Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Síða 20
Rokkhátíðin Eistnaflug í Neskaupstað hefst á morgun:
Eistnaflug á hærra plani
OrgElandakt í
kristskirkju
Orgelandakt verður haldin hvern
miðvikudag í júlí og ágúst í Dóm-
kirkju Krists konungs í Landa-
koti í Reykjavík (Landakotskirkju).
Andaktin verður haldin í hádeginu,
milli klukkan 12 og 12.30, og fer sú
fyrsta fram í dag. Ýmsir organistar
og tónlistarmenn leika. Aðgangur er
ókeypis og öllum frjáls.
nýr fram-
kvæmdastjóri
ÞjóðlEikhúss
Ari Matthíasson er nýr fram-
kvæmdastjóri Þjóðleikhússins.
Starf framkvæmdastjóra við Þjóð-
leikhúsið var auglýst laust til um-
sóknar í lok maímánaðar og rann
umsóknarfrestur út þann 14.
júní. Tuttugu og fimm umsóknir
bárust. Ari er menntaður leikari,
með BFA-gráðu í leiklist frá Leik-
listarskóla Íslands, MBA-gráðu í
stjórnun og rekstri frá Háskólan-
um í Reykjavík og M.Sc-gráðu í
hagfræði frá Háskóla Íslands. Ari
starfaði sem leikari í fjölda ára
og tók meðal annars þátt í um
fjörutíu uppfærslum í atvinnu-
leikhúsum. Hann hefur einnig
leikið í kvikmyndum og sjónvarpi
og unnið sem leikstjóri, auk þess
að hafa staðið að framleiðslu sýn-
inga og leikhúsrekstri.
söngvaskáld
á gónhól
Söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi
ætla að slá upp tónleikum á Gónhól
á Eyrarbakka næsta föstudagskvöld
klukkan 20.30. Uni og Jón Tryggvi
gáfu bæði út sínar fyrstu sólóplötur í
desember síðastliðnum og leika lög
af þeim á tónleikunum. Aðgangur er
ókeypis. Þess má geta að söngva-
skáldin tvö eru búsett á Eyrarbakka
þessa dagana í listamannaíbúð þar
í bæ. Þar vinna þau að dúettplötu
sem varð að hluta til til á tónleika-
ferð þeirra um Ameríku í vor.
20 fókus 7. júlí 2010 miðvikudagur
Þrjár vikur á tOppnum Þriðja myndin í Toy
Story-kvikmyndabálkinum er enn vinsælasta myndin á Íslandi,
þriðju vikuna í röð. Nú hafa ríflega 31 þúsund manns séð þennan
þriðja hluta um ævintýri Bósa ljósárs, Vidda kúreka og félaga þeirra.
Í öðru sæti á aðsóknarlista kvikmyndahúsanna fyrir síðustu helgi
er The Twilight Saga: Eclipse sem er ný á lista líkt og myndin sem
kemur þar á eftir, Killers. Grown Ups fellur um tvö sæti og situr nú í
því fjórða. A-Team er í fimmta sæti, með ellefu þúsund gesti á þeim
þremur vikum sem hún hefur verið í sýningum.
hvað hEitir lagið?
„Þrátt fyrir alla reiði mína
er ég enn bara rotta í búri.“
Svar: Bullet With Butterfly Wings
Veistu hvað hljómsveitirnar Sólstaf-
ir, Reykjavík!, Dr. Spock, Moment-
um, Sororicide, Kolrassa krókríðandi,
Mínus og Celestine eiga sameiginlegt
fyrir utan að vera þrusugóðar? Þær
spila allar á tónlistarhátíðinni Eistna-
flugi sem haldin verður í Neskaupstað
um helgina. Fyrir hátíðina í ár segj-
ast hátíðarhaldarar svo færa sig á enn
hærra plan en áður og flytja til lands-
ins eitt af flaggskipum þungarokks-
ins, sjálfa Napalm Death. Hin íslensk/
norska sveit Fortíð er einnig væntan-
leg og rjóminn af íslensku þungarokki
eins og það leggur sig.
Tónlistarhátíð er kannski ekki al-
veg rétta orðið yfir Eistnaflug; rokkhá-
tíð á betur við þar sem sú tónlistarteg-
und verður í hávegum sem fyrr. Rokk
í þyngri kantinum er yfirleitt mest
áberandi, en nær allur skali rokktón-
listarinnar er þó spannaður. Hátíðin
stendur frá fimmtudegi til laugardags
og spilar tugur til tylft hljómsveita
hvern dag. Mannfjöldinn í Neskaup-
stað hefur nær tvöfaldast þessa helgi
frá því Eistnaflugið var sett á laggirnar
og er mikið líf og fjör í bænum.
Það stefnir hraðbyri í að það verði
uppselt á hátíðina í líkt og í fyrra og
mun nú öll aðstaða verða bætt enn
frekar. Má nefna að tjaldsvæði verður
afmarkað og verður þar gæsla á öllum
tímum sólarhringsins, gæsla og dyra-
varsla í Egilsbúð verður hert, hljóð-
kerfi og ljósabúnaður bættur enn
frekar og „stuðið, rokkið og skemmt-
unin enn geðveikari en nokkru sinni
áður“, segir á vefsíðu Eistnaflugs.
Miðasala fer fram á midi.is. Miða-
verð er sá skemmtilegi krónufjöldi,
6.666. kristjanh@dv.is
Slamm Engin orð fá betur lýst stemning-
unni á Eistnaflugi en þessi mynd sem tekin
var á hátíðinni í hitteðfyrra.
Nú styttist óðum í Alþjóðlega kvik-
myndahátíð í Reykjavík, en hátíðin
verður haldin dagana 23. september
til 3. október næstkomandi. Dagskrá
hátíðarinnar er í mótun, en búist er
við því að um hundrað kvikmyndir
verði sýndar á hátíðinni í ár. Nú þeg-
ar hafa átján myndir verið staðfestar,
og eru nokkrar afar áhugaverðar þar
á meðal.
Fyrst ber að nefna hina afar
umdeildu dönsku heimildamynd
Armadillo, sem fjallar um stríðið í
Afganistan með algjörlega nýjum
hætti. Myndin var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes nú í vor
og vakti strax mjög hörð viðbrögð. Í
myndinni fylgir leikstjórinn, Janus
Metz, dönsku hermönnunum Mads
og Daniel eftir um Helmand-hérað-
ið, en þeir hafa bækistöðvar í her-
stöðinni Armadillo þar sem hart er
barist við liðsmenn talibana. Smátt
og smátt láta þeir Mads og Daniel
stríðið ná tökum á sér og í kjölfarið
framkvæma þeir hluti sem vakið hafa
hneykslun í Danmörku, bæði meðal
almennings og háttsettra embættis-
og stjórnmálamanna.
Vinterberg og Valdís
Önnur dönsk mynd sem sýnd verð-
ur á RIFF er hin dramatíska Submar-
ino, sem Valdís Óskarsdóttir klippti.
Myndin er eftir Thomas Vinterberg
og var sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín í febrúar þar sem hún tók þátt
í keppninni um Gullbjörninn. Vint-
erberg leikstýrði meðal annars hinni
rómuðu Festen sem Valdís klippti
einnig.
Submarino segir frá tveim-
ur bræðrum sem gengu í gegnum
mikla erfiðleika á æskuárunum.
Ungir að árum voru þeir skildir að
í kjölfar mikils áfalls sem reið yfir
fjölskylduna. Í dag er annar þeirra
ofbeldishneigður og langt leiddur
áfengissjúklingur á meðan hinn er
einstæður faðir sem glímir við eit-
urlyfjafíkn um leið og hann reyn-
ir að framfleyta syni sínum. Þegar
þeir bræður hittast svo eftir langan
aðskilnað er ljóst að einhvers konar
uppgjör mun eiga sér stað. En upp-
gjör við hvað?
Verðlaunamynd og sálareldhús
Verðlaunamyndin R er ein danska
myndin sem sýnd verður á RIFF.
Þar er á ferðinni frumraun þeirra
Tobias Lindholm og Michaels Noer,
en myndin hefur slegið rækilega í
gegn og hlaut meðal annars verð-
laun sem besta norræna myndin
á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg
fyrr á þessu ári. Myndin segir frá
ungum manni sem lendir í fangelsi
eftir að hafa framið alvarlega lík-
amsárás. Hann hefur mikið sjálfs-
traust og lítur vel út en þarf að taka
á öllu sínu til þess að lifa af í einu
harðskeyttasta fangelsi Danmerk-
ur. Þar kynnist hann líka ungum
múslima sem á eftir að hafa mikil
áhrif á líf hans innan múra fangels-
isins.
Meðal annarra mynda má nefna
Soul Kitchen eftir þýska leikstjór-
ann Fatih Akin en myndir hans
hafa verið sýndar á fyrri hátíðum,
heimildamyndirnar The Genius
and the Boy eftir sænska leikstjór-
ann Geniet Och, og Good Fortune
eftir Landon Van frá Bandaríkjun-
um.
Ný heimasíða
Eins og greint var frá fyrir skömmu
mun Cameron Bailey, stjórnandi Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Toronto, sitja í dómnefnd RIFF-há-
tíðarinnar í ár. Mikill fengur þykir í
komu Baileys hingað til lands, enda
hefur hróður Toronto-hátíðarinnar
vaxið mjög á undanförnum árum.
Loks má geta þess að ný heima-
síða Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar
í Reykjavík er komin í loftið, en hana
má sjá á riff.is. Þar má finna upplýs-
ingar um hátíðina af ýmsu tagi, en
ítarleg dagskrá hátíðarinnar verður
birt þar þegar nær dregur.
kristjanh@dv.is
mynd að kOmast
á riff-hátíðina
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, er óðum að taka á sig mynd þetta árið.
Átján myndir hafa verið staðfestar, þar á meðal hin umdeilda heimildamynd Arma dillo
sem sýnir danska hermenn í Afganistan gera hluti sem ekki þykja til eftirbreytni.
Armadillo Sumt af því sem sést í
heimildamynd Janus Metz um her-
menn í Afganistan hefur hneykslað
marga. MYND LArS Skree