Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 16
16 fréttir 25. júní 2010 föstudagur „Bíllinn var keyptur haustið 2006 og var þá eiginfjárhlutfallið á bilinu 40 til 45 prósent. Við hrunið rúmlega tvöfölduðust greiðslurnar og inn- tum við einhverjar tvöfaldar greiðsl- ur af hendi, sem í krónum talið voru rúmlega 130 þúsund á mán- uði,“ segir Jakob Rúnar Guðmunds- son, viðskiptavinur Lýsingar. Hann og konan hans hafa staðið í baráttu við fyrirtækið sem vörslusvipti þau í miðju samningaferli um greiðslur af bílnum. Á bílnum eru áhvílandi gengistryggð erlend lán. „Eftir hrunið var reynt að semja um hlutfallsgreiðslur og þurfti samn- ingurinn að vera í fullum skilum. Var þá aldrei hægt að fá nema þrjá mán- uði í senn. Á sama tíma fengu kúnn- ar hjá Avant og öðrum fyrirtækjum fyrirgreiðslu án þess að þurfa að hafa svona mikið fyrir þessu. Í hvert skipti sem þessi fyrirgreiðsla fékkst hjá Lýs- ingu þurfti að borga þeim aukalega fyrir það,“ segir Jakob Rúnar og tekur dæmi af því að það hafi til dæmis kostað um fimm þúsund krónur að breyta samningum og auk þess hafi bæst við kostnaður frá Lýsingu vegna pappírsgerðar. „Það virðist vera að alltaf hafi verið horft niður á viðskiptavininn og reynt að ná sem mestu út úr honum,“ segir hann um viðmót starfsmanna Lýsingar í sinn garð. Dónaskapur starfsmanna „Um síðustu áramót fór að verða verra að ná samningum og mætti ég ótrú- lega miklum hroka og dónaskap af hálfu starfsmanna og þá sérstaklega eins kvenmans í innheimtudeildinni. Varð það til þess að ég spurði síma- dömuna hvort það væri ekki einhver í þessu fyrirtæki sem hefði einhver völd og væri hæfur til að ræða þessi mál við. Gaf hún mér þá samband við deildarstjóra sem virtist vilja semja. Rétt er að taka það fram að okkur hafði borist bréf um riftun samnings áður en til þessa samninga kom. Á þeim tímapunkti skulduðum við tvo mánuði,“ segir hann. Deildarstjórinn fór fram á að Jakob og konan hans kæmu með launaseðla síðustu þriggja mánaða ásamt skattaskýrslum og upplýsing- um um lán. „Á meðan við biðum eftir svari og úrlausn frá þessum ágæta deildarstjóra barst okkur skeyti frá Lýsingu sem fól í sér riftun eignar- leigusamnings með þriggja daga vörslusviptingarfresti.“ Hætti að borga Þrátt fyrir að Jakob og konan hans sætu að samningaborðinu við Lýsingu var eignaleigusamningum samt sem áður rift í miðju ferlinu. „Eftir móttöku þessa skeytis ákváð- um við að leita til Samtaka lánþega og skrifuðum við bréf til Lýsingar þar sem við lýstum því yfir að við værum hætt að borga þar til við fengjum rétta greiðsluseðla.“ Skömmu síðar fóru vörslusvipt- ingarmenn að gera tilraunir til þess að ná bílnum af þeim, þrátt fyrir að þær aðferðir hefðu verið dæmdar ólöglegar. „Fljótlega eftir að við send- um þetta bréf fórum við að fá hring- ingar frá vörslusviptingarfyrirtæki um að þeir vildu fá bílinn og jafn- vel eftir dóm Hæstaréttar um ólög- legar vörslusviptingar án undan- gengins úrskurðar sýslumanns gerðu þeir nokkrar tilraunir til að nálgast bílinn en höfðu ekki árangur sem erfiði. Síðustu tilraunina gerðu þeir hinn 15. júní, einum degi fyrir dóm Hæstaréttar Íslands og 28 dögum eftir að Hæstiréttur úrskurðaði um ólögmæti vörslusviptingaaðferða Lýsingar.“ VÖRSLUSVIPTING Í MIÐJUM SAMNINGUM VIÐ LÝSINGU Jakob Rúnar Guðmundsson hefur háð baráttu við Lýsingu, sem rifti bílasamningi við hann á sama tíma og hann reyndi að semja við fyrirtækið um greiðslur. Hann hætti að borga en segir vörslusviptingar- menn hafa reynt að ná af sér bílnum rétt áður en dómur Hæstaréttar Íslands féll um að gengistryggð lán væru ólögleg. Jakob Rúnar Guðmundsson „Um síðustu áramót fór að verða verra að ná samningum og mætti ég ótrúlega miklum hroka og dóna- skap af hálfu starfsmanna og þá sérstaklega eins kvenmans í innheimtudeildinni.“ MynD HöRðuR SveinSSon Á meðan við biðum eftir svari og úrlausn frá þessum ágæta deildarstjóra barst okkur skeyti frá Lýsingu sem fól í sér riftun eignarleigusamn- ings með þriggja daga vörslusviptingarfresti.“ valGeiR öRn RaGnaRSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Eiga ErlEnd gEngistryggð lán að bEra hærri vExti? dómstóll götunnar „Ja, ég segi bara að ef þetta eru gengis- tryggð lán sem eru tengd við erlendan gjaldeyri. Ef þetta er ekki bara verðtrygging tengd við íslenska vísitölu, þá er það ólöglegt og samkvæmt þessum úrskurði ætti bara að lækka þetta niður.“ nikuláS einaRSSon, 55 ára. „Nei, mér finnst það bara vera rugl. Það hefur komið í ljós að þessi gengis- tryggðu lán eru ólögleg og það er fáránlegt að ætla að láta fólk borga eitthvað aukalega. Þetta er eins og þú færir með þjóf út úr búðinni sem stal mjólkurlítra og gæfir honum svo annan lítra af mjólk í leiðinni. Það gengur ekki upp.“ áSta HafbeRG, NámsmaðUr „mér finnst það ekkert réttlátt. mér finnst að þessi hæsta- réttardómur eigi að fá að standa. Það verður bara að finna einhverja sanngjarna leið sem allir geta sætt sig við. Fólkið í landinu er bara búið að borga alveg nóg.“ Halla SveRRiSDóttiR, starFar í FlUgstöð lEiFs EiríkssoNar „mér finnst að þeir eigi að greiða sanngjarna vexti. Ég er sjálf með bílalán sem er íslenskt, en þetta er brjálæði eins og þetta er í dag og þetta eiga bara að vera sambærileg lán eins og við erum að borga.“ anna eyJólfSDóttiR kristinn Guðmundsson vörslusviptingarmaður segir starfið erfitt: „Prinsippið okkar er að vera kurteisir út í gegn“ Kristinn Guðmundsson hjá vörslu- sviptingarfyrirtækinu Vörslu segir að starf sitt sé mjög erfitt. Spurður hvernig hann lýsi starfsemi Vörslu svarar hann: „Við fáum bara mál í hendurnar og oft á tíðum þurfum við að finna fólkið. Margir eru komnir með nýtt símanúmer eða fluttir bú- ferlum. Okkar hlutverk er að láta fólk vita að þetta sé komið í þennan farveg. Okkar meginvinna er að ýta við fólki ef ekkert gerist og það líður langur tími án þess að við náum í fólk með bréfum eða jafnvel að banka upp á hjá fólki. Við reynum að láta fólk vita að þetta sé komið í kæru- ferli og á síðustu skrefunum er bara bíllinn tekinn ef hann finnst einhvers staðar.“ Aðspurður hvort fyrirtækið sé enn í vörslusviptingum þrátt fyrir dóm Hæstaréttar, sem kveður á um að sérstakan úrskurð þurfi til vörslu- sviptingar, segir hann að svo sé ekki. „Við erum ekki búnir að taka upp tólið síðan þá. Við stoppuðum allt og það er allt komið í biðstöðu. Við erum ekki einu sinni að hringja í fólk.“ Hjá Vörslu starfa þrír fastráðnir starfsmenn auk þess sem menn koma inn til hjálpar þegar á þarf að halda. Kristinn segist aldrei hafa lent í átökum í starfinu og hann segir að það sé stefna fyrirtækisins að bakka ávallt út úr slíkri aðstöðu. „Prinsippið okkar er að vera kurteisir út í gegn. Það er leiðindamál að lenda í þessu. Þetta er ekkert endilega fólkinu að kenna og það var enginn að biðja um þetta.“ Aðspurður um þann orðróm að vörslusviptingarmenn séu yfirleitt húðflúruð vöðvabúnt segist hann ekki kannast við það. „Sögurnar eiga það til að vera svolítið ýktar,“ segir hann. Nú þegar vörslusviptingarfyrir- tækin sitja aðgerðarlaus er ekki út- séð um að það verði mikið að gera á næstunni. „Maður finnur sér eitt- hvað annað að gera. Ég er sjálfur með erlend lán og er búinn að reyna að bjarga mínum lánum sjálfur með því að finna mér vinnu einhvers staðar. Þetta er ekki vinna sem maður sækir í, heldur er hún mjög erfið. Sumir eru bara venjulegt fólk sem lenti illa í því og það er hrikalega erfitt. Við reynum aldrei að vera með dónaskap eða fara fram með offorsi við fólk.“ vörslusvipting Fyrirtækið Varsla stendur ekki í neinum vörslusviptingum eftir að dómur Hæstaréttar féll, samkvæmt starfsmanni þess. lísa ingólfsdóttir „Ég bara get ekki borgað. Við verðum að borða, ég og fjölskyldan mín.“ M yn D H ö Rð u R Sv ei n SS o n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.