurfti því að stoppa þetta af,“ segir Dr. Gunni þegar hann og blaðamaður eru sestir niður heima hjá honum að Dunhaga í Vest- urbænum. Þegar viðtalið fór fram, síðastliðinn þriðjudag, var ekki komin niðurstaða í það hvort Gunni yrði næsti stjórnarformaður Strætós bs. eins og staðið hafði til. Daginn eftir varð svo ljóst að stóll stjórn- arformannsins yrði ekki hans. Gunni segir meira en að segja það að breyta umræddum lögum þar sem Strætó sé byggða- samlag sem sjö sveitarfélög standa að. Samþykki fimm þeirra þurfi til þess að fá lögum breytt. „Ég sæki það ekki hart að þessu verði breytt því þá verður svo auðvelt fyrir mótherja í pólitík að nýta þetta sem dæmi um pólitíska spillingu,“ sagði Gunni daginn áður en niðurstaðan varð ljós. Eiginkonan nEyddi hann í bílprófið Hefurðu velt málefnum strætisvagna höfuðborg- arsvæðisins mikið fyrir þér í gegnum tíðina? „Ég tók ekki bílpróf fyrr en ég var orðinn 38 ára þannig að ég var alltaf í strætó, leigubílum, hjólandi eða sníkjandi far hjá fólki,“ segir Gunni sem verður 45 ára í haust. „Svo er bara einn bíll á heimilinu þannig að ég hef stundum þurft að taka strætó síðan ég fékk ökuréttindin. Verst hefur mér þótt að maður getur ekki bara hoppað upp í strætó og borgað með kortinu sínu heldur þarf maður að vera með 280 kall í klinki. En mér skilst að þessu verði breytt í haust. Svo finnst mér dálít- ið leiðinlegt að það sé sú stemning í þjóðfélaginu að maður sé einhver lúser ef maður tekur strætó. Það er náttúrlega enginn að pæla í því sem fer til útlanda.“ Auðheyrt er að Gunni hefur ákveðnar skoð- anir á ýmsu sem snýr að strætó. Hann bendir til dæmis á sparnaðinn sem regluleg notkun á þess- ari samgönguþjónustu hafi í för með sér. „Rekstrarkostnaður á bíl er lágmark 100 þús- und kall á mánuði. Munurinn á þeirri upphæð og þeirri sem það kostar að vera í strætó á mán- uði, og þó tekinn sé leigubíll í sumum tilvikum, er auðvitað gígantískur. Ég geri mér þó grein fyrir því að fyrir fjölskyldufólk með tvo eða þrjá krakka sem þarf mikið að vera að skutla er svolítið óraun- hæft að vera án bíls. En manni finnst að margir ættu frekar að íhuga þennan möguleika. Það er milljón kall þarna á milli í árlegum kostnaði. Nokkuð meira spjall um mál sem snúa að Strætó fór fram á milli blaðamanns og Gunna, en í ljósi þess að varaborgarfulltrúinn fékk ekki „djobbið“ verður hér látið gott heita um þau mál. En blaðamaður vill hins vegar ólmur fá að vita hvers vegna Gunni tók ekki bílprófið fyrr en nán- ast rétt fyrir fertugsafmælið. „Ég hafði engan áhuga á að taka bílpróf og það kostaði slatta af peningum. Mér fannst þeim pen- ingum betur varið í að gefa út plötur sem enginn keypti eða fara til útlanda eða eitthvað. Ég komst líka alveg af án bílprófsins. En eftir að ég gifti mig og fyrsta barnið var á leiðinni neitaði konan mín að þurfa að keyra sjálfa sig á upp á fæðingardeild þannig að hún neyddi mig til þess að taka bílpróf,“ segir Gunni og hlær. Hann bætir við að honum finnist reyndar mjög gaman að keyra bíl. „Ég sé svolítið eftir þessum tuttugu árum sem ég var ekki með bílpróf þótt ég hefði getað það lögum samkvæmt. Ef ég gæti spól- að til baka myndi ég taka bílprófið sautján ára.“ Slapp við Strætódjobbið Gunni var í ellefta sæti Besta flokksins í borgar- stjórnarkosningunum í maí. Hann segir líf sitt ekkert hafa breyst í kjölfar hins glæsilega árang- urs sökum þess hve neðarlega á listanum hann var. „Ég er svo aftarlega á merinni að ég fæ aldrei að gera neitt,“ segir Gunni og hlær. „Ég var ekki settur í neitt annað en að vera formaður Strætós þannig að ef það dettur upp fyrir þá er ég bara laus allra mála. Sem er svo sem alveg ágætt því mér leist nú eiginlega ekkert á þetta. Það verða allir svo fúlir og reyna að hanka mann á einhverju. Ég skil í rauninni ekki hvernig nokkur maður nennir að fara út í þetta miðað við álagið og böggið.“ Hvers vegna varstu þá á lista Besta flokksins ef þér hugnast ekki það álag og áreiti sem fylgir pólitíkinni? „Jón Gnarr er félagi minn frá fornu fari. Þeg- ar ég heyrði fyrst af þessu í nóvember var hann bara einlægur og sagðist vera orðinn leiður á að vera alltaf í þessari óvissu um líf sitt, að vita aldrei hvernig hann ætti að borga næstu greiðsluseðla og hann ætlaði því í framboð til að fá öruggt djobb og pening. „Já, já, Jón minn, þetta er fínt hjá þér,“ sagði maður bara og hló. Svo einhvern tím- ann eftir áramót spurði hann mig hvort ég vildi ekki vera á framboðslistanum. Ég sagði bara: „Jú, jú, ekkert mál,“ enda bjóst ég ekki við að þetta yrði neitt. Svo varð þetta allt í einu hrikaleg alvara þeg- ar niðurstöður skoðanakannana fóru að berast. Í einni þeirra var flokkurinn meira að segja kom- inn með hreinan meirihluta,“ segir Gunni og skellir upp úr. „Sem betur fer var ég þá kominn niður í 11. sæti. Ég var fyrst í 6. sæti en var síðan „kynbættur“ niður listann. Svo bara fékk flokkur- inn þessa rosalegu kosningu og þá var ekkert aft- ur snúið,“ segir hann en eins og kunnugt er breytti Besti flokkurinn uppröðun sinni á framboðslist- anum frá þeirri upphaflegu til þess að auka veg kvenna á honum. bESti flokkurinn Ekki kominn til að vEra Gunna finnst enn svolítið skrítið að Jón sé orð- inn borgarstjóri. „Maður er eiginlega ekki al- veg búinn að ná þessu ennþá. Það er náttúrlega ekki nema hálft ár síðan Jón var, innan gæsa- lappa, „rugludallur úti í bæ“, sem var fyndinn og skemmtilegur og sagði mikið af óábyrgum hlut- um sem enginn kippti sér upp við. Sex mánuðum síðar er hann orðinn borgarstjóri með einkabíl- stjóra og farinn að veiða lax. Það tekur smá tíma að venjast þessu.“ Gunni segir mjög góðan anda ríkja í Besta flokknum. Hann sé enda óspjallaður af áratuga- löngum innanflokkserjum og leiðindum. „Svo viðurkenna allir Jón sem stofnanda og leiðtoga flokksins. Það er því engin valdabarátta í Besta flokknum,“ segir Gunni og glottir. Hvernig skýrirðu þennan árangur flokksins í kosningunum? „Ég held að það sé aðallega vegna hrikalegr- ar óánægju með allt hitt dótið. Fólk er búið að sjá í gegnum þetta pólitíska spil. Allir breytast og verða voða góðir eitthvað mánuði fyrir kosning- ar. Labba á milli húsa og gefa fólki blóm og smá- börnum blöðrur og pulsur. Þetta er á meðal þess sem Besti flokkurinn hæddist að. Stærsti hlutinn af kosningabaráttu flokksins var að hæðast að öll- um öðrum flokkum. Þessi hæðni hlýtur náttúr- lega að hafa höfðað til fólks.“ En er ekki hætta á að þeir sem kusu flokkinn í vor, af því að þeir vildu fyrst og fremst refsa hin- um margumtalaða fjórflokki, eigi eftir að snúast gegn Besta flokknum um leið og eitthvað fer að halla undan fæti í stjórn borgarinnar og flokkur- inn lendi þannig í miklu mótlæti? „Ef það gerist þá bara gerist það, enda finnst mér ekki Besti flokkurinn kominn til að vera. Þetta er ekki fólk sem á líf sitt undir því að vera í stjórnmálum. Ef allir fara að hata Besta flokkinn þá bara gerist það og þá verðum við bara að lifa með því.“ fáfræði Er algjört æði Þannig að þú sérð ekki fyrir þér að Besti flokkur- inn eigi eftir að lifa í mörg ár? „Ekki á þessari stundu, nei. En það er svo margt sem ég sé ekki fyrir, samanber þessi kosn- ingaúrslit,“ segir Gunni og hlær. „En þetta er allt fólk sem er ekki alið upp í pólitík, það mætti ekki fyrst á fund hjá Heimdalli tíu ára. Þetta er allt nýtt fólk sem kemur inn í þennan heim og svo verð- ur bara að koma í ljós hvort þetta fólk langi eitt- hvað til þess að vera í þessum heimi mikið lengur en fjögur ár. Þetta er bransi þar sem mikið haglél geisar á fólki. Pólitískir andstæðingar eru sí og æ að reyna að finna einhverja snögga bletti og bíta í hæla.“ Gunni segir borgarfulltrúa Besta flokksins svo sem ekki finna fyrir slíku núna strax á fyrstu vik- unum eftir kosningarnar. Alla vega ekki ef þeir eru lítið á netinu. „Þetta er aðallega þar, einhverjar samsæris- kenningar um að þessi hafi unnið þarna og slíkt. Það eru til dæmis allir að röfla um það núna að Haraldur Flosi [Tryggvason] hafi unnið hjá Lýs- ingu, en enginn er að reyna að komast að því hvað hann ætlar að gera í starfinu. Er Orkuveitan ekki hryllileg ormagryfja sem þarf algjört detox? Það virðist enginn hafa áhuga á að vita hvað Besti flokkurinn hyggst fyrir með fyrirtækið, heldur eru allir fastir í rörinu sínu, að mæna á eitthvað af- markað fyrra starf Haraldar þar sem hann var, eft- ir því sem best verður séð, bara að vinna vinnuna sína – þótt hún hafi kannski ekki verið sérlega geðsleg. Ég held reyndar að maður myndi lifa miklu skemmtilegra lífi ef maður færi bara á net- ið til þess að fara á Youtube. Úti í búð og í rækt- inni er fólk bara að pæla í fótboltanum og Eur- ovision. Það er enginn að pæla í þessu. Íslensk pólitík káfar ekkert upp á hinn venjulega mann. Honum er skítsama, nema um það hvernig hann eigi að borga reikningana um næstu mánaða- mót. Fáfræði er algjört æði!“ Skuldar ExprESS Ekki nEitt Gunni lék í auglýsingu fyrir flugfélagið Iceland Express á síðasta ári og var töluvert gagnrýnd- ur fyrir það af mörgum – að minnsta kosti á net- inu – bæði vegna skrifa sinna um neytendamál á bloggsíðu sinni og sem blaðamaður Fréttablaðs- ins, og vegna þess að aðaleigandi flugfélagsins er Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons, sem er einn þeirra sem taldir eru eiga stærstan þátt í hruni ís- lensks efnahags. Blaðamaður spyr Gunna hvort hann telji sig geta starfað sem borgarfulltrúi, ef svo færi að hann dytti inn í borgarstjórn vegna forfalla annarra fulltrúa Besta flokksins, á sama tíma og þessar auglýsingar séu í gangi. „Þetta var nú bara samningur upp á átján mánuði þannig að hann verður vonandi búinn ef til þess kemur að ég þurfi að fara inn í borg- arstjórn,“ segir Gunni en auglýsingarnar voru gerðar í fyrrasumar. „Og þetta er bara notað þeg- ar mikið liggur við. Þá er ég dreginn upp,“ segir Gunni sposkur. En bætir svo við alvarlegri: „Ef það stendur ekki í lögum borgarinnar sé ég ekki að það séu árekstrar í því.“ En er það ekki ein meginkrafan í íslenskri póli tík eftir hrun að öllum hugsanlegum hags- munaárekstrum sé sópað út af borðinu í ljósi reynslunnar? „Jú, er það ekki?“ spyr Gunni á móti og bros- ir. „En Iceland Express hefur ekkert upp í bakið á mér. Ég er búinn að fá borgað frá þeim þannig að þeir skulda mér ekki neitt og ég skulda þeim ekki neitt. Það eina er að þeir geta notað myndir af mér eitthvað fram á næsta ár.“ „fékk gríðarlEgan Skít yfir mig“ Varðandi gagnrýnisraddirnar sem létu í sér heyra þegar birtingar auglýsinganna hófust segir Gunni marga ekki hafa sparað stóru orðin. „Ég fékk gríð- arlegan skít yfir mig. Það fyrsta sem ég sagði við auglýsingastofuna þegar stungið var upp á þessu var: „En Pálmi Haralds á þetta félag.“ Þeir sögð- ust vita það fullvel og þegar ég spurði hvernig það samræmdist siðferðiskennd þeirra bentu þeir réttilega á að það væri ekki búið að dæma hann fyrir neitt. Það er ennþá svo þannig að hann er ekki glæpamaður nema í augum landsmanna fyrir að vera svona mikill peningasóði. Ég meina, ég var að vinna hjá Jóni Ásgeiri [Jóhannessyni] á Fréttablaðinu á sama tíma. Að leika í auglýsingu hjá fyrirtæki sem Pálmi Haralds á er ekkert öðru- vísi en það. Svo er líka fullt af fólki sem flýgur með Iceland Express og verslar í Bónus og er þannig að láta Pálma og Jón Ásgeir hafa peningana sína.“ Löngun til að rétta aðeins af fjárhag heimil- isins hafði áhrif á þá ákvörðun Gunna að leika í auglýsingunni, eins og hann greindi frá þegar umræðan spratt upp. „Ég skuldaði mikið í yfir- drátt og það er almenn skynsemi að ef þú skuldar fullt af peningum og getur unnið þér inn peninga þá náttúrlega tekurðu því. En maður er kannski gunnari lárusi hjálmarssyni, Dr. Gunna, leist ekki vel á að taka við stjórnarformennsku í Strætó bs. eins og ætlunin var að hann gerði. Hann lítur ekki svo á að Besti flokkurinn sé kominn til að vera og er ánægður með að hafa verið „kynbættur“ niður framboðslista flokksins. Í samtali við kristján hrafn guðmundsson talar Gunni einnig um skítinn sem hann fékk fyrir að auglýsa Iceland Express, sukkárin og uppsögnina á Fréttablaðinu. Strætóstarfið Leist ekkert á Enda finnst mér ekki Besti flokkurinn kominn til að vera. á sviði með unun Gunni þurfti að spila sitjandi í gifsi á Wembley-leikvang- inum vegna ökklabrots sem hann hlaut á fylleríi. mynd EggErt jóhannESSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.