Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Page 8
8 fréttir 7. júlí 2010 miðvikudagur MP BANKI SELDI LÍKA BRÉF SÍN TIL EXETER Ákæra sérstaks saksóknara í Exeter-málinu sýnir fram á samráð Byrs og MP Banka í málinu. MP fékk bæði greitt upp í skuldir Byrsmanna og losnaði við eigin bréf í viðskiptunum. Ekki stendur til að ákæra Margeir Pétursson í málinu. Forstjórar Byrs og MP Banka og stjórnarformaður Byrs eru ákærðir. Þátt- ur MP Banka er meiri en legið hefur fyrir hingað til. Þremenningarnir eiga yfir höfði sér tveggja til fjögurra ára fangelsi. Þeir neita sök. MP Banki seldi um 120 milljón stofnfjárhluti í sparisjóðnum Byr inn í eignarhaldsfélagið Tækniset- ur Arkea, Exeter Holdings, á sama tíma og stjórnendur og starfs- menn Byrs. Þetta kemur fram í ákæru gegn fyrrverandi forstjóra MP Banka, Styrmi Bragasyni, og fyrrverandi sparisjóðsstjóra og stjórnarformanni Byrs, Ragnari Z. Guðjónssyni og Jóni Þorsteini Jónssyni, sem þingfest var fyrir héraðsdómi á þriðjudag. Þremenningarnir neituðu allir sök. Málinu var frestað til 30. sept- ember næstkomandi. Þremenningarnir eru allir ákærðir fyrir umboðssvik og Styrmir auk þess fyrir peninga- þvætti en niðurstaða sérstaks sak- sóknara er að Jón og Ragnar hafi misnotað aðstöðu sína hjá Byr og stefnt fé sparisjóðsins í stórfellda hættu í viðskiptunum. Tæknisetur Arkea fékk um 400 milljónir króna að láni frá Byr til að kaupa bréfin af MP Banka. Áhættan af kaup- um stofnfjárbréfanna fór því af MP Banka og yfir á Byr. Það er meðal annars vegna þessara viðskipta með bréf í Byr sem voru í eigu MP Banka sem Styrmir Bragason er einnig ákærð- ur í málinu. Fyrir hefur legið frá því Exeter-málið kom fyrst upp í fyrra að Jón Þorsteinn, Ragnar og fleiri starfsmenn Byrs hafi selt bréf sín í sparisjóðnum vegna þess að MP Banki hótaði að gjaldfella lán- in. Þessi angi Exeter-málsins, að MP Banki hafi einnig selt bréf sem voru í eigu bankans inn í Exeter til að losna við tjónsáhættu af bréf- unum, setur málið hins vegar í annað samhengi. MP Banki græddi á tvenns konar hátt Þar sem stjórnendur og starfs- menn Byrs seldu bréf sín inn í Exeter Holding með lánveitingu frá Byr til að geta staðið í skilum við MP Banka, og þar sem MP Banki seldi bréf sín í Byr til að losa Byr við áhættuna af því að eiga bréfin, verður ekki annað séð en að MP Banki hafi verið sá aðili sem græddi hvað mest á viðskipt- unum. Í ákærunni er tekið fram að lán- ið út úr Byr til að kaupa stofnfjár- bréfin af starfsmönnum og stjórn- endum Byrs í tveimur hlutum hafi í heildina verið um 600 milljónir króna. Auk þess keypti Arkea bréf- in af MP Banka fyrir um 400 millj- ónir króna. Samanlagt námu þeir fjármunir sem runnu til MP Banka út af viðskiptunum með stofn- fjárbréf í Byr sem orðin voru lítils virði því um 800 milljónum króna. Þessir fjármunir komu allir frá Byr. Með þessum hætti færðist tjónsáhætta af hlutabréfaeigninni í Byr sem og lánunum til starfs- manna Byrs alfarið yfir á MP Banka. Um þetta segir í ákærunni: „Þá seldi MP Banki Tæknisetrinu Arkea einnig 119.244.757 stofn- fjárhluti í Byr sparisjóði í þessum viðskiptum og voru kaupin fjár- mögnuð á sama hátt með yfir- dráttaláni Byrs sparisjóðs. Með þessu var tjónsáhættu MP Bank- anna vegna lánanna komið yfir á Byr sparisjóð.“ Af þessum sökum er það tekið fram í ákærunni að embætti sér- staks saksóknara telji að Styrm- ir hafi tekið þátt í umboðssvikum Jóns Þorsteins og Ragnars þar sem hann hafi bæði komið að kaupum bréfanna frá stjórnendum Byrs og að kaupunum á Byrsbréfunum frá MP Banka. Einnig telur embætt- ið að Styrmir hafi gerst sekur um peningaþvætti með því að taka við peningum sem var aflað með ólögmætum hætti, það er að segja með umboðssvikum. Margeir ekki í sigtinu Athygli vekur að stjórnarformaður og aðaleigandi MP Banka, Margeir Pétursson, er ekki nefndur á nafn í ákærunni. Heimildir DV herma að emb- ætti sérstaks saksóknara hafi rætt við Margeir þegar málið var rann- sakað. Staða hans hafi hins verið metin sem svo að ekki hafi verið tilefni til að ákæra Margeir, sam- kvæmt heimildum DV, og að afar ólíklegt sé að það verði gert. Þáttur Mar geirs í Exeter-málinu mun því væntanlega verða ljós- ari við málflutning í héraðsdómi. Afar ólíklegt er þó að MP Banki hafi tekið þátt í Exeter-við- skiptunum án vilja og vitundar Margeirs. Ef svo hefði verið hefði Styrmir væntan- lega skipulagt Exeter-viðskiptin einn af hálfu þeirra MP-manna. Í viðtali við DV í fyrra sagði Margeir um aðkomu MP Banka að viðskiptunum: „Ég staðfesti að við höfðum milligöngu um þessi viðskipti og að þau voru boðin með fjármögnun,“ en annað vildi Margeir ekki láta hafa eftir sér um málið. Samkvæmt heimildum DV metur ákæruvaldið Exeter-málið sem svo að ekki verði gefnar út fleiri ákærur í því og að embættið hafi náð nokkuð vel utan um það. Ef þremenningarnir verða dæmd- ir brotlegir í málinu geta umboðs- svikin varðað tveggja til sex ára fangelsi og meint peningaþvætti Styrmis varðað tveggja til fjögurra ára fangelsi. Auk þess eru þremenningarn- ir dæmdir til að greiða Byr til baka þær rúmlega 1.000 milljónir króna sem runnu út úr Byr í Exeter-við- skiptunum. Þar af eru þeir krafðir um greiðslu 800 milljóna, óskipt til Byrs, og eru Ragnar og Jón Þor- steinn krafðir sérstaklega um rúm- lega 200 milljónirnar sem fóru í að kaupa bréfin af Birgi Ómari. ingi f. vilhjálMsson fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is MP Banki seldi líka bréf StyrmirBragason,fyrrverandiforstjóriMPBanka,er einnákærðuíExeterHoldings-málinuásamtJóniÞorsteiniJónssyniogRagnari Z.Guðjónssyni,æðstustjórnendumByrs.StyrmirogJónÞorsteinnsjásthérí HéraðsdómiReykjavíkuráþriðjudagásamtlögmönnumsínum.Þeirneituðuallir sök. Með þessu var tjónsáhættu MP Bankanna vegna lánanna komið yfir á Byr sparisjóð. Margeir sagði Exeter óviðkomandi MP Banka: n„FyrirhöndMPBankamótmæliégþvíaðreyntséaðdragabankanninnídeilu- málsemvirðistkomiðuppvegnalánveitingarstjórnarByrsvegnaeiginstofnfjár- bréfa.ÞettavargertíviðtaliviðtvostofnfjáreigenduríByríKastljósiSjónvarpsinsá þriðjudagskvöldogendurtekiðáopnumfundisömuaðilaíReykjavíkígær. nTekiðskalframaðMPBankivarmeðfullnægjanditryggingarvegnalánasem veittvoruásínumtímatilkaupaábréfumíByrogfengustþaulánuppgerðí kjölfarveðkalla.ÞarmeðlaukafskiptumMPBankaafþessumáli.MPBankigetur ekkitekiðábyrgðáþvímeðhvaðahættiveðköllumvarmætt,endahefurbankinn ekkertumþaðaðsegja. nVegnayfirlýsingarsembirthefurveriðfráþremurstjórnarmönnumíByrvegna þessamálsskaltekiðframaðfélöginTækniseturArkeaogExeterHoldingseruMP Bankameðölluóviðkomandi. StaðhæfingarmeirihlutastjórnarByrsumeignarhald MPBankaáþessumfélögumeruósannar. MPBankihefurekkiveittþeimneinar ábyrgðiroghefurekkiánokkurnháttkomiðaðlánaumsóknumþeirraíByr. AðaleigandifélagannasagðisigúrstjórnMPBankasumarið2008þegarhann stofnaðieigiðverðbréfafyrirtæki,semtengistMPBankaáenganhátt.“Margeir Pétursson,stjórnarformaðurogaðaleigandiMPBanka,íyfirlýsingusemhannsendi fráséríaprílífyrraíkjölfarfréttaflutningsDVumExeter-málið.Samkvæmtþessu hefurMargeirþvívæntanlegaekkivitaðumExeterHoldings-málið. Samráð „GengiástofnfjárbréfunumsemþannigvoruseldTæknisetrinu Arkea,meðumræddrifjármögnunByrssparisjóðs,varákveðið meðsamráðiákærðuJónsÞorsteinsogRagnarsZophoníasar ogmeðákærðaStyrmisÞórs,semþávarframkvæmdastjóri MPBankaogvarnægjanlegahátttilaðumræddlánMPBanka tilákærðaJónsÞorsteinsogeinkahlutafélagsinsHúnahorns, semákærðiRagnarZophonías,áttiaðhlutayrðugreiddað fullu.“ÚrákærunniíExeter-málinu. fyrstu ákærurnar Ákærurnarí Exeter-málinueruþærfyrstusem embættisérstakssaksóknaragefurút eftirefnahagshrunið.ÓlafurHauksson gegnirembættisérstakssaksóknara. fréttir dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 31. mars 2009 dagblaðið v ísir 54. tbl. – 99. árg. – ver ð kr. 347 LeigUbíLstjó ri sakaðUr Um mannrán Dularfull viðskip ti með stofnfjárh luti: STJoRNENDUR BYRS SÆTA RANNSoKN Ævintýraeg gið frá freyjU er best n matgÆðinga r dv smökkU ðU öLL páska eggin neytendUr n LÆsti eLdri m ann inni í bíL nUm n sparissjóðs stjórinn tiL rannsóknar n fjármáLaeft irLitið kaLLa r eftir töLvU póstUm n byr Lánaði 1 ,4 miLLjarða vegna stofn fjárbréfa n Lánaði féLag i sem keypti b réf stjórnen da byrs n mp banki gja LdfeLLdi Lán og gerði veð kaLL metUr sönginn meira en stjórn- máLin fóLk n geir óLafs va r hvattUr í fra mboð bankamaðU r grÆddi á vat ni Undir jökLi fréttir dv gefUr páskaegg Dv 30. mars F yrstafréttin ummáliðbirti stíDVímars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.