Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 8
EyjamEnn grínast mEð magnús n Líkt og DV greindi frá á dögunum skulduðu útgerðarhjónin frá Vesta- mannaeyjum, Magnús Kristinsson og Lóa Skarphéðins- dóttir, talsverðar fjárhæðir við bankahrunið. Saman voru þau með yfir 60 milljarða á bakinu en þau sátu í 14. og 15. sæti yfir mestu skuldara landsins. Heimamenn í Eyjum skilja sumir ekki þessar miklu skuldir og gantast með að þær myndu duga hjónunum til að eignast allar fasteignir í bænum, þar með taldar opinberar byggingar. svEinn hættur hjá gEðhjálp n Sveinn Magnússon, framkvæmda- stjóri Geðhjálpar, hefur látið af störf- um hjá félaginu eftir áratugalangt starf. Á síðasta aðalfundi gerði stjórn Geðhjálpar grein fyrir gífur- legum taprekstri félagsins þar sem fullyrt var að velta þyrfti hverjum einasta steini við til að koma rekstrinum á réttan kjöl. Þá voru höfuðstöðvar félagsins sagðar heilsu- spillandi og svo illa farnar að tug- milljóna væri þörf í framkvæmdir. Að mati stjórnarinnar á aðalfundinum í lok mars var uppstokkun innan Geðhjálpar nokkuð sem ekki væri hægt að víkjast undan. skuldugur útgEfandi Evu n Ráðgjafi sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn á bankahrun- inu, Eva Joly, skipti við skuldugan bókaútgefanda jólin 2009 þegar hún gaf út bókina Hversdagshetjur hjá Lafleur bókaútgáfunni í íslenskri þýðingu. Útgáfan virðist skulda víða, sam- kvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum, en eigandi hennar, Benedikt S. Lafleur, er einna þekktastur sem sundgarpur. Frægar eru tilraunir hans til að synda yfir Ermarsundið sem enduðu því miður allar á því að sökum veðurs komst hann ekki alla leið. Ekki er vitað til þess að Joly viti um fjárhags- vandræði Benedikts en skuldahali útgáfu hans er afar langur. icEsavE-maður í vanda n Á meðan Lárus Blöndal lögmaður reynir að verja hagsmuni Íslendinga í Icesave-viðræðum við Hollendinga og Breta, en hann á sæti í samninga- nefnd okkar, stendur hann í stórræð- um í viðskiptum. Hann er nefnilega einn aðaleigenda lúxusræktarinnar Nordica Spa á Hilton hótelinu en líkams ræktin fór nýverið á hausinn. Það stöðvar þó ekki Lárus og félaga hans í að halda þar áfram rekstri og er nú búist við því að nýtt félag verði stofnað fljótlega utan um reksturinn. sandkorn 8 fréttir 25. júní 2010 föstudagur Brúðkaups gjafir FU RS TY N JA N Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell Hnífaparatöskur f/12m. 72 hlutir margar gerðir Hitaföt - margar gerðir Líttu á www.tk.is og facebook.com FALLEGUR KRISTALL K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5 40 ára Vörur á verði fyrir þig Ótrúlegt glasaúrval á frábæru verði Kostnaður við ritun sögu Garða- bæjar er nú þegar orðinn nær 30 milljónir króna og bendir flest til þess að kostnaðurinn verði um eða yfir 40 milljónir króna við verklok. Samkvæmt upplýsingum, sem fengust á skrifstofu bæjarstjórnar Garðabæjar, var lögð fram tillaga um ritun sögu bæjarins 4. maí 2005, þremur vikum áður en Ásdís Halla Bragadóttir lét af störfum sem bæjar- stjóri. Ritnefnd var kjörin þá um haustið og 15. nóvember 2005 var samþykkt að ráða Steinar J. Lúðvíks- son, rithöfund, blaðamann og Garð- bæing, til verksins, en hann er kunn- astur fyrir ritun fræðibóka. Þekkt er ritröð hans um sjóslys og björgunar- störf undir heitinu Þrautgóðir á raunastund. Hann hóf verk sitt við ritun sögu Garðabæjar í ársbyrjun 2006. Upphaflega var gert ráð fyrir að saga Garðabæjar yrði gefin út í tveimur til þremur bindum og var áætlaður verktími tvö ár, það er árin 2006 og 2007. Verkinu er enn ólokið og er nú ráðgert að því ljúki árið 2011, á næsta ári. Verkið er orðið meira að umfangi en ætlað var og verður sagan gefin út í 5 til 6 bindum í stað tveggja. Tvö þeirra eru þegar tilbúin samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu bæjar- stjórnar. 40 milljónir Kostnaður við verkið er að sama skapi orðinn margfalt meiri en áætlað var. Þegar málið kom fyrst fyr- ir í bæjarstjórn Garðabæjar árið 2005 var ráðgert að verja 6,5 milljónum króna til verksins á fjárhags áætlun ársins 2006. Miðað við tveggja ára verktíma mátti gera ráð fyrir að heildar kostnaður yrði 13 til 15 millj- ónir króna. Nú stendur kostnaðurinn hins vegar í 29 milljónum króna. Miðað við að 5 binda verk komi út á næsta ári gera bæjaryfirvöld ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 40 millj- ónir króna. Það er nærri þrefaldur sá kostnaður sem upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Engar athugasemdir hafa verið gerðar í bæjarstjórn Garðabæjar við stækkun verksins eða tafir á útgáf- unni. Upplýst er að samningurinn sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur gert við Steinar J. Lúðvíksson er hefð- bundinn ráðningarsamningur sem tekur mið af launakjörum háskóla- manna. Tengslin og ritstörfin Sjálfstæðismenn hafa alla tíð haft meirihluta í stjórn Garðabæjar og héldu góðum meirihluta í bæjar- stjórnarkosningunum í vor þrátt fyrir klofningsframboð. Steinar J. Lúðvíks- son er sjálfstæðismaður og hefur lengi verið formaður uppstillingarnefndar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Sonur hans, Lúðvík Örn Steinarsson, er góð- vinur og æskufélagi Bjarna Benedikts- sonar, formanns Sjálfstæðis flokksins, en Lúðvík Örn var formaður kjör- nefndar flokksins fyrir bæjar stjórnar- kosningarnar í vor. Bjarni og Bene- dikt Sveinsson, faðir Bjarna, eru báðir í Rótarýklúbbnum Görðum ásamt Steinari J. Lúðvíkssyni, Gunn- ari Einarssyni, núverandi bæjarstjóra Garðabæjar, og fleiri málsmetandi sjálfstæðismönnum í bæjar félaginu. Þessi tengsl kasta ekki rýrð á fræði- störf Steinars þótt þau liggi fyrir. Þess má geta að upphafleg tillaga um ritun sögu Garðabæjar var borin upp af Sig- urði Björgvinssyni, fulltrúa í minni- hluta bæjarstjórnarinnar, árið 2005. Verkið var hins vegar ekki boðið út. Verkin sem stækka Steinar J. Lúðvíksson segir að upphaf- lega hafi verið lagt upp með að rita 30 ára sögu Garðabæjar. „Fljótlega var áherslum breytt og lagt upp með að rita sögu byggðalagsins frá land- námi. Um þetta er engin skrifuð saga til. Þarna er undir landsvæðið frá Kúa- gerði að Kópavogi.“ Steinar staðfestir að ætlunin sé að ljúka ritun sögunnar í 5 til 6 bindum á næsta ári. „Vandinn er sá að þetta er orðið mjög viðamikið og nauðsynlegt verður að stytta efnið. Ég tel þetta ekki óeðlilega langan tíma fyrir svo viða- mikið verk,“ segir Steinar. Upplýst var síðasta vetur að 75 milljónum hefði verið varið á 12 árum til ritunar sögu Akraness. „Þetta er búið að taka æði langan tíma og það er búinn að fara rosalegur peningur í þetta,“ sagði Gísli S. Einarsson, þáver- andi bæjarstjóri Akraness, í samtali við DV í desember síðastliðnum. Kostnaður við ritun sögu Garðabæjar er þrefalt meiri en upphaflega var ráð fyrir gert, eða um 40 milljónir króna. Verkið hófst í ársbyrjun 2006. Það var ekki boðið út og hafnaði í höndum formanns uppstillingarnefndar Sjálfstæðisflokksins í þessu erfða- vígi flokksins á höfuðborgarsvæðinu. Saga garðabæjar á þreföldu verði Jóhann hauKSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Ég tel þetta ekki óeðlilega langan tíma fyrir svo viðamikið verk,“ segir Steinar J. Lúðvíksson. ungur bær en byggð frá landnámi Tvöbindiverða sexog13milljónirverða40fyrirritunsöguGarðabæjar. Söguritarinn „Vandinnersáað þettaerorðiðmjögviðamikið ognauðsynlegtverðuraðstytta efnið,“segirSteinarJ.Lúðvíksson. Síðustu dagar bæjarstjórans ÁkvörðuninumritunsöguGarðabæjar vartekin20dögumáðurenÁsdís HallaBragadóttirlétafstörfumsem bæjarstjóriíGarðabæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.