Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Page 52
flottir
52 umsjón: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 25. júní 2010 föstudagur
Ítalir töpuðu fyrir Slóvakíu, 3-2, í
lokaumferð C-riðils heimsmeistara-
mótsins í Suður-Afríku. Með tapinu
varð það endanlega ljóst að Ítalir
myndu ekki verja heimsmeistara-
titilinn sem þeir unnu í Þýskalandi
fyrir fjórum árum. Ítalir þurftu í það
minnsta jafntefli gegn Slóvakíu en
eftir dramatískar lokamínútur varð
tap niðurstaðan og síðasta sætið í
riðlinum staðreynd. Nýja-Sjáland,
land þekkt fyrir allt annað en fót-
bolta, endaði fyrir ofan Ítali í riðl-
inum. Ítalir hlutu aðeins tvö stig á
HM. Gerðu 1-1 jafntefli við bæði
Paragvæ og Nýja-Sjáland en töp-
uðu fyrir Slóvökum. Það var ekkert
sem benti til þess fyrir HM að Ítalir
myndu gera einhverjar rósir á HM,
ekki miðað við úrslit þeirra í undan-
förnu leikjum. Ítalir unnu síðast leik
í október í fyrra.
Alltaf upp úr riðli í 26 ár
Ítalir hafa verið fastir gestir á heims-
meistaramótum og verið með á
þeim öllum síðan 1962. Síðast mis-
tókst ítölum að komast upp úr riðli
á HM í Þýskalandi árið 1974 en síð-
an þá hefur gengið verið mjög gott.
Í síðustu sjö keppnum á undan
Suður-Afríku hafði Ítalía orðið tvisv-
ar sinnum heimsmeistari og farið
í annan úrslitaleik til. Þá átti liðið
bæði eina bronsmedalíu og endaði
í fjórða sæti í Argentínu árið 1978.
Þetta er því langversti árangurinn í
langan tíma.
Ítalir hafa ávallt státað af sterkum
varnarleik og oft farið langt á hon-
um. Liðið hefur þó alltaf átt flotta
framherja sem hafa skorað þau
mörk sem til þurfti. Gegn Slóvakíu
var varnarleikurinn að mörgu leyti í
molum en Slóvakar voru fyrsta liðið
í fjörutíu ár sem nær að skora þrjú
mörk á Ítali í einum og sama leikn-
um. Að sama skapi virðist fram-
herjakrísa í ítalska liðinu en sóknar-
leikur þess var afar dapur á mótinu.
„Við erum með frábæran marka-
skorara í Gilardino og þá er Iaquinta
að koma til baka eftir meiðsli. Við
eigum ekki í neinum vandamálum
fram á við,“ sagði Marcello Lippi,
þjálfari liðsins, eftir tvö fyrstu jafn-
teflin. Þá hafði Gilardino ekki gert
neitt á mótinu og var kominn á
bekkinn gegn Slóvakíu. Eins skoraði
Iaquinta aðeins eitt mark á HM og
það var úr víti.
Víti til varnaðar
„Það má ekki gleyma því að við
erum heimsmeistararnir,“ sagði
framherji Ítala, Fabio Quagliarella,
í viðtali fyrir mótið. Var þar verið
að spyrja hann út í slakt gengi Ítala
í undirbúningi fyrir HM. Hann við-
urkenndi að ekki hefði gengið sem
skyldi en vildi þó minna alla á að
þeir væru heimsmeistararnir. Ár-
angur Ítala í æfingaleikjum fyrir HM
var þó víti til varnaðar og var ástæða
fyrir því að þeim var ekki spáð
heimsmeistaratitlinum.
Ítalir unnu síðast leik gegn Kýp-
ur í undankeppni HM á heimavelli.
Kýpverjar komust í 2-0 en ótrú legur
lokasprettur Ítala tryggði þeim sigur,
3-2. Í undankeppninni gekk Ítölum
mjög vel. Þeir unnu sjö leiki af tíu,
gerðu þrjú jafntefli og töpuðu ekki
leik. Þeir voru að vísu í riðli með
Írum og gífurlega slöku liði Búlg-
ara ásamt Kýpur, Svartfjallalandi og
Georgíu. Var sá árangur í takt við
gengið á árunum á undan, heims-
meistaratitill 2006 og undanúrslit á
EM 2008.
En svo gerðist eitthvað. Ítalir
léku fimm æfingaleiki fyrir HM
frá nóvember til júní. Þeir unnu
ekki einn leik, gerðu þrjú jafn-
tefli og skoruðu aðeins tvö mörk.
Var þar þessi framherjakrísa sem
Lippi vildi ekki viðurkenna kom-
in í ljós. Ítalir gerðu fyrst marka-
laust jafntefli gegn Hollandi í nóv-
ember og töpuðu nokkrum dögum
síðar gegn Svíþjóð, 1-0. Í mars gerði
liðið aftur markalaust jafntefli áður
en það tapaði fyrir Mexíkó, 2-1, og
gerði jafntefli gegn Sviss, 1-1, rétt
fyrir HM.
Bjartsýnir
„Lippi var ekki sáttur í hálfleik
þannig að hann bað okkur um að
spila eins og menn í seinni hálfleik
og fara þannig sáttir til Suður- Afríku.
Ég held að við höfum gert það,“
sagði Fabio Quagliarella, framherji
Ítala, eftir að liðið hafði gert jafn-
tefli gegn Sviss í lokaæfingaleik liðs-
ins fyrir heimsmeistaramótið. Ítalir
voru þar að spila skelfilega í fyrri
hálfleik, eins og æfingaleikjunum
á undan, en náðu að kreista fram
jafntefli.
„Aðalmálið er náttúrlega að við
erum að koma inn í mótið í frá-
bæru formi og hver veit hversu
langt við getum náð,“ sagði hann
en þeirri spurningu hefur nú ver-
ið svarað. Ítalir komust ekki upp úr
riðli sem innihélt Paragvæ, Slóvakíu
og Nýja-Sjáland. Þegar dregið var
í riðlana birti eitt stórt íþróttablað
á Ítalíu fyrirsögnina: „Þetta áttum
við skilið,“ og vitnaði þar til dauða-
riðilsins sem liðið var í á EM. Stóð
síðan í greininni að heims meistarar
Ítala ættu að fara upp úr þessum
riðli með bundið fyrir augun.
Talaði ekki um vandamálin
Leikmannaval Marcello Lippi
var gagnrýnt fyrir keppnina. Til
dæmis að taka ekki vandræða-
gemsann Antonio Cassano með
til Suður- Afríku en hann hefur
oft reynst Ítölum dýrmætur á ög-
urstundum. Eftir jafnteflið gegn
Nýja-Sjálandi var Lippi spurður á
blaðamannafundi hvort hann væri
einfaldlega með nægilega gott lið til
þess að verja heimsmeistaratitilinn.
„Ég er alveg handviss um að hafa
ekki skilið neinn stórkostlegan leik-
mann eftir heima. Þetta eru þeir
sem ég valdi og ég hef trú á þeim,“
sagði Lippi, sem vildi samt ekk-
ert ræða um vandamál liðsins við
fjölmiðla og brást reiður við þegar
hann var spurður út í þau.
„Ég vil ekki tala um vandamálin í
liðinu við ykkur. Vandamálin eru úti
á vellinum þar sem við erum ekki
að ná að búa okkur til færi. Það eru
vandamálin okkar. Það er ekkert að
gerast utan vallar þó svo að ég lesi
ýmislegt sem er ekki satt. Nýja-Sjá-
land skaut tvisvar á markið okkar,
sem er mjög jákvætt. Eftir að Nýsjá-
lendingar skoruðu snemma leiks
fóru þeir aldrei aftur í sókn. Að sama
skapi komst Paragvæ aðeins tvisvar
sinnum nálægt markinu okkar, það
er ekkert svo slæmt,“ sagði Lippi en
það var á endanum markaskortur
sem fór með Ítala, sem kveðja nú
HM eftir riðlakeppnina.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Ríkjandi heimsmeistarar Ítala munu ekki verja titil sinn á HM í Suður-Afríku. Það varð ljóst á fimmtu-
daginn þegar Ítölum mistókst að leggja Slóvakíu að velli og eru heimsmeistararnir á leiðinni heim. Það
var ekkert sem benti til þess að Ítalir myndu gera vel á HM en riðill þeirra var talinn svo slakur að þeir
ættu ekki að geta annað en farið upp úr honum.
ciao
ítalía!
Verja ekki titilinn Ítalir
unnu Hm 2006 en eru nú farnir heim.
MyNd AFP
Skelfilegur Daniele De Rossi
átti að leiða Ítala til sigurs í keppninni
en hann gat ekkert. MyNd AFP
ítalir úr leik Kamel Kopunek skorar þriðja mark slóvaka og þar með
voru Ítalir úr leik. MyNd AFP
Óhuggandi Fabio
Quagliarella skoraði eitt mark
en það dugði ekki til. MyNd AFP Ég er alveg hand-viss um að hafa ekki
skilið neinn stórkostlegan
leikmann eftir heima.