Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Síða 17
miðvikudagur 7. júlí 2010 erlent 17 Rifrildi við bílalúgu á veitingastað McDonald’s í suðurhluta Finnlands lauk með skothríð sem kostaði þrjá lífið, að sögn finnsku lögreglunnar í Porvoo, borg á suðurströnd Finn- lands, um fimmtíu kílómetra austur af Helsinki, höfuðborg landsins. Pet- er Fagerholm, rannsóknarlögreglu- maður í Porvoo, sagði að þrír hefðu verið handteknir vegna málsins og þeir hefðu allir verið í sama bíln- um. Rifrildið upphófst milli fólks sem beið í biðröð í bifreiðum sín- um við McDonald’s-veitingastaðinn um klukkan tvö eftir miðnætti, sagði Fagerholm. Skotum var hleypt af úr Toyota-jeppa inn í blæjubíl sem ekið var af þungaðri konu með fjóra farþega. Tveir farþeganna, karl- menn á aldrinum 28 og 45 ára, lét- ust á staðnum. Þriðji farþeginn, 28 ára karlmaður, lést síðdegis í gær af sárum sínum á sjúkrahúsi í Hels- inki, að sögn Fagerholms. Tveir karl- mannanna voru skotnir í höfuðið en sá þriðji í bringuna. Í Toyota-bílnum voru ein kona og tveir karlmenn og er annar karl- mannanna sérstaklega grunaður um verknaðinn. Fagerholm sagði að karlmaðurinn sem um ræðir væri fjörutíu og eins árs og hefði árið 1995 verið dæmdur til lífstíðarfang- elsis eftir að hafa verið sakfelldur fyrir eitt morð og tvær morðtilraunir. Ekkert er vitað um ástæður þess að rifrildið upphófst. Mannskætt rifrildi við McDonald’s-stað í Finnlandi: Þrír skotnir til bana Umræða um búrku- bann hafin Franska þingið hefur nú til umræðu áform um að banna notkun níkab og búrku á almannafæri. Samkvæmt banninu, ef það nær fram að ganga, er gert ráð fyrir að konur sem brjóta í bága við það verði sektaðar um 150 evrur, sem svarar til tæplega tuttugu og fjögurra þúsunda króna. Karl- menn sem uppvísir verða að því að þvinga eiginkonu eða systur til að ganga með andlitsblæjuna eiga yfir höfði sér strangari refsingu. Þingið mun greiða atkvæði um bannið í september, en það nýtur stuðnings Nicolas Sarkozy forseta og á auknu fylgi að fagna í öðrum hlut- um Evrópu. Femínistar brenna peninga Sænski femínistaflokkurinn, Fem- inistiskt initiativ, brenndi 100.000 sænskar krónur, andvirði 1,6 millj- óna íslenskra króna, til að mótmæla launamisrétti kvenna í Svíþjóð. Í frétt frá fréttastofu AP er haft eftir talsmanni flokksins að féð hafi verið brennt á eynni Gotlandi á þriðjudag og að upphæðin sé táknræn fyrir þá upphæð sem konur landsins verði af á hverri mínútu í samanburði við karlmenn. Formaður flokksins, Gudrun Schyman, sagði að „... það kynni að virðast örvæntingarfullt að brenna 100.000 krónur, en ástandið væri einnig örvæntingarfullt.“ Peningarn- ir sem voru brenndir voru gjöf frá auglýsingastofu. Árið 2008 voru laun kvenna í fullu starfi að meðaltali 19 prósent- um lægri en karla. Dansað í eftirlitsför Hópur ísraelskra hermanna þarf hugsanlega að svara fyrir myndskeið á vefsíðunni Youtube þar sem þeir sjást dansa í fullum bardagaklæðum þar sem þeir eru við eftirlit í Hebron á Vesturbakkanum. Í myndskeiðinu sjást hermenn- irnir, með byssurnar klárar, ganga eftir mannlausri götu og bænir mús- líma enduróma á milli húsveggja. Skyndilega heyrist viðlagið úr laginu Tik Tok með söngkonunni Kesha og hermennirnir stíga dans sem virðist vera þaulæfður. Jafnskyndilega og dansinn hófst lýkur honum og við tekur hefðbund- in eftirlitsferð. Ísraelska hernum var víst lítt skemmt yfir uppátækinu. Lögreglan að störfum við McDon- ald’s Þrír voru drepnir og þrennt er í haldi lögreglunnar. MynD Afp Borga Brúsann sjálFir ard Kouchner utanríkisráðherra vís- aði þeirri gagnrýni til föðurhúsanna. „Enginn hefur verið hundsaður; eng- inn verður það. Við munum ávallt skerast í leikinn til að hjálpa sam- löndum okkar í fjarlægum heims- hornum,“ sagði Kouchner. Engu að síður er það skoðun margra að það sé skylda hins opinbera að veita rík- isborgurum aðstoð í vanda burt séð frá því hvernig til vandans var stofn- að. Stjórnarandstaðan, sem skipuð er jafnaðarmönnum, gekk svo langt að saka ríkisstjórnina um að skaða frelsi fréttamanna með því að gera þá ekki undanþegna ákvæðum laganna. Ríkisstjórnin fullyrti að lögin myndu hvorki bitna á fréttamönnum né fólki sem sinnti neyðaraðstoð, en slík mál yrðu metin hvert fyrir sig. Kouchner sagði að sjálfgefið væri að blaða- menn sem tækju áhættu og hjálpar- starfsfólk nytu verndar. Tíu milljónir evra Tveir franskir blaðamenn hafa nú verið í haldi í Afganistan um hálfs árs skeið og herforinginn Jean-Lou- is Georgelin olli mikilli reiði þeg- ar hann opinberaði að björgun þeirra gæti kostað allt að tíu millj- ónum evra. Georgelin sagðist með opinberuninni hafa viljað höfða til „ábyrgðartilfinningar“. Fjöldi fólks stundar svonefnd jaðarsport og þeim tilheyra frásagn- ir af dirfskufullum afrekum og, á stundum, dramatískum björgunar- aðgerðum. Reglulega vaknar um- ræða um hvort það eigi að falla í hlut hins almenna skattgreiðanda að greiða fyrir ábyrgðarleysi fárra. Þess er skemmst að minnast þeg- ar bandaríska táningsstúlkan Abby Sunderland týndist á hafi úti þeg- ar hún reyndi við heimssiglingu ein síns liðs. Áætlaður kostnaður við björgun hennar nam hundruðum þúsunda evra og því er von að fólk spyrji. Þess má geta að stjórnvöld í öðr- um löndum, þar á meðal í Þýska- landi, hafa gripið til svipaðra að- gerða og Frakkar hyggja á. Í fyrra úrskurðaði þýskur dómstóll að þýsk- ur bakpokaferðalangur sem tekinn hafði verið í gíslingu í Kólumbíu árið 2003 skyldi sjálfur bera kostnaðinn af þyrlubjörgun sinni, en hann nam um 12.000 evrum, sem eru tæpar tvær milljónir króna. n 2010 Hinni sextán ára Abby Sunderland frá Bandaríkjunum var bjargað á Indlandshafi eftir að hún lenti í vandræðum í fyrirhugaðri heims- siglingu sinni. Áætlaður kostnaður vegna björgunarinnar var á annan tug milljóna króna. n 2009 Franski herinn fór í björgunarleið- angur til Adenflóa til að bjarga frönskum gíslum úr haldi sómalískra sjóræningja. n 2008 Sagt var að Frakkar hefðu greitt yfir 700.000 evrur, um 110 milljónir króna, til að koma um 500 ferða- mönnum, sem urðu strandaglópar í Taílandi vegna ólgu í landinu, heim til Frakklands. n 2008 Freigáta var send til að bjarga Yann Elies sem hafði slasast í siglinga- keppni í Suðurhöfum. Kostnaður nam tæpum 100 milljónum. Heimild: The Guardian Bjargað úr nauð franskir sæfarar í haldi sómalískra sjóræningja Frakkar íhuga lög sem hvetja eiga ferðalanga til að tileinka sér ábyrgðartilfinningu. MynD Afp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.