Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Page 23
Aðild Íslands að EFTA er ef til vill stærsta skref sem hefur verið stigið í samruna landsins við Evrópu. Í upp- hafi beindist aðildin að EFTA eink- um að fríverslun með iðnaðarvör- ur. Mjög skiptar skoðanir voru milli fólks um hvort Ísland ætti að sækja um aðild að EFTA í lok sjöunda ára- tugarins. Gagnrýnendurnir óttuð- ust að veikburða atvinnugreinar sem kröfðust mikils vinnuafls stæð- ust ekki samkeppni frá svo stóru markaðssvæði. Um fjórðungur ís- lensks vinnuafls starfaði þá í iðn- aði. Íslenskur iðnaður hafði þá notið stuðnings innflutningshafta. Áður en Ísland gekk í EFTA hafði tvisvar verið rætt af mikilli alvöru hvort Ísland ætti að ganga í Efna- hagsbandalag Evrópu og verða hluti af þeim frjálsa markaði sem þá var í myndun. Ákveðið var að hentugra væri að Ísland gengi fyrst í EFTA og gerði Ísland það árið 1970. Aðildin jók innflutning á iðnaðar- vörum til landsins og hafði neikvæð áhrif á starfsemi nokkurra iðnaðar- fyrirtækja, eins og í húsgagna- og vefnaðarframleiðslu, en styrkti að sama skapi útflutningsstöðu Íslands, eins og í fiski og áli. Aðildin að EFTA reyndist mikilvæg svo að Ísland fengi aðgang að evrópskum mörkuðum og þegar samningurinn um EES var samþykktur árið 1994 var opnað fyrir frjálst flæði vara, þjónustu, fjármagns og vinnuafls milli Íslands og Evrópu- sambandsríkja. Um áttatíu prósent vöruskipta Íslands við útlönd eru við ríki innan EES. Vöruskipti við EFTA ríkin nú eru minni en tíu prósent af heildarvöruskiptum. Frá því EES-samningurinn var innleiddur hefur hann verið helsta viðfangsefni EFTA. Samningur- inn felur í sér að ríki EFTA, sem eru aðilar að EES, aðlagi löggjöf sína að samþykktum ESB á sviði innri mark- aðar. EFTA gerir einnig fríverslunar- samninga við ríki annars staðar í heiminum. Þar fylgir EFTA hins veg- ar oftast frumkvæði ESB. Í gær voru undirritaðir fríverslunarsamningar milli EFTA annars vegar og Úkraínu og Perú hins vegar á Nordica hótel- inu í Reykjavík. Sögulegt gildi fyrir Ísland Einar Benediktsson, fyrrverandi fastafulltrúi Íslands gagnvart EFTA, segir stofnunina aldrei hafa verið raunverulegt mótsvar við Evrópu- sambandið. Þvert á móti hafi EFTA frá fyrstu tíð verið tæki fyrir aðildar- ríkin til að nálgast viðskiptasamruna- ferli Efnahagsbandalagsins, síðar Evrópusambands. Þannig var  EFTA í framkvæmd upphaflega spegilmynd af tímaplani EES í afnámi tolla og innbyrðis viðskiptahafta á iðnaðar- vörum. Með EES-samningnum urðu EFTA-ríki þátttakendur í frjálsum innri markaði ESB á grundvelli fjór- frelsisins svokallaða. Einar telur að EFTA hafi enn hlut- verki að gegna sem slíkt á meðan aðildarríki þess séu í þeirri stöðu sem þau eru í gagnvart ESB. Þrátt fyrir að Ísland gangi í ESB og hverfi úr EFTA, segir Einar að EFTA muni væntanlega hafa sitt gildi fyrir aðra þegar komi að rekstri EES-samn- ingsins. „En EFTA í dag er gjörólík þeirri stofnun sem hún var upphaf- lega. EFTA sem varð til árið 1960 að frumkvæði Breta taldi um tíma auk Norður landanna, Austurríki, Portú- gal og Sviss. Helmingur EFTA mark- aðarins var Bretland. Eftir 1970 leita EFTA-ríkin aðildar að Evrópusam- bandinu. Fríverslun milli þessara aðila sem eru aðilar að EFTA í dag skiptir þverrandi máli,“ segir Einar. Einar segir að hver sem niður- staða aðildarviðræðna Íslands við ESB verður, sé ljóst að EFTA hafi allt- af sögulegt gildi fyrir Ísland. Með að- ild að EFTA styrktist einnig samband Íslands við hin Norðurlöndin sem hafi verið þýðingarmikið þegar kom að gerð EES-samningsins. Einar segir að Íslendingar hafi ávallt verið í EFTA samstarfinu af heilum hug. Þannig hafi Íslendingar tengst Evrópusam- runaferlinu sem hófst með undirrit- un Rómarsáttmálans árið 1957. Þarf að gera róttækar breyt- ingar Eiríkur Bergmann Einarsson, for- stöðumaður Evrópufræðaseturs Há- skólans á Bifröst, segir EFTA hafa veikst verulega eftir að bróður partur aðildarríkjanna gekk yfir í ESB. Gangi Ísland úr skaptinu geti verið erfitt að halda úti stofnanakerfinu í EFTA og EES. Eitt af því sem sé verið er að skoða nú sé hvort veita eigi evrópsk- um örríkjum aðgang að stofnuninni til að veita henni aukinn styrk, til að mynda Andorra og Færeyjum. Önn- ur leið væri að reyna við löndin í Austur-Evrópu sem standa utan ESB, svo sem Úkraínu. „Við megum ekki gleyma því að þegar EFTA var stofnað árið 1960 voru sjö ríki þar og sex í ESB. Þá varst þú með tvær jafnvægar ríkjaheild- ir. Svo hefur það gerst að ESB hefur orðið að vettvangi kerfisbundinnar ríkjasamvinnu. Á meðan hefur EFTA orðið eins og tungl við hlið ESB. EFTA er orðið að samansafni ríkja sem hafa ekki getað gengið í ESB af ýmsum ástæðum,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir EFTA hafa verið að leita sér að nýju hlutverki allt frá því fór að aðildarríki fóru að ganga úr samtökunum. Í því sambandi hafi komið til tals að veita örríkjum Evr- ópu aðgang að stofnuninni. Þessi ríki hafa ekki uppfyllt kröfur um aðgang að ESB eða hafi ekki haft stjórnsýslu- lega burði til þess að ganga í sam- bandið. „Þetta væri alvöru aðferð til að glæða EFTA lífi. EFTA ríkin hafa ekki viljað fara þessa leið og eru því dæmd til áframhaldandi áhrifaleys- is,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir að ef Ísland gangi í Evrópusambandið feli það í sér ákveðin vandamál fyrir Noreg. Hann segir ekki auðséð hvernig Noregur eigi að viðhalda samningnum um EES án Íslands. „Þá er eftirlitshlut- verkið komið í hendur Noregs og Liechtenstein og það gengur ekki að Norðmenn hafi eftirlit með sjálf- um sér. Þetta er stofnanalegur vandi sem Noregur stendur frammi fyrir. EFTA getur hinsvegar bjargað sér með nýjum aðildarríkjum og nýjum stofnanastrúktur,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir helsta muninn á EFTA nú og áður vera þann að stofnun in hafi þróast úr því að vera alvöru ríkjabandalag yfir í að vera vettvangur fyrir samstarf ríkjanna við ESB. „Það getur lifað áfram þannig en verður ekki meira en það nema farið verði í róttækar aðgerðir,“ segir Eiríkur. Eiríkur vill ekki spá fyrir um hversu lengi EFTA geti lifað í núver- andi mynd. Það fari allt eftir því hve- nær tvö síðustu ríkin ákveði að vera ekki lengur aðilar að stofnuninni. EFTA geti haldið áfram að sinna hlut- verki sínu sem vettvangur fjögurra ríkja og tenging þess við ESB. Síðan verði hver og einn að meta hvort það sé þörf fyrir starfsemi þess eða ekki. föstudagur 25. júní 2010 fréttir 23 Ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) er haldinn hér á landi á sama tíma og Ísland stendur á krossgötum í Evrópusamstarfi sínu. Gangi Ísland í Evrópusambandið gæti það markað endalok stofnunar- innar. EFTA gæti fengið nýtt hlutverk gangi örríki þar inn eða ríki sem knýja á dyr Evrópusambandsins, eins og Úkraína. DV leitaði álits sérfróðra á því hvort EFTA eigi sér viðreisnar von. RóbeRt hlynuR balduRSSon blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Helstu atburðurnir hjá EFTA 1960 EFTAstofnað.Danmörk, Noregur,Svíþjóð,Austurríki, Sviss,PortúgalogBretland aðilar.Finnlandgeristaðiliári síðar. 1970 ÍslandgenguríEFTA 1972 DanmörkogBretlandgangaí EB. 1994 EES-samningurinntekurgildi 1995 Austurríki,Svíþjóðog FinnlandgangaíESB. eFta FríverslunarsamtökEvrópu eSb Evrópusambandið eb EfnahagsbandalagEvrópu (undanfariESB) eeS Evrópskaefnahagssvæðið RíkjAsAmbAnd á EndApunkTi EFTA er orðið að samansafni ríkja sem hafa ekki getað gengið í ESB af ýmsum ástæðum. eFta og Úkraína bindast böndum FulltrúarEFTAog ÚkraínuundirrituðufríverslunarsamningáNordicahótelinuí Reykjavíkígær.NúeruaðeinsfjögurríkiaðilaraðEFTA:Ísland, Noregur,SvissogLiechtenstein.Þauvorusjöíupphafi. Fjöldi aðildarríkja 1960 eFta 7 eb 6 Fjöldi aðildarríkja 2010 eFta 4 eSb 27 ekki mótsvar EinarBenediktssonsegir aðEFTAhafialdreiveriðraunverulegt mótsvarviðESB. Í andaslitrunum EiríkurBergman EinarssonsegirEFTAhafaveriðí andarslitrunumíáratugi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.