Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Page 48
48 útlit 25. júní 2010 föstudagur
Íslensk hönnun
í ítalska Vogue
Hildur Björk Yeoman hannar hálsmen og töskur úr hekluðu nótagarni. Á dögunum hlotnaðist Hildi sá
skemmtilegi heiður að vera á vefsíðu ítalska Vogue og í kjölfarið er hún í viðræðum við verslanir í Banda-
ríkjunum og Brasilíu.
Hildur Björk Yeoman er sannkölluð
listaverkakona. Töskurnar sem hún
hannar úr hekluðu nótagarni og
líta annað hvort út eins og púðlu-
hundur eða svanur eru undurfagrar
og sömuleiðis hálsmenin sem hún
er nýfarin að gera. Enda hlotnaðist
Hildi sá skemmtilegi heiður að vera
á vefsíðu ítalska Vogue, sem er fyrir
þá sem ekki vita biblía hins tísku-
þekjandi manns. Blaðamaður hafði
samband við Hildi Björk, sem var
bara hógvær að vanda en ánægð
engu að síður.
„Þeir höfðu bara samband við
mig eftir að umfjöllun um mig á
Style bubble sem hefur gengið um
netið. Þetta var mjög skemmtilegt
og flott tækifæri. Gaman að þeir hafi
áhuga á því að fjalla um mig. Ég hef
fengið mjög sterk viðbrögð við þess-
ari umfjöllun á Stylebubble. Eftir það
hafa ýmis blöð haft samband, en ég
þekki fæst þeirra. Ekkert eins stórt
og ítalska Vogue. Fyrir mér er það
náttúrlega toppurinn. Ég hef skoðað
þetta blað og þótt það flott.“
Hildur hefur áður fengið um-
fjöllun á Stylebubble og hafði alveg
trú á því að það myndi hafa jákvæð
áhrif. „Í rauninni er þetta ekki svo
flókið ferli. Ég sá kannski ekki fyrir
að komast í
ítalska Vogue. En síðast fékk ég alls
konar tækifæri og teiknaði á spil
fyrir undirfatafyrirtæki. Núna er ég
að fara að gera tískuteikningar fyrir
ýmis blöð og svona ýmislegt.“ Að-
spurð segist hún nú ekki fá mikinn
ágóða af þessu. „Nei, þetta er ekki
peningabransi,“ segir hún og hlær.
„Ég er löngu búin að átta mig á því.
En þetta er ótrúlega skemmtilegt
og ég hef ástríðu fyrir þessu. En svo
koma svona verkefni eins og þegar
ég hélt sýninguna Álagafjötrar með
Sögu Sigurðar dóttur og við seldum
öll verkin. Við eigum nokkrar myndir
eftir. Sumir hafa séð myndirnar á
netinu og við sendum þær svo bara
út.“ Það þarf því engan að undra að
þær stöllur stefna á áframhaldandi
samtarf og eru í viðræðum við nokk-
ur gallerí í London varðandi sýningu
í haust.
Hildur ætlar samt ekki strax í vík-
ing. Fyrst ætlar hún að verja sumr-
inu á Seyðisfirði þar sem hún á húsið
Hvamm og ætlar að vinna að næstu
línu auk þess sem hún og Thelma
Björk Jónsdóttir ætla að opna lítið
gallerí og verslun þar sem þær selja
eigin hönnun og annarra, eins og
Guðjóns Tryggvasonar í Go With Jan.
„Við erum aðallega að stíla inn á túr-
istana, það eru svo margir sem fara
þarna um. En samt ekki bara. Auð-
vitað ekki.“
Hildur er líka með fleiri járn í
prjónunum á Seyðisfirði því á menn-
ingarhátíð ungs fólks, Lunga 12. –
18. júlí, ætlar hún að kenna tísku-
teikningu. Svo hyggst hún taka vel
á móti öllum tískugúrúum bæjarins
sem munu sennilega streyma að því
þetta er eins „Cannes okkar Íslend-
inga,“ segir hún hlæjandi. Og horfa
aðdáunaraugum á nemendur sína úr
Listaháskóla Íslands sýna á tískusýn-
ingunni. Að öllum líkindum er það
rétt hjá henni að fólk mun fjölmenna
á hátíðina því þar munu hljómsveit-
irnar Hjaltalín, Bloodgroup og Sea-
bear spila á lokakvöldi hátíðarinnar
í þessu í einstaklega fallegu bæjar-
stæði.
ingibjorg@dv.is
Ilmurinn sóttur
til Afríku
Innblásturinn fyrir nýjan ilm Puma,
Animagical, er sóttur til Afríku. Dýra-
mynstur og líflegir litir á umbúðum
eru til marks um það. Puma hirðir
ekki um landamæri og ætlar þess
vegna að hefja Afríkutengda mark-
aðsherferð á árinu og fagna ára-
tug af nánum tengslum sínum við
íþróttir í Afríku. Aðeins einn maður
kom til greina sem andlit Animagi-
cal, sem átti að vísa til orku og eðl-
isávísunar hinna villtu dýra Afríku,
glaðværðar og litríks lífs Afríkubúa á
sama tíma, Usain Bolt. Enda er hann
fljótasti maður inn á jörðinni. Með
sinn mjúka og áreynslulausa stíl er
hann ótrúlegur á hlaupabrautinni
og ofursvalur á dansgólfinu eftir því
sem heimildir herma.
Herrailmurinn er kraftmikill og
glettinn. Boð um að vera með í leikn-
um, tæki til að seiða og heilla. Anim-
agical Man er með angandi, græn-
um ávaxtakenndum keim, nokkrum
kryddtegundum og moskutónum til
að kalla fram hógværan en framand-
lega kynþokkafullan blæ.
Dömuilmurinn er ferskur og ný-
tískulegur með ísmeygilegum þokka.
Blóma-, ávaxta- og viðarilmur sem er
kvenlegur og frískur. Og grunntónar
af dökku súkkulaði sem blandað er
tamboti-viði frá Suður-Afríku fá þig
til að langa í meira.
Ódýr en góður
maskari
Maybelline, The Colossal Vol-
um’express maskar-
inn þekur augnhárin
með kollagen-formúlu
þannig að þau verða
löng og aðskilin. Hann
er ódýr en góður. „Ef
ykkur finnst ekki nógu
mikið af maskara á
burstanum, prófið þá
að snúa honum út í
hliðarnar þegar þið
takið hann upp úr:)“
– Maybelline-síðan á
Face book er líka stútfull
af hugmyndum og ráð-
um varðandi förðun.
Einstakar töskur Hildur Björk hannar
töskur sem líta út eins og svanir eða
púðluhundar.
MYNDIR ODDVAR ÖRN HJARTARSON
RFF Glaðlegar fyrirsætur ganga sýningarpall-
ana með hálsmen og töskur frá Hildi Björk.
Hvorutveggja fæst í Kronkron. MYNDIR FRIÐRIK ÖRN