Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Síða 14
Banna BPa
í Pela
Danir hafa nú bannað að nota efn-
ið BPA í pela og aðrar vörur ætlaðar
ungbörnum. Neytendasamtökin
á Íslandi hafa lengi barist fyrir því
að þetta efni verði bannað en hafa
ekki haft erindi sem erfiði hing-
að til. Samtökin beina þó þeim
tilmælum til fólks að hafa augun
opin þegar það kaupir pela eða
aðrar vörur ætlaðar ungbörnum
að þær innihaldi ekki BPA. Sumir
framleiðendur merkja það sérstak-
lega.
Okur á írskum
dögum
n Ung kona fór á dögunum á Írska
daga á Akranesi. Á netinu er aug-
lýst að nótt á tjaldsvæðinu kosti 400
krónur fyrir hvert tjald og 300 krónur
fyrir hvern fullorðinn. Þetta reyndist
þó ekki vera raunin, því verðið var
þá komið upp í 1.500 krónur á tjald
og 1.200 krónur fyrir hvern fullorð-
inn. Fjölskylda með tveimur full-
orðnum hefði því þurft
að borga 11.700 krónur
fyrir tjaldstæði þá þrjá
daga sem hátíðin stóð.
Ekki er tekið fram á
netinu að verðskráin
breytist á meðan á hátíðinni
stendur.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Ódýrar túttur
n Lofið fær útsölumarkaðurinn Gula
húsið í Faxafeni. Viðskipta-
vinur sem fór þangað var í
skýjunum með að hafa feng-
ið gúmmítúttur (lág stíg-
vél) á innan við 1.000
krónur. Hún sagði mik-
ið úrval vera þar af vör-
um á góðu verði.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is 7. júlí 2010 miðvikudagur
Hinar svokölluðu sumarútsölur byrj-
uðu flestar í síðustu viku. Í árferði sem
þessu er vissulega búbót að geta keypt
föt og aðrar nauðsynjavörur á lækk-
uðu verði. Á sumarútsölum eru flest-
ar búðir að losa sig við sumarlínuna
sína en þó að fæstir séu að leita að
sumarfötum þýðir það ekki að maður
geti ekki gert góð kaup. Mikilvægt er
að hafa augun opin fyrir vörum sem
duga manni lengur en rétt yfir sumar-
mánuðina – til dæmis fötum á börn-
in, skóm, útivistarfatnaði, stígvélum
og ýmsu öðru sem hægt er að nota
allan ársins hring. Einnig er gott fyrir
þá sem stunda líkamsrækt að leita að
ódýrari leikfimifötum og skóm. Blaða-
maður DV fór ásamt ljósmyndara og
kannaði útsölur bæjarins og hvar væri
hægt að gera bestu kaupin. Þar sem
búðir eru í mismunandi verðflokk-
um er erfitt að meta hvar besta útsal-
an er en fólk verður að meta hvort það
vill kaupa merkjavöru á góðu verði
eða ódýra vöru sem kannski dugar í
skemmri tíma.
ekki útsölur í öllum búðum
Í Kringlunni og Smáralind voru útsöl-
ur í flestum búðum. Þó ekki öllum og
verður það að teljast frekar lélegt þar
sem verslunarmiðstöðvarnar auglýsa
að útsölur séu byrjaðar og fólk telur
þá að það eigi við um allar búðir sem
þar eru. Hins vegar fengust þær upp-
lýsingar í flestum þeim búðum þar
sem útsölur voru ekki að þær myndu
hefjast seinna í þessari viku eða þeirri
næstu. Þó voru einhverjar búðir þar
sem ekki verða sumarútsölur. Til
dæmis Intersport.
Í miðbænum eru útsölur hafnar í
mörgum búðum en þó ekki öllum. Þar
er öðruvísi farið þar sem búðir hafa
meira frelsi og hefja útsölur á þeim
tíma sem þeim hentar. Hjá Kringlunni
og Smáralind fengust þær upplýsing-
ar að útsölur stæðu fram í byrjun ág-
úst en þó koma nýjar vörur inn fyrr og
í flestum búðum voru nú þegar bæði
nýjar vörur og útsöluvörur.
Úrvalið gott
Úrvalið á útsölum bæjarins er nokkuð
gott. Í sumum búðum voru þó sumar-
föt mest áberandi en á flestum stöð-
um var hægt að finna inn á milli föt
sem duga allan ársins hring. Vegna
árstímans er samt ljóst að ekki er mik-
ið um hlýjar yfirhafnir, peysur eða
annað í þeim dúr.
Hins vegar var hægt að gera góð
kaup á íþrótta- og útivistarfötum. Í
Útilíf var 30-70 prósenta afsláttur af
stórum hluta varanna. Þar var hægt
að fá hágæðaíþróttamerki á töluvert
lækkuðu verði og tilvalið fyrir íþrótta-
garpa landsins að nýta sér það. Eins
voru góðar útivistarvörur með mikl-
um afslætti og einnig voru reiðhjól
með 25 prósenta afslætti. Hjól duga
lengi og því sniðugt að festa kaup á
einu slíku á lækkuðu verði.
Góðar herraútsölur
Víða var hægt að fá herraföt á góðu
verði og þau voru ekki jafnáberandi
sumarleg og kvenfötin. Það kannski
skýrist af því að karlmenn eru yfir-
leitt hefðbundnari í fatavali og því
eru sumarlínur herrafata yfirleitt ekki
jafnlitríkar og kvenmannssumarlín-
urnar. Í Dressmann er 3 fyrir 2 af öll-
um sumarvörum. Þar var hægt að fá
góða boli, skyrtur og ýmislegt fleira
sem ætti að geta nýst lengur en aðeins
yfir sumartímann. Þar var líka ótrúlegt
gallabuxnatilboð, tvennar gallabuxur
á 6.990 krónur. Það er ábyggilega með
betri „dílum“ sem karlmenn geta gert
í buxnakaupum. Einnig var mjög gott
úrval í Herragarðinum og þar var allt í
búðinni á 40 prósenta afslætti. Herra-
garðurinn býður upp á merkjavörur
og leggur mikið upp úr gæðum. Þar
er því hægt að fá merkjavöru á lægra
verði en vanalega og yfirleitt duga
þannig vörur lengur en þær sem ódýr-
ari eru. Það hentar því einstaklega vel
fyrir þá herra sem kaupa sér sjald-
an föt en vilja gæði. Í Sautján var líka
hægt að gera góð kaup á herravörum,
dýrari merki voru með 40 prósenta
afslætti og ódýrari vörur með þrjátíu
prósenta afslætti. Þetta gilti bæði um
dömu- og herravörur.
kjólar á góðu verði
Það var líka hægt að gera góð kaup á
kvenmannsvörum. Útsölurnar voru
misjafnar og í flestum búðum voru
líka komnar nýjar vörur. Það er gott
sölutrikk því oft vill það verða þannig
að fólk velur frekar nýju vörurnar sem
eru fallega uppstilltar heldur en út-
söluvörurnar sem eru oft á troðnum
rekkum eða borðum og virka minna
aðlaðandi. Það er þó um að gera að
gefa sér tíma til að róta því maður get-
ur gert mjög góð kaup. Áberandi á
sumarútsölunum voru kjólar og létt-
ari klæðnaður en inn á milli var hægt
að finna föt sem duga hversdags. Í Ev-
ans var gott úrval af fatnaði fyrir kon-
ur í stærri stærðum og einnig var hægt
Bestu útsölurnar
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar: viktoria@dv.is
n Vöruskil á útsölu
Ef vara er keypt skömmu áður en útsalan hefst eða innan við 14 dögum fyrir
upphaf útsölunnar á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt
verð nema seljandi samþykki. Það getur reynt á þetta varðandi jólagjafir ef gjöfin
er keypt skömmu fyrir jól og útsalan hefst strax eftir jólin. Þá er rétt að hafa í huga
að kaupandinn á rétt á inneignarnótu sem miðast við upprunalegt verð vörunnar.
Í sumum tilvikum getur verið heppilegra að þiggja inneignarnótuna og koma
aftur í verslunina þegar útsölunni er lokið. Inneignarnótu sem gefin er út innan 14
daga fyrir útsölu eða á meðan útsala stendur yfir er ekki heimilt að nota á útsölu
nema með samþykki seljanda.
Gjafabréf eiga að gilda á útsölu rétt eins og um peninga væri að ræða.
(Tekið af vef Neytendasamtakanna www.ena.is)
skilaréttur á útsölu
kjóll 3 smárar :
Verð áður: 9.590 kr.
Verð nú: 4.795 kr.
Bolur/kjóll Zara: Verð áður 8.995 kr.
Verð nú: 3.995 kr.
skólatöskur Í Office1
er góð útsala á skóla-
töskum. Þær eru núna
á 1.500- 2.500 krónur.
myndir siGtryGGur ari