Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Qupperneq 52
52 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 24. september 2010 FÖSTUDAGUR w w w . d e t o x . i s | d e t o x @ d e t o x . i s | s í m i 5 1 2 8 0 4 0 Jónína Ben íþróttafræðingur og Detoxsérfræðingur. Ráðstefna á Grandhótel 29. september kl. 18:00 - 21:00 Helena missti yfir 40 kíló fyrir 5 árum síðan. Við það öðlaðist hún meiri orku og þrek. Helena mun segja þér frá því hvernig hún fór að því að losa sig við öll þessi kíló og hvernig hún í kjölfarið fékk þann líkama og það líf sem hún í raun og veru vildi. Helena er menntaður hjúkrunarfræðingur, næringarþera- pisti og er nemi í mastersnámi í Klínískri Næringarfræði við háskólann í Kaupmannahöfn. Í dag vinnur Helena á Nordic Clinic í Kaupmannahöfn, en það er læknastofa sem vinnur með Functional Medicin. Jónína fjallar um Detoxmeðferðina og fer yfir helstu lífsstílssjúkdóma og hvernig fólk getur tekið þá í sínar hendur og unnið bug á þeim. Vantar þig meiri orku? Hefurðu reynt alla heimsins megrunarkúra án árangurs? Ertu kominn með leið á að telja kaloríur, lifa á fituskertum mat og vera alltaf með samviskubit og vanlíðan? Ertu að veikjast? Helena Guðmundsdóttir Anna Catherine Færgemann Hvaða fæðu, næringarefni og einstaklingsbundnu þarfir þarft þú að hafa í huga þegar kemur að því að taka upp heilbrigðari lífsstíl? Svörin við þessum spurningum er að finna í kenningunni um Functional Medicine. Anne Catherine Færgemann mun útskýra Functional Medicine og hvernig niðurstöður rannsóknaprufa geta verið áhrifavaldur í að auka skilning á einstaklingsbundnum vandamálum sem snúa að t.d. mataróþoli, yfirþyngd, síðþreytu og skap-og hormónasveiflum. Anne Catherine er klínískur næringar- fræðingur hjá Nordic Clinic í Kaupmannahöfn. Hún hefur starfað hjá Rigshospitalet; virtasta háskólasjúkrahúsi Danmerkur og er að vinna að meistaragráðu sinni í Nutritional Medicine hjá háskólanum í Surrey í Englandi. Þá hefur hún samið fjölmargar bækur um mataræði og heilsu, auk þess sem hún hefur margoft komið fram í dönskum fjölmiðlum sem ráðgjafi á þeim sviðum. Umræða og sátt um hugverkarétt og notkunarrétt á hugbúnaði gerist æ mikilvægari í heiminum. Litlir flokkar hafa víðsvegar sprottið upp til að reyna að hafa áhrif á löggjöf varðandi svokallað ólöglegt niðurhal en vænlegra virðist að hefðbundnir stjórnmálaflokkar taki við og leiði þessi mál til lykta. Þegar Svíar kusu til Evrópu-þingsins í fyrra náði Sjó-ræningjaflokkurinn sænski (Pirat partiet) um 7,1 prósent at- kvæða og fékk á endanum tvo menn kjörna inn á Evrópuþingið. Þetta var stórsigur fyrir flokkinn og forsvars- menn hans gáfu glaðbeittir út yfirlýs- ingar um að fyrst myndu þeir breyta Svíþjóð, síðan Evrópu og loks öllum heiminum. Kynslóðabil Þegar flokkurinn var stofnaður árið 2006 var það einna helst til stuðn- ings deilisíðunni Pirate Bay, síðu þar sem almenningur getur nálgast tengla fyrir ólöglegt niðurhal á tón- list, kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og hugbúnaði. Fyrir flesta Svía var stofnun flokksins og árangur hans í kosningunum hálfgert áfall og merki um ótrúlegt rof á milli kynslóða – annars vegar var hin löghlýðna eldri kynslóð og hinvegar hin nýja net- kynslóð sem hreinlega virtist vilja innleiða lögleysu. Það var skyndi- lega orðið svalt að vera sjóræningi, eða réttara sagt netræningi, og í mörgum öðrum löndum spruttu upp litlir systurflokkar hins sænska sjóræningaflokks. Miklar umræður urðu innan þessara landa í kjölfar- ið um hugverkarétt og notkunarrétt varðandi hugbúnað og má kannski líta á það sem einu jákvæðu afleið- inguna af stofnun þessara flokka. Fallvalt gengi Í landskosningum sem haldnar voru í Svíþjóð síðastliðinn sunnu- dag galt Sjóræningjaflokkurinn algjört afhroð og hlaut aðeins um 0,7 prósent atkvæða. Til að öðlast sæti á sænska þinginu þarf minnst fjögurra prósenta fylgi og héðan í frá virðist ólíkegt að flokkurinn nái nokkurn tímann að stíga yfir þann þröskuld. Sömu sögu er að segja í öðrum löndum, í Þýskalandi hlaut systurflokkurinn aðeins um tvö prósent í kosningum í fyrra og þar eru mörkin fimm prósent til að ná manni inn á þing. Einn flokkur, eitt stefnumál Helsta vandamál þessara flokka er hið afmarkaða stefnumál og hversu erfitt er fyrir kjósendur að líta á þá sem raunhæfan valkost í kosningum. Þannig hafa töluverð- ar deilur verið innan þýska systur- flokksins um hvort að flokkurinn eigi hreinlega að breytast í venju- legan vinstriflokk og innleiða hefð- bundin stefnumál. Annað það sem staðið hefur í vegi fyrir vinsældum er sú ímynd frelsisriddara sem for- svarsmenn þessara flokka sveipa sig. Margir spyrja sig af hverju þeir gangi ekki frekar til liðs við stóru flokkana og berjist þar fyrir stefnu- málum sínum án þess að tengjast með þessum beina hætti við ólög- legt niðurhal. palli@dv.is Sjóræningjar skotnir í bólakaf Rickard Falkvinge Leiðtogi sænska sjóræninjaflokksins (Piratpartiet) á fjölmennum útifundi í Stokkhólmi fyrr á árinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.