Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 13
föstudagur 24. september 2010 fréttir 13 Tónlistarmaðurinn Herbert Guð- mundsson, og fyrrverandi eigin- kona hans, Svala Guðbjörg Jóhann- esdóttir, þurftu að svara til saka á föstudaginn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Deilur þeirra við ná- granna fóru þá aftur fyrir dóm. Þessi sama deila hafði áður far- ið á bæði dómstig hérlendis en Hæstiréttur vísaði málinu á endan- um frá vegna slælegs málatilbún- aðar nágrannanna. Deilan nú snýst um eldri kröfu nágranna Herberts í þá veru að hann, ásamt þáverandi konu sinni, greiddi fyrir þakvið- gerðir árið 2005 á nærliggjandi rað- húsum við Prestbakka í Breiðholti. Sjálf höfðu þau gert við eigið þak mörgum árum áður en nágrannar þeirra telja þau skyldug til að greiða líka hluta af viðgerðum annarra raðhúsa í lengjunni. Þegar Herbert og Svala neituðu að greiða fyrir viðgerðir nágrann- anna var þeim stefnt. Héraðsdómur dæmdi þau síðar til að greiða tæpar 4 milljónir króna til húsfélagsins en Hæstiréttur felldi þann úrskurð nið- ur og vísaði málinu frá. Eftir niðurstöðu Hæstaréttar var lögmanni húsfélagsins falið að semja við Herbert eða stefna hon- um á nýjan leik næðust ekki samn- ingar. Í samtali við DV, þegar endur- tekin málshöfðun á hendur honum lá fyrir, sagðist Herbert furðu lost- inn. Hann bendir á að hér sé á ferðinni sama mál og Hæstiréttur hafi þegar vísað frá. „Mér finnst að þetta fólk eigi að hætta þessu rugli og láta mig í friði. Þetta eru orðnar einhverjar furðulegar hvatir,“ sagði Herbert. trausti@dv.is Herberti Guðmundssyni stefnt fyrir dómstóla: Enn og aftur fyrir dóm Herbert Guðmundsson Er enn og aftur kominn í dómsal vegna nágranna- deilu í Breiðholti. VATNSKÓNGI STEFNT FYRIR AÐ BORGA EKKI Vatnsfyrirtæki Kanadamannsins Ottos Roberts Spork, Icelandic Glacier Products ehf., hefur verið stefnt fyrir að borga ekki reikning. Það er röraverksmiðjan Set ehf. sem telur sig eiga rétt á greiðslunni sem nemur 4,5 milljónum króna. Málaferlin voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstu- daginn síðasta. Þar lögðu málsað- ilarnir fram kröfur sínar, annars vegar innheimtukröfu röraverk- smiðjunnar og hins vegar gagn- kröfu vatnsfyrirtækisins. Á sama tíma og Kanadamaðurinn þarf að verjast fyrir íslenskum dómstólum berast fregnir af meintum fjársvik- um hans í heimalandinu. Á fleiri vígstöðvum Líkt og DV hefur áður greint frá hefur verðbréfaeftirlit Ontar- io-fylkis gefið út ákæru á hendur Otto Spork, dóttur hans Natalie, mági hans Dino Ekonomidis og Robert Levack. Fjórmenningarn- ir eru sakaðir um stórfelld fjársvik árin 2007 og 2008 þegar þeir not- uðu fjárfestingarfélagið Sextant Capital Management Inc. og vog- unarsjóði í Kanada og á Caym- an-eyjum til þess að skrúfa upp hlutabréfaverð í fyrirtæki Sporks, áðurnefnt Icelandic Glacier Prod- ucts. Þannig hafi Spork og sam- verkamenn hans verið beggja vegna borðs á meðan fjöldi Kan- adamanna og annarra fjárfesta lagði fé í sjóðina. Talið er að sam- anlagt hafi fjárhæðirnar numið 80 milljónum Kanadadollara eða því sem nemur tæpum 9 milljörðum íslenskra króna. Leiðindamál Þegar DV fjallaði um stefnu kan- adískra yfirvalda á hendur Iceland Glacier Products vakti athygli að heimasíða fyrirtækisins lá niðri og enginn svaraði í síma þess. Snæ- fellsbær á hlut í félaginu og kaup- samningur Sets ehf. var upphaf- lega við bæjarfélagið. Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets ehf., segir málið afar leið- inlegt. „Þetta er leiðindamál allt saman. Í raun er þetta bara hefð- bundin innheimtukrafa af okkar hálfu sem er tilkomin eftir að við afhentum vörur í október sem við höfum ekki fengið greitt fyrir. Um reikninginn er ágreiningur þar sem við fórum fram á hófstillta hækkun vegna gengisfalls sem þeir ekki samþykktu. Af því að við ákváðum að hækka vöruna snéru þeir sér annað en héldu engu að síður vörunum okkar en telja sig samt hafa orðið fyrir tjóni. Við af- hendum vöruna og vonumst bara til að fá þetta greitt,“ segir Berg- steinn. Vongóður verjandi Aðspurður viðurkennir Bergsteinn að dráttur hafi orðið á afhendingu röranna en segir það hafa verið með vitund kaupanda. Bjarni Þór Óskars- son, lögmaður fyrirtækisins, segir deiluna snúast um hvaða verð eigi að greiða fyrir vatnsleiðslurnar og von- ast til að ná um það samkomulagi. Jóhannes Eiríksson, verjandi vatnsfyrirtækisins, er vongóð- ur um að gagnkrafa félagsins nái fram að ganga. „Þetta er í rauninni mjög einfalt mál í sjálfu sér. Set ehf. krefst greiðslu reiknings en við setj- um fram gagnkröfu á hendur þeim. Kröfurnar er mjög svipaðar en gagnkrafan er byggð á því fjárhags- tjóni sem skjólstæðingur minn varð fyrir vegna dráttar á afhendingu. Ég er vongóður og nú er það í höndum dómstólanna að leysa úr,“ segir Jó- hannes. trausti Hafsteinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Röraverksmiðjan Set ehf. hefur stefnt vatnsfyrirtæki Kanada- mannsins ottos spork fyrir að greiða ekki nærri 5 milljón króna reikning vegna lagnakaupa fyrir nýja vatnsverksmiðju á Snæ- fellsnesi. Vatnskóngurinn telur sig aftur á móti eiga svipaða gagn- kröfu vegna fjárhagstjóns vegna dráttar á afhendingu lagnanna. otto spork Mjög umdeilt félag í hans eigu keypti vatnsréttindi til 95 ára úr lindum undir Snæfellsjökli. Vesturvör 30c, Sími 575-1500 Auðvitað máttu borga meira. Þó það nú væri! En þá verðurðu bara að fara annað. Ferð á Kársnesið borgar sig! www.kvikkfix.issko ðaðu! Svona gerum við - fyrir minna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.