Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 25
föstudagur 25. júní 2010 erlent 25 Stórhöfða 25 • simi 569 3100 Opið virka daga frá kl. 9 -18 Nálastungudýnan • Eykur orkuflæði og vellíðan • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn Heilsusamlegar vörur Verð 9.750 kr. Bakteygjubrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki Verð 7.950 kr. Stuðningshlífar • Einstök hönnun og gæði • Bak, úlnliðs, ökkla- og hnéhlífar www.eirberg.is Hælsærisplásturinn • Verndar fætur og hindrar blöðrumyndun • Vatnsheldur – vörn gegn bakteríum • Dregur úr óþægindum og sársauka Fæst í apótekum Airfree lofthreinsitækið • Betra loft - betri líðan! • Eyðir örverum og ryki Verð frá 33.950 kr. Fall Kevins Rudd Brotið Blað í Ástralíu Höfuðborg Canberra Stærsta borg Sydney Opinbert tungumál Ekkert Þjóðtunga Enska Stjórnarfar Sambandslýðveldi og þingbundin konungsstjórn Þjóðarleiðtogi Elísabet II Englands- drottning Forsætisráðherra Julia Gillard Aðstoðarforsætisráðherra Wayne Swan Sjálfstæði Frá Englandi. Eigin stjórnarskrá tók gildi 1901 Stærð 7.617.930 ferkílómetrar Íbúafjöldi 22.395.353 (áætlun 2010) Manntal 2006 19.855.288 Verg landsframleiðsla 851.170 milljarðar Bandaríkjadala (áætlun 2009) Framleiðsla á íbúa 38.910 Bandaríkjadalir (áætlun 2009) Gjaldmiðill Ástralskur dalur Ástralía Ástralía Í upphafi árs gáfu skoðanakannanir til kynna að Kevin Rudd hefði treyst sig í sessi sem vinsælasti forsætis- ráðherra Ástralíu í þrjátíu ár, eða allar götur síðan Bob Hawke var og hét. Því er óhætt að fullyrða að umsnúningurinn hafi verið óvenju skjótur. Ögurstund Rudds kom þegar hann ákvað að fresta því málefni sem var þungamiðja umhverfis- stefnu hans; viðskiptum með mengunarkvóta. Áherslur Rudds í umhverfismálum áttu stóran þátt í sigri hans árið 2007 en hann sagði að loftslagsbreytingar væru „stærsta áskorun okkar kynslóðar“. Hann staðfesti Kyoto-sáttmálann en tókst ekki að koma frumvarpi um viðskipti með mengunarkvóta í gegnum öldungadeildina. Rudd sagði að ef hann ætti að efna eitt- hvert eitt stefnumál sem væri mikil- vægt til framtíðar litið væri það að samþykkja áætlun til að draga úr mengun. Þegar Rudd frestaði áformum ríkisstjórnarinnar um að draga úr losun eiturefna til ársloka 2012 var hann sakaður um að svíkja kosningaloforð sitt, auk þess sem stjórnar andstaðan sakaði hann um heigulshátt. Síðan Rudd varð leiðtogi Verka- mannaflokksins árið 2006 hefur hann ávallt notið meiri vinsælda hjá almenningi en hjá flokksfélög- um sínum. En þegar hann fékk auð- lindageirann upp á móti sér vegna áforma um ofurskatt á ofurhagnað fyrirtækja í þeim geira dvínuðu vin- sældir hans. Að lokum var svo komið að þungavigtarmenn og klíkuleið- togar innan flokksins töldu ríkis- stjórnina betur setta í komandi kosningum með Juliu Gillard við stjórnvölinn. Rudd komst við þegar hann kvaddi á blaðamannafundi. Nokkr- um sinnum þagnaði hann þeg- ar tilfinningarnar virtust vera að bera hann ofurliði. Engu að síð- ur taldi hann upp það sem hann hafði afrekað í sinni forsætisráð- herratíð; breytingar á heilbrigðis- kerfinu, afsökunarbeiðni til handa „rændu kynslóð“ frumbyggja Ástr- alíu og viðleitni ríkisstjórnar hans í loftslagsmálum. Um það mál sagði Rudd: „Afsökunarbeiðnin var óklárað verk af hálfu þjóðarinnar. Hún er til nýrra verka fyrir þjóðina.“ „Ég hef gefið allt sem ég get. Ég var kjörinn forsætisráðherra af áströlsku þjóðinni... til að færa henni að nýju sanngjarnt tækifæri.“ „Ég er stoltur af árangri mínum í að gera þetta land sanngjarnara,“ sagði Rudd, sem sló á léttari strengi að lokum þegar hann sagði: „Það sem ég er ekki jafn stoltur af er sú staðreynd að ég hef verið að kjökra.“ Síðan árið 1972 hefur enginn verið jafn skamman tíma í embætti forsætis ráðherra í Ástralíu og Kevin Rudd. Hann sagðist ekki hættur afskiptum af stjórnmálum; hann ætlaði að helga sig því að tryggja Verkamannaflokknum endurkjör og sagði í flokknum að finna „gott lið undir forystu góðs forsætisráð- herra“. Fráfarandi forsætisráðherra Kevin Rudd komst við þegar hann flutti kveðjuorð á blaða- mannafundi. Mynd AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.