Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 54
54 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 24. september 2010 föstudagur
Ökuþórarnir í Formúlu 1 keppa á einni allra
flottustu braut tímabilsins um helgina þegar
þeir þenja vélarnar í Singapúr. Mótið fer fram
að næturlagi í flóðljósum og er brautin
einfaldlega engu lík. mark Webber leiðir
stigamótið en Lewis Hamilton er aðeins
fimm stigum á eftir Ástralanum.
Það þarf hvorki meira né minna en
fimmtán hundruð ljóskastara til að
lýsa upp brautina í Singapúr þar
sem næsta keppni í Formúlu 1 fer
fram. Brautin í Singapúr var tekin í
notkun fyrir tveimur árum en hún
fer fram að næturlagi undir flóð-
ljósum. Það þarf enga smá lýsingu
til að tryggja öryggi ökumanna sem
geysast um götur Singapúr en lýs-
ingin á brautinni er fjórum sinnum
meiri en á knattspyrnuleik. Ástral-
inn Mark Webber leiðir enn stiga-
mótið en aðeins fimm stigum á eftir
honum kemur heimsmeistarinn frá
2008, Lewis Hamilton. Á eftir þeim
kemur svo þriggja manna pakki en
allt getur breyst í nýja skorkerfinu
þar sem 25 stig eru gefin fyrir sigur
og átján stig fyrir annað sætið.
Breytingar á brautinni
Keppnin í Singapúr er götukapp-
akstur og er allur ljósabúnaðurinn
hafður öðrum megin við brautina
til að ökumenn verði ekki áttavillt-
ir skyldu þeir snúast í brautinni.
Ljósin eru í um tíu metra hæð yfir
brautinni, föst í álgrindum, en það
þarf ríflega 110.000 metra af köpl-
um til að tengja allt saman. Forráða-
menn brautarinnar hafa gert nokkr-
ar breytingar á henni fyrir mótið um
helgina en nokkrar kvartanir höfðu
borist, til dæmis um að ójöfnur
væru í brautinni og vildu sum liðin
að nokkrar beygjur yrðu malbikaðar
upp á nýtt.
Hafa því fjórar beygjur verið upp-
færðar og einnig hefur malbikið á
aðreininni að þjónustusvæðinu ver-
ið lækkað um einn sentímetra. Svo
virtist sem einhver mismunur hafi
verið á aðreininni og sjálfri braut-
inni sem keppt er á. Einnig hefur
verið bætt meiri litum í brautina og
hafa veggir verið málaðir í skærum
litum til að auka litadýrðina. Þá hef-
ur verið reist risastór brú sem ber
nafnið Helix en myndatakan þegar
bílarnir þeysast yfir upplýstu brúna
þykir kynngimögnuð.
Eitt erfiðasta mótið
Nóg hefur verið að gerast í her-
búðum Renault að undanförnu en
heimsmeistarinn fyrrverandi Kimi
Raikkonen hefur gefið það út að
hann vilji aka með liðinu á næsta
tímabili. Er ekki víst hvor þyrfti þá
að víkja, Robert Kubica, sem hef-
ur staðið sig frábærlega með liðinu,
eða Rússinn Vitaly Petrov sem hefur
rússneska peningamenn á bak við
sig. Í það minnsta munu þeir klára
tímabilið og segir Pólverjinn Kubica
að mótið í Singapúr sé eitt það erfið-
asta á ári hverju.
„Singapúr er klárlega eitt erf-
iðasta mót ársins. Brautin er mjög
mishæðótt og maður er allan tím-
ann að berjast við bílinn. Það er
bara einn staður þar sem hægt
er að slaka á en það eru tvær sek-
úndur á beinasta kafla brautarinn-
ar. Fyrir utan það er brautin bara
beygja á eftir beygju. Tímasetning
mótsins er líka mjög sérstök. Mótið
er mjög seint þannig að við förum
seint að sofa og vöknum svo síð-
degis til að vera klárir fyrir nætur-
kappasturinn,“ segir Robert Kubica
sem er í áttunda sæti stigamótsins
með 108 stig.
sögulegt upphafsár hjá alonso
Spánverjinn Fernando Alonso sem
ekur í dag fyrir Ferrari átti mjög at-
hyglisverða keppni þegar keppt var
í Singapúr í fyrsta skiptið. Fyrsta
árið, 2008, tók hann sig til og vann
keppnina en með því hóf hann
magnaðan lokasprett þar sem hann
halaði inn helming allra stiga sinna
á árinu í síðustu fjórum keppnum
ársins. Upp komst þó um svindl
Renault-liðsins og var liðstjórinn
Flavio Briatore dæmdur í eilífð-
arbann frá Formúlu 1 sem var þó
dregið til baka.
„Ég er bara að hugsa um mót-
ið í ár,“ sagði hinn geðgóði Alonso
spurður út í fyrstu keppnina. Spán-
verjinn er búinn að koma sér í úr-
valsstöðu með tveimur góðum
keppnum í röð og getur vel gert at-
lögu að sæti á verðlaunapalli og
jafnvel sjálfum titlinum gangi allt
að óskum. „Ég hef unnið þetta mót
áður en það verður erfitt að gera það
aftur. Það þarf auðvitað allt að ganga
upp hjá okkur, sérstaklega með bíl-
inn, ef við ætlum að gera einhverja
hluti. Við Felipe munum allavega
gera okkar besta og vonandi verður
staðan enn betri eftir sunnudaginn,“
sagði Alonso.
ljósadýrðin
í Singapúr
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Ljósadýrð Brautin í
singapúr er engri lík.
mynd rEutErs
Efstu mEnn
1. Lewis Hamilton mcLaren
2. Timo Glock Toyota
3. Fernando Alonso Renault
4. sebastian Vettel Red Bull
5. jenson Button Brawn GP
6. Rubens Barrichello Brawn GP
7. Heikki Kovalainen mcLaren
8. Robert Kubica BmW
ráspóLL
Lewis Hamilton, mcLaren 1:47:891
fLjótastur í Einstökum Hring
fernando alonso, Renault 1:43:891
BrautarmEt
fernando alonso, Renault 1:43:891
fyrri sigurvEgarar
2009 Lewis Hamilton mcLaren
2008 Fernando Alonso Renault
(ný BRAuT)
singapúr 2009
stigakeppni ökumanna
nafn Lið stig
1. mark Webber Red Bull 187
2. Lewis Hamilton mcLaren 182
3. jenson Button mcLaren 165
4. Fernando Alonso Ferrari 164
5. sebastian Vettel Red Bull 163
6. Felipe massa Ferrari 124
7. nico Rosberg mercedes 111
8. Robert Kubica Renault 108
9. michael schumacher mercedes 46
10. Adrian sutil Force India 45
stigakeppni bílasmiða
Lið stig
1. Red Bull 350
2. mcLaren 347
3. Ferrari 290
4. mercedes 158
5. Renault 58
6. Force India 58
7. Williams 47
8. sauber 27
9. Toro Rosso 10
10. Lotus 0
11. Hispania 0
12. Virgin 0
staðan
forystusauðurinn mark
Webber hefur fimm stiga forystu
á Lewis Hamilton.
mynd rEutErs