Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Page 49
Hönnunarparið Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson er að færa
út kvíarnar með nýrri sokka- og
sokkabuxnalínu frá kron by kron-
kron. Miðað við vinsældir kron by
kronkron skónna ættu sokkabux-
urnar að vekja mikinn fögnuð að-
dáenda þeirra. Innblásturinn er
sóttur í mynstur úr gömlum kross-
saumsdúk sem Magni erfði eftir
ömmu sína. „Þráðurinn í sokka-
buxunum er einstaklega góð-
ur þannig að þær eru silkimjúk-
ar viðkomu og slitsterkar. Þær eru
líka tímalausar. Þær eru ekki eins
litríkar og skórnir. Þær eru í antík-
stíl.“
Talandi um skóna. Skórnir sem
þau hönnuðu í fyrra fyrir franska
hönnunarhúsið Rue du mail eru
nú fáanlegar í verslunum þeirra.
„Vissulega var það mikil lyftistöng
fyrir okkur að vinna með svona
stóru og þekktu merki. Það hef-
ur hjálpað okkur mjög mikið við
að koma nafni kron by kronkron
á kortið,“ segir Magni. Þau voru
líka að senda frá sér nýja skólínu,
haust- og vetrarlínu fyrir veturinn
2010–2011. „Almennt séð er fólk
sem elskar hvert annað hugmynd
að hamingju.“ Svo mælti George
Sand, franskur nítjándu aldar rit-
höfundur. Hún var femínisti sem
kaus að klæðast líkt og karl, skrifa
sem kona og elska hvern þann
sem hún vildi. Hún var allt í senn
hugrökk og nútímaleg.
Aðdáendur kronkron geta nú
farið í ferðalag um tíma og rúm.
Þeim er leyft að upplifa hið
sjarmerandi tímabil 19. ald-
arinnar og enda í suðupott-
inum í hinni stórbrotnu Par-
ís þar sem við njótum hvers
andartaks til hins ýtrasta á
meðan við hittum og döðr-
um við meistara lista og
bókmennta. Stíllinn vek-
ur upp nostalgíu og róm-
antískar tilfinningar, löng-
un og jafnvel þrá. Og aldrei geta
litirnir orðið of margir. Litapall-
ettan dregur þig beint inn í mál-
verk Manets. Skórnir eru eins
og strigi listamannsins þar sem
hann tjáir sig. Útkoman, sýn
hans á lífið, er heillandi og
stundum ögrandi, tjáningar-
rík, raunveruleg og róman-
tísk. Litum er lyft upp á annað og
hærra plan. Þeim er raðað saman
og sameinaðir standa þeir sterkari
en áður. Mismunandi áferð ger-
ir hvern skó að sönnu ævintýri.
Það er svo margt sem hægt er að
kanna. Það mjúka og það harða,
flauel og leður. Rúskinn sem er svo
mjúkt og laust, líkt og gardínurnar
í svefnherbergi Ólympíu. Skórnir
eru einstaklega kvenlegir og mun-
úðarfullir með öllum þessum píf-
um og slaufum. Þeir hafa einnig
sterkari blæ sem gerir þá svo að-
laðandi. Þú gætir jafnvel haldið að
þú hafir orðið ástfangin af þeim,
en raunverulega er þetta þrá.“
FÖSTUDAGUR 24. september 2010 ÚTLIT 49
Ó, svo mjúkt
og dásamlegt
SONIA
RYKIEL
J. MENDEL
ZARA
CHANEL
CHANEL BURBERRY
PRORSUM
SÆVAR KARL
Innblástur að kron by kronkron er sótt-
ur í málverk Manets og svefnherbergi
Ólympíu:
Áhrifin sótt
til Parísar
19. aldar
Stíllinn vekur upp nostalgíu
og rómantískar til-
finningar, löngun og
jafnvel þrá...
Arfur frá ömmu
Sokkarnir eru í
anda krosssaums-
dúks.
Litríkir og margvíslegir Franskur
femínisti, heimsborgarar 19. aldarinn-
ar, listir og rómantík voru innblástur
nýju skólínunnar frá kron.