Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 25. júní 2010 föstudagur
VITA er lífið
Alicante
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti
Verð frá 22.500 kr.
Innifalið í verði: Flug aðra leið til Alicante með flugvallarsköttum.
Flogið allt að þrisvar í viku út október.
26., 28. og 30. júní.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
V
IT
5
06
15
0
6/
10
Davíð Smári Helenarson, betur
þekktur sem Dabbi Grensás, er til
rannsóknar hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæði eftir harka lega lík-
amsárás aðfararnótt þjóðhátíðar-
dagsins síðastliðins. Nokkrir
félagar hans eru einnig til rann-
sóknar hjá lögreglunni út af at-
burðinum.
Líkamsárásin sem rannsökuð
er átti sér stað aðfaranótt þjóð-
hátíðardagsins síðastliðins, 17.
júní, á skemmtistaðnum Prikinu í
miðbæ Reykjavíkur. Þar var Davíð
Smári viðstaddur með félögum
sínum og er grunaður um að hafa
lamið Jón Bjarna Kristjánsson svo
illa að hann þurfti að leggjast inn
á spítala til aðhlynningar vegna
höfuð áverka. Samkvæmt heim-
ildum DV var hann meðal annars
laminn með glerkönnu í andlit,
margkýldur í framan og sparkað í
höfuð hans liggjandi.
Fjöldi vitna
Jón Bjarni hefur verið útskrifað-
ur af spítala með skurði á and-
liti og Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðar yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgar svæðinu,
staðfestir að lögregla rann saki
árásina sem beinist að Davíð
Smára og félögum hans. Hann
segir fjölda vitna að árásinni.
„Þetta mál er í rannsókn hjá okk-
ur. Lögregla var kölluð til og rann-
sókn hófst í kjölfarið. Okkur er
kunnugt um málsatvik, þau liggja
nokkuð ljóst fyrir og erum við nú
að fylgja þeim eftir,“ segir Ómar
Smári.
„Þetta er talsvert alvarleg
líkams árás og drengurinn illa
farinn. Við eigum von á læknis-
vottorði þar sem meiðsli eru
tíunduð sérstaklega. Búið er að
taka skýrslur af fjölda vitna en
ég get ekki upplýst um ástæður
árásar innar. Þegar rannsókn lýkur
verður málið væntanlega sent til
ákæruvaldsins upp á framhaldið.“
Bíður afplánunar
Davíð Smári var kallaður til yfir-
heyrslu á miðvikudag vegna
árásarinnar en hann var sjálfur
dæmdur í febrúar síðastliðnum
í sex mánaða óskilorðsbundið
fangelsi fyrir tvær líkamsárásir
og eignaspjöll. Að auki var hann
dæmdur til að greiða rúmar 600
þúsund krónur í miskabætur og
málskostnað.
Líkamsárásirnar tvær áttu sér
stað í október 2008 og febrúar
2009. Annars vegar sló hann
karlmann í Austurstræti og hins
vegar braut hann andlitsbein
annars karlmanns með hnefa-
höggi. Sá síðarnefndi er eigandi
skemmtistaðarins Strawberries
í Lækjargötu, Viðar Már Frið-
finnsson.
Mjög brugðið
Kristján Eiríksson hæstaréttar-
lögmaður, faðir Jóns Bjarna, er
miður sín yfir árásinni á son
sinn. Aðspurður segist hann ekki
vita um neitt tilefni hennar. „Ég
veit að lögregla rannsakar nú
þessa árás, líkt og aðrar líkams-
árásir, og ég treysti lögreglunni
fyrir þessu. Ég veit ekki til þess
að þeir þekkist nokkuð og árásin
á sér stað á opinberum veitinga-
stað. Svo best sem ég veit virðist
þessi árás fullkomlega tilefnis-
laus,“ segir Kristján.
„Mér skilst að það séu nokkur
vitni að þessu og mér sýnist sem
nokkrir hafi staðið þar að baki.
Strákurinn minn er mjög lemstr-
aður og ekki alveg fallegasta
barnið sem stendur. Um leið er
honum mjög brugðið og auðvit-
að er mér líka mjög brugðið.“
„STRÁKURINN MINN
ER LEMSTRAÐUR“
Davíð Smári Helenarson, oft nefndur Dabbi Grensás, er grunaður um alvarlega líkamsárás á skemmti-
staðnum Prikinu 16. júní síðastliðinn. Ásamt félögum sínum er hann grunaður um að hafa ráðist að syni
hæstaréttarlögmannsins Kristjáns Eiríkssonar, Jóni Bjarna, og lamið hann illa. Málið er eitt af fjölmörg-
um ofbeldismálum sem Dabbi Grensás tengist.
Um leið er honum mjög
brugðið og auðvitað er
mér líka mjög brugðið.
n Davíð Smári fæddist árið 1984
og ólst upp á Grensásveginum
í Reykjavík. Gekk hann bæði í
Réttar holtsskóla og Hvassaleitis-
skóla og stundaði síðar nám í
Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Um
nokkurt skeið hefur verið rætt um
hann í samfélaginu sem skap-
stóran ofbeldismann en þannig var
honum einnig lýst forðum en
þá var hann sagður hafa „ráðið yfir“
Breiðholtinu og Grensásveginum.
Árið 2008 var Davíð Smári kærður
og krafinn um tæpar tíu milljónir
króna í bætur fyrir þrjár líkams-
árásir. Hann var þá sakaður um að
hafa ráðist á þrjá menn og valdið
þeim talsverðum áverkum.
Milljóna bætur
RiFBEinSBRaut
KnattSpyRnuDóMaRa
Davíð Smári var ákærður fyrir
að veitast að Val Steingrímssyni
knattspyrnudómara eftir leik
í utandeildinni í knattspyrnu.
Valur rifbeinsbrotnaði í viðskiptum
sínum við Davíð Smára. Þá lék hann
með liðinu GYM 80 og var ekki hrifinn af orðum
dómarans í sinn garð, með þeim afleiðingum að
hann hrinti honum. Valur krafðist 800 þúsund króna
í miskabætur. „Ég verð greinilega að gera eitthvað í
mínum málum, það er alveg augljóst. Þetta er bara
endapunktur,” sagði Davíð Smári í samtali við Kast-
ljósið eftir að hafa ráðist á knattspyrnudómarann.
KRaMBúlERaðuR lanDSliðSMaðuR Knatt-
spyrnumaðurinn og landsliðsmaðurinn fyrrverandi
Hannes Þ. Sigurðsson hlaut alvarlega áverka þar
sem hann þríbrotnaði í andliti eftir líkamsárás. Hann
var frá knattspyrnuiðkun í margar vikur á eftir. Davíð
Smári var ákærður vegna árásarinnar, sem átti sér
stað á Hverfisbarnum í desember 2007. Samkvæmt
ákæru á Davíð að hafa margsinnis kýlt Hannes
í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut
meðal annars heilahristing, brot í kinnbeinsboga og
sprungu í ennisbeini hægra megin. Knattspyrnu-
maður var lengi frá eftir árásina og krafðist ríflega
4,5 milljóna skaðabóta.
FótBRotinn á gaMláRSKvölD Davíð Smári
var einnig ákærður fyrir líkamsárás á gamlárskvöld
árið 2007 sem átti sér stað á skemmtistaðnum
Apótekinu í Austurstræti. Var honum gefið að sök
að hafa kýlt nafna sinn Arnórsson í gólfið og síðan
hoppað á fæti hans þar sem hann lá á gólfinu.
Afleiðingar þess voru þær að Davíð ökklabrotnaði
og hlaut rof á liðböndum. Hann fór fram á nærri
fjögurra milljóna skaðabætur.
RéðSt á SvEppa Í ársbyrjun
2008 réðst Davíð Smári á
sjónvarpsstjörnuna Sverri Þór
Sverrisson, sem betur er þekktur
sem Sveppi, fyrir utan Hverfis-
barinn í Reykjavík. Ástæðuna
sagði hann eftir á vera þá að sjónvarpsstjarnan hefði
verið með stjörnustæla við sig. „Mér þykir þetta
mjög leitt en hann var með þvílíka stjörnustæla við
mig. Þegar hann fór að móðga fjölskyldu mína og
kærustu var mér nóg boðið,” sagði Davíð í samtali
við DV eftir árásina. Sveppi lék í leiksýningunni Kalli
á Þakinu í Borgarleikhúsinu og þurfti að syngja fyrir
börnin með glóðarauga daginn eftir árásina. Davíð
Smári hringdi síðar í Sveppa og baðst afsökunar.
SaKaðuR uM áRáS á Eið
SMáRa Davíð Smári var einnig
bendlaður við árás á fyrirliða
íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, Eið Smára Guðjohnsen,
sumarið 2007. Þá var Eiði hrint í
götuna og hann kýldur í andlitið
eftir að hann var að koma úr þrítugsafmæli Sveppa.
Fljótlega beindust spjótin að Davíð Smára og fullyrt
var víða í netheimum að hann væri árásarmaðurinn.
Gengu sögusagnirnar það víða að Davíð Smári sá
ástæðu til þess að bera af sér sakirnar í sjónvarps-
viðtali.
önnur Mál davíðs sMára
grunaður Davíð Smári er til rannsóknar hjá lögreglu eftir
harkalega líkamsárás aðfaranótt 17. júní síðastliðins.
Árásin er ein af fjölmörgum sem Davíð Smári
hefur verið bendlaður við síðustu árin.