Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 26
Landsliðshetjan Aron Pálmars-
son heldur upp á tvítugsafmæli
sitt með pompi og prakt á föstu-
daginn kemur. Það er þó ekki
bara stórafmæli sem Aron heldur
upp á því veislan ber yfirskrift-
ina afmælis-, Evrópumeistara-,
Þýskalandsmeistara-, nýliða-
veisla. Aron varð nefnilega
Þýskalandsmeistari og sigraði í
Meistaradeild Evrópu með liði
sínu Kiel í vetur. Þá var hann
auk þess valinn nýliði ársins í
deildinni. Veislan mikla verður
haldin á Hverfisbarnum og hefur
handboltasjarmörinn ungi boðið
fjöldanum öllum af fólki til þess
að fagna með sér. Þar á meðal eru
margir þjóðþekktir Íslendingar.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra var með töflufund á
Hrafn istu í Reykjavík í gær áður en
leikur Hollands og Úrúgvæ hófst í
undanúrslitum HM í knattspyrnu.
Steingrímur spáði þar í spilin og
útskýrði leikskipulag liðanna, velti
fyrir sér helstu styrkleikum þeirra
og veikleikum og svaraði spurning-
um heimilismanna. Einnig var spáð
í framvinduna og hugsanleg vafa-
atriði í hálfleik og í leikslok.
Leikurinn var sýndur á breið-
tjaldi og horfðu fjölmargir heim-
ilismenn á rimmuna og hlýddu
á ráðherrann. Var mál manna að
Steingrímur hefði staðið sig fram-
úrskarandi vel í spekúlasjónunum,
sem ætti svo ekki að koma á óvart
í ljósi þess að hann starfaði sem
íþróttafréttamaður á Ríkissjónvarp-
inu snemma á níunda áratugnum.
Leikurinn endaði með 3:2 sigri Hol-
lands.
Mikill knattspyrnuáhugi er á
Hrafnistu og fjöldi heimilisfólks
hefur ekki misst af einum einasta
leik það sem af er HM. Í dag, mið-
vikudag, verður svo Bjarni Felixson
íþróttafréttamaður með töflufund á
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir undan-
úrslitaleik Spánar og Þýskalands.
kristjanh@dv.is
Aron
fAgnAr
Heimilisfólk á Hrafnistu fékk fótboltafræðslu úr óvæntri átt:
Bergur Ebbi Benediktsson, uppi-
standari og söngvari Sprengju-
hallarinnar, er einlægur að-
dáandi þýska landsliðsins í
fótbolta. Svo mikill reyndar að
prófílmynd hans á fésbókinni er
þjóðfáni Þýskalands. Það ber því
vel í veiði fyrir Berg sem staddur
er í Berlín þessa dagana ásamt
nokkrum uppistöndurum, á
sama tíma og þýska liðið gæti
verið að landa heimsmeistara-
titlinum í knattspyrnu. Eins og
flestum er kunnugt spilar liðið
til undanúrslita við Spánverja á
HM í Suður-Afríku í kvöld. Berg-
ur segist á fésbókarsíðu sinni
ætla að horfa á leikinn á Straße
des 17. Juni, eða 17. stræti, sem
er breiðgata í miðborg Berlínar
þar sem leikir liðsins eru sýndir
á breiðtjaldi.
26 fólkið 7. júlí 2010 miðvikudagur
frægir í fótbolta:
ráðherrA með töflufund
Í boltAnum
Í berlÍn M
agnús Scheving var áberandi
í Úrvalsliði Íslandsdeildar
Amnesty International sem
keppti góðgerðaleik á Akur-
eyri um helgina. Leikurinn var partur af
N1-mótinu í fótbolta þar sem ungir drengir
í fimmta flokki karla öttu kappi. Úrvalsliðið
keppti á móti gömlum kempum úr liði Þórs
og endaði þessi hörkuleikur með jafntefli,
4-4.
Magnús sýndi listir sínar á vellinum en
hann hefur alla tíð verið þekktur fyrir lík-
amlegt atgervi. Fyrst sem þolfimikeppandi
og síðar sem sjálfur Íþróttaálfurinn. Magn-
ús beitti ansi frumlegum aðferðum við að
verjast hornspyrnum auk þess sem hann tók
innköst með heljarstökki.
Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar
voru í liði Amnesty en leikurinn var til styrkt-
ar átaki samtakanna sem kallast Stand Up
United. Aðrir sem skipuðu liðið voru Halla
Gunnarsdóttir fyrirliði, Gísli Örn Garðars-
son, Nína Dögg Filippusdóttir, Þóra Arn-
órsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Börkur Gunn-
arsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G.
Jóhannsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann
Bjarni Kolbeinsson, Davíð Stefánsson, Pétur
Blöndal, Ragnar Bragason, Höskuldur Þór
Þórhallsson og Ari Matthíasson.
mAggi fór
á kostum
Magnús Scheving fór á kostum í góðgerðaleik Íslandsdeildar amnesty international
á n1-mótinu á akureyri um helgina. fjöldinn allur af landsþekktum Íslendingum
var í úrvalsliði amnesty sem keppti á móti gömlum Þórskempum. leikurinn var til
styrktar stand up united átaki amnesty en leikurinn var fjörugur og endaði 4–4.
Alvöruinnkast
Magnús átti ekki
í erfiðleikum
með eitt stykki
heljarstökk.
Magnús Scheving Verst
hornspyrnu á frumlegan hátt
Þóra Arnórsdóttir Sýndi
lipra takta með boltann.
Tekist á Magnús sendir
Sveini Pálssyni léttan tóninn.
Halla Gunnarsdóttir
fyrirliði Er þekkt fyrir
að vera hörð í boltanum.
Spekúlerað Góður rómur var gerður
að rýni ráðherrans í rimmu Hollands og
Úrúgvæ. MYND SiGTrYGGur Ari